Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 43

Morgunblaðið - 29.09.2001, Side 43
MESSURÁ MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 43 ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Organisti Kristján Sigtryggsson, sem lætur nú af störfum org- anista. Kirkjukór Áskirkju syngur. Kaffisala safnaðarfélagsins eftir messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11:00. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnum sínum. Organisti Pálmi Sigurhjartarson. Guðsþjónusta kl. 14:00. Barna- og ung- lingakórar kirkjunnar syngja. Messukaffi Súgfirðinga. Björgvin Þórðarson syngur ein- söng. Organisti Pálmi Sigurhjartarson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Hjálm- ar Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Barna- og fjölskyldusamkoma kl. 13:00. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Barnakór Grens- áskirkju syngur undir stjórn Heiðrúnar Há- konardóttur og Ástríðar Haraldsdóttur. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jóhannsson. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs- þjónusta kl. 10:15. Organisti Kjartan Ólafs- son. Sr. Hreinn S. Hákonarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11:00. Umsjón barnastarfs Magnea Sverrisdóttir. Félagar úr Mótettukór syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Lárusi Halldórssyni. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og Guðrún Helga Harðardóttir. Messa kl. 14:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Ingileif Malmberg. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11:00. Fermingarbörnum og foreldrum er sérstaklega boðið til guðsþjónustunnar. Fundur með þeim á eftir. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar. Graduale Nobili syngur. Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Org- anisti Jón Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin með Gunnari og Bryndísi inn í safnaðarheimili. LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11:00. Sr. María Ágústsdóttir þjónar í fjarveru sóknarprests. Kór Laug- arneskirkju syngur. Organisti Gunnar Gunn- arsson. Sunnudagaskólinn heldur sínu striki undir handleiðslu Heimis Haraldsson- ar, Hildar Eir Bolladóttur og Andra Bjarna- sonar. Fulltrúar lesarahóps Laugarnes- kirkju flytja ritningarlestra. Eygló Bjarnadóttir er meðhjálpari og Sigríður Finn- bogadóttir annast messukaffið á eftir. NESKIRKJA: Messa kl. 11:00.Prestur sr. Halldór Reynisson, sem kveður söfnuðinn að sinni. Organisti Reynir Jónasson. Mola- sopi eftir messu. Sunnudagaskólinn kl. 11:00. 8-9 ára starf á sama tíma. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Bjóðum börnin sérstaklega velkomin til skemmtilegrar samveru. Organisti Viera Manasek. Prestur sr. Ingólfur Guðmunds- son. Verið öll hjartanlega velkomin. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almenn guðs- þjónusta kl. 11:00. Barnasamvera er sam- tímis almennu guðsþjónustunni. Börnin eru með hinum fullorðnu í messubyrjun, en fara síðan upp í safnaðarheimili og ljúka samveru sinni þar. Þema dagsins er: Bibl- ían, bókstafstrúin og sannleikurinn. Að lok- inni messu verður boðið upp á umræður um efnið í safnaðarheimilinu. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11 ár- degis. Organisti Pavel Manasek. Báðir prestarnir þjóna. Foreldrar og fermingar- börn vorsins 2002 eru sérstaklega boðin til guðsþjónustunnar. Á eftir verður stuttur fundur með foreldrum, þar sem rætt verður um fermingarundirbúninginn. Sunnudaga- skólinn verður á sama tíma í nýuppgerðu safnaðarheimili kirkjunnar kl. 11.00. Allir eru velkomnir að eiga góða og uppbyggj- andi stund. Árbæjarkirkja beint í hjarta- stað. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Barnakórinn syngur. Organisti Sigrún Þórsteinsdóttir. Gísli Jónasson. Tómasarmessa kl. 20 við upphaf vetrar- starfs í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús B. Björnsson. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kirkjukór Digraneskirkju A- hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á neðri hæð á sama tíma. Leiðtogar, Þórunn, Mar- grét, Anna og sr. Gunnar. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Djákni: Lilja G. Hallgrímsdóttir. Organisti Lenka Mátéová. Kór Fella- og Hólakirkju syngur. Í guðsþjónustunni munu ættingjar fyrrverandi prófastshjóna í Vatnsfirði, sr. Þorsteins Jóhannessonar og Laufeyjar Tryggvadóttur, færa kirkjunni ljósrit af Guð- brandsbiblíu að gjöf. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjón El- ínar Elísabetar Jóhannsdóttur. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti: Hörður Braga- son. Kór Grafarvogskirkju syngur. Eftir guðsþjónustuna verður fundur með foreldr- um og fermingarbörnum úr Rima-, Engja-, Borgarholts- og Korpuskóla. Rætt verður um fermingarfræðsluna, ferminguna sjálfa og því sem henni tengist. Dregið verður um fermingardagana. Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Prestur: Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Ása Björk. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13:00 í Engjaskóla. Prestur: Sr. Bjarni Þór Bjarna- son. Umsjón: Ása Björk. Undirleikari: Guð- laugur Viktorsson. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. Börn borin til skírnar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta í Lindaskóla kl. 11 og í Hjallakirkju kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstundir á þriðjudögum kl. 18. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safnaðar- heimilinu Borgum kl. 11:00. Messa í Kópa- vogskirkju kl. 11:00. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Að lok- inni messu verður fundur með foreldrum og fermingarbörnum í safnaðarheimili kirkj- unnar. Organisti Julian Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Krakkaguðsþjónusta kl. 11.00. Nýr límmiði, mikill söngur. Guðs- þjónusta í Seljakirkju kl. 14:00. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Guðsþjónusta í hjúkrunarheimilinu Skógarbæ kl. 16:00. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Org- anisti er Gróa Hreinsdóttir. KIRKJA HEYRNARLAUSRA: Guðsþjónusta kl. 14 í Grensáskirkju. Ræðumaður í tilefni af degi heyrnarlausra Rudolf Kristinsson. Táknmálskórinn syngur undir stjórn Rögnu G. Magnúsdóttur. Miyako Þórðarson. FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldusam- koma kl. 11. Léttur hádegisverður að henni lokinni. Bænastund kl. 19:30. Samkoma kl. 20. Högni Valsson prédikar. Lofgjörð og fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. KLETTURINN: Almenn samkoma sunnudag kl. 11 fyrir alla fjölskylduna. Mikil lofgjörð og tilbeiðsla. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 16:30, lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðumaður Vörður L. Traustason forstöðu- maður. Allir hjartanlega velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19:30 bæna- samkoma. Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Kapteinn Trone Are Schelander talar. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma hjá KFUM og KFUK á Holtavegi á sunnudaginn kl. 17. Ómar Kristjánsson verður með upp- hafsorð og bæn. Starf Maríusystra verður kynnt og verða þær með hugleiðingu. Barnastarf í þremur deildum á sama tíma. Kvöldverður á borðum eftir samkomuna á vægu verði. Kl. 20:30 er vaka á sama stað. Söngur, lofgjörð, bæn. Allir velkomnir. Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti: Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30: Messa á ensku kl. 18.00. Mánudaginn 1. október kl 20.00 býður séra Jürgen Jamin upp á leið- sögn til skilnings á helgisiðunum í safn- aðarheimilinu við Hávallagötu 16. Laugar- daginn 6. október kl. 14.00: Barnamessa. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Einnig messa kl. 8.00 suma virka daga (sjá nánar á tilkynningablaði á sunnudögum). Reykjavík - Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 17.00. Miðvikudaga: Messa kl. 20.00. Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30.Miðviku-daga: Skriftir kl. 17.30, messa kl. 18.30. Föstudaginn 5. október: Tilbeiðslustund kl. 17.30, Messa kl. 18.30. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.Mánu- daginn 1. október: Hátíð heilagrar Teresu af Jesú barni, messa kl. 8.30. Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtud. 4. okt. Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20. Grindavík: Sunnudaginn 7. okt: Messa kl. 18 í Kvennó. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Sunnudaga: Messa kl. 10. Suðureyri: Messa alla sunnudaga kl. 19. Bolungarvík: Messa alla sunnudaga kl. 16. Flateyri: Messa alla laugardaga kl. 18. Ísafjörður: Messa alla sunnudaga kl. 11. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sam- koma á morgun kl. 16. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: Barnaguðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11 guðsþjónusta með söng, leikriti og mikilli gleði. Guðsþjónusta eftir hádegi fellur niður vegna héraðsfundar Kjalarnesprófasts- dæmis í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. MOSFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Jónas Þórir. Barnaguðsþjónusta í safnaðarheim- ilinu kl. 13 í umsjá Þórdísar Ásgeirsdóttur, djákna, Sylvíu Magnúsdóttur, guðfræði- nema og Jens Guðjónssonar, menntaskóla- nema. Jón Þorsteinsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.11.00. Þórunn Sigþórsdóttir sópran syngur einsöng. Ræðuefni: Krossferðir og heilög stríð. Prestur er sr. Þórhallur Heim- isson. Kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir safnað- arsöng undir stjórn Natalíu Chow. Eftir guðsþjónustuna er kirkjukaffi í safnaðar- heimilinu. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í safnaðarheimilinu og Hvaleyrar- skóla. Krakkar, munið kirkjurútuna! VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Prestur sr. Bragi J. Ingibergsson. Kirkjukór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Úlriks Ólasonar. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasamkoma kl. 11:00. Mikill söngur, biblíusaga sögð, brúðuleikrit, stjórnendur sr. Sigríður Krist- ín, Edda, Hera og Örn Arnarson gítarleikari. Stund fyrir börn á öllum aldri, ömmur og afa og foreldrana einnig. Kvöldvaka kl. 20:00 Þema kvöldsins er umhyggja og virðing. Dagskrá í tali og tónum. Örn Arnarson og tónlistarfólk leiðir almennan söng og flytur fjölbreytt tónlistarefni. Í safnaðarheimili að lokinni kvöldvöku verður kaffihús og haldið áfram að rifja upp brekkusöngva sumars- ins. Einar Eyjólfsson. VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta verður sunnudaginn 30. september kl. 14:00. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Mætum vel og biðjum fyrir friði í heiminum. Við athöfn- ina þjónar : Hans Markús Hafsteinsson. Prestarnir. Sunnudagaskóli á sama tíma í kirkjunni, yngri og eldri deild. BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagskóli kl. 13 í Álftanesskóla. Rúta ekur hringinn. GRINDAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Barn borið að skírnarlaug. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Oganisti Örn Falkner. Kirkjukór Grindavíkurkirkju leiðir safnaðarsöng. Guðsþjónustan er upphaf fermingarfræðslunnar, því eru það vinsam- leg tilmæli að væntanleg fermingarbörn mæti í guðsþjónustuna ásamt foreldrum sínum. Fundur með aðstandendum ferm- ingarbarnanna verður í safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu. Sóknarnefndin. ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 17. Fermingarbörnin kynnt fyrir söfnuðinum og beðið fyrir þeim. Boðið upp á Suðurnesja- kaffi eftir guðsþjónustu. Kór Útskálakirkju syngur. Organisti Pálína Fanney Skúladótt- ir. SAFNAÐARHEIMILIÐ í Sandgerði: Guðs- þjónusta kl. 20:30. Fermingarbörnin kynnt fyrir söfnuðinum og beðið fyrir þeim. Boðið upp á Suðurnesjakaffi eftir guðsþjónustu. Kór Hvalsneskirkju syngur. Organisti Pálína Fanney Skúladóttir. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Fjölskyldu- guðsþjónusta sunnudaginn 30. september kl.11. árd. og markar hún upphaf barna- starfsins í Innri- og Ytri-Njarðvíkursókn. For- eldrar hvattir til að mæta með börnum sín- um og taka frá upphafi þátt í barnastarfinu. Sóknarprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. árd. undirleikari í sunnudagaskóla Helgi Már Hannesson. Messa kl. 14. Alt- arisganga. Prestur sr. Ólafur Oddur Jóns- son. