Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 41

Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 41 ekki var það verra að Brynja hafði gaman af að leika sér með okkur, sveifla sér í dráttartauginni, og á þennan hátt tróðum við heyið og gerðum gagn, en skemmtum okkur um leið. Brynja kom stundum með gítarinn út í hlöðu og þá var sungið hástöfum og ég held að Nonna hafi ekki þótt það leiðinlegt. Nonni var mikill dugnaðarforkur og féll aldrei verk úr hendi. Hann var vígur á tré- og járnsmíðar og gerði við vélar og verkfæri. Á fjöru sótti hann rekavið sem hann vann, sagaði m.a. borð sem notuð voru til bygg- ingar íbúðarhússins. Það var einnig farið í Fljótið og ég man hvað ég var stolt af afa og Nonna þegar þeir óðu ásamt nágrönnum sínum með netið yfir kolmórautt Kúðafljótið á ullar- sokkum, föðurlandi og ullarbol. Þetta lögðu þeir á sig til þess að ná í sjóbirt- ing, sem á þessum tíma var ekki lífs- björg en þótti góður, og ef til vill var þetta líka strákurinn í þeim. Nálægðin við Kötlu og Mýrdals- jökul hefur mótað líf Álftveringa í gegnum tíðina. Nonni hafði eins og margir aðrir bændur í Verinu brenn- andi áhuga á sögu og jarðfræði svæð- isins. Það kom ekki ósjaldan fyrir að hann gróf niður á öskulag eða annað áhugavert og þá var umsvifalaust hringt suður í Sigurð Þórarinsson og síðar Guðrúnu Larsen, sem voru og eru sérfræðingar í gossögu Kötlu. Það var alltaf hugsanlegt að þarna væri eitthvað á ferðinni sem gæti varpað ljósi á gossöguna. Afi og nokkrir aðrir úr Verinu voru upp á Sandi í smalamennsku þegar hlaupið úr Kötlu kom niður sandinn 1918, þeim alveg að óvörum. Nonni vissi, af frásögn afa, nákvæmlega hvar hver var staddur þegar þeir sáu hlaupið, hvað var langt í það og hvaða leið þeir riðu niður í Ver undan hlaupinu. Fá- ar sögur hafa mér þótt eins spenn- andi og þessi sanna ævintýrasaga. Nonni hafði mikinn áhuga á öllu sem kom heimabyggð hans við. Þegar ég valdi að kortleggja og skrifa um ör- nefni í Álftaveri í lokaritgerð minni í landafræði við Háskólann, var ekki að sökum að spyrja, áhugi frænda míns var óskiptur. Hann fór með mér um og útskýrði örnefnin og hafði ódrepandi áhuga á verkefninu. Hann lánaði mér jeppann, Brynja sendi mig með nesti handa mér og heim- ildamönnum mínum öðrum sem fóru með mér um svæðið. Það er ljóst að án gestrisni þeirra og hjálpar hefði ég ekki unnið verkið. Nonni var trúaður. Kirkjan var honum kær og hann fór ófáar ferðir með gesti til að skoða kirkjuna og klausturhólinn og sagði þá frá kirkju- og klaustursögu staðarins. Vinir mín- ir þrír sem komu í Verið í júlí í sumar, í stórum hópi ferðamanna, sögðu mér hvað það hefði verið gaman að fá leið- sögn hans. Nonni missti heilsuna á tiltölulega góðum aldri, en vann við búskapinn meðan heilsan leyfði og meira en það. Hann missti aldrei áhugann á bú- skapnum. Það var honum mjög kær- komið þegar Kidda og Siggi tóku síð- ar við búskapnum á Klaustri. Frændi minn var mjög ættrækinn og unni sínum mjög. Það var honum mikið gleðiefni þegar stórfjölskyldan fór að venja komur sínar í ættarreitinn, sem þau Klaustursfólkið gáfu henni af miklum höfðingsskap. Við höfum í ríkum mæli notið gestrisni þeirra allra og ungviðið geislaði af gleði þeg- ar Nonni keyrði þau um á dráttarvél og kerru og áhuginn skein út úr and- litunum þegar hann lét falla marga fróðleiksmola um sveitalífið. Þegar