Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 35
Á BAKSÍÐU Morg-
unblaðsins hinn 23.
þ.m. birtist grein þar
sem því er haldið fram
að Alþjóðaviðskipta-
stofnunin (WTO) dragi
í efa forsendur Íslands
fyrir útreikningi á inn-
anlandsstuðningi við
landbúnaðinn. Í því
sambandi er vísað til
bréfs sem utanríkis-
ráðuneytið sendi land-
búnaðarráðuneytinu
hinn 23. apríl 2001.
Hinn 24. þ.m. birtist
leiðari í Morgunblaðinu
um sama efni undir yf-
irskriftinni „Tvískinn-
ingur Íslands í WTO“,
en þar er m.a. dregin upp þversagna-
kennd mynd af hagsmunum Íslands í
sjávarútvegi annars vegar og land-
búnaði hins vegar.
Í umræðum um landbúnaðarmál
og WTO hérlendis er stundum kosið
að líta fram hjá mikilvægum stað-
reyndum um framkvæmd samnings-
skuldbindinga Íslands, ekki síst ef
stjórnvöld hafa gengið lengra í
frjálsræðisátt en skuldbindingarnar
kunna að segja til um. Þannig hafa ís-
lensk stjórnvöld alls ekki nýtt sér
samningsbundnar heimildir til
greiðslu útflutningsbóta. Ennfremur
eru færri vörur háðar kvótastjórnun
en gerist og gengur, samnings-
bundnar tollalækkanir hafa í mörg-
um tilfellum gengið hraðar fyrir sig
en kveðið er á um og rauntollar oft
langt innan heimilda. Framkvæmd
okkar á þessum flóknu skuldbinding-
um hefur um margt gengið mjög vel
og því er ekki hægt að sitja hjá þegar
hugsanleg samningsbrot eru gefin í
skyn.
Ég vil sem landbúnaðarráðherra
upplýsa að þau álitamál sem fyrr-
greint bréf utanríkisráðuneytisins
varpar ljósi á eru mér og mínu ráðu-
neyti vel kunnug og geri ég engar at-
hugasemdir við efni þess. Eins og
aðrir samningsaðilar hafa íslensk
stjórnvöld gengist und-
ir þær skuldbindingar
sem landbúnaðarsamn-
ingur WTO felur í sér
og liggur það ljóst fyrir
að ákvæði hans verða
að vera höfð að leiðar-
ljósi við framkvæmd
núgildandi stuðnings-
aðgerða og við gerð
hugsanlegra breytinga
á gildandi stuðnings-
fyrirkomulagi.
Ómögulegt er að spá
hvað framtíðin kann að
bera í skauti sér en ef
fram fer sem horfir
verður að gera ráð fyrir
að framleiðslutengdur
og markaðstruflandi
stuðningur verði áfram háður lækk-
andi þaki, sem stuðningsáætlanir
stjórnvalda munu þurfa að taka fullt
tillit til. Íslensk stjórnvöld hafa að
öllu óbreyttu takmarkað svigrúm til
að auka stuðning af þessu tagi í
heildina frá því sem nú gerist. Hins
vegar gildir ekkert hámark um hina
svokölluðu grænu styrki, sem eru
taldir hafa engin eða hverfandi lítil
áhrif er leiða til röskunar á viðskipt-
um eða áhrif á framleiðslu.
Varðandi beingreiðslur til sauð-
fjárbænda sem taldar hafa verið
fram í tilkynningum til WTO sem
grænar greiðslur vil ég upplýsa að
athugasemdir við gildandi fyrir-
komulag hafa komið fram af hálfu
nokkurra samningsaðila í hefð-
bundnu starfi landbúnaðarnefndar
WTO þegar tilkynningar Íslands
hafa komið til umfjöllunar. Íslensk
stjórnvöld hafa á móti kynnt sín sjón-
armið og forsendur í málinu og skal
undirstrikað að hvorki landbúnaðar-
nefnd WTO né stofnunin sem slík
hafa fellt nokkurn dóm um þau álita-
mál sem til umræðu hafa verið. Nú er
það einu sinni svo að ef einn samn-
ingsaðili telur annan vera að brjóta
ákvæði samningsins hefur hann rétt
á að vinna að úrlausn málsins sam-
kvæmt samningsbundnu deiluferli.
Ísland hefur aldrei verið tilefni slíks
kærumáls á vettvangi WTO.
