Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MÖRG okkar kannast við Alda- mótaljóð Einars Benediktssonar, sem hann orti í upphafi komandi aldar, – þeirrar tuttugustu. Þar brýnir hann þjóðina til dáða, um leið og hann ávítar hana fyrir framtaks- leysi og aumingjaskap. Einar var maður hins nýja tíma, framsækinn og djarfur. Hann sá í anda, líkt og raunar skáldið Hannes Hafstein, öld framfara og vélvæðingar. Þeir höfðu báðir stundað háskólanám í Kaup- mannahöfn og séð þar tæknilegar nýjungar, eins og járnbrautir, sem þar var komið á um miðja 19. öld. Fiskveiðar hafa verið stundaðar hér frá öndverðu, en lengi vel við mjög ófullkomin og frumstæð skil- yrði. Einar yrkir um það í Alda- mótaljóðum sínum, og dregur hvergi af skoðun sinni á landsmönnum og framtaksleysi þeirra. Þú býr við lagarband, – bjargarlaus við frægu fiskisviðin, fangasmár þótt komist verði á miðin, en gefur eigi á góðum degi, gjálpi sær við land. Vissirðu, hvað Frakkinn fékk til hlutar? Fleytan er of smá, sá guli er utar. Hve skal lengi dorga, drengir, dáðlaust upp’ við sand? Ég hefi fyrir framan mig Kvæða- safn Einars Benediktssonar, gefið út af Máli og menningu 1994. Þar eru öll fimm ljóðasöfn skáldsins í einu bindi, svokallaðri Stórbók. Er- indið úr Aldamótaljóðunum birtist í fyrsta ljóðasafni skáldsins, er út var gefið 1897: Sögum og kvæðum. Þarna er sagt: „Sá guli er utar“, og á að sjálfsögðu við þorskinn. En þann- ig orti skáldið ekki upphaflega, held- ur var ljóðlínan þannig: Fleytan er of smá, sá grái er utar. Þar átti Einar Benediktsson við hákarlinn, sem nefndur var sá grái og var veiddur af kappi miklu um það leyti, sem hann orti sitt ágæta Aldamótaljóð. Þannig var ljóðið birt allt frá því það var ort og í mörgum prentunum síðar. Sagt er, að séra Þorvaldur Jakobsson í Sauðlauksdal hafi vakið athygli skáldsins á því, að þetta hlyti að eiga að vera sá guli, þ.e. þorskurinn, og hann verið því samþykkur. – Þetta er samkvæmt skýringum aftan við Kvæðasafn Einars Benediktssonar. Ég lærði ljóð þetta í barnaskóla á sínum tíma. Þar var talað um þann gráa en ekki hinn gula. Alltaf er óviðkunnanlegt, þegar ljóðum, sem við höfum kunnað frá barnæsku, er breytt. Eigum við kannske, vegna breyttra aðstæðna núna, að setja inn orðið jeppi, þar sem áður var minnst á hest, og tölvu, þar sem minnst var á ritvél? Mér finnst, að ljóð og ritverk viðurkenndra þjóð- skálda, sem við höfum vaxið upp með, eigi að halda sér eins og þau voru unnin í upphafi, en sé ekki hnikað til, í samræmi við breyttan tíma. Með þökk fyrir væntanlega birtingu. AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Fleytan er of smá, sá grái er utar Frá Auðuni Braga Sveinssyni: MANNKYNIÐ allt stendur nú and- spænis ólýsanlegum ógnum og óvissu um hver verði framvinda í efnahags- legum og félagslegum samskiptum manna. Ógnarvið- burðir síðustu daga hafa opnað augu manna í þessu efni og fyrir því að það sé hvergi öryggi að finna vegna óhæfuverka mannanna sjálfra. Jafnvel að við Íslendingar séum þegar í ófyrirséðum vanda gagnvart flugsamgöngum svo að eitt áþreifan- legt dæmi sé nefnt. En svo eru önnur vandamál sem við getum sagt að við höfum að mestu á valdi okkar og þar sé ekki allt eins og best verði á kosið. Nefnd skulu nokkur dæmi: Fólki fækkar sífellt og markvisst á landsbyggðinni, m.a. og fyrst og fremst vegna stjórnsýsluaðgerða um bann við veiðum frá hefðbundnum veiðistöðvum meðfram strandlengju landsins og skipulagðra aðgerða um fækkun bújarða og bænda. Ákveðið er að breyta kosningalög- um og kjördæmaskipan í fjarlægt form, án umræðna við fólkið í land- inu, en með sambræðslu þingflokk- anna, með þeim afleiðingum að skæklatogi kjördæmanna er viðhald- ið og um leið meirihlutavaldi höfuð- borgarsvæðisins, ef til átaka kæmi. Þessi ákvörðun stjórnvalda hefir sérstöðu að því leyti að kjósendur virðast sammála um að breytingin sé að flestu leyti mislukkuð. Lögvernduð virðist ránsferð ís- lenska ríkisins að þinglýstum fast- eignum bænda og viðurkenndra fé- lagasamtaka þeirra, svo sem upprekstrarfélaga og sveitarfélaga. Í þessu tilfelli er viðhorfi til frið- helgi eignarréttarins snúið til bók- staflegrar andhverfu sinnar. Eldri borgurum og öðrum lífeyr- isþegum er úthlutað að búa við tví- sköttun og lægri bætur en svarar til almenns verðlags í landinu og þar af leiðandi dæmdur lélegri lífsmáti en þeim sem hafa fulla starfsorku. Ekki getur þessi ákvörðun talist stórmannleg, tekin af þeim aðilum er ákveða sjálfum sér hinar ótrúlegustu upphæðir í laun. Á fleira mætti minna, en að þessu sinni er aðeins spurt: Hver vill gangast við verknaðinum og svara fyrir hann? Verði þá einhverjir til þess. GRÍMUR GÍSLASON, Garðabyggð 8, Blönduósi. Staðreyndir sem blasa við Frá Grími Gíslasyni: Grímur Gíslason                                                  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.