Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 20
SUÐURNES 20 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EIGNAMIÐLUNIN Sími 588 9090 - Fax 588 9095 - Síðumúla 21 12 glæsilegar íbúðir í þessum fallegu og vönduðu fjölbýlishúsum. Aðeins sex íbúðir í hvoru húsi. Möguleiki að kaupa bílskúr. Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja, 92-120 fm, og afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, skápum og tækjum en án gólfefna. Tvennar svalir á fjórum íbúðum og sérlóð með íbúðum á jarðhæð. Fyrstu íbúðir verða afhentar í nóvember ber á þessu ári. Hagstætt verð eða frá 12,5-14,9 m. Seljandi tekur á sig afföll af húsbréfum. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Frábær staðsetning rétt við óspillta náttúru í skjóli Rjúpnahæðarinnar. Fallegt útsýni. Arkitektar og hönnuðir eru: Teiknistofan ehf., Ármúla 6. Sölusýning - opið hús í dag milli kl. 13 og 16 - kaffi á könnunni RJÚPNASALIR 6-8, KÓPAVOGI - FULLBÚIN ÍBÚÐ TIL SÝNIS SKÓLASTJÓRI Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leggur áherslu á að í byrjun næsta árs taki til starfa nefnd til að undirbúa byggingu húss fyrir tónlistarskólann. Í bréfi sínu til bæjarráðs rifjar skólastjórinn, Haraldur Árni Har- aldsson, upp ákvörðun um að byggja skuli hús fyrir tónlistarskólann, tón- listarhús, og að vinna við hönnun hefjist árið 2003. Hún lýsi metnaði og stórhug bæjaryfirvalda í mennta- og menningarmálum. Nauðsynlegt sé að vanda allan undirbúning. Því sé afskaplega mikilvægt að í byrjun næsta árs taki til starfa und- irbúningsnefnd. Hún skuli meðal annars hafa það hlutverk að kynna sér sérhannað húsnæði tónlistar- skóla hérlendis. Hún skuli skilgreina húsnæðisþörf Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og um leið þörf sveitarfélagsins fyrir tónleikasal sem mætti jafnframt nýta fyrir ráð- stefnur svo og þörf fyrir tónlistar- bóka- og hlustunarsafn sem gæti verið í skólanum. Þá leggur skóla- stjórinn til að nefndin komi fram með tillögu að staðsetningu hússins og tillögu að framkvæmdaáætlun. Undir- búningur verði hafinn Reykjanesbær Fyrirhuguð bygging tónlistarhúss VERIÐ er að skipuleggja Reykja- nessvæðið með tilliti til aðgengis fyrir ferðafólk að helstu áfangastöðum. Verða gerð bílastæði og göngustígar, ásamt salernisaðstöðu. Þá er fyrir- hugað að setja göngubrú á gjá ofan Stóru-Sandvíkur og á hún að vera táknræn brú á milli heimsálfa. Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa gert samning við landeigendur Kalmanstjarnar í Höfnum um að- gang fyrir ferðafólk að áfangastöðum í landi jarðarinnar sem liggur með ströndinni og alveg út á Reykjanestá. Njóta samtökin bakstuðnings Reykjanesbæjar við framkvæmd samningsins. Johan D. Jónsson, ferðamálafulltrúi á Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykjanesbæj- ar, telur að samningurinn við land- eigendur sé sá fyrsti sinnar tegundar sem gerður hefur verið. Ferðafólki verði tryggt aðgengi að landi í einka- eigu og heimilaðar séu ákveðnar framkvæmdir til að auðvelda umferð fólks. Á Reykjanessvæðið koma langt yf- ir 100 þúsund ferðamenn á ári, jafnt innlendir sem erlendir enda er svæð- ið vinsæll áningarstaður ferðahópa. Þarna eru fjölsóttir útsýnisstaðir og merk náttúrufyrirbrigði. Þá er svæð- ið vinsælt göngu- og útivistarsvæði. Nefnir Johan svæðið í nágrenni Reykjanesvita, Gunnuhver, svæðið við Stóru-Sandvík og Hafnabergið. Bílastæði og göngustígar Verið er að skipuleggja aðgengi ferðafólks að helstu áningarstöðum svæðisins og bílastæða þar við. Kom- ið verður upp upplýsingaskiltum og merktir göngustígar. Fyrsti áfangi Reykjavegar liggur frá Reykjanesvita en göngustígurinn endar sem kunnugt er á Nesjavöllum í Grafningi. Undir Vatnsfelli sem vit- inn stendur á er vonast til að hægt verði að koma upp skýli fyrir göngu- fólk og salernisaðstöðu. Að sögn Johans hefur ekki verið gengið frá staðsetningu og vitað að ýmis mál þurfi að leysa, til dæmis að afla vatns. Í Kinn, ofan Stóru-Sandvíkur, er stór gjá sem ferðafólki er gjarnan sýnd sem dæmi um flekaskilin á milli Evrópu og Ameríku. Þar verður komið upp bílastæðum, göngustígum og upplýsingatorgi. Göngustígurinn liggur yfir gjána á brú sem verið er hanna og nefnd er Brú milli heims- álfa. Segir Johan að smíði brúarinnar hefjist í vetur og stefnt er að uppsetn- ingu hennar á vori komanda. Fimmtán metra löng göngubrú „Þetta er tilkomumikil gjá sem gefur afskaplega ríka og skemmti- lega upplifun á þessu sérstæða jarð- fræðifyrirbrigði. Þarna er líka gott útsýni yfir gosstöðvarnar sem eru framhald af Reykjaneshryggnum þar sem hann gengur á land og þrýst- ir landinu í sundur,“ segir Johan D. Jónsson. Brúin verður fimmtán metra löng og byggð úr stálbitum. Hún verður opin í vestur, í gegn um ristar, en timburklædd að austanverðu. Ákveð- ið hefur verið að nota rekavið í klæðn- inguna. Verkfræðingar eru að reikna út burðarþol brúarinnar. Vonast Johan til að undirbúningsvinnu ljúki næstu daga svo hægt verði að hefjast handa við smíðina. Fjármögnun þessarar fram- kvæmdar er að hans sögn langt kom- in. Hann getur þess að Vegagerðin muni annast lagningu bílastæða og annarra slíkra mannvirkja. Ferða- málasamtökin þurfi sjálf að standa að fjármögnun göngustíga. Johan segir að aðgengi ferðafólks batni verulega við þessar fram- kvæmdir á Reykjanesi og vonast til að svæðið verði enn eftirsóknarverð- ara til skoðunar. Brú milli heimsálfa Brúin milli heimsálfa verður 15 metra löng, klædd með rekaviði. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Johan D. Jónsson ferðamálafulltrúi vísar á staðinn þar sem Brú milli heimsálfa verður sett upp. Komið verður upp skýli fyrir göngufólk og salernisaðstöðu, einhvers staðar í nágrenni Reykjanesvita. Unnið að skipulagningu aðgengis fyrir ferðafólk á Reykjanessvæðinu Reykjanesbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.