Ennfremur var varpað ljósi á þau
álitamál sem upp hafa komið um
stuðningsfyrirkomulagið í reglu-
bundinni athugun WTO á viðskipta-
stefnu Íslands, sem fram fór í febr-
úar í fyrra. Slíkri athugun er fyrst og
fremst ætlað að þjóna gagnsæis-
markmiðum og felur hún að engu
leyti í sér dóm yfir framkvæmd
samningsaðila á skuldbindingum sín-
um. Eitt viðamesta viðfangsefni
landbúnaðarnefndar WTO síðan hún
tók til starfa árið 1995 hefur einmitt
verið að fjalla um túlkun á samnings-
ákvæðum um grænan stuðning og
skilgreiningu samningsaðila á slík-
um greiðslum. Álitamálin eru mörg
og skera stuðningsaðgerðir íslenskra
stjórnvalda sig að engu leyti úr fjöld-
anum. Segja má að hið sama gildi um
þátt verðbólgu í samanlögðum heild-
arstuðningi Íslands, en þar er á ferð-
inni mál sem fleiri samningsaðilar
hafa þurft að kljást við og landbún-
aðarnefndin fer með það sem hnatt-
rænt en ekki séríslenskt mál.
Sem ráðherra landbúnaðarmála í
Ríkisstjórn Íslands geri ég mér fylli-
lega grein fyrir þeim hagsmunum
sem við og í raun heimsbyggðin öll
kann að hafa að gæta í afnámi skil-
greindra styrkja í sjávarútvegi. Af-
nema verður þá styrki sem stuðla að
ofveiði og eyðileggingu sjávarauð-
linda og tryggja þarf að nýting
þeirra sé með sjálfbærum hætti.
Ennfremur er brýnt að við höldum
áfram að reyna að tryggja sem best-
an markaðsaðgang fyrir helstu út-
flutningsvörur okkar.
Hafa verður hugfast að styrkir til
sjávarútvegs annars vegar og til
landbúnaðar hins vegar geta um
margt haft ólík áhrif og falla að afar
ólíkum bakgrunni innan hins fjöl-
þjóðlega viðskiptakerfis. Á vettvangi
WTO hefur sérstaða landbúnaðarins
verið undirstrikuð með sérstökum
samningi, sem viðurkennir stuðn-
ingsaðgerðir við greinina hvort sem
um er að ræða framleiðslutengdan,
framleiðslutakmarkandi eða ótengd-
an stuðning. Aðgerðir þessar eru all-
ar háðar reglum og sumar lækkunar-
skuldbindingum yfir tíma, eins og
um hefur verið samið og um kann að
semjast í framtíðinni. Í landbúnaðin-
um er verið að takast á við ýmis
vandamál er tengjast ríkisstyrkjum,
útflutningsbótum og markaðsað-
gangi eftir settum leikreglum í skil-
greindu samningsferli til lengri tíma.
Þar er m.a. viðurkennt að taka þurfi
tillit til þátta sem ekki eru viðskipta-
legs eðlis í yfirstandandi umbóta-
ferli. Ekki er til staðar sambærilegur
sérsamningur um sjávarútveg og
þurfa hagsmunir okkar og málflutn-
ingur á vettvangi WTO að skoðast í
því ljósi.
Þess skal getið til fróðleiks að
WTO fer með fisk og fiskafurðir sem
iðnaðarvörur. Ríkisstuðningur í sjáv-
arútvegi fellur þannig að skuldbind-
ingum samnings WTO um styrki og
jöfnunarráðstafanir, sem felur ekki í
sér sambærileg ákvæði og landbún-
aðarsamningur WTO. Það lagalega
umhverfi sem hér um ræðir gerir það
að verkum að íslensk stjórnvöld
stunda engan þann tvískinnung á
vettvangi WTO sem leiðari Morgun-
blaðsins vill hafa að sé til staðar.
Hins vegar myndi það eflaust vekja
óskipta athygli ef íslensk stjórnvöld
færu að skera sig úr fylkingu samn-
ingsaðila og nýta sér ekki samnings-
bundinn rétt til að aðlaga íslenskan
landbúnað að breyttum lagalegum
og viðskiptalegum veruleika á þeim
tíma sem yfirstandandi umbótaferli
kann að taka.
Gjarnan vill það gleymast að land-
búnaðarsamningur WTO setur sér
langtíma- en ekki skammtímamark-
mið. Það markmið er að draga úr
stuðningi og vernd í landbúnaði í
þeim tilgangi að leiðrétta og koma í
veg fyrir takmarkanir og raskanir á
heimsmarkaði fyrir landbúnaðarvör-
ur. Íslensk stjórnvöld hafa gerst að-
ilar að samningnum og geta fyrir vik-
ið ekki verið annað en sammála
þessu markmiði. Að því verður sjálf-
sagt unnið með skipulegum hætti á
komandi árum og áratugum á vett-
vangi WTO, með þátttöku íslenskra
stjórnvalda á grundvelli sinna hags-
muna eins og þeir kunna að vera skil-
greindir á hverjum tíma.
