Vísir - 27.12.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 27.12.1979, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 27. desemher 1979 Gamla fólkið á Grund kunni vel að meta það sem boöiö var upp á á jólavökunni. — Visis- mynd BG. ___ „Þið eruð ungt fólk, miðað við mig” sagði Hurðaskeilir við góðar undirtektir. utiu joiin á Grund Það er vist enginn aldurshópur, sem ekki hiakkar til komu jólanna og gerir sér einhvern dagamun i sambandi við þau. Siðustu dagana fyrir jólin voru viða haldnar jólavökur og aðventukvöld, m.a. með- al vistmanna á elliheimilinu Grund. Gamla fólkið fjölmennti i sam- komusal elliheimilisins og lfklega hafa fáir hópar verið með eins mörg jól að baki og sá hópur fólks, sem þarna safnaðist sam- an. Jólavaka þessi var undir stjórn Gests Sturlusonar, en hann hefur gengist fyrir kvöldvökum einu sinni í mánuði á Grund nú i vetur. Dagskráin var hin fjölbreyti- legasta og var auðséð að gamla fólkið kunnivelað meta þessa til- breytni og vera um leið minnt á komu jólanna. Fyrst á dagskrá var kórsöngur og var það Barna- kór Melaskólans, sem söng undir stjórn Helgu Gunnarsdóttur, en Magnús Pétursson lék undir. Var aldursmunur þeirra sem skemmtu og þeirra sem skemmt var ærið mikill, en auðséð að báð- ir höfðu þar gaman af. Eftir söng barnakórsins komu félagar úr Söngskólanum i Reykjavik og fluttu þeir m.a. gömul og góð lög eftir Inga T. Larusson og voru áheyrendur þar vel með á nótunum. Ekki létu jólasveinar sitt eftir liggja og kom þar að Hurðaskellir knúði dyra og það allfast. Fannst hon- um litið til koma aldurs vist- manna á Grund, kallaði það „unga fólkið” meðan hann sjálfur væri litilla 135 ára gamall. Þá flutti Gestur Sturluson nokkur ljóð,en á milli atriða voru sungin jólalög. 1 lok þessarar jólasamveru flutti svo Björgvin Magnússon guðfræðingur hugvekju og bæn, en hann þjónar við Landakots- kirkju. —HK tt FÉLAGASAMTÖK OG SKEMMTISTAÐIR GERIÐ PANTANIR TIMANLEGA Á SKRAUTl' FYRIR ÁRAMÓTAGLEÐINA Hattar/ blöðrun grímun gervinef og party- skraut. KOSTIRNI VIÐ KAUPA Það tekur því va endurnýja miða S(; kau Spara sporin og þegar dregið er unti og þar a rla að gera sér ferð n m kostar ekki nema pa ársmiða á 14.400 mega gleyma að endi 18750 vinninga að u 5 auki þr jár Honda C ánaðarlega til að 200 kr. Því ekki að kr.? rnýja. Vera með dphæð 648 milljónir vic í júní Þrír eftirsóttir bílar dregnir út * • / ^ / í jum Hallarmúla 2 s:8 3211

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.