Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT nýrri greiningu JP Morgan fjárfestingabankans á Ís- lenskri erfðagreiningu og mati á framtíðarmöguleikum fyrirtækis- ins er ÍE talin vænlegur fjárfest- ingakostur og mælt er með kaup- um á núverandi gengi fyrirtækisins, sem í gær stóð í rúmum 6 dollurum á Nasdaq- markaðnum. Fjárfestingabankinn reiknar með að virði ÍE muni ná 300 milljónum dollara á næstu 12 mánuðum og gengi bréfa muni samkvæmt því hækka í 10 dollara á sama tíma. JP Morgan er þriðja al- þjóðlega greiningarfyrirtækið sem tekur ÍE til skoðunar en hin fyr- irtækin eru Lehmann Brothers og Morgan/Stanley. Þá hefur forstjóri Roche sam- stæðunnar, Franz Humer, látið þau orð falla að samstarf fyrirtæk- isins við deCode sé mikilvægasti einstaki þátturinn í framtíðarvexti Roche. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir jákvætt mat JP Morgan vera geysilega mikilvægt fyrir ÍE og sýni fram á, auk ummæla for- stjóra Roche, að Íslensk erfða- greining sé á réttri leið og framtíð- arhorfur séu góðar. Gagnagrunnur á heilbrigð- issviði talinn einstakur JP Morgan mun birta viðamikla greiningu sína á ÍE eftir helgina en samkvæmt helstu niðurstöðum deildar fjárfestingabankans sem sérhæfir sig í líftækniiðnaði, er um mjög jákvætt mat á fyrirtækinu að ræða. Samstarf ÍE við Roche er talið afar mikilvægt og geti skapað verulegar tekjur í framtíðinni, auk þeirra tveggja samninga sem nú eru fyrirliggjandi og gefa ÍE ann- ars vegar 200 milljón dollara í tekjur og hins vegar 5 ára 300 milljón dollara samning, þar sem greiddar séu áfangagreiðslur eftir því sem árangur næst. Í mati bank- ans segir að vilji Roche til að gera annan stóran samning sé vísbend- ing um það vísindalega virði ÍE sem fyrirtækið hafi skapað sér. Jafnframt því telja greiningarað- ilar JP Morgan að margvíslegur tæknilegur styrkleiki ÍE geti notið jákvæðra viðhorfa á markaðnum í framtíðinni, eftir því sem tæknileg geta fyrirtækisins þróast. Bankinn telur að virði ÍE miðað við sam- bærileg líftæknifyrirtæki geti lað- að fjárfesta að fyrirtækinu og virði hlutabréfa verði í efri kantinum miðað við fyrirtæki í líftækniiðnaði. Þá er tæknilegur styrkur fyrirtæk- isins talinn felast í einkaleyfi ÍE til uppbyggingar og reksturs miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði, sem greiningaraðilar telja að geti orðið einstakur á sínu sviði. Einnig eru samningar sem ÍE hefur gert við ýmis samstarfsfyr- irtæki taldir til marks um styrk- leika fyrirtækisins, fjárhagsleg staða ÍE er talin sterk og fyrirtæk- ið hafi búið sér til trausta og arð- vænlega viðskiptaáætlun. Sam- starfið við Roche er talið geta skilað verulegri tekjuaukningu á seinni hluta ársins 2001 og sú tekjuaukning haldi áfram næstu árin. Bankinn telur 11 milljón doll- ara tekjur á fyrri hluta ársins geta meira en tvöfaldast á seinni helm- ingi ársins og árstekjur ÍE á þessu ári geti því numið 35 til 40 millj- ónum dollara. Áhættuþættir sem JP Morgan telur helsta miðað við núverandi ástand eru m.a. þeir að samning- urinn við Roche sé eina helsta tekjulind fyrirtækisins. Geti ÍE ekki staðið við sinn hluta samning- anna er talin hætta á að arðsemi fyrirtækisins minnki verulega og hlutabréf geti þá fallið hratt í verði. Þá telur bankinn upp áhættu- þætti varðandi gagnagrunn á heil- brigðissviði, en verðmæti hans geti minnkað talsvert ef margir Íslend- ingar skrái sig úr grunninum. Hætta geti jafnframt skapast á að samningi við stjórnvöld verði sagt upp eða breytt. Einnig telur bank- inn áhættu felast í þeirri sam- keppni sem ÍE þarf að eiga við sambærileg fyrirtæki. Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, segir það fyrirtækinu geysilega mikils virði að fá svona jákvætt mat. Hann seg- ir það hafa verið helsta gallann við stöðu ÍE í vísindaheiminum að ekki hafi nægilega margir greiningarað- ilar tekið sér fyrir hendur að skrifa um fyrirtækið. „Nú erum við að vinna í því að rétta þann hluta skútunnar af og þetta er afar mik- ilvægt vegna þess að JP Morgan er meðal þýðingarmestu fjárfestinga- fyrirtækja í líftækniiðnaði.