Morgunblaðið - 29.09.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LEIFUR Agnarsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Kassa-
gerðar Reykjavíkur,
lést fimmtudaginn 27.
september sl., 53 ára
að aldri.
Leifur var fæddur í
Reykjavík 12. apríl
1948. Foreldrar hans
voru Agnar Kristjáns-
son, forstjóri Kassa-
gerðar Reykjavíkur,
og Unnur Símonar.
Leifur varð stúdent
frá Verslunarskóla Ís-
lands árið 1969 og
lauk BA-prófi í ensku og stjórnmála-
fræði frá Háskóla Íslands 1975.
Hann helgaði Kassagerð Reykja-
víkur starfskrafta sína til dauðadags.
Leifur sat í stjórn Vinnuveitenda-
sambands Íslands, Sam-
taka atvinnulífsins, í var-
astjórn Iðnaðarbankans,
samninganefnd Félags
prentsmiðjueigenda og í
varastjórn Verðbréfa-
markaðs Íslandsbanka.
Hann tók þátt í stofnun
ýmissa fyrirtækja í
Reykjavík. Hann sat í
stjórn prentsmiðjunnar
Ísafoldar og var stjórn-
arformaður Frystihúss
Hellissands um árabil.
Einnig tók hann þátt í
uppbyggingu Vestur-
farasetursins á Hofsósi
og var stjórnarformaður Snorra
Þorfinnssonar ehf.
Leifur lætur eftir sig eiginkonu,
Margréti Kolka Haraldsdóttur, fjög-
ur uppkomin börn og tvö barnabörn.
Andlát
LEIFUR
AGNARSSON
FRAMKVÆMDIR við skálabygg-
ingu við Alþingishúsið eru hafnar á
ný en framkvæmdum við skálann
var frestað á sínum tíma þegar
stjórnvöld drógu úr fram-
kvæmdum á þess vegum vegna
mikillar þenslu á byggingamark-
aði.
Að sögn Friðriks Ólafssonar,
skrifstofustjóra Alþingis er áætlað
að þessum áfanga verði lokið seint
í ágúst á næsta ári. „Þegar því
verður skilað á eftir að ganga frá
ýmsum lausabúnaði og kerfum og
slíku þannig að skálinn gæti hugs-
anlega komist í gagnið seint um
haustið. Það tekur tíma að ganga
frá en það verður reynt að gera
það eins hratt og mögulegt er.“
Friðrik segir kostnaðaráætlun
fyrir þennan áfanga vera tæpar
600 milljónir króna en byggingin
eigi að létta á Alþingishúsinu. Í
henni verði til dæmis veit-
ingaaðstaða, fundaraðstaða, sýn-
ingaraðstaða fyrir gesti og mót-
tökuaðstaða fyrir þingmenn. Hann
segir orðið aðkallandi að fá þessa
aðstöðu. „Það er allt of mikil um-
ferð um Alþingishúsið. Með skál-
anum verður nánast lokað fyrir þá
umferð nema þá í sérstökum til-
vikum.“
Hönnun skálans var í höndum
Batterísins en Íslenskir að-
alverktakar sjá um framkvæmdina.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Rúnar Magnússon og Ólafur Ingólfsson voru önnum kafnir á byggingasvæðinu við Alþingi á dögunum.
Haldið áfram við Alþingisskálann
STJÓRN Norðurmjólkur ehf. hefur
samþykkt að hætta mjólkurvinnslu
á Húsavík í áföngum á árinu 2002.
Öll mjólkurvinnsla félagsins mun í
framhaldinu fara fram í mjólkur-
samlaginu á Akureyri.
Frá þessu var greint í tilkynn-
ingu frá KEA á Verðbréfaþingi Ís-
lands í gær. Þar segir að með þess-
ari breytingu sé mögulegt að lækka
rekstrarkostnað Norðurmjólkur um
35–40 milljónir króna á ári en tap
hefur verið á rekstri félagsins. Við
framleiðsluna á Húsavík hafa starf-
að 13 manns og verður þeim boðinn
forgangur að störfum í starfsstöð-
inni á Akureyri. Jafnframt hefur
stjórn félagsins lýst sig reiðubúna
til að koma til liðs við heimamenn á
Húsavík í að byggja upp arðbæra
starfsemi í fasteign fyrirtækisins.
