Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Innköllun vegna rafrænnar skráningar
Mánudaginn 8. október 2001 verða hlutabréf í SÍF hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar
SÍF hf. þar að lútandi. Af þeim sökum verða engin viðskipti með hlutabréf
félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í
fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna
eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í SÍF hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í einum
flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að
eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá SÍF hf. að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til
hlutaskrár SÍF hf., Fornubúðum 5, 220 Hafnarfirði eða í síma 550 8000. Komi í ljós við slíka
könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart
félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s.
veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfarfyritæki
eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands hf., fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því
er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar
hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun
mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins hefur
verið kynnt þetta bréfleiðis.
Stjórn SÍF hf.
hlutabréfa í SÍF hf.
Neskaupstað - Síldarvertíðin í
haust hefur farið vel af stað og eru
nú þegar komin hér á land um
2.000 tonn á þeirri einu viku sem af
er vertíðinni. Öll síldin hefur farið í
vinnslu til manneldis, það er fryst-
ingu og söltun. Síldin hefur verið
mjög góð og úrkast verið mjög lítið.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Síldarvertíðin byrjar vel
NEFND, sem starfaði á vegum
fjármálaráðuneytisins, hefur lagt
til að verðleiðrétt reikningsskil
verði afnumin. Ef ákvörðun þess
efnis verður tekin þýðir það viða-
miklar breytingar á skattalöggjöf-
inni.
Sérstakri nefnd, sem starfaði á
vegum fjármálaráðuneytisins, var
falið að meta kosti og galla þess að
hverfa frá verðbólgureikningsskil-
um auk þess að gera tillögur um
lagabreytingar ef þyrfti. Að sögn
Baldurs Guðlaugssonar, ráðuneyt-
isstjóra fjármálaráðuneytis, hefur
þessi nefnd skilað áliti sínu. „Nið-
urstaða nefndarinnar er sú að
leggja til að verðbólgureiknings-
skil verði afnumin“, segir Baldur.
Hann segir nefndina ekki hafa tek-
ið afstöðu til þess frá hvaða tíma
þetta ætti að gerast.
„Síðan þessi niðurstaða lá fyrir
hefur þetta verið til skoðunar inn-
an ráðuneytisins. Það er ljóst að ef
þessi ákvörðun verður tekin þá
kallar það á nokkuð viðamiklar
breytingar í skattalögum þar sem
svo margt miðast við verðbólgu-
leiðréttingar og verðbólgureikn-
ingsskil. Sú vinna og athugun á því
er í gangi.“
Baldur segir að afnám verð-
bólgureikningsskila verði aðeins
einn hluti ákvarðana varðandi
skattamál en ef til kæmi yrði um
miklar breytingar að ræða.
Deloitte&Touche gerði fyrr á
árinu könnun um áhrif verðbólgu-
leiðréttinga á íslensk fyrirtæki og
hvaða þýðingu það hefði að leggja
verðleiðréttingar af. Niðurstaðan
var á þá leið að hagnaður fjár-
málastofnana og örfárra annarra
fyrirtækja batnaði við afnám verð-
bólgureikningsskila en afkoma
annarra fyrirtækja versnaði. Á
hinn bóginn má geta þess að skatt-
greiðslur þessara fyrirtækja lækka
þegar hagnaður minnkar.
Ljóst er að fjármálafyrirtækin
gera ráð fyrir að ákveðið verði að
leggja af verðleiðréttingu, a.m.k.
hafa nokkur þeirra þegar lýst yfir
að þau muni leggja niður verð-
bólgureikningsskil frá og með
árinu 2002. Ástæðan er sögð sífellt
meiri þátttaka í alþjóðlegu um-
hverfi og afnám verðbólgureikn-
ingskila geri reikningsskil fyrir-
tækjanna samanburðarhæfari á
alþjóðavettvangi.
Verðleiðrétt reikningsskil verði aflögð
Kallar á víðtæk-
ar breytingar á
skattalögum
Morgunblaðið/Ásdís
Íslandsbanki tilkynnti við birtingu
milliuppgjörs að hagnaður bankans
fyrir skatta hefði orðið um 700
milljónum meiri hefði verðbólgu-
reikningsskilum ekki verið beitt.
VERSLUNAR- og skrifstofuhús-
næði hefur aukist um 125% í rúm-
metrum á síðastliðnum 18 árum,
en á sama tímabili hefur lands-
framleiðsla vaxið um 60%. Þetta
kemur fram í nýjum Hagvísum
Þjóðhagsstofnunar, en þar segir
að ekki liggi fyrir opinberar upp-
lýsingar um skiptingu milli versl-
unar- og skrifstofuhúsnæðis.
