Vísir - 13.08.1979, Page 8
8
VÍSIR
Mánudagur 13. ágúst 1979.
Utgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davifl Guðmundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hörður Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaflamenn: Anna Heiður Oddsdóttir, Axel Ammendrup, Friðrik Indriðason,
Gunnar E. Kvaran, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir,
Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður
Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V.
Andrésson, Jens Alexandersson, Þorir Guðmundsson. Otlit og hönnun: Gunnar
Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurflur R. Pétursson.
Auglýsingar og skrifstofur:
Slfiumúla 8. Simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Ritstjórn: Siöumúla 14, simi 86611 7 linur.
Askrift er kr. 3.500 á mánuði
innanlands. Verö i lausasölu
kr. 180 eintakið.
Prentun Blaðaprent h/f
STOÐVUN NORÐMONNUM FYRIR RESTU
Nýjar samningaviOræöur lslendinga og Norömanna gætu auöveldaö norsku stjórninni
að stööva ioönuveiöarnar viö Jan Mayen viö 90 þúsund lesta mörkin, ekki slst þar sem
þeir geta visað fiotanum á Barentshafsmiöin eftir tvodaga.
Fréttir sem bárust um helgina
frá Noregi sýna, að norski veiði-
flotinn við Jan Mayen er þegar
búinn að veiða á milli 60 og 70
þúsund lestir af loðnu og má því
búast við að 90 þúsund lesta
markinu verði náð nú í byrjun
vikunnar.
Engar formlegar viðræður
hafa enn verið ákveðnar milli
norskra og íslenskra stjórnvalda.
Knut Frydeniund, utanríkisráð-
herra Norðmanna, sagði um
helgina að nauðsynlegt væri að
samningar tækjust milli stjórn-
málamanna á íslandi áður en
sendinefnd héðan kæmi til samn-
inga í Osló.
Slíkt væri æskilegast, en engu
að síður gæti það haft veruleg
áhrif í þá átt að veiðarnar við Jan
Mayen yrðu stöðvaðar, að form-
legar samningaviðræður yrðu
teknar upp að nýju milli Norð-
manna og Islendinga. Norska
stjórnin ætti erfitt með að leyfa
sjómönnum sínum að halda
áfram veiðum, ekki síst ef komið
væri fram yfir 90 þúsund lesta
markið, ef viðræðunefndir væru
sestar á rökstóla.
Það myndi auk þess veikja
málstað Norðmanna gagnvart
öðrum hugsanlegum veiðiþjóð-
um, ef þeir færu fram yfir 90
þúsund lesta mörkin, þar sem
þeir viðurkenndu í viðræðunum
við Islendinga, að með tilliti til
skynsamlegrar nýtingar væru
þau mörk eðlileg fyrir norska
veiðif lotann.
Frydenlund, utanríkisráð-
herra, ítrekaði um helgina, að
nauðsynlegt væri að samkomu-
lag næðist við (slendinga áður en
norskir sjómenn hefðu veitt 90
þúsund lestir af loðnu á Jan
Mayen-miðunum, en úr því sem
komið er tekst það varla, þar
sem aðeins tveir eða þrír dagar
eru til stefnu.
Aftur á móti virðist Eyvind
Bolle, sjávarútvegsráðherra,
vera einstrengingslegri en
Frydenlund, þar sem hann sagði í
Osló á laugardaginn, að stöðvun
veiðanna við 90 þúsund tonna
markið, kæmi ekki til greina, né
heldur ákvörðun um bann við
frekari loðnuveiðum frá ákveðn-
um degi.
Tónninn í Bolle gæti breyst, ef
formlegar viðræður yrðu hafnar
að nýju næstu daga, en það getur
á hinn bóginn torveldað sam-
komulag, ef Norðmenn miða ekki
veiðar sínar við margumrædd 90
þúsund tonn.
Einaf röksemdum Norðmanna
fyrir því, að þeir yrðu að hef ja
loðnuveiðarnar við Jan Mayen
svo fljóttsem raun ber vitni var
sú, að þeir þyrftu að skapa fiski-
skipum sínum verkefni fram að
þeim tíma, að loðnuveiðar þeirra
í Barentshafi byrjuðu. Þetta bil
eru þeir nú búnir að brúa og
mega loðnuveiðarnar í Barents-
hafi hef jast eftir tvo daga, mið-
vikudaginn 15. ágúst.
