Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 19
ÁSDÍS Halla Bragadóttir bæjar-
stjóri vísar því á bug að hún hafi
farið með rangt mál þegar hún
sagði að það væri ekki í samræmi
við aðalskipulag að uppbygging
Arnarneslandsins hæfist fyrir árið
2005. Einar Sveinbjörnsson, bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokks, stað-
hæfði það í Morgunblaðinu í gær og
sagði að árið 2005 ætti uppbygg-
ingu að vera lokið.
Vísar hún í því sambandi til að-
aðalskipulagsins sem gildir fyrir
2005–2015. Umrætt land, sem er í
eigu Jóns Ólafssonar, er merkt á
skipulagskorti ÍB-15. Í skýringum
við reit ÍB-15 segir í aðalskipulag-
inu: „2005–2015 2015: 385 íbúðir
2.300 íbúar“.
Ásdís Halla segir að fullyrðingar
Einars um að uppbyggingu á Arn-
arneslandinu eigi að vera lokið árið
2005, séu úr lausu lofti gripnar.
„Því miður virðast þær byggjast á
vanþekkingu hans á málinu og dap-
urlegt er að bæjarfulltrúi skuli fara
með slíkar rangfærslur í fjölmiðla.
Máli sínu til stuðnings vitnar Einar
í aðalskipulag Garðabæjar. Þar
segir hins vegar berum orðum að
Arnarneshálsinn, sem merktur er
ÍB-15 í skipulaginu, eigi að byggj-
ast á árunum 2005–2015.“
Bæjarstjórn jákvæð gagnvart
hraðari uppbyggingu
Á öðrum stað í skipulaginu kem-
ur fram að samkvæmt spá aðal-
skipulagsins eigi 50 íbúðir að rísa í
bæjarfélaginu árlega, og að á ár-
unum 2001–2005 muni 68 íbúðir
rísa á umræddu landi. Ásdís Halla
segir ljóst að spáin geri ráð fyrir
því að þessar íbúðir rísi árið 2005.
Þegar talað sé um 50 íbúðir árlega
sé um meðaltalstölu að ræða og að
hafa verði skipulag Arnarhálsreits-
ins til hliðsjónar þegar þessar upp-
lýsingar eru lesnar.
Ásdís segir hins vegar að um-
ræður hafi átt sér stað milli land-
eigenda og Garðabæjar um að upp-
bygging svæðisins verði hraðari en
kveðið er á um í aðalskipulagi.
„Bæjarstjórn Garðabæjar hefur
verið jákvæð gagnvart hraðari upp-
byggingu og hún getur tekið þá
ákvörðun að uppbygging hefjist
fyrr en
aðalskipulag gerir ráð fyrir. Hins
vegar er málið bæði yfirgripsmikið
og flókið og því hefur niðurstaða
ekki fengist. Auk þess hafa viðræð-
ur landeigenda við ýmsa þriðju að-
ila, þar á meðal verktakafyrirtæki
tafið viðræður hans við Garðabæ. Á
meðan að þessum óformlegu við-
ræðum er ekki lokið þá hafa engar
aðrar ákvarðanir verið teknar af
hálfu bæjarstjórnar. Því eru engin
önnur formleg leiðarljós en aðal-
skipulagið sem miðar við það að
uppbygging hefjist árið 2005.“
Textinn ekki hamlandi
Þegar Einar er inntur eftir því
hvar finna megi orðum hans stað í
aðalskipulaginu segir hann: „Okkur
getur greint á um það hvort upp-
byggingunni eigi að vera lokið árið
2005 en jafnvel þótt tímasetningin
2005–2015 sem á við þetta hverfi sé
í texta aðalskipulagsins þá er þessi
texti aðeins viðmiðun, rétt eins og
það er miðað við í aðalskipulagi að
hefja uppbyggingu á Garðaholti
ekki fyrr en árið 2015 þó svo að
núna sé verið að ræða um að hefja
uppbygginguna miklu fyrr. Bæjar-
stjórn getur með einfaldri ákvörð-
un ákveðið hvenær skuli farið af
stað og þá þarf ekki að breyta að-
alskipulaginu vegna tímasetning-
anna í texta, textinn er bara við-
miðun sem menn leggja upp með
og er ekki hamalandi á eitt né
neitt.“
Bæjarstjóri um ummæli Einars Sveinbjörnssonar í gær
„Byggjast á vanþekk-
ingu hans á málinu“
Garðabær
HÚN Eyrún gylta í Húsdýragarð-
inum hefur í nógu að snúast þessa
dagana en í vikunni gaut hún
hvorki meira né minna en 14 grís-
um. Einn grísinn lifði ekki af en hin-
ir 13 eru í fullu fjöri og því er mikill
hamagangur í stíunni hjá hinni ný-
bökuðu fjölskyldu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Eyrún
gýtur en sjálf er hún aðeins árs-
gömul því hún fæddist í Hrísey í
fyrra. Hún er blanda af íslensku
landkyni og norsku kyni sem kallast
Duroc en svín af því kyni eru brún-
leit og hafa þann eiginleika að vaxa
tvöfalt hraðar en íslenska kynið.