reiturinn fylltist af tjöldum og hús- vögnum, menn farnir að vinna við húsbyggingu og garðrækt voru fáir sælli en hann frændi minn. Nonni var gæfusamur að eignast Brynju. Hún stóð alla tíð við hlið hans til allra verka. Á síðustu árum þegar heilsan þvarr reyndist hún honum einstaklega vel. Elsku Nonni og afi Brynjólfsson eins og Freyr kallaði þig. Við þökk- um þér fyrir allt gott og sanna tryggð á liðnum árum. Brynja mín, hugurinn er hjá þér, krökkunum og barna- börnunum. Guðrún og Freyr.  Fleiri minningargreinar um Hilmar Jón Brynjólfsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elsku Sara mín. Það er svo ótrúlegt til þess að vita að þú sért farin frá okkur, svo alltof fljótt. Það er sárt til þess að hugsa að aldrei framar fái ég að heyra fallega hláturinn þinn, sjá fallega brosið þitt eða bara það að geta ver- ið nálægt þér. Lífið getur verið svo ósanngjarnt. Þú varst alltaf svo kát, alltaf brosandi. Þú hafðir þessa lífs- gleði sem smitaði alla þá sem í kringum þig voru, það bókstaflega geislaði af þér. Þú varst besta vin- kona sem hugsast getur og það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um SARA ABDELAZIZ ✝ Sara Abdelazizfæddist í Reykja- vík 6. janúar 1983. Hún lést af slysför- um 11. ágúst síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 22. ágúst. þig. Ég man þegar þú varst nýflutt á Búa- grundina og ég sá her- bergið þitt í fyrsta sinn, mér fannst það svo fallegt. Þú hafðir mikið dálæti á englum og herbergið þitt var eins og englahöll, engl- astyttur, englagardín- ur og myndir af engl- um. Kannski var það vegna þess að þú varst sjálf algjör engill. Minningarnar streyma en það er erfitt að koma þeim öllum á blað. Þessar minningar eru svo ynd- islegar og þær á ég alltaf eftir að geyma í hjarta mínu. Kæra vinkona, með mikinn söknuð í hjarta kveð ég að sinni, en ég veit að við eigum eftir að hittast aftur í himnaríki. Guð geymi þig elskan mín, ég mun ávallt sakna þín. Þín vinkona Bylgja Mjöll. Kveðja frá Tónlistarskóla Grindavíkur Þegar Siguróli Geirsson tók við Tónlistarskóla Grindavíkur hafði skólinn starfað í þónokkur ár. Þar hafði þó verið lítil starfsemi um tíma. Með miklum dugnaði byggði hann upp starfsemina með hjálp kennara skólans. Það spruttu upp samspilshópar og lúðrasveit. Sigur- óli var óvenju fjölhæfur tónlistar- maður. Hæfni hans í að ná tökum á hinum ýmsu hljóðfærum bjargaði oft því sem bjarga þurfti. Hann kenndi á ein 4–5 mismunandi hljóð- færi, en tréblástursdeildin var hans sérsvið. Siguróli var einnig tónlistarstjóri kirkjunnar, organisti, kórstjóri, út- setjari og tónskáld. Hann stofnaði barnakór við kirkjuna og starfaði eiginkona hans Vilborg Sigurjónsdóttir lengst af með honum. Kórinn kom fram við hin ýmsu tækifæri og gerði garðinn frægan í Danmerkurför sinni. Vinnuþrekið var mikið enda mik- ið til hans leitað. Og aldrei sagði hann nei. Alltaf var fundin lausn á vandamálinu. Grindvísk æska á Siguróla Geirs- syni mikið að þakka. Hans er sárt saknað. Samstarfsfólk T.G. Siguróla og hans góðu konu, Vil- borgu Sigurjónsdóttur, kynntumst við í ágúst l992, þar sem heimili okkar voru hlið við hlið, Víkurbraut 34 og 36. Sterk tengsl mynduðust milli heimilanna og notalegur sam- gangur, það var hægt að hringja að kveldi og segjast vera búin að hella á könnunna og biðja þau að koma í kaffi, þau alltaf jafn yndisleg og SIGURÓLI GEIRSSON ✝ Siguróli Geirs-son fæddist í Keflavík 19. maí 1950. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 20. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkur- kirkju 28. septem- ber. samhent, komu hald- andi hönd í hönd bros- andi af hamingju. Það koma svo margar minningar upp í hug- ann, fermingarveislan hans Ernis fósturson- ar Siguróla t.d. Ernir er yngstur þriggja yndislegra sona Vil- borgar, gekk Siguróli honum í föðurstað og vart hægt að hugsa sér betri föður, og ávallt mjög kært með þeim og traust milli þeirra. Eldri synirnir, Stein- grímur og Úlfar, sem voru flognir úr hreiðrinu, en mjög kært var á milli þeirra og Siguróla. Þá kemur upp í hugann skemmtileg helgi er þau komu til mín vestur í Lamba- nes, þá var Ernir með í ferðinni og á ég myndir frá þeim tíma, þar var borðað saman og skrafað og haft gaman af samfundum. Þá kemur upp í hugann kóramót í Vestmanna- eyjum, það var ánægjuleg ferð, þetta var í sjómannaverkfallinu og kórarnir fengu ferð með varðskip- inu Óðni. Þar var glatt á hjalla og mikið sungið. Þá æfðu kórarnir með sínum söngstjórum, og var síðan skipt upp í hópa undir stjórn ann- arra stjórnenda, lauk svo mótinu með sameiginlegu borðhaldi og dansi fram á nótt með miklu fjöri. Það var mikill húmor á heimilinu ykkar, tekið var á móti gestum út- breiddum örmum af kærleika og hjartahlýju, heimilið ykkar svo ynd- islega fallegt, boðið til stofu, lagt á borð með sparistellinu og silfurte- skeið og gafli, alltaf servétta, og gott með kaffinu. Að koma til ykkar þegar verið var að laga mat var sér- lega skemmtilegt, þið stóðuð við eldavélina, hún að hræra í pottun- um og þú með skeið í hendi að smakka, og þegar rétta bragðinu var náð settir þú í hring þumalfing- ur og vísifingur sem þýddi fullkom- ið. Sumarbústaðurinn ykkar, „Geirshús,“ sem þið voruð nýbúin að byggja, er ákaflega fallegur og allt, innanhús sem utandyra, vel gert, þangað var gott að koma, þið komuð á móti okkur Jónsa fagnandi og alltaf veisla þegar gesti bar að garði. Þegar ég rita þessi orð um þig, kæri vinur, er ég að hlusta á Ólöfu Kolbrúnu syngja Allsherjar Drott- in, af Lofsöngsdiski kórs Lang- holtskirkju. Tónlistin af þessum diski minnir mig á þig, eitthvað svo hreint og fallegt. Ég minnist litlu jólanna okkar starfsfólks kirkjunnar, á Hafur- birninum og á Vörinni, hjá Ómari og séra Jónu Kristínu, og síðustu tvö árin, sem við vorum öll saman, vorum við með litlu jólin á Hótelinu við Bláa lónið. Þetta eru ljúfar minningar og til á myndum, sem okkur þykir ákaflega vænt um að eiga. Þú varst glæsilegur í kjól og hvítt, þegar þú bjóst þig upp til að fara á fundi. Ég man þig á notalegu kvöldi eftir annasaman dag, sitja í hægra horni sófans í stofunni ykkar með reykjarpípuna þína með boga- dregnu munnstykki. Á sex ára gift- ingarafmæli ykkar Vilborgar og stúdentsveislu hans Ernis, þennan dag vorum við með ykkur og fjöl- skyldum ykkar að gleðjast saman og Ernir spilaði fyrir gesti sína á flygilinn, undur fallega, og þar lékst þú líka fallega, hljómfagra tónlist, þetta var í síðasta sinn sem við heyrðum þig leika á hljóðfærið, því um nóttina, aðfaranótt 20. desem- ber 1998, varð þetta hræðilega slys, og litli bærinn okkar sat hljóður þessi jól og ástvinir þínir og vina- hópurinn horfði á jólaljósin sem í þoku. Siguróli var flinkur að fara hönd- um um