Vísir - 30.06.1979, Qupperneq 30
Laugardagur 30. júnf 1979.
30
AUGLYSING FRÁ
Heilbrigðiseftirliti rikisins til
framleiðenda og innflytjenda
niðurlagðs lagmetis
Af marggefnu tilefni vill HeiIbrigðíseftirlít
ríkisins benda framleiðendum og innflytjend-
um niðurlagðs lagmetis um allt land á, að þeir
gæti þessað gæði, pökkun og merking umbúða
niðurlagðs innlends og innflutts lagmetis, sem
boðið er til sölu, sé í samræmi við ákvæði
reglugerðar nr. 250/1976 um tilbúning og
dreifingu matvæla og annarra neyslu- og
nauðsynjavara ásamt áorðnum breytingum.
Samkvæmt ákvæðum reglugerðar 250/1976
gerir HeiIbrigðíseftirlit ríkisins eftirfarandi
kröfur um pökkun, geymslu og merkingu um-
búða niðurlagðs lagmetis:
1. Nafn og heimilisfang framleiðanda
eða pökkunarfyrirtækis skal vera
skráð á umbúðirnar.
2. Á umbúðunum skal koma fram, að
um niðurlagt lagmeti sé að ræða.
3. Á pökkunarstað skal skráð á um-
búðirnar dagsetningu pökkunardags
og síðasta söludags, þannig að kaup-
endur sjái nefndar dagsetningar
greinilega.
4. Umbúðirnar skulu eingöngu mynd-
skreyttar í samræmi við innihald.
5. Á umbúðunum skal geta nettó-
þyngdar vörunnar og að auki fisk-
þyngdar, þar sem það á við.
6. Nafns og ákveðins eiginleika vör-
unnar skal getið með greinilegum
bókstöfum svo auðvelt sé fyrir
kaupendur aðtaka eftir þeim, þegar
sala fer fram.
7. Á umbúðirnar skal skráð innihald
vörunnar (innihaldslýsing). Þar
skulu koma fram aðalefni hennar
svo sem fita, prótein, kolvetni, vita-
min og steinefni, upp talin í minnk-
andi magni.
Auk þess skal næringargildi vörunn-
ar gefið upp miðað við 100 gr.
Magns leyfilegra aukefna skal getið
á umbúðum.
8. Á umbúðum niðurlagðs lagmetis
skal standa: „Geymist í kæli (undir
4 gráður O", þar sem litið er á
niðurlagt lagmeti sem viðkvæm
matvæli.
Almennt er talið að niðurlagt lagmeti haf i um
það bil 6 mánaða geymsluþol, sé það geymt í
kæli (undir 4 gr.C), þó vill HeíIbrígðíseftírlít
ríkisins vekja athygli þeirra sem hlut eiga að
máli á þvi að ákvörðun á tímalengd milli
pökkunardags og siðasta söludags verður að
byggjast á geymsluþolsrannsóknum
framkvæmdum af viðurkenndum opinberum
rannsóknaaðilum.
HeíIbrigðiseftirlit ríkisins beinir þeim tilmæl-
um til allra heilbrigðisnefnda að fylgjast náið
með að ofangreindum kröfum sé framfylgt.
Geymið auglýsinguna.
HEILBRIGÐISEFTIRLIT RIKISINS
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns og
sonar, föður okkar og bróður, tengdaföður,
afa og mágs,
Guðmundar Williamssonar og Guðmundar
Guðmundssonar.
Guð blessi ykkur öll.
Freydis Bernharösdóttir,
Þóröur Guömundsson,
Sigriöur Guömundsdóttir,
Arnar Guömundsson,
Guömundur Fannar Þóröarson
Wiliiam Þorsteinsson,
Hóimfriöur Arngrimsdóttir,
Konráö Þ Sigurösson,
Arna Björk Þóröardóttir,
„Langfiestir eru
nýir starfsmenn”
seglr blaOafulltrúl FluglelOa um Dá. sem sagt hefur verið upp
„1 tilefni frétta um aö eldri
starfsmenn Loftleiöa yröu fyrir
baröinuá uppsögnunum I rlkara
mæli en eldri starfsmenn Flug-
félagsins, þá létum viö kanna
þaö mál og I ljós kom aö lang-
flestir þeirra sem nú er sagt upp
eru nýir starfsmenn, þ.e. hafa
hvorki unniö hjá Loftleiöum né
Flugfélaginu”, sagöi Sveinn Sæ-
mundsson, blaöafulltrúi Flug-
leiöa I samtali viö VIsi.