Grísapabbi er hins vegar af
hreinræktuðu landkyni. Þó að
systkinahópurinn sé því aðeins með
örlítið brot af Duroc kyninu í sér
má glöggt sjá að það blundar í þeim
af brúna litnum sem prýðir grísina,
misjafnlega mikið þó.
Ætla má að gríslingarnir verði
fljótir að vaxa úr grasi, ekki bara
vegna vaxtarhraða Duroc svínanna
heldur er ekki annað að sjá en þeir
svolgri í sig móðurmjólkina af mik-
illi áfergju. Að sögn Stellu Krist-
jánsdóttur dýrahirðis í Hús-
dýragarðinum þarf þó að hafa vit
fyrir hinni nýbökuðu móður og
passa upp á að hún kremji ekki af-
kvæmi sín því hún er svoddan
brussa og því hætta á að hún leggist
ofan á grísabörnin.
Morgunblaðið/Ásdís
Gráðugir gríslingar
Laugardalur
ársvöxtum til að veita einum til þrem-
ur nemendum Tónlistarskólans viður-
kenningu við skólaslit á hverju vori.
Við athöfnina í Tónlistarskólanum
á fimmtudag léku og sungu nemend-
ur við skólann auk þess sem Gunnar
ÞAÐ var hátíðarstemmning í Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar á fimmtudag
þegar Gunnlaugur Jón Ingason af-
henti skólanum formlega gjafabréf
fyrir fimm milljónum króna, en eins
og Morgunblaðið hefur greint frá eiga
þær að renna í minningarsjóð um
Helgu Guðmundsdóttur konu hans.
Helga starfaði um árabil sem ritari
við skólann.
Gunnar Gunnarsson, skólastjóri
Tónlistarskólans, tók við gjafabréfinu
en sjóðnum er ætlað að styrkja efni-
lega nemendur skólans í námi. Segir í
gjafabréfinu að höfuðstóllinn skuli
vera óskertur en verja skuli 90% af
skólastjóri, Magnús Gunnarsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Guð-
rún Ingibjörg Gunnlaugsdóttir héldu
tölu, en Guðrún er dóttir Gunnlaugs
og mun sitja í stjórn sjóðsins fyrir
hönd fjölskyldunnar.
Minning-
arsjóður
afhentur
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Gunnar skólastjóri þakkar Gunnlaugi höfðinglega gjöf.
Hafnarfjörður
SÝNING um sögu Garðabæjar verð-
ur opnuð í Kirkjuhvoli klukkan 11 í
dag. Meðal þess sem þar verður að
sjá eru munir, myndir og textar
tengdir sögu bæjarins. Á sýningunni
gera ýmis félög og samtök í Garðabæ
einnig grein fyrir sögu sinni og félög-
in kynna starfsemi sína. Sýningin
verður opin til kl. 17 á laugardag og á
milli kl. 12 og 17 á sunnudag.
Sögusýning í Kirkjuhvoli
Garðabær
SKIPULAGS- og bygginganefnd
Reykjavíkur hefur samþykkt deili-
skipulag Suðurhlíðar 38 og vísað því
til borgarráðs.
Morgunblaðið greindi frá því í síð-
ustu viku að umrædd deiliskipulags-
tillaga hefði velkst í borgarkerfinu í
hátt á annað ár. Til stendur að reisa
fjölbýlishús á lóðinni sem áður var í
eigu Landgræðslusjóðs.
Deiliskipulag
Suðurhlíðar
samþykkt
Suðurhlíð
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
aukafjárveitingu að upphæð
16.570.629 krónur vegna kostnaðar
við ráðningu á skólanemum í sum-
arvinnu umfram það sem áætlað var
í fjárhagsáætlun borgarinnar. Verð-
ur fjárveitingin tekin af liðnum ófyr-
irséð útgjöld í fjárhagsáætlun borg-
arinnar.
Tæpar 17
milljónir auka-
lega í unglinga-
vinnuna
Reykjavík