Morgunblaðið - 29.09.2001, Síða 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 53
SAGAN No One Thinks of Green-
land gerist í hersjúkrahúsi í herstöð-
inni Qangattarsa á Grænlandi 1959,
en þangað voru fluttir þeir banda-
rísku hermenn sem slösuðust of mik-
ið í Kóreustríðinu til þess að hægt
væri að leyfa ættingjum þeirra að sjá
þá. Í þess stað var ættingjum og ást-
vinum sagt að þeir hefðu týnst í
stríðinu, hermennirnir síðan geymd-
ir á Grænlandi þar til þeir létust og
þá fengu ástvinir að vita að líkams-
leifar þeirra hefðu „fundist“ í Kóreu.
Fyrir þessu er einhver fótur, Banda-
ríkjamenn ráku víst slíkt hersjúkra-
hús í Narsarsuaq á Grænlandi, en
sagan er fráleitt sannsöguleg.
Til herstöðvarinnar, þar sem
sjúkrahúsið er, kemur vandræða-
dáti, Rudy Spruance, sem rekst illa í
hernum, sérfræðingur á upplýsinga-
sviði, og byrjar komu sína á að lenda
í mögnuðum mývargi sem dregur
hann nær til dauða. Hann er síðan
settur yfir fréttablað stöðvarinnar
og kemst þá á snoðir um ýmislegt
sem kyrrt átti að liggja. Atburða-
rásin sem fer af stað er æsileg í
meira lagi þar sem við sögu koma
hestar, útlimalausir hermenn, dular-
fullur herforingi, geðbilaður birgða-
stjóri og prestur sem er laumu kaþ-
ólikki.
No One Thinks of Greenland er
fyrsta skáldsaga Johns Griesemers,
en hann hefur áður skrifað nokkuð af
smásögum, aukinheldur sem hann
hefur leikið í kvikmyndum. Nokkur
byrjendabragur er á verkinu en
þrátt fyrir það er No One Thinks of
Greenland prýðileg skemmtun og
sumir þættir hennar eftirminnilegir.
Forvitnilegar bækur
Algjört
myrkur
No One Thinks of Greenland eftir
John Griesemer. Picador gefur út
2001. 310 síður innbundin. Kostar
3.250 í Máli og menningu.
Árni Matthíasson
KVIKMYNDALEIKSTJÓRINN og
grínistinn Woody Allen spáir því að
Hollywood muni forðast ofbeldisfull-
ar bíómyndir á komandi misserum.
Ekki af tillitssemi við fórnarlömb
árásarinnar á heimaborg hans New
York heldur einfaldlega vegna þess
að slíkar myndir eigi eftir að fara
mjög illa í áhorfendur og fæla þá frá
því að fara í bíó.
Allen hefur dregið upp ófáar róm-
antískar myndir af borginni sinni ást-
kæru, sérstaklega Manhattan, en ein
besta mynd hans heitir í höfuðið á
hinum særða borgar-
hluta, þar sem árásirnar
áttu sér stað. Hann segist hafa dáðst
að framgöngu samborgara sinna á
þessari raunastundu og segir þá bera
sig hetjulega. „Tíminn líður og upp-
byggingarstarfið er hafið,“ sagði
hann alvarlegur í bragði.
Hann er um þessar mundir stadd-
ur í Lundúnum til þess að kynna nýj-
ustu mynd sína Curse of the Jade
Scorpion og eru enskir blaðamenn
mjög svo forvitnir að fá viðbrögð
þessa þekkta New York-búa við
hörmungunum. Hann segist í viðtali
við The Guardian fullviss um að þær
eigi eftir að hafa varanleg áhrif á það
hvernig Hollywood kýs að skemmta
áhorfendum. „Í Hollywood hugsa
menn um það eitt að græða peninga.
Þegar ljóst þykir að ofbeldi og annað
sem á einhvern hátt minnir á árás-
irnar fælir áhorfendur frá munu pen-
ingamennirnir hugsa sig tvisvar um
áður en þeir setja fjármuni í slíkar
myndir. Þannig ganga hlutirnir fyrir
sig þar í borg.“
Aðspurður hvort hann muni ein-
hvern tímann eiga eftir að taka á
þessum hörmulega atburði segist
Allen ekki hafa mikla trú á því. Hann
segist og ekki vera viss um að árás-
irnar hafi breytt New York-borg var-
anlega. „Öll lönd og allar borgir verða
fyrir hræðilegum áföllum einhvern
tímann. Vitanlega veldur það sorg og
trega en tíminn græðir öll sár og þeir
New York-búar sem komust lífs af
munu halda áfram að lifa sínu lífi.“
Allen segist hafa trú á því að turn-
arnir tveir verði endurreistir í ein-
hverri mynd, til minningar um þá
gömlu og fólkið sem féll í valinn.
Karlinn kaldhæðni er samur við
sig og hefur aldrei átt auðvelt með að
líta lífið björtum augum þrátt fyrir að
vera húmorinn í blóð borinn: „Það er
vonlaust að vera hamingjusamur. Því
verður maður bara að reyna áfram að
vera annars hugar.“
The Curse of The Jade Scorpion: Það hefur
ætíð blundað nettur Bogart í New York-búanum svartsýna.
New York-búinn Woody Allen
Spáir minna
bíóofbeldi