Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Í frétt Morgunblaðsins í gær af nið- urskurðaráformum Flugleiða gætti þeirrar ónákvæmni að sagt var að 300 starfsmönnum félagsins yrði sagt upp. Hið rétta er að stöðugildum hjá félaginu verður fækkað um 273 en 183 starfsmönnum verður sagt upp. Þar af eru 53 flugfreyjur og 39 flugmenn. Fram kom á fréttamannafundi í gær að Flugleiðir og dótturfyrirtæki þeirra hafa unnið að hagræðingarað- gerðum allt þetta ár og áður en þessi fækkun kom til framkvæmda höfðu Flugleiðir og dótturfélög fækkað um 101 stöðugildi það sem af er árinu. ,,Í heild má því gera ráð fyrir að á árinu fækki stöðugildum hjá fyrirtækinu um 374 og verði um 2.180 í stað um 2.550,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Meðal aðgerða sem Flugleiðir hafa ákveðið er að hækka verð á flugfar- gjöldum á Íslandi um 5% en miðar sem seldir eru í Bandaríkjunum hækka um 10%. Dregið verður saman í millilandaflugi félagsins um 18% í vetraráætlun og um 11% í sumar- áætlun næsta árs. 32% samdráttur verður á flugi til og frá Bandaríkj- unum. Sigurður segir mikla óvissu um hver þróunin verður á næstu mánuðum. ,,Við sjáum ekki fram á það í dag að við þurfum að grípa til frekari aðgerða,“ segir Sigurður. Franz Ploder, formaður Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna, segist gera sér vonir um að hluti þeirra flug- manna sem sagt var upp hjá Flug- leiðum í gær verði endurráðinn þegar skýrist hvaða langtímaáhrif hryðju- verkin í Bandaríkjunum hafa á flug í heiminum. Ásdís Eva Hannesdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, sagði að flugfreyjur væru að sjálfsögðu ekki ánægðar með þessi tíðindi. „Það er ljóst að við áttum von á uppsögnum. Það hefur legið fyrir að afkoma Flug- leiða á fyrri helmingi ársins og á síð- asta ári var slæm og síðan hafa hryðjuverkin ekki bætt stöðuna.“ Hún sagði að meðalstarfsaldur þeirra sem sagt var upp væri 2,5 ár og flest- ar flugfreyjanna hefðu verið í fullu starfi. Um væri að ræða fólk sem ráð- ið var sumarið 2000 og að hluta 1999. Aðgerðir Flugleiða þýða um fjög- urra milljarða króna samdrátt í gjald- eyristekjum á ári vegna erlendra ferðamanna, að sögn Magnúsar Oddssonar ferðamálastjóra. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir fjöldauppsagnir óumflýjanlegar Afleiðingar hryðjuverk- anna kosta félagið milljarð  Aðgerðir Flugleiða/10 og 12  Leiðari/30 STJÓRNENDUR Flugleiða kynntu starfsfólki félagsins í gær víðtækar upp- sagnir starfsfólks og aðrar sparnaðaraðgerðir sem ákveðnar hafa verið vegna minnkandi eftirspurnar og aukins kostnaðar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn félagsins áætla að heildaráhrifin af þessum atburðum kosti Flugleiðir um einn milljarð króna til næstu áramóta. Sig- urður Helgason, forstjóri félagsins, segir fjöldauppsagnirnar óumflýjanlegar vegna þeirrar stöðu sem upp er komin en þær væru sambærilegar aðgerðum sem önnur flugfélög hafa gripið til. kvæmdir. Einn dag kom hann með flugmanni sínum í einhverjum er- indum og var strákurinn [Osama] með honum,“ segir Ólafur. Bin Laden eldri kynnti Ólaf fyrir syni sínum og sagði að hann langaði að fara heim með honum og leika við krakkana. Ólafur segir að Osama hafi farið með honum heim og leikið sér við Friðrik. Hann segir að Osama hafi verið prúður piltur. „Hann var bara ljúfur og þægilegur, frekar feim- inn, engir hrekkir eða slíkt. Ósköp hæglátur og prúður.“ Hann segir að Friðrik muni lítið sem ekkert eftir þessum leikfélaga sínum. Ólafur segir að hann hafi frétt af Osama bin Laden þegar hann lenti á Keflavíkurflugvelli. „Þetta var að haustlagi, líklega árið 1989. Hann var í Grumman Gulfstream einka- þotu og á leið til Bandaríkjanna. Einkennisstafirnir voru HZIBN.