Vísir - 18.01.1980, Page 13
VÍSIR
Föstudagur 18. janúar 1980.
bœkur um stjórnmál
Bœkurnar fást í helstu bókaverslunum
og kosta kr. 4.000 og 3.500
15 nýrra
greina um frjáls-
hyggjuna
HöFUNDAR:
Hannes Gissurarson
Jón St. Gunnlaugsson
Pétur J. Eiríksson
Geir H. Haarde
Jón Asbergsson
Þráinn Eggertsson
Baldur Guðlaugsson
Halidór Blöndal
Bessi Jóhannsdóttir
Erna Ragnarsdóttir
Þór Whitehead
Davið Oddsson
Friðrik Sophusson
Þorsteinn Pálsson
Safn 10 greina
um stefnu Sjálf-
stæðisflokksins
HÖFUNDAR:
Jón Þorláksson
Jóhann Hafstein
Bjarni Benediktsson
Gunnar Gunnarsson
Birgir Kjaran
ólafur Björnsson
Benjamfn Eiriksson
Geir Hallgrimsson
Jónas H. Haralz
Gunnar Thoroddsen
Dreifingaraðilar:
s. 82900 og
23738
LOÐFÓÐRUÐ GIJMMÍSTÍGVÉL
gul/blá — stærðir: 22-27.Verð kr. 11.500.-
stærðir: 28-35.Verð kr. 11.995.-
dökkblá/ljósblá — stærðir: 31-35.
Verð kr. 11.995.-
Minni númerin komin aftur
PÓSTSENDUM
STJÖRNUSKÓBÚÐIN
Laugavegi 96 (viö hliðina á Stjörnublói).
Simi 23795.
ÁSKRIFEHDUR!
Ef blaðið kemur EKKI með skilum til
ykkar,
þá vinsamlegast hringið i sima 86611:
virka daga til kl. 19.30
laugardaga til kl. 14.00
og mun afgreiðslan þá gera sitt besta
til þess að blaðið berist.
Afgreiðslo VÍSIS
simi 66644
12
VÍSIR
Föstudagur
18. janúar 1980.
17
vtstx
M 86611
Ve"ȒiiS^
^lsoVo }
*»»«)**< H
\» K.4VS
. i
EN ÞETTA ER NU UTSALA
Ferðu oft á útsölur?
Nina Þórisdóttir húsmóðir: Nei, mjög lftið og þá einungis af forvitni.
Bjarngeröur Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur:Nei, ég fer aldrei á út-
sölur, ég fór bara til að aöstoðaviðval.Það er ekkert sérstakt að sjá hér,
en ég hef lika svo sérstæðan smekk. Ég vil kaupa föt sem mig langar i
og hef efní á hverju sinni og það þarf ekkert frekar að vera á útsölum en
annars staðar.
Vinkonurnar Margrét Sigfúsdóttir og Kolbrún Jónsdóttir, nemar: Nei,
mjög litíð. Viö litum réttsem snöggvast inn til aö skoöa hlutina i sam-
ciningu. En viö kaupum liklega ekkert, sagði Kolbrún, Margrét er
alltaf búin að kaupa þetta áður en þaðdettur úr „móð”.
Sú var tiðin að mörg-
um þótti ekki nógu fint
að fara á útsölur og i
raun er það ekki ýkja
langt síðan. En nú á sið-
ustu og verðbólgnustu
timum eru það ekki ein-
ungis ,,gömlu konurn-
ar” sem grúska eftir
vörum á hagstæðu verði
og hefur útsöluáhuginn
sigið langt niður i ald-
ursstigann. Kvenþjóðin
er samt sem áður enn í
yfirgnæfandi meirihluta
á þessum viðskipta
markaði og er nánast
viðburður að sjá karl-
pening bregða þar fyrir.
Útsölur virðast þvi i dag
vera blessunarlausar
við að þykja „lummó og
Texti: Hannes
Sigurðsson
Myndir: Jens
Alexanders-
son
púkó” af yngri kynslóð-
inni, þó svo að flestir
þeirra reyni að haga
fatakaupum i samræmi
við boðskap tiskukónga.
Fólk sem á leið framhjá útsölu-
stöðum staldrar annaðhvort eitt
andartak við búðarskjáinn og
strunsar svo á braut, eða lætur
freistast að líta inn fyrir til að
róta i peysu-eða buxnabunkum og
um leið og fjárhagurinn i kápu-
vasanum er kannaöur. Kunningj-
ar hittast og rabba saman, þannig
að þrátt fyrir allt ys og þys leikur
léttur andblær um sali.
Verslunarfólk sagði aö yfirleitt
væri útsalan tvisvar á ári, en að
minnstakosti einu sinni á ári hjá
tfskuvöruverslunum. Astæðan
væri að finnna I breytingum á
tiskufatnaöi, árstíöabundnum
fatnaði og vörum sem ekki njóta
hylli kaupenda, þannig að versl-
unarmenn sitja uppi með vöruna
á lager, en lagerkostnaður mun
vera mjög mikill. Ekki voru þeir
þó sammála um verslunarhætti
fólks. Sumir sögðu aö mikið kaup-
æði gripi um sig og að menn
keyptu nánast allt milli himins og
jarðar, svo framarlega sem
buddanleyfði. Oft keypti fólk föt
sem það hefði ekkert aö gera við,
einungis vegna hins ódýra verðs
og all oft svo að segja út I bláinn.
Aðrir sögðu að menn igrunduðu
hvern varnig vandlega, og snéru
honum á alla kanta, áður en þeir
festu kaup á honum.
Það er þvi mjög sennilegt að
báðar þessar kaupaðferðir séu
við liði.
Vinsælast af útsöluvarningi
mun vera buxur og vesti, en að
öðru leyti er eftirspurnin jöfn
dreifð á allt annaö vöruúrval.
Útsöluafslátturinn er að meðal-
tali á milli 25-30%, en vinsælustu
fötin eins og t.d. buxur geta haft
enn meiri afslátt, þannig aö bux-
ur sem kostuðu á milli 17.900-
20.000 geta farið allt niöur i 6.900-
9.800.
1 samtali við Magnús E. Finns-
son hjá Kaupmannasamtökunum
um þær reglugerðir og leyfi sem
giltu um útsölur, sagði hann, að
þær væru öllum verslunum frjáls-
ar hvenær sem væri, svo framar-
lega sem um raunverulega verö-
lækkun væri að ræða.
Það hafi þó veriö til lög frá 1933
sem bundu útsölur við 10. janúar
til 10. mars og 20. júli til 5. sept.
Best væri samt að útsölurnar
mótuðu sér árstlðabundinn far-
veg, bæði fyrir verslunarmenn
sem þyrftu að losna við gamlan
varning til aö fá pláss fyrir þann
nýja og neytendur sem þá vissu
nokkurn veginn hvenær þeirra
væri að vænta.
Útsölurnar eru i fullum gangi þessa dagana.
Gömlu konurnar og afgreiöslukonan ræða „málin.’
Björgvin Njáll Ingólfsson. neini:Nei-nei aldrei. Bara núna af þviég er
„buxnalaus”. Eg hef tvær aðstoðarmanneskjur með mér til þess að
valið sé pottþétt.
.... dálitið glannalegur, en samt ekki sem verstur, gæti unga mærin
verið aö hugsa.