hljóðfærin, ég held sama hvert hljóðfærið var, orgel, flygill, harmonikka eða blásturshljóðfæri. Hann var skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur og afar vel liðinn hvar sem hann kom, samdi fallega tónlist og var mikill útsetjari og mörg lög urðu afar falleg í höndum hans. Við eigum hljómplötu áritaða af Sigur- óla sem hann gaf okkur, þar sem gamli kórinn hans, kór Keflavíkur- kirkju, söng undir hans stjórn, þar á hann sjálfur eitt lag, Gleðihöllina. Fyrsta barnabarn Vilborgar, hún Soffía, dóttir Stínu og Denna, er fædd á 50 ára afmælisdegi Siguróla, 19. maí 2000. Við sátum við borð í býtibúri Sjúkrahúss Suðurnesja og drukkum afmæliskaffi þegar við fengum að vita að hún væri fædd, litla prinsessan ykkar. Góði vinur, við þökkum þér vin- áttu og ljúfar stundir og biðjum góðan Guð að geyma vininn okkar kæra. Elsku hjartans Vilborg mín, Ern- ir, Merlín, Denni, Stína, Soffía, Úlf- ar, Lotta og aðrir ástvinir, góður Guð gefi ykkur styrk og sendi ljós- geisla sína til að lýsa upp veginn framundan. Guð blessi og gæti Siguróla. Anna og Jón í Hlíð. Einn af þeim fyrstu til að stofna barnakór við kirkju var Siguróli, við kirkjuna í Grindavík. Þar störfuðu þau saman hann og Vilborg og kórinn þeirra náði glæsi- legum árangri enda voru þau bæði hæfileikarík og samhent. Þau komu á fyrsta námskeiðið sem ég sá um í Skálholti 1993 og Siguróli var þar gleðigjafi eins og annars staðar þar sem hann kom. Hann útsetti milli kennslustunda lögin sem alla lang- aði að fá fyrir kórana sína, hann spilaði á harmónikkuna og píanóið á kvöldvökum og á tveim námskeið- um leiðbeindi hann öðrum kórstjór- um í harmónikkuleik. Sue Ellen sem kenndi árið 1993 mundi Sig- uróla og hans töfrandi viðmót þegar hún kom 7 árum síðar, en þá var hann í fjötrum þess heilsubrests sem slysið 1998 lagði á hann. Nú hefur hann verið leystur frá þraut- um sínum og englarnir bera hann með söng til Paradísar eins og Laz- arus forðum. Við sem vorum svo lánsöm að kynnast honum og starfa með honum minnumst hans með gleði og virðingu. Vilborgu, sem af fágætri reisn og umhyggju stóð við hlið hans, biðjum við blessunar Guðs. Með kveðju frá stjórnendum barnakóra við kirkjur, Margrét Bóasdóttir. Enn þynnist hópurinn er mynd- aði samfélag organista og kórfélaga á námskeiðum Söngmálastjórans í Skálholti á liðnum áratugum. Sig- uróli var einn mesti ljúflingurinn í þeim hópi og sátu þó margir á palli fyrir. Glaðlyndi og lítillæti samfara ein- beitni og mikilli tækni og reynslu í kórstjórn voru þeir eiginleikar sem einkenndu þennan Reyknesing, Suðurnesjabúann, sem unni heima- byggð sinni ekki síður en við norð- lenskir dölum okkar og djásna- hnjúkum. Það glaðnaði yfir okkur félögum hans þegar hann birtist á námskeiðinu, oft með snjalla ein- söngvara úr heimabyggð sinni á söngpallinn til að bæta enn við blómi í hin söngglöðu síðsumar- kvöld sem okkur gáfust þar í Ara- tungusal og Skálholtskirku. Ingi Heiðmar Jónsson. ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningargreina                                  !  "     !" " # $%   &  ' (   !"  )*#&   !"   (   &  " & )( ' !" ) )* &#) ) )* + #               ', -.  /  !0     $   %!  "      & '    (! "  !)(!(*!  # #(  !" 1" /  &  -   #(  &  '  1&  !" 1"  #(  &  1&)*#1&  !"  #)*# #(  !" 2  # 3# &        )* &#  # )* +

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.