Vísir - 14.04.1980, Page 12
Mánudagur 14. aprll 1980
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 78., 79. og 82. tbl. Lögbirtingablaðsins á
fasteigninni Skeiðarskemman á Nönvörðuhæð f Keflavlk,
þinglýst eign fiskvinnslustöðvarinnar Jökuls hf. fer fram
á eigninni sjálfri að kröfu Hauks Jónssonar hrl., inn-
heimtumanns rlkissjóðs og Vilhjálms Þórhallssonar hrl.,
fimmtudaginn 17. aprll 1980 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn f Keflavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 26., 27. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins
1979 á fasteigninni Fitjabraut 6c I Njarðvik, þinglýst eign
Harðar hf. fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Hauks
Jónssonar hrl., Landsbanka tslands, Garðars Garðars-
sonar hdl., Einars Viöar hdl„ Jóns Finnssonar hrl., Póst-
gfróstofunnar, Skarphéðins Þórissonar hrl., Gústafs
Tryggvasonar hdl., Kristins Björnssonar hdl. og Hákonar
H. Kristjánssonar hdl., fimmtudaginn 17. april 1980 kl.
15.00.
Bæjarfógetinn I Njarðvlk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 78., 79. og 82. tbl. Lögbirtingablaðsins
1979 á fasteigninni lóð v/Básveg, ólafshús og Sæfarahús
Veiðarfærageymsla, beitingarhús og dæluhús I Keflavik,
þinglýst eign fiskvinnslustöðvarinnar Jökuls hf„ fer fram
á eigninni sjálfri að kröfu Hauks Jónssonar hrl„ inn-
heimtumanns rikissjóðs og Vilhjálms Þórhallssonar hrl„
fimmtudaginn 17. april 1980 kl. 14.00.
Bæjarfógetlnn I Keflavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 6„ 12. og 16. tbl. Lögblrt-
ingablaðsins 1980 á MB Karli Marx IS 153, þinglýst eign
Jóhannesar Ó. Finnssonar fer fram við bátinn sjálfan f
Sandgeröishöfn að kröfu Grétars Haraldssonar hdl.
fimmtudaginn 17. april 1980 ki. 13.00.
Sýslumaöurinn I Gullbringusýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 50., 52. og 55. tbl. Lögbirtingablaösins
1979 á MB Búrfelli KE 140, þinglýst eign Saltvers hf. og
Gests Ragnarssonar fer fram við bátinn sjálfan f Njarð-
vikurhöfn að kröfu Theódórs Georgssonar hdl„ fimmtu-
daginn 17. april 1980 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn f Njarövik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 75. 76. og 78. tbl. Lögbirtingablaðsins
1979 á fasteigninni Staðarvör 14 i Grindavik, þinglýst eign
ólafs A. Þóröarsonar fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Garöars Garðarssonar hdl„ Guðjóns Steingrimssonar
hrl„ Skúla J Pálmasonar hrl„ Hákonar Árnasonar hrl„
Ævars Guðmundssonar hdl„ og Veödeildar Landsbanka
tslands miðvikudaginn 16. aprii 1980 ki. 16.00.
Bæjarfógetinn i Grindavik.
Nauðungaruppboð
annab og siðasta á fasteigninni Valhöll, Grindavik, þing-
lýst eign Sigurðar Þórðarsonar, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Jóns Oddssonar hrl„ miðvikudaginn 16. aprii 1980
kl. 15.30.
Bæjarfógetinn i Grindavik.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var f 82. 86. og 91. tbl. Lögbirtingablaðsins
1979 á fasteigninni skreiðar- og fiskvcrkunarhús á lóð úr
landi Gtskála, Garði, þinglýst eign Guðbergs Ingólfsson-
ar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Skúla J. Páimason-
ar hrl„ og Fiskveiðisjóðs tslands, miðvikudaginn 16. aprfl
1980 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 92., 97. og 99. tbl. Lögbirtingablaösins
1978 á fasteigninni Kirkjubraut 7, Njarðvik, þinglýst eign
Vilhjálms Eyjóifssonar, fer fram á eignlnni sjálfri að
kröfu innheimtumanns rlkissjóðs, miövikudaginn 16.
april 1980 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn I Njarðvik.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var f 41., 44. og 46. tbl. Lögbirtingablaðsins
1979 á fasteigninni Sunnubraut 16 efri hæð f Keflavik, þing-
lýst eign Erlu Einarsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu Bæjarsjóðs Keflavikur og Vilhjálms H. Vilhjálms-
sonar hdl„ miðvikudaginn 16. april n.k. kl. 10.30.
Bæjarfógetinn f Keflavik.
Guðlaugur meðal nokkurra stuðningsmanna sinna. Lengst til vinstri er Gubbjartur Gunnarsson, sem sá
um og ritstýröi kosningabæklingi Guðlaugs, þá Guðlaugur Þorvaldsson, ólafur Friöfinnsson, örn
Marinósson og Steinar Berg. (VisismyndtGVA)
„SKODANAKANNANIRNAR
GEFA VISBENDINGU’
- segip Guðlaugur Þopvalflsson. sem opnaði
kosningaskrifstofu sína um helgina
i
i
i
i
i
i
„Fyrsta skrefið I minni kosn-
ingabaráttu var bæklingur, sem
búið er að dreifa. Að öðru leyti
er skipulögð barátta ekki hafin
af minni hálfu”, sagði Guð-
laugur Þorvaidsson, rikissátta-
semjari og forsetaframbjóð-
andi.
„Ég fer nú að huga að þvi aö
fá fri tír sáttasemjarastarfinu.
Ég hef tilþessaekki séð ástæöu
tii þess, en i júní og ef tif vill
einnig I mai verð ég að geta
helgað mig kosningabaráttunni
alfarið.”