Fram kemur að þegar Kringlan
var opnuð var verslunarrými þar
20 þúsund fermetrar og áætluðu
eigendur Kringlunnar þá að við-
bótin við verslunarrými á höfuð-
borgarsvæðinu yrði 10-12%, en nú
er verslunarrými í Kringlunni 35
þúsund fermetrar. Verslunarrými
í Smáralind verður 40 þúsund fer-
metrar og af eigendum Smára-
lindar er sú viðbót við verslunar-
rýmið á höfuðborgarsvæðinu
einnig áætluð 10-12%.
Segir í Hagvísum Þjóðhags-
stofnunar að samkvæmt þessum
tölum megi áætla að verslunar-
rými á höfuðborgarsvæðinu sé nú
um 380 þúsund fermetrar og
verslunarrýmið miðað við hvern
íbúa á höfuðborgarsvæðinu hafi
því vaxið úr 1,4 fermetrum árið
1987 í 2,1 fermetra árið 2001.
Mikil aukning verslunar- og skrifstofu-
rýmis á höfuðborgarsvæðinu
Aukningin 125%
á 18 árum
FLUTNINGADEILD Bandaríkja-
hers hefur framlengt samning sinn
við Atlantsskip og TransAtlantic
Lines LLC um eitt ár. Upprunaleg-
ur samningur Varnarliðsins við Atl-
antsskip frá 1998 var til tveggja ára
með ákvæði um þrjár eins árs fram-
lengingar. Þetta er í annað sinn sem
bandarísk stjórnvöld nýta sér
ákvæði um að framlengja samning-
inn og gildir framlengingin nú út
október á næsta ári.
Stefán Kjærnested, framkvæmda-
stjóri Atlantsskipa, segir í samtali
við Morgunblaðið að flutningar fyrir
Varnarliðið hafi gengið vel í alla staði
og ekki sé ástæða til að ætla annað
en Varnarliðið framlengi í þriðja
skipti að ári. „Svo lengi sem við
stöndum okkur og skilum góðu verki
eru þessar framlengingar yfirleitt
notaðar. Við höfum lagt mikið kapp á
að veita Varnarliðinu góða þjónustu,
höfum átt gott samstarf við það, og
meðan svo er búumst við við þessum
framlengingum.“
Árið 2003 verður verkið boðið út
að nýju og að sögn Stefáns munu
Atlantsskip taka þátt í því útboði.
Í fréttatilkynningu kemur fram að
Atlantsskip hafa um 50% markaðs-
hlutdeild í flutningum milli Íslands
og Bandaríkjanna. „Flutningarnir
fyrir Varnarliðið eru kjölfestan í
rekstri félagsins en félagið hefur
10% hlutdeild í almennum flutning-
um og annast flutninga fyrir Sam-
skip milli Íslands og Bandaríkj-
anna,“ segir í tilkynningunni.
Atlantsskip hafa verið með tvö
skip í siglingum milli Íslands og
Bandaríkjanna, Radeplein og Geysi.
Alls sigla skip félagsins þrjátíu ferðir
á ári og hafa því viðkomu í höfnum í
Bandaríkjunum og á Íslandi á tólf
daga fresti.
Varnarliðið fram-
lengir samning
við Atlantsskip
TRYGGINGASJÓÐUR sparisjóða
hefur komið Sparisjóði Hornafjarðar
og nágrennis til aðstoðar vegna þess
að sparisjóðurinn hefur í öryggis-
skyni þurft að auka umtalsvert fram-
lög í afskriftareikning útlána. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að þessi
óvæntu afskriftaframlög stafi af því
að nokkrir af viðskiptamönnum
Sparisjóðs Hornafjarðar hafi að und-
anförnu átt í rekstrarerfiðleikum.
Allir sparisjóðir á Íslandi eru aðilar
að Tryggingasjóði sparisjóða, en til-
gangur sjóðsins er að aðstoða ein-
staka sparisjóði ef upp koma erfið-
leikar í rekstri þeirra. Í
fréttatilkynningunni segir að í sam-
ræmi við þetta markmið muni Trygg-
ingasjóður sparisjóða aðstoða Spari-
sjóð Hornafjarðar og nágrennis
vegna þeirra tímabundnu aðstæðna
sem nú steðja að sparisjóðnum.
Tryggingasjóð-
ur til aðstoðar
Sparisjóði
Hornafjarðar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leita eftir
skráningu hlutabréfa Landssíma Ís-
lands hf. á Tilboðsmarkað Verðbréfa-
þings Íslands hf. og í tilkynningu frá
Framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu kemur fram að gengið hefur ver-
ið frá samningi við Búnaðarbanka Ís-
lands hf. um viðskiptavakt með
hlutabréfin. Ríkissjóður mun bjóða til
sölu hlutabréf í Landssímanum á
markaðsgengi hverju sinni en þó
aldrei á lægra gengi en 6,1. Sölutilboð
af hálfu ríkissjóðs verða að hámarki
300.000 krónur að nafnvirði, sem er
sami hlutur og var boðinn til sölu í al-
mennu áskriftarsölunni.
Bréf Símans
á Tilboðs-
markað VÞÍ
♦ ♦ ♦