“ Ólafur var að vinna á flugvell- inum og frétti af því að bin Laden væri þarna kominn á einkaþotunni sinni. Honum var ekki hleypt inn á tollsvæðið, en Ólafur fór um borð í flugvélina og ræddi við flugmann- inn. „Hann sagði að Osama væri inni í fríhöfninni að skoða sig um,“ segir Ólafur. „Því miður hitti ég hann ekki en ég bað flugmanninn um að skila kveðju og fékk svar þegar vélin fór, þá kallaði hann í radíóið og sagðist hafa móttekið kveðjuna,“ segir Ólafur. Hann segist fyrst hafa heyrt nafn hans tengt hryðjuverkum eftir sprengingar við bandarísk sendiráð í Afríku 1998. „Ég fór að velta því fyrir mér hvort það gæti verið sami maðurinn og það stóð allt heima. Ég var svo undrandi að ég átti ekki eitt einasta orð,“ segir Ólafur. OSAMA bin Laden, sem er talinn hafa skipulagt hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september, átti íslenskan leikfélaga á uppvaxt- arárum sínum í Sádi-Arabíu. Bin Laden millilenti einnig á Keflavík- urflugvelli í lok níunda áratugarins og skoðaði sig um í Flugstöðinni. Ólafur Guðjónsson, fyrrverandi flugumferðarstjóri, starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum og Alþjóða- flugmálastofnuninni í Sádi-Arabíu árin 1966–1968. Eiginkona hans og 3 börn þeirra voru með honum og lék sonur þeirra, Friðrik, sér oft við Osama. Hann var þá á áttunda ári og Osama 10–11 ára. Ólafur þekkti Muhammad bin Laden, föður Osama, vegna vinnu sinnar. „Faðir hans var bygg- ingaverktaki með mikil umsvif og átti flugvél. Hann flaug á þá staði þar sem hann var með fram- HAFNARFJARÐARKIRKJA virð- ist taka ærslafullum leik blessaðs ungviðisins með stökustu ró þar sem turnhúfa hennar speglast í vatnsborði tjarnarinnar. Hvort barnið hefur verið þurrt í fæturna eftir ævintýrið er hins vegar vafa bundið en dýrðarveður eins og var í gær verður börnum og fullorðnum gjarna hvati nýrra landvinninga. Morgunblaðið/Kristinn Leikið í blíðunni Átti íslenskan leikfélaga og kom við á Keflavíkurflugvelli Osama bin Laden hafði tengsl við Ísland sem drengur SÝNING á verki Ólafs Elíasson- ar, „Horft á sjálfan sig skynja“, er hafin í Museum of Modern Art í New York, einu kunnasta lista- safni heims. Á dögunum var einn- ig opnuð sýning á verkinu „Ungt land“ í Boston. Ólafur Elíasson hefur á örfáum árum skapað sér nafn sem einn eftirsóttasti myndlistarmaður sinnar kynslóðar á sviði samtíma- listar. Í viðtali í Lesbók í dag ræð- ir Ólafur meðal annars um hinn al- þjóðlega listheim og möguleika íslenskra lista. Hann segir að „það geti orðið íslenskri list til bjargar að þessi alþjóðlegi listheimur hef- ur í auknum mæli þróast þannig að sýningarstjórar ferðast um heiminn til að skoða list og áhug- inn hefur beinst að jaðarsvæðum á borð við Ísland. Ef rétt er að kynningarmálum staðið er ekkert því til fyrirstöðu að þeir uppgötvi íslenska list og komi henni inn í hið alþjóðlega umhverfi“. Tvær sýningar Ólafs Elías- sonar í Bandaríkjunum  Rýmið á milli/Lesbók 4–7 DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á málþingi Lögfræðingafélags Íslands í gær að hann væri reiðubú- inn að beita sér fyrir því að komið yrði á fót sérstakri lagaskrifstofu við Stjórnarráðið til að fara með sam- ræmdum hætti yfir frumvörp ríkis- stjórnarinnar og meta hvort þau sam- ræmdust stjórnarskrá. Hann sagðist geta tekið undir það sjónarmið að lítið stjórnkerfi ætti fremur að huga að því að styrkja þær stofnanir sem fyrir eru til að gegna hlutverki sínu en að setja á stofn nýj- ar. „En á hverju eiga sérfræðingar á slíkri skrifstofu að byggja ráðgjöf sína, ef mat dómstóla á lögunum er ekki orðið nema öðrum þræði lög- fræðilegt? Ég er hræddur um að slík skrifstofa yrði þá betur skipuð spá- konum og félagsfræðingum, en lög- fræðingum,“ sagði Davíð. Hrafn Bragason hæstaréttardóm- ari sagði í sínum fyrirlestri að hlut- verk löggjafarþingsins ætti að vera að ákveða markmið löggjafarinnar og að leggja breiðar efnislínur. Þingmenn eða þingið í heild ætti að eiga frum- kvæði að lagasetningu með þings- ályktunartillögum, sem þyrftu að vera meira stefnumarkandi en nú er. Síðan þyrfti að fá kunnáttumenn til að koma málefninu í rétt horf. Þing- nefndir ættu að fara yfir lagafrum- vörp með sérfræðingum, ekki aðeins yfir efnið heldur og búninginn. Að þessari vinnu þyrftu einnig sérfræð- ingar um stjórnskipun að koma. Skrifstofa við Stjórn- arráðið fari yfir frumvörp  Deilt um hlutverk/30–31 AÐSÓKN hefur aldrei verið jafnmikil að leikjum úrvals- deildar karla í knattspyrnu og nú í sumar en áhorfendum hef- ur fjölgað jafnt og þétt undan- farin fimm ár. Samtals sáu 96.845 áhorfendur leikina 90 í Símadeildinni. KR-ingar fengu mesta að- sókn, 1.901 áhorfanda að með- altali, en Fylkismenn komu næstir með 1.610 áhorfendur, ÍA með 1.271 og FH með 1.204 áhorfendur.  Aðsóknarmetið/B1 Metaðsókn að fótbolta- leikjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.