Íslenskur landbúnaður og WTO
Guðni
Ágústsson
Landbúnaður
Ísland hefur aldrei,
segir Guðni Ágústsson,
verið tilefni kærumáls
á vettvangi WTO.
Höfundur er landbúnaðarráðherra.
SÖNGURINN dun-
aði við undirleik lít-
illar hljómsveitar.
Ómurinn af honum
var sterkur og gleðin
mikil. Af líkamstján-
ingu fólks mátti sjá að
það var úr mörgum
og mismunandi
kirkjudeildum. Litar-
háttur og andlitsfall
gaf til kynna að þarna
voru fulltrúar allra
heimsálfa. Á annað
þúsund manns voru
saman komin í Holy
Trinity Brompton-
kirkjunni í London á
alþjóðlegri ráðstefnu
um hvernig halda á Alfa-námskeið
síðastliðið sumar en þetta nám-
skeið hefur farið sigurför um
heiminn á undanförnum árum.
Kirkjan er stór og virðuleg bisk-
upakirkja. Saga safnaðarins í
kirkjunni síðustu ár er mjög at-
hyglisverð. Fyrir um tuttugu árum
voru föstu kirkjubekkirnir fjar-
lægðir og lausir stólar settir í
staðinn þannig að hægt var að
nýta hana betur fyrir námskeið og
aðra starfsemi utan guðsþjónustu-
tíma. Allt sem fram fer fremst í
kirkjunni sést á tveimur stórum
skjám báðum megin við kórinn og
í sjónvarpstækjum víðs vegar um
kirkjuna. Þar sjást einnig allir
textar sem sungnir eru.
Saga Alfa
En hvað er Alfa? Það er tíu
vikna námskeið um kristna trú og
tilgang lífsins.
Áhersla er lögð á það
sem sameinar kristna
menn en sneitt hjá því
sem skiptir þeim í
kirkjudeildir. Nám-
skeiðið var upphaf-
lega ætlað þeim sem
voru að taka fyrstu
skrefin á braut krist-
innar trúar. Nicky
Gumbel, prestur við
Holy Trinity-kirkj-
una, hóf umsjón með
því í árslok 1990.
Hann gerði það að-
gengilegt fyrir efa-
hyggjufólk, þá sem
hafa litla þekkingu á
kristinni trú og fara sjaldan eða
aldrei í kirkju. Aðspurður segist
Nicky hafa reynt, er hann mótaði
námskeiðið, að hafa það með léttu
yfirbragði og óformlegt, þannig að
fólk gæti komið og farið eins og
það vildi.
Námskeiðinu var frábærlega vel
tekið og þegar árið 1992 var farið
að halda slík námskeið utan Holy
Trinity-kirkjunnar. Árið 1993 voru
haldin 200 Alfa-námskeið og þá
þótti ástæða til að efna til ráð-
stefnu fyrir þá sem kenndu á nám-
skeiðinu eða höfðu í hyggju að
gera það. Slíkar ráðstefnur hafa
síðan verið haldnar árlega í Lond-
on. Fulltrúar frá Íslandi hafa sótt
þær frá 1995 og síðan þá hefur
námskeiðið verið kennt hér á
landi, í samfélögum og söfnuðum
innan og utan þjóðkirkjunnar. Í
júlí síðastliðnum höfðu verið hald-
in um 18.200 Alfa-námskeið víðs-
vegar í heiminum með um þremur
milljónum þátttakenda í 126 lönd-
um. Meira en 1,2 milljónir manna
hafa farið á Alfa-námskeið á Bret-
landseyjum.
Árangur
Kannanir í Englandi hafa leitt í
ljós að um 20% þeirra sem fara á
Alfa-námskeið eignast kristna trú.
Enskt tímarit hélt því fram í fyr-
irsögn fyrir nokkru að Nicky
Gumbel hefði snúið 200.000 manns
til kristinnar trúar og að hann
væri valdameiri en erkibiskupinn
af Kantaraborg. Þekkt dagblað í
Englandi spurði í fyrirsögn hvort
Alfa markaði nýtt upphaf kristn-
innar þar í landi. Um 100 manns
starfa nú í Holy Trinity-kirkjunni í
London við að styðja framgang
námskeiðsins um allan heim.
Frumkvöðlar þess eru stöðugt á
faraldsfæti um heiminn til að
halda fjölmennar Alfa-ráðstefnur
eins og þá sem haldin er árlega í
London.
