Vísir - 13.08.1979, Blaðsíða 7
VÍSIR
Mánudagur 13. ágúst 1979.
Umsjún:
Guðmundur
Pétursson
Vonir standa til þess, aö Ut-
breiðsla skógarelda i hæöunum
upp af frönsku rivierunni
(Miöjaröarhafsströndinni) hafi
nú verið heft, en þó má litið Ut af
bera og ekkert hvessa til þess að
bálið blossi upp aftur.
Eldar lékuennþá lausum hala I
morgun hér og hvar I skraufþurru
skóglendinu meðfram ströndinni
frá Cannes til Montpellier, en þar
hafa þúsundir skógarvarða og
slökkviliðsmanna barist við
skógarelda sfðustu fjóra daga.
Eldurinn er sagður hafa farið
yfir lOþúsund hektara svæði milli
Marseilles og St. Tropez. Þar sem
hann hefur verið verstur, logar
enn i glæðum, og eru menn með
öndina i hálsinum af kviða fyrir
þvi, að hægviðrið endist ekki.
Sumarið hefur veriö mjög heitt
og þurrt i álfunni og hafa komiö
upp skógareldar einnig i Portú-
gal, Júgóslaviu og á Spáni. Á
Miðjarðarhafsströnd Frakklands
bætist þar við siðan Mistral-
vindurinn frá N-Afriku og
Sahara.
Sex hús eyðilögðust i meiri-
háttar skógareldi við bæinn
Coimbra I Portúgal, og ein kona
fórst. Um helgina börðust menn
við skógarelda við baðstrandar-
bæinn Cascais vestur af Lissabon.
A noröausturhluta Spánar kom
upp skógareldur á fimmtán km
löngu svæði I Tarragóna.
Hríkaieglr
skógareldar vlð
frðnsku Rivieruna
1000 fórust, begar
stffia brast
Björgunarsveitir grófu i morg-
un i djúpri leðju eftir likum nær
1.000 manna, sem fórust þegar
stifla sprakk og bærinn Morvi i
Gujarat-riki á Indlandi fór á kaf.
Nokkrum minútum eftir að
stiflan brast, færði flóöaldan bæ-
inn i kaf. Greina fréttir frá þvi, að
um 60% húsa i Morvi hafi hrunið,
þegar bærinn var i 4,5 metra
djúpu vatni. — Spjöll urðu einnig i
Lilapur, nærliggjandi þorpi.
Fundist hafa lfk um 250 manna,
en dánartalan er ætluð um 1.000
manns, og tókst þó að koma all-
mörgum burt af versta hættu-
svæðinu. Sjónarvottar segja, að
likin liggi i hrönnum við vegina,
og á einum stað voru um 50 sam-
an i musteri einu. — Fundist hafa
lik 30 lögreglumanna, sem allir
voru að skyldustörfum i Morvi,
þegar flóðaldan skall yfir.
Monsún-rigningarnar hafa
staðið yfir undanfarnar tvær vik-
ur, og sumstaðar, þar sem stiflu-
lónið flæddi yfir, höfðu verið flóð
fyrir.
1 Júgóslaviu hefur oröiö aö
flytja þúsundir ferðamanna burt
af eyjum og sælureitum öðrum
við strönd Adriahafsins, vegna
elda i aspar-skógum, vinviði og
oliu-runnum.
En þessir skógareldar þykja
hégómi i viðmiðun viö skógar-
eldana á frönsku rivierunni, þar
sem ekki hefur komið dropi úr
lofti frá þvi I maimánuði. Fjöldi
ferðamanna, sem slegið höfðu
upp tjöldum við skógarjaðarinn,
varð að taka sig upp og forða sér.
Sumir höfðu ekki tima til þess að
bjarga tjöldunum með sér.
Um 4,000 menn hafa unnið að
slökkvistarfinu og sumir þeirra
ekki tekið sér hvild i fjóra daga
samfleytt.
Kandadiskar sjóflugvélar hafa
verið fengnar til þess að varpa
vatnsförmum yfir logana.
ðeiröir á N.-írlandi
Atök hér og þar — aöallega
milli kaþólskra ungmenna og
hermanna öryggissveitanna —
settu svip sinn á helgina I N-
Irlandi, en nú eru liðin tiu ár frá
þvi breskt herlið var sent til N-
írlands.
1 vesturhluta Belfast fóru nokk-
ur hundruð unglinga um strætin I
gær og grýttu lögreglu og her-
menn, sem hafðir voru til eftirlits
mótmælagöngu um 1.000
stuöningsmanna irska lýðveldis-
hersins (IRA). IRA berst fyrir
þvi, að breski herinn verði á
brott, og að N-lrland sameinist
hinu kaþólska trska lýðveldi I
suöurhluta landsins.
Verstu óeirðirnar urðu við
Andersontown-lögreglustöðina i
Belfast þar sem um 200 ungmenni
söfnuðust saman aö loknum úti-
fundi. Rændu þessir unglingar
strætisvagni og kveiktu i honum
viö lögreglustööina. Eftir um
klukkustundar óeirðir tókst lög-
reglunni að dreifa hópnum. Eftir
það brutust skrilslætin út I þvi aö
grýta lögreglu- og hermenn, hvar
sem þeir sáust i Falls Road--
hverfinu. Það er kaþólskt hverfi
og hefur margoft borið á góma I
óeirðarsögu siðustu tiu ára.
A laugardag dreifðu breskir
hermenn hópi 400 ungmenna, sem
gekk berserksgang i Bogside I
Londonderry. Ungmennin höfðu
safnast saman eftir kröfugöngu
mótmælanda.
Þessar skærur þykja annars
furðulitlar i samanburði við átök
á fyrri afmælum komu breska
hersins til N-Irlands. Alvar-
legustu meiðslin að þessu sinni
hlaut breskur liðsforingi, sem
fékk áverka á höfuöið og varð að
sauma i þaö sautján spor.
Þessi tiu ár, sem breski herinn
hefur verið á N-trlandi, hafa nær
2.000 látiö lífiö i óeiröum, þar af
301 hermaöur.
Sumarleyfisgestir i Márahæðum i suðurhluta Frakklands viröa fyr-
ir sér reykkófið frá skógareldi, sem eyddi skógum á 8.500 hektara
svæði. En á strandlengjunni alla leið frá Cannes til Montpelier geis-
aði eldur i skógum og hefur niburlögum hans ekki veriö ráðið enn.
A
1
ijp m
^ 6»
UTSALAN
HÓFST
í MORGUNj
***#**%<»*
þcrnhard lax^al
^ KJÖRGARDI