Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 26
VIKULOK
26 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
www.lysi.is
Hvenær er dagsyfja óeðlileg?
SVAR Dagsyfja er ein af algengustuumkvörtunum sem tengjast
svefni. Svefnþörf er mjög einstaklings-
bundin en flestir þurfa um átta tíma svefn á
hverri nóttu.
Ef ekki fæst nægur svefn á einni nóttu
kemst fólk í nokkurs konar svefnskuld þar
sem þörf fyrir djúpan endurnærandi svefni
safnast upp að ákveðnu marki.
Í okkar samfélagi er algengt að fólk neiti
sér um nægan svefn á vinnudögum og bæti
sér það síðan upp um helgar. Þessi lífsstíll
er hvað algengastur hjá ungu fólk en er-
lendar rannsóknir benda til þess að allt að
86% yngra fólks sofi að jafnaði of lítið. Ekki
þarf mikið til þess að áhrif svefnleysis geri
vart við sig. Það að sofa til dæmis í sex
klukkustundir í stað átta í nokkrar nætur
getur haft áhrif á skaplyndi, árvekni og við-
bragðsflýti. Áhrifanna gætir hvað mest við
löng einhæf verkefni en akstur er einmitt af
þeim toga.
Við langa keyrslu er því talsverð hætta á
að syfjaður ökumaður dotti í örfáar sek-
úndur sem er nægur tími til þess að valda
alvarlegu umferðarslysi.
Skert frammistaða vegna dagsyfju getur
þannig verið hættuleg heilsu manna og hef-
ur án efa verið völd að fjölda umferðar- og
vinnuslysa.
Ein leið við að meta dagsyfju er að átta
sig á líkindum þess að hver einstaklingur
sofni yfir daginn. Einn mest notaði spurn-
ingarlisti við mat á dagsyfju er Epworth
Sleepiness Scale (ESS) sem samanstendur
af átta spurningum um líkindi þess að sofna
við mismunandi aðstæður.
Gerður er greinarmunur á syfju og
þreytu. Þreyta er skilgreind sem sljóvgandi
tilfinning tilkomin vegna líkamlegs erfiðis
eða álags en syfja sljóvgandi tilfinning
vegna eðlislægrar þarfar fyrir svefni. Nið-
urstaða prófsins fæst með því að leggja
saman stig allra spurninga (engar líkur =
0, litlar líkur = 1, nokkrar líkur = 2, miklar
líkur = 3). Miðað er við að útkoma hærri en
10 bendi til óeðlilegrar dagsyfju. Tökum
sem dæmi þau svör sem búið er að merkja
við á listanum. Niðurstaða prófsins er 12
stig sem bendir til mikillar dagsyfju og ætti
viðkomandi að skoða svefnvenjur sínar nán-
ar. Fyrir það fyrsta þarf að huga að næt-
ursvefni en ef dagsyfja er enn til staðar
þrátt fyrir nægan svefn er full ástæða til
þess að leita til læknis og þá sérstaklega ef
sjúkdómseinkenni kæfisvefns eru til staðar
(háværar hrotur og öndunarhlé í svefni).
Hversu líkleg(ur) ert þú til þess að dotta
eða sofna í eftirfarandi aðstæðum, en ekki
að verða einungis þreytt(ur). Jafnvel þó að
þú hafir ekki gert alla þessa hluti nýlega,
reyndu þá að meta hvaða áhrif þeir hefðu
haft á þig.
Líkur á að ég dotti eða sofni í eftirfarandi
aðstæðum:
1. Sit og les: 0 Engar 1 Litlar 2 Talsverðar
3 Miklar
2. Horfi á sjónvarp: 0 Engar 1 Litlar 2 Tals-
verðar 3 Miklar
3. Sit aðgerðarlaus og fylgist með (t.d. í
leikhúsi eða á fundi); 0 Engar 1 Litlar 2
Talsverðar 3 Miklar
4. Er farþegi í bíl í eina klukkustund án
stopps: 0 Engar 1 Litlar 2 Talsverðar 3
Miklar
5. Leggst ég fyrir um eftirmiðdaginn þegar
aðstæður leyfa: 0 Engar 1 Litlar 2 Tals-
verðar 3 Miklar
6. Sit og spjalla við einhvern: 0 Engar 1
Litlar 2 Talsverðar 3 Miklar
7. Sit í rólegheitum eftir máltíð (án víns): 0
Engar 1 Litlar 2 Talsverðar 3 Miklar
8. Sit í bíl sem er kyrr í nokkrar mínútur
vegna umferðar: 0 Engar 1 Litlar 2 Tals-
verðar 3 Miklar
Dagsyfja getur verið hættuleg heilsu
eftir Einar Örn Einarsson
...........................................................
persona@persona.is
Höfundur er BA í sálfræði og starfar við
svefnrannsóknir.
Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurn-
ingum varðandi
sálfræði-, fé-
lagsleg og vinnu-
tengd málefni til
sérfræðinga á vegum per-
sona.is. Senda skal tölvupóst
á persona@persona.is og
verður svarið jafnframt birt á
persona.is.