Norðurmjólk ehf., sem var form-
lega stofnað í lok árs 2000, er að
68% í eigu KEA og 32% í eigu
bænda í Eyjafirði og Suður-Þing-
eyjarsýslu.
Hægt að vinna alla
mjólkina á einum stað
Helgi Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Norðurmjólkur, segir
í tilkynningu KEA á VÞÍ, að í upp-
hafi hafi engar hugmyndir verið
uppi um að hætta vinnslu á Húsavík
heldur hafi áætlanir frekar miðast
við að færa framleiðslu á einstökum
vörutegundum á milli starfsstöðv-
anna og hagræða með þeim hætti.
Sú staða sé hins vegar komin upp
að hægt sé að vinna alla þá mjólk
sem til fellur á félagssvæði Norð-
urmjólkur á einum stað, þ.e. í sam-
laginu á Akureyri.
„Að reka tvær starfsstöðvar þeg-
ar ein getur annað framleiðslunni er
óhagkvæmt. Reksturinn hefur ekki
skilað okkur þeim árangri sem við
væntum og nauðsynlegur er til að
viðhalda frekari vexti og uppbygg-
ingu fyrirtækisins,“ segir Helgi.
Á yfirstandandi ári verður mjólk-
urframleiðslan á félagssvæði Norð-
urmjólkur um 26,5 milljónir lítra,
þar af um 6,4 milljónir lítra á svæði
samlagsins á Húsavík. Af þeim eru
um 2,4 milljónir lítra fluttar til
vinnslu á Akureyri þannig að sam-
lagið vinnur úr um 4 milljónum
lítra.
Fram kemur í tilkynningu KEA
að það sé samdóma álit stjórnar
fyrirtækisins að með þessum breyt-
ingum sé Norðurmjólk að styrkja
stöðu sína til þess að geta betur
staðið við bakið á framleiðendum á
samlagssvæðinu sem og neytendum
sem hafi uppi óskir um góðar vörur
á hagstæðu verði.
Mjólkurvinnsla
frá Húsavík til
Akureyrar
SVEITARFÉLÖG á Vestfjörðum
hafa flest hver tekið tilboði ríkisins
í eignarhlut þeirra í Orkubúi Vest-
fjarða, nema Vesturbyggð sem hef-
ur lengri frest en hin sveitarfélögin
til að taka afstöðu til tilboðsins, en
framlengdur frestur til að taka af-
stöðu til þess rann út í gær.
Tilboðið lýtur að kaupum á 60%
eignarhlut sveitarfélaganna á Vest-
fjörðum í Orkubúinu fyrir 2,7-2,8
milljarða króna. Ríkisvaldið setti
fram nýtt tilboð í þessum efnum á
föstudaginn fyrir viku og felur það í
sér að í stað þess að frá kaupverð-
inu dragist skuldir sveitarfélag-
anna við Íbúðalánasjóð verði fjár-
upphæð lögð inn á biðreikning til
tryggingar þeim skuldbindingum
þar til gengið hefur verið frá heild-
arendurskipulagningu á félagslega
íbúðalánakerfinu fyrir landið í
heild.
Sum sveitarfélögin setja skilyrði
fyrir töku tilboðsins. Í bæjarstjórn
Ísafjarðar var samþykkt með fimm
atkvæðum meirihlutans gegn fjór-
um atkvæðum minnihlutans að taka
tilboðinu með fyrirvara um að end-
urreikna þurfi vanskilalið tilboðs-
ins, sem sé rangt reiknaður af hálfu
ríkisvaldsins. Einnig að útfærsla
samkvæmt öðrum liðum verði í
nánu samstarfi við bæjarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar og að endanlegur
kaupsamningur verði lagður fyrir
bæjarstjórn til samþykktar.