Sveinn sagði aö siöan félögin
voru sameinuö fyrir 5 árum,
hafi fjöldi nýrra manna verið
ráðinnen hreyfing væri mikil og
því heföi starfsmannafjöldi
staöiö I staö.
,,Þaö er þvi ekki rétt aö Loft-
leiöamönnum sé fremur sagt
upp en Flugfélagsmönnum”
sagði Sveinn.
-IJ
Tómas Arnason, fjármálaráöherra (t.h.) tekur á móti mótmælaskjalinu. Vfsismynd: GVA
„VEBMJAL0 VERBI
70% BENSlNVERBS”
- mðtmæll blfrelðaelgenda aihent flármálaráðherra
„Bifreiöaeigendur skilja tekju-
öflunarþörf rikissjóös til hinna
ýmsu þarfa þjóðfélagsins, en
telja skattlagningu rikisins á ben-
sln og olíur óeölilega og allt of
háa, svo sem sjá má af minnk-
andi hlutdeild vegagjalds I
bensinveröi.”
Svo segir m.a. I mótmælum
Samstarfsnefndar bifreiöaeig-
enda sem I gær voru afhent fjár-
málaráöherra.. t nefndinni eiga
sæti fulltrúar hinna ýmsu félaga
bifreiöaeigenda.
Bendir samstarfsnefndin á aö
1972 var vegagjald 73.1% allra
þeirra tekna sem rikissjóður fékk
af hverjum benslnlltra, en nú er
svo komið aö vegagjaldiö er aö-
eins 41.4%. Minnt er á hversu
mikill sá þjóöhagslegi sparnaöur
er, sem hlýst af varanlegri vega-
gerö, og kemur þar til minni viö-
haldskostnaður vega og ökutækja
en auk þess yfir 20% orkusparn-
aöur.
„Þaö er þvi krafa bifreiöaeig-
enda, að orkuverö til þeirra hækki
ekki aö óþörfu og aö vegagjald
veröi ákveöiö hlutfall tekna rikis-
sjóös af bensin og oliuveröi og
veröi ekki undir 70%”, segir aö
siöustu I mótmælum Samstarfs-
nefndar bifreiöaeigenda.
Kjartan Lárusson, forstjóri Feröaskrifstofunnar, drekkur úr sérlegu
drykkjarhorni, sem stofnunin á. Visismynd: GVA
ÞRJÚ NÝ EDDU-HÓTEL
í
Rekstur Feröaskrifstofu rikis-
ins gekk vel á siöasta ári og skil-
aöi 63ja milljón króna hagnaöi.
Þar varö hagnaöur af rekstri
Eddu-hótelanna, sem nú eru 14, 13
milljónir. Veruleg aukning var I
helstu feröum skrifstofunnar og
sömuleiöis á þeirri þjónustu sem
veitt er erl. feröamönnum.
Þrjú ný Edduhótel bætast viö
nú i ár, aö Flókalundi, Bjarkar-
lundi og Hallormsstaö. Hins veg-
ar er ekki hótelrekstur að
Sælingsdal i ár. öll Edduhótelin
eru nú tekin til starfa og hafa op-
iö fram i ágústlok.
Fleiri hótelferöir veröa I sumar
á vegum Feröaskrifstofu rikisins
en nokkru sinni fyrr, eöa væntan-
lega um 130, og taka 5-15 daga
hver.
Þá má geta þess aö Feröaskrif-
stofan rekur almenna upplýsinga-
og sölustarfsemi fyrir feröamenn
isöluturninum á Lækjartogi og er
opiö þar virka daga frá 8-18 og
laugardaga frá 8-13.
— IJ i
Amar Herberts
sýnlr á Slgló
Arnar Herbertsson listmálari
opnar i dag málverkasýningu i
Gagnfræöaskóla Siglufjaröar.
A sýningunni veröa 30 verk
og er hún opin alla daga frá
klukkan 4 til 10 til 8. júli nema
opnunardaginn frá klukkan 2
til 10. — KS
Dlöðln hækka
Vegna aukins kostnaöar viö
útgáfu dagblaöanna hækkar
verö blaöanna og birtingar-
gjald auglýsinga nú um
mánaðamótin. Frá og meö 1.
júli nk. kostar mánaöaráskrift
blaöanna kr. 3.500, verð þeirra
I lausasölu veröur kr. 180 ein-
takiö og grunnverö auglýsinga
veröur kr. 2.100 hver dálk-
sentimetri.
Vfsisbíö
Visisbió er aö venju klukkan
15 i dag, laugardag, I Hafnar-
bió. Aö þessu sinni veröur
sýnd gamanmynd meö is-
lenskum texta. Hún heitir:
„Fljótt áöur hlánar”.