“ Nákvæmar spár um tekjur ÍE Bankinn velur sjálfur þau fyr- irtæki sem tekin eru til greiningar og byggir allar spár um tekjur og annað á gögnum sem bankinn aflar sér sjálfur. „Þessir greiningarað- ilar hafa hitt naglann nákvæmlega á höfuðið þegar kemur að þeirra spám, t.d. um okkar tekjur. Þannig að þetta eru tiltölulega miklir fag- aðilar,“ segir Kári. Í síðustu viku birtust á fréttasíðu fjármálavefjar Bloomberg, bloom- berg.com, ummæli Franz Humer, forstjóra Roche samstæðunnar, þar sem hann segir deCode hafa tryggt Roche efnivið í framleiðslu- vörur sem hægt sé að vinna að næstu árin. Hann bætir því jafn- framt við að samstarfið við deCode sé líklega mikilvægasti einstaki þátturinn í framtíðarvexti Roche lyfjafyrirtækisins. Kári segir þessi ummæli for- stjórans um ÍE gífurlega jákvæð, en segist hins vegar ekki sjálfur hafa viðhaft slík ummæli í stöðu Humers, enda setti þetta ÍE í sterkari samningsstöðu næst þegar kæmi að samningum við Roche. „Það er mjög gaman að sjá að þeir sem ráða þessu fyrirtæki, sem við höfum verið í þetta nánu samstarfi við, eru svona ánægðir með þá vinnu sem við höfum unnið. Fyrir það erum við þakklátir og afar ánægðir,“ segir Kári. deCODE jákvæður fjárfestingarkostur samkvæmt nýju mati JP Morgan-fjárfestingabankans Telja virði ÍE geta vaxið í 300 milljónir dollara næsta árið ÁHRIF boðaðs verkfalls sjúkra- liða hjá um tuttugu ríkisstofnun- um víða um land og tveimur sjálfseignarstofnunum – elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík og dvalarheimilinu Ási í Hveragerði – kæmu verst niður á starfsemi Landspítalans – há- skólasjúkrahúss. Fundur deilu- aðila í gær var árangurslaus en fundað verður að nýju kl. 11 í dag. Fyrsta þriggja daga verkfall sjúkraliða hefst 1. október nk. hafi ekki náðst að semja um nýjan kjarasamning sjúkraliða fyrir þann tíma. Um 1.500 sjúkraliðar eru starfandi í landinu en hjá rík- inu tæki verkfallið til um 800 sjúkraliða sem starfa hjá ríkinu. Auk þess hafa um 100 sjúkraliðar sagt upp störfum. Að sögn Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarforstjóra Landspítal- ans –háskólasjúkrahúss, starfa um 550 sjúkraliðar á sjúkrahús- inu. Þar af hafa um 100 sjúkralið- ar sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum og um 130 til viðbótar munu leggja niður störf í verkfallinu. Hinir sem eftir eru munu starfa áfram þrátt fyrir verkfall vegna þess að þeirra störf eru á svokölluðum öryggis- listum sem settir eru saman sam- kvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Þeir sjúkraliðar þurfa m.ö.o. að starfa í verkfalli til að hægt verði að koma í veg fyrir að neyðarástand skap- ist. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur náðst sátt milli Sjúkraliðafélags Íslands og Landspítalans – háskólasjúkra- húss um öryggislistana á sjúkra- húsinu en að sögn Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands, hafa sjúkraliðar ekki samþykkt örygg- islista annarra ríkisstofnana. „Við höfum lýst því yfir að ekki sé hægt að vinna eftir þeirra listum þar sem þeir eru löngu úreltir. Samkvæmt lögum á að uppfæra þessa lista árlega en þeir hafa hins vegar ekki verið uppfærðir frá árinu 1995,“ segir Kristín. Kemur verst niður á lyf- og skurðlækningadeildum Að sögn Önnu Stefánsdóttur má ætla að verkfall sjúkraliða komi hvað verst niður á starfsemi lyf- og skurðlækningadeilda á Landspítalanum – háskólasjúkra- húsi en reiknað hefur verið út að starfsemin þar muni dragast sam- an um 20% komi til verkfalla. Hún segir að sviðsstjórar sjúkrahúss- ins; læknar og hjúkrunarfræðing- ar séu í viðbragðsstöðu vegna verkfallsins en líklega þurfi að loka einhverjum deildum ef til verkfalla kemur. „Ég er ekki á þessari stundu reiðubúin að segja hvaða deildum verði lokað en það mun skýrast þegar nær dregur