Morgunblaðið - 29.09.2001, Qupperneq 47
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 47
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl.
13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru
franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl.
10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alber-
te@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, s.
423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og eftir
samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík.
Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13.
ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.–fim. kl. 8.15–22, föst. kl. 8.15-19, lau. 9–17, sun.
kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð sunnud. og handritadeild lokuð
laugard. og sunnud. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Op-
ið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16. Að-
gangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–sep-
temb. kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
um helgar milli kl. 14 og 17. Tekið verður við hópum utan
opnunartíma samkvæmt nánara samkomulagi og veitt
leiðsögn á sýningu Helga Gíslasonar. Kaffistofa safnsins
er opin á sama tíma. Upplýsingar í s. 553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799.
reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími 575-
7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt
handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safn-
búð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kand-
ís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/El-
liðaár. Frá 1. sept. - 31. maí er opið á sun. kl. 13–17. Hægt
er að panta leiðsögn á öðrum tímum í síma 567 9009 eða á
netfang: rafheimar@or.is
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Frá 15. sept. - 15.maí er Nesstofusafn
opið eftir samkomulagi. Sími 561 1016.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffi-
stofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan
opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476.
Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://
www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin kl. 14-16 þri.-föst. til 15. maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla daga
kl. 13–18 nema mánud. er lokað. Opnað fyrir hópa utan
þess tíma eftir samkomulagi. Maríukaffi býður upp á
gómsætar veitingar á opnunartíma. Til sölu steinar,
minjagripir og íslenskt handverk. S. 431 5566. Vefsíða:
www.islandia.is/steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pantað
leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum 861-
0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lok-
aðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ÍSLENSKA álfélagið fékk jafnrétt-
isverðlaun Hafnarfjarðar í ár fyrir
jafnréttisstefnu fyrirtækisins og
fyrir markvissar aðgerðir til þess
að fjölga konum sem starfa hjá fyr-
irtækinu.
Átta aðilar voru tilnefndir til
jafnréttisverðlauna og auk ÍSAL
hlutu þrír aðilar sérstök hvatning-
arverðlaun fyrir átak í jafnrétt-
ismálum. Þeir voru Móna ehf., sem
hlaut viðurkenningu fyrir jöfn
hlutföll kynjanna í stjórn-
unarstöðum, leikskólinn Hjalli sem
hlaut viðurkenningu fyrir kynja-
skipt starf í leikskóla og æskulýðs-
og tómstundastarf Hafnarfjarðar,
sem hlaut viðurkenningu fyrir
starfsemi stelpu- og strákaklúbba
og jafnréttissinnaða starfs-
mannastefnu.
Að verðlaunaafhendingunni lok-
inni var opinn kynningarfundur,
þar sem kynntar voru niðurstöður
tveggja kannana sem jafnrétt-
isnefnd Hafnarfjarðar lét vinna.
Um var að ræða samanburð á laun-
um kvenna og karla sem starfa hjá
Hafnarfjarðarbæ, sem unninn var
af Félagsvísindastofnun, og könn-
un á viðhorfum starfsmanna Hafn-
arfjarðarbæjar til jafnréttismála
og samræmingar atvinnu- og fjöl-
skyldulífs, sem Viðhorf ehf. gerði.
Jafnréttisnefnd gerir ráð fyrir
að niðurstöður þessara kannana
verði meðal annars nýttar í vinnu
við jafnréttisáætlanir stofnana
bæjarins, en samkvæmt jafnrétt-
isáætlun Hafnarfjarðarbæjar
1999–2002 er fyrirtækjum, stofn-
unum, deildum og nefndum bæj-
arins skylt að gera árlega starfs-
áætlun í jafnréttismálum, að því er
fram kemur í frétt frá Hafnarfjarð-
arbæ.
Svala Jónsdóttir, jafnrétt-
isráðgjafi Hafnarfjarðarbæjar,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
komið hefði fram kynbundinn
launamunur í launakönnuninni,
eins og raunar hefði verið reyndin í
öllum könnunum sem gerðar hefðu
verið af sama toga, en sambæri-
legar kannanir hefðu verið gerðar
í Reykjavík, á Akureyri og í Mos-
fellsbæ áður. Kynbundinn launa-
munur hefði reynst vera 8% þegar
allir starfsmenn hefðu verið teknir
með og búið væri að leiðrétta fyrir
mismunandi vinnutíma kynjanna,
starfsaldur og ábyrgð í starfi. Ef
kennarastéttin væri hins vegar
tekin út úr, en launajafnrétti væri
ríkjandi meðal kennara samkvæmt
niðurstöðunum, væri sá kynbundni
launamunur sem eftir stæði 12%.
Svala sagði að þetta væru mjög
svipaðar niðurstöður og komið
hefðu í ljós hjá öðrum sveit-
arfélögum. Þannig hefði kynbund-
inn launamunur í Mosfellsbæ í
könnun sem gerð var í fyrra reynst
vera 6% þegar allur hópurinn var
skoðaður en 12% þegar kenn-
ararnir voru teknir út úr og ná-
kvæmlega sama tölulega nið-
urstaða hefði komið í ljós í könnun
á Akureyri árið 1998 og varð í
Hafnarfirði.
ÍSAL fékk jafnréttis-
verðlaun Hafnarfjarðar
Morgunblaðið/Þorkell
Íslenska álfélagið fékk Jafnréttisverðlaun Hafnarfjarðar. Talin frá
vinstri Magnús Gunnarsson bæjarstjóri, Magnús Heimisson, formaður
jafnréttisnefndar, og Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL.
