Vísir - 22.12.1979, Page 20

Vísir - 22.12.1979, Page 20
vism Laugardagur 22. desember 1979 hœ krakkar! YMISLEGT UM JÓLASVEINANA þá sögu frá Austurlandi, að ,,þeir séu að visu í mannsmynd, nema þeir séu klofnir upp í háls”. Fæturnir séu kringlóttir. Um og eftir aldamót síðustu munu menn al- mennt hafa ímyndað sér þá í mannsmynd, þótt ekki væru þeir smáf ríðir í andliti, og klædda í gömul islensk bændaföt, líkt og þeir eru sýndir i bók Jó- hannesar úr Kötlum: ,,Jólin koma". En þá er lika farið að telja þá klædda í rauða skyrtu, grænar buxur, bláa sokka og gula skó, með rauð- röndótta skotthúfu, eða í rauðar buxur, hvíta kápu, bláa treyju og skotthúfu, og með skegg niður á tær. Eru þeir þá teknir að líkjast frænda sínum, hinum evrópska heilaga Nikulási, en í hans gervi birtast þeir nú jafnan á jólatrésskemmt- unum. Almennt er talið, að jólasveinarnir eigi heima uppi á fjöllum. Kemur hinn fyrsti til byggða 13 dögum fyrir jól (eða 9 dögum fyrir jól, ef þeir eru aðeins 9) og síðan einn á dag, hinn síðasti á aðfangadag. Hinn fyrsti fer svo burtu á jóladag, en hinn síðasti á þrett- ándanum. Til er það líka, að þeir komi þrem nóttum fyrir jól eða á Þorláksmessu. Sums staðar hef ur það og verið trú á Norðurlandi, að þeir kæmu af hafi í byrjun jólaföstu, en færu burt á aðfangadag eða þrettánda. Er þetta auð- sjáanlega fyrirspá um veðráttufar, og gérir þá jafnan norðanátt með jólaföstu, en vindur stendur af landi daginn, sem þeir fara. Viðsjárgripir Áður fyrr þóttu jóla- sveinarnir viðsjárgripir, og voru börn heldur hrædd við þá. Hættan af jólasveinum sést líka glöggt í þulunni: Jólasveinar einn og átta ofan koma af fjöllunum í fyrrakvöld þá fór ég að hátta, þeir fundu hann Jón á Völlunum. En Andrés stóð þar utan gátta, þeir ætluðu að færa hann tröilunum. En hann beiddist af þeim sátta óhýrustu köllunum, og þá var hringt öllum jólabjöllunum. Þegar liða tók á 19. öld- ina hafa jólasveinarnir eitthvað verið farnir að mildast, og með tilkomu mikilla jólagjafa á síð- ustu áratugum hafa jóla- sveinarnir í vaxandi mæli tekið að sér það hlutverk að færa börnum og full- orðnum jólagjafir. Árni Björnsson er manna fróðastur um þjóðhætti og i bók hans Jól á íslandi leitaði ég mér að fróðleik um jóla- sveinana Jólasveinanna finnst fyrst getið í Grýlukvæði séra Stefáns ólafssonar í Vallanesi frá 17. öld. Tel- ur hann Grýlu og Leppa- lúða foreldra þeirra: Börnin eiga þau bæði saman brjósthörð og þrá, af þeim eru jólasveinar börn þekkja þá. Næst getur Jón Grunn- víkingur þeirra í orðabók sinni frá því um 1740. Fer úr þvi að fjölga vitnis- burðum um tilveru þeirra, þótt ekki sé getið um ætterni. Jón Árnason segir það sumra manna mál, að Grýla haf i átt þá, áður en hún giftist Leppalúða, og hefur Jónas Jónasson heyrt, að faðir þeirra héti Loðin- barði. En hann hefur Flórsleikir, Þvengja- leysir, Pönnuskuggi, Guttormur, Bandaleysir, Lampaskuggi, Kletta- skora. Útlit jólasveinanna Um útlit jólasveinanna fer fleirum en tvennum sögum. Elsta heimildin, Grýlukvæði Stefáns Ólafssonar, segir, að þeir séu ,,jötnar á hæð". Jón Árnason lýsir þeim ekki, en Jónas Jónasson segir einnig heyrt marga halda því fram, að jólasvein- arnir ættu ekkert skylt við Grýlu eða hennar hyski. Nöfn jólasveinanna Elstu nöfn jólasvein- anna, sem þekkt eru, eru þessi: Stekk jastaur, Giljagaur, Stúfur, Þvöru- sleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Faldafeykir, Skyrgámur, Bjúgna- krækir, Gluggagægir Gáttaþefur, Ketkrókur, Kertasníkir. En fleiri nöfn eru til á jólasveinunum, hvort sem það merkir, að þeir gangi undir mismunandi nöf num eftir sveitum eða séu fleiri en þrettán. Þessi nöfn eru Kerta- sleikir, Pönnusleikir, Pottaskef i II, Hurða- skellir, Moðbingur, Hlöðustrandi, Móamangi, Eru þær eins? Hérna eru tvær myndir, sem í fljótu bragði virðast alveg eins, en það eru 7 atriði á annarri myndinni, sem vantar á hina. Getur þú fundið þau?

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.