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Org- anisti Hákon Leifsson. Meðhjálpari Björgvin Skarphéðinsson. SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnudaga- skóli snnudag kl. 11. Súpa og brauð eftir messu. Morguntíð sungin þriðjudaga til föstudaga kl. 10. Kaffi og brauð að henni lokinni. Krakkaklúbbur 1.-3. bekkjar kl. 16:10-17 þriðjudaga. Septembertónleikar á þriðjudagskvöldi kl. 20:30. Foreldrasam- vera miðvikudaga kl. 11. Krakkaklúbbur 4. bekkur og eldri kl. 16:10 miðvikudaga. ÞYKKVABÆJARKIRKJA: Messa kl. 14. Kór Þykkvabæjarkirkju leiðir söng. Organisti Nína María Morávek. Fundur sóknarprests með fermingarbörnum næsta vors og for- eldrum þeirra að loknu embætti. Sóknar- prestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 11. Sóknarprestur. TORFASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Sóknarprestur. BORGARPRESTAKALL: Messa í Borgar- neskirkju kl 11, við upphaf héraðsfundar Borgarfjarðarprófastsdæmis. Séra Geir Waage prédikar. Séra Kristinn Jens Sigur- þórsson þjónar fyrir altari ásamt sóknar- presti. Kór Borgarneskirkju syngur undir stjórn Jóns Þ. Björnssonar. Prófastur. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa fyrir eldri borgara sunnudag kl. 14 á Hlíf. Sóknar- prestur. EIÐAKIRKJA: Messa kl. 11 við upphaf hér- aðsfunda Múla- og Austfjarðaprófasts- dæma. Sr Gunnlaugur Stefánsson prédik- ar. Sr Sjöfn Jóhannesdóttir og sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir þjóna fyrir altari. Organisti Kristján Gissurarson. Allir velkomnir. Guðspjall dagsins: Sonur ekkjunnar í Nain. (Lúk. 7). Á þessum vikum er dagskrá Dóm- kirkjunnar að fá á sig vetrarbúning- inn. Framundan er fjölbreytt vetr- arstarf í kirkjunni okkar, sem okkur er ánægja að kynna með nokkrum orðum. Helgihald Messað er kl. 11 hvern helgan dag í Dómkirkjunni. Í vetur verða barnasamkomur alla sunnudaga sem hefjast kl. 13.00. Hádegisbænir eru á miðvikudögum kl. 12:10 og er boðið upp á léttan málsverð á kirkjuloftinu á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænarefnum. Æðruleys- ismessur verða þriðja sunnudag hvers mánaðar kl. 20:30. Þær eru tileinkaðar því fólki sem leitar bata og framfara eftir „tólfsporakerf- inu.“ Aðrar guðsþjónustur og sam- komur verða kynntar sérstaklega. Þjónusta Opið hús er á fimmtudögum kl. 14-16. Allir eru velkomnir, sem vilja eiga notalega stund í góðum og glöðum vinahópi. Dagskrá fer eftir tilefnum hverju sinni. Guðsþjón- ustur verða í Félagsmiðstöð aldr- aðra á Vesturgötu 7 fyrsta og þriðja fimmtudag í mánuði. Matarbúr er rekið eins og verið hefur og fjár- hagsaðstoð og fyrirgreiðsla veitt eftir ástæðum. Æskulýðsstarf Barnastarf. Samvera fyrir 6, 7 og 8 ára börn er í Vesturbæjarskóla alla föstudaga. Samvera í Safn- aðarheimilinu fyrir 9-10 ára börn er kl. 16 á miðvikudögum og sama dag kl. 17:30 er samvera 11 og 12 ára barna. Umsjón með barnastarfinu í vetur hafa guðfræðingarnir Bolli Pétur Bollason og Þorvaldur Víði- sson. Unglingastarf. Æskulýðshóp- arnir NEDÓ eru í Neskirkju. NEDÓ er samstarfsverkefni Dómkirkj- unnar og Neskirkju. Samverustund- ir eru á fimmtudögum kl. 17 fyrir 8. bekkinga en fyrir 9. bekkinga kl. 20 á sunnudagskvöldum. Tónlistarstarf Dómkórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar dómorganista syngur við messurnar. Hafnar eru æfingar fyrir tónlistardaga kirkj- unnar sem verða um mánaðamótin okt./nóv. Æfingar Barnakórs Dóm- kirkjunnar eru á þriðjudögum og fimmtudögum á kirkjuloftinu. Kór- stjóri er Kristín Valsdóttir. Enn er hægt að bjóða nokkrum börnum í kórinn. Innritun er í síma 552 0967. Kór Menntaskólans í Reykjavík æfir á kirkjuloftinu undir stjórn dóm- organistans. 