Það ætti því að verða enn auð-
veldara fyrir norsku ríkisstjórn-
ina að stöðva veiðarnar við Jan
Mayen núna, þegar skipin eru að
nálgast 90 þúsund lesta markið,
vegna þess að þeir geta vísað
flotanum á önnur loðnumið, það
er að segja Barentshafsmiðin.
■
1
Jipppantað um
hveria heigi”
- ræll við Sigurbjörgu Elrlksdóllur,
hótelstýru á Laugarvatni
Þaö viröist verafull þörf fyrir
þrjú hótel á Laugarvatni”,
sagöi Sigurbjörg Eiriksdóttir
hótelstýra i Eddu-hótelinu f hús-
mæöraskólanum á Laugarvatni
I samtali viö Visi.
Undanfarin sumur hafa veriö
starfrækt þar þrjú hótel en i
sumar eru þau aöeins tvö, i hús-
mæöraskólanum og i mennta-
skólanum, hvort tveggja
Eddu-hótel.
„Viögetum tekiö ámóti um 50
til 60 manns i einu” sagöi Sigur-
björg,” en hitt hóteliö getur
tekiö i gistingu um 140 manns.
Þaðer rekiöá dálitiö annanhátt
en hér og tekur aðallega á móti
stórum feröamannahópum.”
Sigurbjörgsagöi aö nýtingin á
hótelinu hjá þeim heffii veriö
mjög góö i sumar. Yfirleitt væri
allt upppantaö um helgar.
Útlendingarnir væru fyrr á
ferðinni en Islendingar. Þegar
liöa tæki á sumariö fjölgaöi
islensku gestunum en þeir
kæmu mikiö um helgar.
„Þetta er yfirleitt flest allt
hjónafólk sem kemur hingað og
þá frekar fólk sem hefur komiö
upp sinum börnum. Þaö er li'tiö
um ungt fólk sem stendur i
barneignum og ibúðar-
byggingum”, sagöi Sigurbjörg.
Sigurbjörg Eiriksdóttir, hótelstýra á Eddu-hótelinu I húsmæöra skólanum á Laugarvatni, fyrir framan hóteliö. Visismynd GVA
Af útlendingum eru Þjóö-
verjar i meirihluta en næstir
koma Bandarikjamenn og svo
Noröurlandabúar.
„Hér er mjög góö aöstaöa til
hótelhalds”. sagöi Sigurbjörg.
„Húsakynnin eru góö miðaö viö
skólahús yfirleitt. 011 herbergin
eru meö baöi enda var gert ráö
fyrir þvi aö hér yröi hótel þegar
húsiö var byggt”. 1 hótelinu eru
27 tveggja manna herbergi og
kostar herbergiö 10 þúsund
krónur yfir nóttina. 1 matsal
hótelsins er seldur matur fyrir
almenna feröamenn auk hótel-
gesta og sagöi Sigurbjörg að
þau gætu meö góöu móti tekiö á
móti um 165 matargestum.
Þá er einnig I hótelinu vinbar
fyrir hótelgesti.
— En hvaöa kosti hefur
Laugarvatn sem feröamanna-
staöur?
„Hér er eitt fegursta
umhverfi á landinu þó alltaf
megi deila um slikt. Héöan er
stutt aö fara i ailar áttir til
þekktra staða svo sem á Þing-
velli, Gullfoss og Geysi og til
Skálholts.
Á Laugarvatni er gufubaö
sem fólk sækir mikiö f en þaö er
byggt yfir hver og hér er mjög
góö sundlaug. Þaöer einnig vin-
sælt aö leigja sér bát og róa út á
Laugarvatnið og Apavátn og
veiöa.
Á hótelinu eru 12 starfemenn
og fá þeir ákveöna prósentu af
allri veitingasölu og gistingu.
„Meö þessu móti hefur veriö
unnt að fækka starfcliöi og allir
hafa hagsmuna aö gæta i þvi aö
ekkert fari tíl spillis og aö veita
sem besta þjónustu”, sagði
Sigurbjörg.
—KS