Vísir - 27.12.1979, Side 12
vism
Fimmtudagur 27. desember 1979
VfSIR KANNRR ELDFÆRA- OG FLUGELDAMARKAOINN
Ein gersemis púDurkelling. i þessari eru hvorki meira né minna en tlu EldfjalliD Vulkano gýs á krónur 700.
þúsund kinverjar, en — þvl miDur, hún er ekki til sölu.
Sennilega munu einar 150 milljónir króna fuðra upp
þegar Islendingar sprengja burt gamla árið verðbólgu og
stjórnarskipta. Verða flugeldar, blys og sprengjur alls
konar notaðar til þessa brúks. Það eru einkum skáta-
félög, björgunarsveitir, íþróttafélög og klúbbar alls kon-
ar, sem selja þennan varning, en auk þess fæst hann í
nokkrum verslunum.
Vísir lagði leið sína á flugeldamarkaðinn til að kanna
það sem á boðstólum ertil aðsprengja með útgamla árið
og naut við það leiðsagnar Thors Eggertssonar, for-
manns Hjálparsveitar skáta í Reykjavik, en þeir eru ein-
mitt einn af þeim helstu aðilum sem selja flugelda og
blys. Taldi hann að eldfæri yrðu seldfyrir a.m.k. 150
milljónir um þessi áramót en í fyrra var salan um 100
milljónir.
Thor sagöi aD þaö allra fyrsta
sem menn þyrftu aö athuga i
sambandi viö þennan varning,
væri aö umgangast hann af varúö
og fara i einu og öllu eftir þeim
notkunarreglum sem undantekn-
ingarlaust væri aö finna á öllum
flugeldum og blysum. Þannig ætti
fólk alls ekki aö halda á blysum
eöa öörum hlutum nema á þeim
stæöi, aö óhætt væri aö halda á
þeim i höndunum. Þá væri einnig
varasamt aö vera meö blys og
jafnvel stjörnuljós innan dyra,
þar sem þau gætu alltaf valdiö
brunablettum t.d. á teppum.
HurDarsprcngjunar eru alltaf
vinsælar, en þar kippir maDur I
tvo spotta og — BANG!
Það má sprengja upp heil-
an her fyrir 18 þúsund
Þau félög sem selja flugelda til
styrktar starfsemi sinni, gera
mikiö af þvi að selja þá i heilum
pökkum ásamt alls konar blys-
um, gosum og stjörnuljósum.
Thor sagði aö Hjálparsveitin
hefði á boðstólum fjölskyldu-
pakka I þremur mismunandi
stæröum og i þeim væri flest þaö
aö finna, sem brennt væri um
áramót. Pakkar þessir kostuöu
8.000 kr., 12.000 kr., og 18.000 kr. I
þeim væru fljúgandi diskar, eld-
fjöll og flugeldar, sem kostuöu
allt frá 150 kr., og upp i 2-3 þúsund
kr.
Eldflaugar allt frá 150 og
upp í 4.000 krónur.
í þessu safni af eldfærum eru
þaö flugeldarnir sem vekja mesta
athygli. Af þeim er hægt að fá
margar geröir, islenskar sem
Handblys af ýmsum geröum:
Blysiö lengst til vinstri kostar
1450 kr., næsta kostar 400 kr., 220
kr., og jókerblysin kosta 730 kr.
og 1200 kr.
Visismynd JA.
erlendar. ódýrastir eru kin-
versku flugeldarnir, en verö á
þeim er allt niöur I 40 kr. Dýrustu
kinversku eldflaugarnar kosta
um 600 kr. og þar fylgir meö fall-
hlif ofan i kaupiö. Islenskir flug-
eldar eru flestir á bilinu 1400 kr.
— 2.500 kr. en dýrastir eru sumir
erlendu flugeldanna og kosta þeir
upp i 4.000 kr.
Fæstum blysum má halda
Blys eru fáanleg af mörgum
gerðum og stæröum og eru sum
þeirra handblys en þó getpr veriö
varasamt að halda á þeim flest-
um.
Verö á handblysum er allt frá
220 kr og upp i 1500 kr. Þessi blys
eru sérstaklega merkt i þá veru,
að þaö megi halda á þeim en aö
öörum kosti gildir reglan aö
varast skal að halda á blysum.