70 MR-ingar eru nú í kórnum, og hafa aldrei verið fleiri. Félagsstarf Á vettvangi safnaðarins starfa tvö félög. Kirkjunefnd kvenna Dóm- kirkjunnar hefur líknarmálefni og fegrun Dómkirkjunnar á stefnuskrá sinni. Formaður er Ásta Ein- arsdóttir. Safnaðarfélag Dómkirkj- unnar er vettvangur þeirra sem starfa vilja að málefnum safnaðar- ins hvort sem þeir búa innan sóknar eða utan. Félagið heldur fundi eftir messu 2. sunnudag hvers mánuðar. Formaður þess er Málfríður Finn- bogadóttir. AA-fundir eru á fimmtu- dögum í Safnaðarheimilinu kl. 17:30 og kl. 21 og OA fundur kl. 21. Heimasíða Heimasíða Dómkirkjunnar www.domkirkjan.is <http:// www.domkirkjan.is> er helsti upp- lýsingamiðillinn um safnaðarstarf- ið. Þar er birt saga Dómkirkjunnar og er leitarvél tengd henni svo auð- velt er að nálgast upplýsingar úr henni. Þar er samankominn mikill fróðleikur. Þeir sem vilja fá tilkynn- ingar um það sem efst er á baugi geta skráð sig þar á netfangalista. Sóknarnefnd Sóknarnefndin stýrir kirkjuhald- inu og heldur fundi jafnaðarlega fyrsta þriðjudag í mánuði. Formað- ur er Auður Garðarsdóttir og vara- formaður er Marinó Þorsteinsson. Kirkjuhaldari og framkv.stjóri sóknarnefndar er Ástbjörn Eg- ilsson. Velkomin Öll við, sem störfum við Dóm- kirkjuna í Reykjavík, bjóðum þá sem áhuga hafa á safnaðarlífinu vel- komna til að kynna sér það og eiga svo með þátttöku sinni hlut að því að gera það ánægjulegt, fjölbreytt og fjölmennt á komandi vetri. Fyrir hönd Dómkirkjunnar, Jakob Ágúst Hjálmarsson, Hjálmar Jónsson. Vetrardagskrá Dómkirkjunnar Kirkjustarf Morgunblaðið/Jim Smart Dómkirkjan. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa, heldur lifandi steinar, manneskjur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út úr kirkjubyggingum með helgi- hald og fagnaðarerindið og mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum við til messu í Kolaportinu sunnudaginn 30. september kl. 14:00 Sr. Kjartan Jónsson, fram- kvæmdastjóri KFUM og K, predik- ar og þjónar ásamt Ragnheiði Sverrisdóttur djákna og guðfræð- ingunum Karítas Kristjánsdóttur og Ingólfi Jónssyni. Hjónin Þorvald- ur Halldórsson og Margrét Schev- ing leiða lofgjörðina. Áður en Kola- portsmessan hefst, kl. 13:40, mun Þorvaldur Halldórsson flytja þekkt- ar dægurperlur. Þá er hægt að leggja inn fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna í messunni. Í lok stundarinnar verður fyr- irbæn og blessun með olíu. Messan fer fram í kaffistofunni hennar Jónu í Kolaportinu sem ber heitið Kaffi port. Þar er hægt að kaupa kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott samfélag við Guð og menn. Í leiðinni er hægt að skoða þann fjöl- breytta varning sem seldur er á mannlífstorginu í Kolaportinu. Það eru allir velkomnir. Miðborgarstarf KFUM og K. „Krossferðir og heilög stríð“ í Hafnarfjarðarkirkju Á MORGUN, sunnudag, verður guðsþjónusta Hafnarfjarðarkirkju helguð íhugun um ástand mála í heiminum í dag og hinni stóru spurningu hver boðskapur Jesú Krists er gagnvart kröfu samtímans um auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Í guðsþjónustunni syngur Þórunn Sigþórsdóttir sópran tvö lög, „Allsherjar drottinn“ og „Ich weiss, dass mein Erlöser lebet“ eftir Händel. Kór kirkjunnar leiðir safn- aðarsöng undir stjórn Natalíu Chow. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kirkjukaffi í safnaðarheimilinu þar sem tækifæri gefst til samtals um þema dagsins. Umhyggja og virðing á kvöldvöku Á kvöldvöku í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði sunnudagskvöld kl. 20:00 verður þemað umhyggja og virðing aðalumræðuefni í tali og tónum. Örn Arnarsson tónlistarmaður og hans fjölhæfa söng- og tónlistarfólk leiðir almennan söng og flytur ým- islegt tónlistarefni. Á kvöldvökum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, sem eru haldnar eitt sunnudagskvöld í mán- uði, ríkir yfirbragð léttleika í tónlist en jafnframt er dagskráin helguð ákveðnu málefni hverju sinni. Að lokinni kvöldvöku er haldið í safnaðarheimilið þar sem sönn kaffihúsastemmning ríkir um leið og kvöldvökugestir halda áfram að rifja upp brekkusöngva sumarsins. Allir eru velkomnir til þátttöku. Einar Eyjólfsson, safnaðarpr. Keflavíkurkirkja. Héraðsfundur Kjalarnespró- fastsdæmis í Víðistaðakirkju kl. 8.30–15.30. Safnaðarheimilið í Sandgerði. Kirkjuskól- inn kl. 11. Safnaðarheimilið Sæborg. Kirkjuskólinn kl. 14. Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.