boðuðu verk- falli,“ sagði Anna í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær. Hún sagði ennfremur aðspurð að búið væri að gera þeim sjúklingum við- vart sem kallaðir hefðu verið í að- gerðir á mánudag því það færi eftir verkfallinu hvort þeir kæm- ust strax í aðgerð eða ekki. Kjaradeila sjúkraliða hjá ríkinu Stjórnendur Landspítala búa sig undir verkfall STÆRSTUR hluti Fosshótels Lind-ar hefur verið opnaður aftur, enhótelið var rýmt í fyrradag eftir að eldur kom upp í djúpsteiking- arpotti á veitingastað á hótelinu. Gist var á fyrstu og annarri hæð hótelsins í nótt en þriðja hæðin var ekki notuð. Ráðgert er að taka sjúkrahótel Rauða krossins, sem er á fjórðu hæð hússins, aftur í notkun á mánudag. Alls eru 56 herbergi á hótelinu og var gist í 30 þeirra í nótt. Rúmlega 100 gestir voru skráðir á hótelið í fyrrinótt þegar eldurinn kom upp, auk þess sem 30 manns voru á sjúkrahóteli Rauða krossins, sem er á fjórðu hæð hússins. Hót- elgestunum var útveguð gisting á Hótel Loftleiðum og Esju í fyrrinótt og var hluti þeirra þar áfram síð- ustu nótt. Ragnar Matthíasson hót- elstjóri segir að ákveðið hafi verið að láta hluta gestanna vera áfram á öðru hóteli. „Fólk vill ekkert vera í óvissu, það vill bara hafa hlutina á hreinu, þannig að við tókum ákvörðun um að gestirnir yrðu þar áfram, þótt við hefðum kannski getað náð að hreinsa allt hótelið í tæka tíð,“ seg- ir Ragnar. Þriðjungur þeirra sem voru á sjúkrahótelinu gistu fyrstu nóttina á Landspítalanum í Fossvogi, eða tíu einstaklingar, og voru tveir þeirra áfram á sjúkrahúsinu í nótt. Bergdís Kristjánsdóttir, for- stöðukona sjúkrahótelsins, segir að hluti gestanna hafi farið til ættingja eða vina og aðrir á hótel. Hún von- ast til að hægt verði að opna hótelið aftur á mánudag, en reykurinn var mestur á fjórðu hæð. Annar þeirra sem dvelja á sjúkrahúsi fékk væga reykeitrun, að sögn Bergdísar. Hún segir hann þó vera af öðrum sökum á sjúkrahúsinu. Eldurinn kom upp í eldhúsinu á veitingastaðnum Carpe Diem, sem er á fyrstu hæð hússins. Ólafur Þorgeirsson, eigandi stað- arins, segir að stefnt sé að því að opna veitingastaðinn aftur eftir tvær vikur. Hann segir það þó fara fyrst og fremst eftir því hversu vel gangi að finna iðnaðarmenn og bendir á að mikið sé að gera hjá iðnaðarmönnum þessa dagana vegna Smáralindar. Um 60 manns voru á veit- ingastaðnum þegar eldurinn kvikn- aði út frá steikingarpotti. Ólafur segir að eldvarnarteppi hafi verið sett yfir pottinn, en síðan hafi kom- ist súrefni að eldinum. Þá gaus eld- urinn upp og læsti sig í feiti í loft- ræstistokknum. Stokkurinn liggur um allt hótelið og barst því reykur um allt hótelið, þó mest um fjórðu hæðina. Ólafur segir að stokkurinn sé hreinsaður reglulega og þótt hann hefði verið hreinsaður fyrir viku sé olía fljót að festast á stokkinn að innanverðu aftur. Hann segir að stokkurinn hafi síðast verið hreins- aður fyrir þremur mánuðum, en al- mennt sé talað um að stokkana þurfi að þrífa tvisvar á ári. Tvisvar í viku séu fitustokkar sem eru fyrir framan pottana hreinsaðir. Ólafur segir að eldvarnareftirlitið hafi ný- verið búið að taka út staðinn og þá hafi allt verið skoðað og samþykkt. Þegar Morgunblaðið bar að garði í gær voru tryggingamenn að meta tjónið. Ólafur segir að veitingastað- urinn sé mjög vel tryggður og hef- ur Ragnar sömu sögu að segja af hótelinu. Hann segir að engar skemmdir séu á hótelinu sjálfu, að- eins hafi þurft að reykræsta, þrífa og lofta út. Hótelið sé einnig með rekstrarstöðvunartryggingu og bjóst hann því ekki við að mikill kostnaður myndi falla á hótelið sjálft. Eldsvoðinn í fyrrakvöld á Fosshóteli Lind Hluti hótelsins opnaður aftur Morgunblaðið/Golli Eldurinn kom upp í djúpsteikingarpotti og læsti sig í fitu í loftræsti- stokki. Hér er Ólafur, eigandi Carpe Diem, að hreinsa til. Hann vonast til að hægt verði að opna aftur eftir tvær vikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.