Reykhólahreppur setur fyrirvara
varðandi skuldastöðu sveitarfé-
lagsins við Íbúðalánasjóð og einnig
hvað varðar hjúkrunarheimilið
Barmahlíð. Jóna Valgerður Krist-
jánsdóttir, sveitarstjóri, segir að
fyrri fyrirvarinn snúi að því að
sveitarfélaginu séu reiknaðir drátt-
arvextir og vanskil hjá Íbúðalána-
sjóði sem sé ekki rétt þar sem þau
lán séu öll fryst fram til næstu ára-
móta. Hinn liðurinn snúi að fjár-
hagsvanda hjúkrunarheimilisins
Barmahlíðar, sem tengist meðal
annars þeim lánum sem fryst hafi
verið hjá Íbúðalánasjóði, og þau
setji þann fyrirvara að lokið verði
heildarendurskipulagningu á fjár-
málum hjúkrunarheimilisins með
þessu og fleiri ráðstöfnunum.
Taka tilboði ríkisins
í Orkubú Vestfjarða
NÝR tækjabúnaður til hjarta-
þræðinga og annarra æðarann-
sókna og innanæðaaðgerða var
tekinn í notkun á Landspítala við
Hringbraut í gær. Gjafa- og
styrktarsjóður Jónínu S. Gísla-
dóttur, ekkju Pálma Jónssonar í
Hagkaupum, gerði kleift að ráð-
ast í kaup á búnaðinum. Sjóð-
urinn leggur fram 40 milljónir
króna vegna kaupanna en tækið
kostar um 100 milljónir. Í fyrra
færði sjóðurinn Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi 200 milljónir
króna að gjöf til að efla hjarta-
lækningar á sjúkrahúsinu og er
hluti þess framlags nýttur til
þessara tækjakaupa.
Morgunblaðið/Golli
Kristján Eyjólfsson, sérfræðing-
ur í hjartasjúkdómum, við nýja
hjartaþræðingatækið.
Nýtt hjarta-
þræðinga-
tæki tekið í
notkun
ALDRAÐUR maður í Reykjavík
sem afhenti konu á sjötugsaldri
rúmar 23 milljónir króna á nokkurra
ára tímabili, en konan sætir ákæru
ríkislögreglustjóra fyrir að hafa
blekkt féð út úr manninum, sagðist í
gær aldrei hafa skilið hvað hún
gerði við allt féð.
Upplýst hefur verið að allt féð og
meira til er uppurið og því eytt í
„hitt og þetta“ og ýmsar skuldir
konunnar. Maðurinn er í hópi tíu
manna sem konan er ákærð fyrir að
hafa blekkt fé út úr með skipulögð-
um hætti, samtals um 56 milljónir
króna. Maðurinn kom fyrir dóm við
aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær og lýsti kynnum
sínum af konunni. Mun hún hafa
hringt í hann árið 1996 og boðið
honum heimilisaðstoð sem hann
þáði.
Hann sagði að greiðslur til henn-
ar hefðu bæði verið launagreiðslur
og lán. Hún hafi annast þvotta og
þrif auk þess að færa honum mat.
Maðurinn, sem er ellilífeyrisþegi,
sagði að konan hefði sýnt ágengni
þegar hún bað hann um peninga en
lýsti því að það hefði verið „happa-
fengur“ að fá hana til að aðstoða sig
við rekstur heimilisins. Hann sagð-
ist hins vegar ekki myndu hafa
hleypt henni nærri sér ef hann hefði
vitað að hún væri einnig að fá pen-
inga frá öðrum mönnum og taldi að
hún hefði brotið á sér. Hann sagði
að hún hefði minnst á veikindi barna
sinna, sem hefði reynst lygi og þá
hefði hún sagt sér að hún færi á göt-
una ef hún fengi ekki fjárhagsaðstoð
frá honum.
Nurlaði saman stórfé með
yfirgengilegri sparsemi
Fram kom í máli nokkurra vitna
sem undruðust mikil fjárútlát
mannsins í ljósi þess að hann hafði
„nurlað“ saman stórfé um ævina
með yfirgengilegri sparsemi. Þau
voru beðin um að lýsa manninum og
aðstæðum hans og kom fram að
hann væri „einfari“ og „aðsjálasti
maður sem [eitt vitnið] hefði komist
í kynni við“.
Málið verður dómtekið að loknum
munnlegum málflutningi 3. október.
Skildi aldrei hvað kon-
an gerði við allt féð
Aldraður einfari sem kona er ákærð um að hafa blekkt