Þau geta nefnilega sprungiö
þegar minnst varir.
Af þeim blysum sem ætlast er
til aö látin séu standa á jörö, má
nefna kinversku kúlublysin, en
þau skjóta upp marglitum kúlum.
Þau kosta frá 120 kr. og upp i 3-400
kr., allt eftir þvi hversu margar
kúlur eru i þeim.
Gömlu góðu stjörnuljósin
Af eldfærum þeim, sem menn
brúka um áramót, eru stjörnu-
ljósin einna hættuminnst, enda
venjulega fengin börnum. Logi
þeirra er fremur kaldur þannig
að litil hætta ætti að vera af
brunasárum, en hins vegar geta
þau orsakaö brunabletti á tepp-
,um, ef notuð eru innan dyra.
Pakkinn af stjörnuljósum kostar
frá 150 kr. og upp i 2000 kr. en þaö
eru svokallaöir skýjaklúfar
Innisprengjur og kampa-
vínsf löskur
Loks er þess aö geta aö hægt er
aö kaupa ýsmar „sprengjur” sem
nota má innan dyra.
Þetta eru yfirleitt litil hylki
með ofurveikri hleöslu sem spýta
út úr sér alls kyns drasli úr pappir'
og plasti. Af þessum innisprengj-
um eru Tcannski kampavins-
flöskurnar mikilfenglegastar en
þaö eru hylki i flöskuliki sem
þeyta kynstrum af drasli hátt i
loft. Þær kosta 1400 krónur.
-HR
Nokkrar varúðarreglur
Beinið eldfærum aldrei að öðru fólki.
Flugeldum má aðeins skjóta af stöðugri undirstöðu. Vikið vel frá.
Skorðið standblys vel á jörðina. Kveikið á þeim og víkið vel frá. Standið
þannig, að vindur beri ekki neista i föt ykkar.
Beinið handblysum vei frá likamanum og gætið þess að kúlur eða neistar
lendi ekki á öðrum nærstöddum.
Festið sólir og önnur blys, sem snúast, ekki á eldnæmt efni. Víkið vel frá.
Notið ullar- eða skinnhanska þegar þið kveikið á blysum eða flugeldum.
13
fráokkur
Flugeldar - blys - gos - sólir - stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR
OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
ÚTSÖLUSTAÐIR:
KÓPAVOGUR:
Skeifan, Smiðjuvegi 6
Skátaheimilinu, Borgarholtsbraut 7
Toyota, Nýbýlavegi 8
Reiðhjólaverkstæðið Hjólið,
Hamraborg 9
VESTMANNAEYJAR:
Drífandi
Hótelið
REYKJAVIK:
Skátabúðin, Snorrabraut
Volvósalurinn, Suðurlandsbraut
Fordhúsið, Skeifunni
Alaska, Breiðholti
Við Bernhöftstorfuna
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
GARÐABÆR:
í íþróttahúsinu Ásgarður
Við Blómabúðina Fjólu
AKUREYRI:
Alþýðuhúsið
Söluskúrvið Hrísalund
Söluskúr í Glerárhverfi
ÍSAFJÖRÐUR:
Skátaheimilinu, ísafirði
AÐALDALUR:
Hjálparsveit skáta, Aðaldal
BLÖNDUÓS:
Hjálparsveitskáta, Blönduósi
HVERGERÐI:
í Hjálparsveitarhúsinu, Hveragerði
NJARÐVÍK:
Bílasölunni við Reykjanesbraut
Kaupfélagshúsinu, Njarðvík
Og í bíl í Vogunum laugardags-
kvöldið 29/12 79
FLJÓTSDALSHÉRAÐ:
Kaupvangi 1, Egilsstöðum
Fjöiskyldupakkarnir eru 10% ódýrari.
Þeir kosta 8000 kr. ,12000 kr.,18000 kr. og 25000 kr.
í hverjum pakka er leiðarvísir um meðferð skotelda.
Styðjið okkur — stuðlið að eigin öryggi.
OPIÐ TIL KL. 10 Á HVERJU KVÖLDI
FlugeldamarkaÓir
Hjálparsveita skáta