Guölaugur sagöi, að kosn-
ingaskrifstofa hans hefði form-
lega verið opnuð um helgina.
Skrifstofan er til húsa að Suöur-
landsbraut 20, 4.hæð.
— Hvernig verður fjármálum
háttað?
„Þaö er óhjákvæmilegt aö
safna einhverju fjármagni
meðal stuöningsmanna minna
og fara allir útgjaldaliöir, svo
FORSETAKJÖR
1980:
ER KOSNINGA-
BARÁTTAN AÐ
HEFJAST?
sem útgáfustarfsemi og ferða-
lög, eftir þvi hvernig til tekst
um þá söfnun. Ég er þannig
innstilltur, aö ég tel ekki rétt að
leggja út I einhverja skulda-
söfnun.”
— Ætlarðu að ferðast um
landið og haida fundi?
„Það er aiveg öruggt, að viö
hjónin munum fara viða um
landið og kynna okkur. Ég tel
það vera sjálfsagða tillitsemi
við kjdsendur. Við höfum ekkert
gert af þvi ennþá og enn sem
komiðer hafa engar ferðir verið
skipulagöar, en það verður gert
i samrdöi við heimamenn á
hverjum stað.”
— Ertu bjartsýnn?
„Já, ég er það. Þó ég telji
varhugavert að treysta þessum
vinnustaöaskoðanakönnunum,
sem birtar hafa verið i
blöðunum, tel ég að i grófum
dráttum gefi þær vísbendingu.”
—ATA.
FÉLAGSMENN í KRABDAMEINSFELAGI REVKJAVI'KUR
ÁHVGGJUFULLIR:
ÚRBÓTA ÞQRF A SVIÐI
KRABBAMEINSLÆKNINGA
Aðstaða til meöferöar
krabbameinssjúklinga er ófull-
nægjandi, bæði hvað snertir
húsnæði og tækjabúnað til þess
að unnt sé aö uppfylla nútima
kröfur, að mati félagsmanna í
Krabbam einsf élagi Reykja-
vikur.
Þessi skoðun kom fram i einni
af ályktunum aðalfundar
félagsins, sem nýiega var
haldinn.
Þar var jafnframt á þaö bent,
aö framfarir i meðferö krabba-
meinssjúklinga hafi haft i för
með sér bættar horfur sjúklinga
með ýmsar tegundir iiikynja
sjúkdóma, en úrbætur hér á
landi hefðu ekki hafist þrátt fyrir
alimiklar umræöur á siðasta
ári. Lýstu fundarmenn
^ðyggjum sinum vegna þessa
ástands.
Stóraukin fræðsla
Formaöur félagsins, Tómas
Arni Jónasson, og fram-
kvæmdastjóri þess, Þorvarður
örndlfssons, fluttu skýrslur um
starfsemi félagsins á aðalfund-
inum og kom fram að félagið
hefur unniö að ýmsum áhuga-
málum krabbameinssamtak-
anna og aukið fræðslustarfsemi
sina að mun. A skólaárinu 1978-
79heimsóttu starfsmenn félags-
ins 15 þúsund nemendur í 94
skdlum og horfur eru á að sá
þáttur fræðslustarfsins nái á
yfirstandandi skólaári til allra
deilda i 5.-9. bekk grunnskóla á
höfuðborgarsvæöinu. Utan þess
hefur þegar verið farið i meira
en 40 skóla i vetur.
Blaðið Takmark er gefið út
fjórum sinnum á skólaári og
fyrst og fremst dreift til
fjögurra aldursflokka nemenda
i grunnskólum um land allt.
Upplag blaðsins er 30 þúsund
eintök. Einnig gefur félagið út
Verkefni fyrir hópvinnu, laus
blaðasafn með fjölbreyttum
heimildum varðandi áhrif og
afleiðingar reykinga. Er
það einkum hagnýtt I 6. bekk
grunnsktíla. Litabókarblöðum
um sama málefni er dreift
árlega til nemenda i 8 ára
bekkjum um allt landið.
Happdrættisféð drjúgt.
Gefin var út nýr bæklingur
(Hjálp til samhjálpar) i flokki
fræðslurita um krabbamein og
krabbameinsvarnir og tveir
áður útkomnir bæklingar i sama
flokki endurprentaöir. Enn
aðrir eru i undirbúningi svo og
allmikiö safn litskyggna meö
tilheyrandi skýringum til nota i
fyrirhugaðri almenningsfræöslu
um krabbamein.
Félagið eignaöist nokkrar
nýjar fræðslukvikmyndir á
árinu og lét vinna upp nýjan lit-
skyggnuflokk um áhrif reyk-
inga á heilsuna. Var hann
einkumnotaðuri efstu bekkjum
grunnskóla og nokkrum fram-
haldsskólum.
Fjórðungur af kostnaði viö
fræðslustarfið árið 1979 var
greiddur meö framlögum frá
riki og Reykjavikurborg.
Krabbameinsfélag
Reykjavikur sér um rekstur á
Happdrætti Krabbameins-
félagsins og jukust umsvif þess
mjög á siöasta ári. Lagöi félagið
rúmlega 42 milljónir króna af
ágóða happdrættisins og öörum
tekjum sinum til starfsemi
Krabbameinsfélags Islands,
þar af 7,5 millj. sérstaklega til
krabbameinsskrárinnar. Þá
veitti félagið samtals 2,5 mill-
jóna kr. framlag til tveggja
starfshópa, sem vinna að
velferðarmálum krabbameins-
sjúklinga i tengslum við
krabbameinssamtökin og veitti
aðra minnistyrkií samræmi við
tilgang sinn.