Vísir - 29.08.1979, Blaðsíða 3
VISIR
Miövikudagur 29. ágiist 1979.
DC-8 þota f eigu Flugleiöa.
DC-8 Flugleiða
er á sðlulista
Akveöið hefur veriö aö setja
eina þotu Flugleiöa, DC-8-63, á
sölulista.
„Það hefur ekki veriö tekin
nein ákvöröun enn um sölu, en
segja má að þetta sé eins konar
markaðskönnun”, sagöi Sveinn
Sæmundsson, blaöafulltrúi Flug-
leiða, i samtali við Visi.
Vélin, sem sett verður á sölu-
lista, var smiöuö áriö 1968 og kom
fyrst til Loftleiöa árið 1971, en þá
var geröur um hana kaupleigu-
samningur. Arið 1975 keyptu
Flugleiðir vélina. Hún ber
einkennisstafina TF-FLB.
-KP.
VlöserO tlunnar lokiO:
Hltarör
skemmdl
rallelðslur
Viögerð á DC-10 þotu Flugleiöa
er nú lokiö og fór hún i áætlunar-
flug frá Luxemburg og vestur um
haf i gær.
Þotan hefur verið i Paris i hálf-
an mánuð, en þar fór viðgeröin
fram. Hitarör, sem er efst i stéli
vélarinnar, fór i sundur. Röriö er
hluti af afisingarbúnaði fyrir
vængi vélarinnar.
Rörið skemmdi rafleiðslur i
stélinu og þar sem sams konar
bilun hefur ekki komið fram i þot-
um af þessari gerð, tók viðgerð
lengri tima en ella.
-KP.
Meðvltundar-
laus síðan á
fimmtudag
Tólf ára gamall drengur frá
Siglufirði hefur legið meðvitund-
arlausá gjörgæsludeild Borgar-
spitalans siðan á fimmtudag i sið-
ustu viku, er hann varð fyrir bif-
reið á hjóli sinu og höfuðkúpu-
brotnaði.
Slysið bar að með þeim hætti,
að drengurinn hafði ásamt félaga
sinum verið að hanga aftan i
vörubil, er hann sveigöi skyndi-
lega yfir götuna með þeim afleið-
ingum að hann varð fyrir fólksbil,
sem ók þar um i sömu andrá.
Samkvæmt upplýsingum frá
gjörgæsludeildinni i gær er
drengurinn enn meðvitundarlaus,
en liðan hans þó eitthvað betri.
— Sv.G.
BRAUÐ HÆKKA
IIM 22,5%
Rikisstjórnin hefur staðfest
22,5% meðaltalshækkun á brauð-
um, normalbrauði, maltbrauði,
rúgbrauði, heilhveitibrauði og
franskbrauði. Franskbrauð, sem
i gær kostaði 160 krónur, kostar I
dag 196 krónur.
Ekki liggja fyrir margar hækk-
unarbeiðnir fyrir verðlagsyfir-
völdum.
- SS -
LEMRÉTTING
I spjalli við Jakob Kristjánsson
i Visi i gær, var hann sagður
Kristinsson og leiðréttist það hér
með. Fyrirtæki hans er rekið und-
ir nafninu „Körfugerð Jakobs
Kristjánssonar.
— JM
Stööva tvelr prentarar
útgáfu fjögurra blaða?
3
1
/,Það eru aðeins tveir
starfsmenn Blaðaprents,
sem eru félagar í
Grafiska sveinafélaginu,
en þeir vinna við Ijós-
myndun hvor á sinni
vaktinni. Komi vakta-
vinnubannið til fram-
kvæmda, stöðva þessir
tveir alla vinnu í prent-
smiðjunni og þar með út-
komu dagblaðanna, sem
þar eru unnin", sagði Óð-
inn Rögnvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Blaða-
prents.
Verkfall þessara tveggja
manna á vakta- og yfirvinnu
stöðvar ekki aðeins vinnu 50
starfsmanna Blaðaprents, held-
ur einnig starfsmanna Alþyðu-
blaðsins, Helgarpóstsins, Visis,
Timans og Þjóðviljans, sem öll
eru unnin og prentuð i Blaða-
prenti. Starfslið þessara blaða
er eflaust milli tvö og þrjú
hundruð talsins.
„Eins og útlitið er i dag virðist
stöðvun blasa við, ef verkföll
grafiskra koma til fram-
kvæmda 3. september. Vara-
formaður Grafiska sveinafé-
lagsins hefur verið ráðinn til
starfa i Blaðaprenti og á að
byrja á mánudaginn, einmitt
þegar aðgerðirnar hefjast”,
Stöðvast blaöaútgáfan á mánudag?
sagði Oðinn Rögnvaldsson.
Enn mun ekki fullljóst hvort
útgáfa Dagblaðsins og Morgun-
blaösins muni einnig stöðvast,
en alla-vega ljóst að truflun
hlýtur að verða á útkomu
þeirra.
Deilu Grafiska sveinafélags-
ins og Félags prentiönaðarins
hefur nú verið visað til sátta-
semjara. Grafiskir krefjast
samninga til eins árs og 19%
kauphækkunar á þeim tima i
áföngum. Þeir hafa hins vegar
fengið boð um 3% kauphækkun
strax, en ekki kæmu aðrar
hækkanir á laun fram til ára-
móta. í félagi grafiskra sveina
voru 107 félagsménn um siðustu
áramót.
-SG
10 ástæður fyrír kaupum
á PHILjCO
bvottavélum
<1 t
alt vatn, sem þýðir
tíma og rafmagnsspamað.
2.
Vinduhraði sem er allt að 850 snún/-
mín, flýtir þurrkun ótrúlega.
3.
4 hitastig (32/45/60/90°C), sem henta
öllum þvotti.
4.
Sparnaðarstilling fyrir vatn og raf-
magn.
5.
3 mismunandi hraðar í þvotti og tveir í
vindu, tryggja rétta meðferð þvottar-
Viðuitehnt uHarþvottakerfi.
7. “
Stór þvottabeigur, sem tekur 5 kg. og
stórar dyr er auðvelda hleðslu.
8.
Fjöldi kerfa, sem henta þörfum og þoli
alls þvottar.
9.
Fullkomin viðgerðarþjónusta er ykkar
hagur. ^
10.
Verðið er mun lægra en á sambærileg-
um vélum.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
PHILCO og fallegur
þvottur fara saman.