Sem dæmi um þá athygli sem
Alfa-námskeiðið hefur vakið gerði
David Frost, sjónvarpsmaðurinn
heimskunni, tíu einnar klukku-
stundar langa þætti um þau sem
sýndir eru um þessar mundir á
ITV, stærstu einkareknu sjón-
varpsstöð Englands. Um fimm
milljónir manna sáu þrjá fyrstu
þættina.
Alfa-námskeið eru stöðuglega
haldin í Holy Trinity-kirkjunni.
Þátttakendur eru um eitt þúsund á
hverju þeirra.
Kirkjuvöxtur
Á sjöunda áratug síðustu aldar
voru kirkjugestir Holy Trinity-
kirkjunnar sjaldan fleiri en fimm-
tíu. Svo margt fólk hefur bæst við
söfnuðinn fyrir tilverknað Alfa-
námskeiðanna að hún rúmar það
ekki. Á hverjum sunnudegi eru
fjórar guðsþjónustur, kl. 9 og 11
og kl. 17 og 20. Morgunguðsþjón-
ustan klukkan níu er í hefðbundn-
um stíl með helgisiðum og sígild-
um sálmum sem sungnir eru við
undirleik pípuorgels. Um 100
manns sækja hana að staðaldri.
Hinar guðsþjónusturnar eru líkari
samkomum. Þar eru gítarar,
trommur, fiðlur og ýmis önnur
hljóðfæri notuð til undirleiks.
Stundum er pípuorgelið einnig
haft með. Yfirbragðið er létt og
nútímalegir söngvar eru í meiri-
hluta. Um 1.000 kirkjugestir sækja
þessar guðsþjónustur hverja fyrir
sig. Segja má að form þeirra sé á
forsendum fólks sem er óvant að
sækja kirkju.
Sóknarnefnd Holy Trinity-safn-
aðarins hefur samið við sóknar-
nefndir sjö safnaða, þar sem safn-
aðarlíf hafði lagst af, um að fá að
senda presta þangað til starfa. Í
kjölfarið hefur fólkið í Holy Tri-
nity-kirkjunni verið beðið um að
fylgja prestunum og taka þátt í
safnaðarstarfinu á nýju stöðunum.
Mörg hundruð manns hafa tekið
þátt í uppbyggingarstarfinu. Á
þennan hátt hefur vöxturinn í
Holy Trinity-kirkjunni getað hald-
ið áfram og líf hans fætt af sér
nýja söfnuði. Vöxtinn má að miklu
leyti rekja til Alfa-námskeiðanna.
Söfnuðir í ýmsum öðrum löndum
hafa notað Alfa-námskeiðið til að
gæða safnaðarstarfið nýju lífi.
Vegna velgengni Alfa-nám-
skeiðsins hefur efni þess verið að-
lagað til notkunar í fangelsum, fyr-
ir börn, unglinga og námsmenn.
Það hefur gefist sérstaklega vel á
meðal fanga og fjöldi þeirra hefur
tekið kristna trú. Það er kennt í
120 af 158 fangelsum Bretlands-
eyja.
Er undirritaður spurði Nicky
Gumbel hvernig hann sæi framtíð
Alfa fyrir sér svaraði hann bros-
andi: „Ég sé fyrir mér að nám-
skeiðið muni leiða til meiri kirkju-
sóknar og að fangelsin tæmist!“
Alfa á Íslandi
Alfa-námskeið hafa nú verið
kennd á Íslandi í sex ár og mörg
hundruð manns hafa sótt þau.
4.–5. október næstkomandi verður
haldin ráðstefna í Grafarvogs-
kirkju svipuð þeirri sem haldin er
árlega í Holy Trinity-kirkjunni í
London þar sem Íslendingum
verður kennt að halda Alfa-nám-
skeið. Sr. Sandy Miller, yfirprest-
ur safnaðarins, verður aðalræðu-
maður ásamt Jan Bakker frá
Hollandi. Vænst er mikillar þátt-
töku Íslendinga, sérstaklega
presta, starfsfólks safnaða og
sóknarnefndarfólks, auk margra
sem hafa farið á Alfa-námskeið.
Ráðstefnan er öllum opin. Skyldi
Alfa marka nýtt upphaf íslenskrar
kristni?
Alfa, námskeiðið sem
fer sigurför um heiminn
Kjartan
Jónsson Námskeið
Alfa-námskeið hafa
nú verið kennd á
Íslandi í sex ár, segir
Kjartan Jónsson,
og mörg hundruð
manns hafa sótt þau.
Höfundur er framkvæmdastjóri
KFUM og KFUK í Reykjavík.
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
Hálskremið — hálskremið
BIODROGA