SIÐAREGLUR, gildi og trúar-
brögð vega þyngra í ákvörðun
táninga um að hefja kynlíf eða
fresta því, en óttinn við kyn-
sjúkdóma, ótímabæra þungun
eða aðrar ástæður, að því er ný-
leg könnun samtakanna Nation-
al Campaign to Prevent Teen
Pregnancy (þjóðarátak gegn
táningaþungunum) leiddi í ljós.
Svo virðist sem trúarlegar
stofnanir geti verið liðsmenn í
baráttunni gegn þungunum ung-
lingsstúlkna.
Könnunin, sem var gerð með-
al bandarískra táninga í byrjun
mánaðarins, sýndi m.a. að meiri
líkur voru á því að trúræknir
táningar seinkuðu því að hefja
kynlíf, en þeir sem ekki voru
jafn trúaðir. Ef hins vegar trú-
ræknu táningarnir fóru á annað
borð að stunda kynlíf, voru
minni líkur á að þeir notuðu
getnaðarvarnir en hinir.
Þeir sem að könnuninni stóðu
telja að niðurstöður hennar séu
ekki nógu skýrar til að byggja á
henni einhverja stefnumörkun.
Þó er vonast til að hún hvetji til
frekari umræðu um hvernig
megi draga enn frekar úr þung-
unum unglingsstúlkna, en þung-
unum þeirra hefur fækkað mjög
á síðastliðnum áratug.
„Að koma í veg fyrir tán-
ingaþunganir snýr jafn mikið að
siðferðilegum og trúarlegum
gildum og að almannaheilsu,“
segir m.a. í skýrslunni sem kom
út sl. þriðjudag. „Gildismat á því
hvað er rétt og rangt, viðeig-
andi og óviðeigandi, hefur ekki
síður áhrif á ákvarðanir táninga
um kynhegðun, en hina full-
orðnu.“
Helmingur 502 þátttakenda í
könnuninni sagði að foreldr-
arnir hefðu mest áhrif á afstöðu
þeirra til þess að hefja kynlíf,
það voru þrefalt fleiri en þeir
sem nefndu félaga sína sem
sterkustu áhrifavalda á þessu
sviði.
Trú og
þunganir
tánings-
stúlkna
Reuters
TENGLAR
.....................................................
www.teenpregnancy.org
BÖRN í leikskóla sem horfa nokkra
klukkutíma á viku á fræðsluefni í
sjónvarpi stóðu sig betur á þekking-
arprófi en börn sem horfðu á al-
menna skemmtidagskrá í sama
miðli. Tímaritið Child Development
greinir frá rannsókninni en fylgst
var með sjónvarpsnotkun 200 barna
á aldrinum 2–7 ára í þrjú ár. Á
hverju ári var metin geta barnanna í
lestri, stærðfræði og hver orðaforði
þeirra var.
„Það getur verið ávinningur af því
fyrir börn að horfa á sjónvarp, en
það getur einnig verið þeim skað-
legt,“ segir dr. Aletha C. Huston sem
starfar við Háskólann í Texas, í
Austin, ein af rannsakendunum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
leiddu í ljós að börn á aldrinum 2–3
ára sem horfðu á fræðsluefni í sjón-
varpi nokkra klukkutíma á viku
stóðu sig betur á þekkingarprófi
þrem árum síðar en þau sem ekki
höfðu horft á þetta efni.
Ung börn sem eyddu mörgum
klukkustundum í að horfa á
skemmtiefni í sjónvarpi stóðu sig
verr á þekkingarprófinu en þau sem
horfðu á slíka dagskrá færri stundir
á viku.
Dr . Huston segir að sú tilhneiging
að afgreiða sjónvarp sem ógnvald án
þess að skilgreina nánar hvaða inni-
hald er um að ræða sé í raun út í hött.
„Það að þau horfðu á fræðsluefni í
sjónvarpi tengdist betri færni þeirra
í skóla og það er jákvætt,“ segir hún.
Huston og samverkamenn hennar
tóku einnig inn í myndina menntun
foreldra barnanna og félagslega og
efnalega stöðu þeirra.
Stóðu sig betur
á þekkingarprófi
Sérfræðingar á þessu sviði benda
á að könnun sem þessi geti aldrei á
óyggjandi hátt sannað að börnin hafi
staðið sig betur á þekkingarprófinu
vegna þess að þau horfðu á fræðslu-
efni í sjónvarpinu.
„Það verður að taka fleiri þætti
inn í myndina eins og að foreldrar
barnanna hafi mismikinn áhuga á að
uppfræða þau.
Það er ómögulegt að segja til um
hvað er orsök og hvað er afleiðing í
könnun sem þessari,“ segir dr.
Thomas Robinson, prófessor í
barnalækningum við Stanford-há-
skóla í Kaliforníu. „Niðurstöðurnar
eru í samræmi við skammtímarann-
sóknir sem sýna ávinning af því fyrir
börnin að horfa á fræðsluefni í sjón-
varpi.
Dr. Huston ráðleggur foreldrum
að íhuga kosti þess að horfa á sjón-
varp. „Notið sjónvarpið skynsam-
lega og fylgist með því sem börnin
ykkar horfa á.“
Fræðsluefni í sjón-
varpi eflir vitsmunina
Morgunblaðið/Arnaldur
Það er ávinningur af því fyrir börn að horfa á fræðsluefni í sjónvarpi.