MIKILL áhugi er á þátttöku í
fjarnámi sem SVÞ – Samtök versl-
unar og þjónustu standa fyrir í
samstarfi við Viðskiptaháskólann
á Bifröst,“ segir í fréttatilkynn-
ingu. „Á fyrsta námskeiðinu, sem
er nýhafið, eru 35 þátttakendur.
Það er námskeið í áætlanagerð
með Excel. Næsta námskeið í
þessari röð er rekstrarhagfræði
verslana og þjónustufyrirtækja.
Námið fer allt fram á Netinu
þannig að þátttakendur geta
hvort sem er stundað það frá
vinnustað eða að heiman, allt eftir
því sem hentar. Í upphafi eru
þátttakendur kallaðir saman til að
fara yfir kennsluaðferðirnar og
kenndir þeir möguleikar sem
hægt er að nýta sér í fjarnáminu.
Námskeiðin standa í liðlega mán-
uð. Þau eru byggð upp með þeim
hætti að þátttakendur leysa verk-
efni sem tengjast þeirra eigin
vinnustað. Þannig eru tengd sam-
an fræðileg og tæknileg atriði
sem hægt er að hagnýta í starfi
viðkomandi þátttakanda.“
Þátttakendur á kynningarfundi í upphafi fyrsta fjarnámskeiðs SVÞ –
Samtaka verslunar og þjónustu og Viðskiptaháskólans á Bifröst.
Mikil þátttaka í fjarnámi SVÞ
„AÐ gefnu tilefni vegna nýrra
ökuskírteina sem væntanleg eru
tekur ráðuneytið fram að einungis
þeir sem eru með gölluð skírteini
vegna óeðlilegrar endingar, þ.e.a.s.
þar sem myndin hverfur af skír-
teininu, þannig að viðkomandi er
orðinn óþekkjanlegur, fá nýtt öku-
skírteini sér að kostnaðarlausu,
eins og verið hefur. Eldri gerðir
skírteina halda áfram gildi sínu.
Þá skal tekið fram að enn
standa yfir prófanir á tölvukerfum
vegna framleiðslu nýju skírtein-
anna og því liggur ekki fyrir end-
anleg dagsetning um það hvenær
verði unnt að taka við umsóknum
vegna nýrra skírteina, en þess er
þó að vænta fljótlega. Tilkynnt
verður nánar síðar hvenær unnt
verður að taka við umsóknum
vegna nýju ökuskírteinanna,“ segir
í fréttatilkynningu frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu.
Aðeins gölluð öku-
skírteini endurnýjuð
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi og Samband sunn-
lenskra kvenna (SSK) standa sameig-
inlega að námskeiði fyrir félagskonur
í SSK, föstudaginn 5. október frá kl.
9:00 til 16:00 í húsakynnum skólans.
Fyrir hádegi verður Uffe Balslev
blómaskreytingameistari með nám-
skeið í haustskreytingum þar sem
þátttakendur vinna skreytingar úr
náttúrulegum efnum og eftir hádegi
fjallar Ingólfur Guðnason, garðyrkju-
bóndi á Engi í Biskupstungum, um
allt það helsta sem viðkemur krydd-
jurtum og ræktun á þeim. Skráning
og nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Garðyrkjuskólans eða í gegnum
netfangið mhh@reykir.is
Haustskreyt-
ingar og
kryddjurtir
Í LAUGARDAGSGÖNGU þjóð-
garðsins á Þingvöllum verður fjallað
um refsingar og dóma á Þingvöllum.
Í þessari göngu verður farið um þá
staði er tengdust dómstarfi og lík-
amlegum hegningum á Þingvöllum.
Fjallað verður um mismunandi refs-
ingar og staðhættir skýrðir. Gangan
hefst við Flosagjá klukkan 13 og tek-
ur um 2 tíma.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
er ókeypis og öllum opin. Nánari
upplýsingar um dagskrá þjóðgarðs-
ins í haust má fá hjá landvörðum í
þjónustumiðstöð þjóðgarðsins í síma
482-2660 og á heimasíðu þjóðgarðs-
ins www.thingvellir.is.
Laugardags-
ganga á
Þingvöllum
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
Hellas heldur aðalfund í Norræna
húsinu laugardaginn 29. september
kl. 14:30 og hefst hann með venjuleg-
um aðalfundarstörfum.
Að þeim loknum eða um 15:15
verður dagskrá í máli og myndum
um ferðalag á vegum félagsins á
liðnu sumri til Miklagarðs, Tróju og
Jóníu. Tveir ferðalanganna, Gunnar
M. Jónasson og Hörður Þormar,
sýna þá myndir frá ferðinni.
Aðalfundur
Grikklands-
vinafélagsins
50. SÝNING á Píkusögum í Borg-
arleikhúsinu verður í kvöld, laugar-
dagskvöld. Leikritið er eftir banda-
ríska leikskáldið Eve Ensler, og er
byggt á viðtölum höfundar við konur
um leyndustu parta kvenlíkamans.
Leikkonurnar í Píkusögum eru
Halldóra Geirharðsdóttir, Sóley Elí-
asdóttir og Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir. Leikstjóri er Sigrún Edda
Björnsdóttir.
50. sýning á
Píkusögum
SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um
náttúruvernd efna til léttrar göngu
laugardaginn 29. sept. Lagt verður
af stað kl. 11 frá strætisvagnaskýlinu
í Mjódd. Gangan tekur 3–4 tíma og
eru allir velkomnir, segir í fréttatil-
kynningu.
Létt ganga
frá Mjóddinni
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