Morgunblaðið - 30.12.2001, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 45
DAGBÓK
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
● ●
● ●
● !"#$
# ● #% &&
● ' (# ) ' &*+*,
Námskeið sem hefjast í janúar
7. janúar - Raja jóga hugleiðsla
8. janúar - Al-Einingaröndun (hátt Kriya jóga)
9. janúar - Sálarhugleiðsla - Miðlun
10. janúar - Uppstigningar (Kristsvitunar) vinnunámskeið
Geymið auglýsinguna
Upplýsingar á netfangi: www.vitund.is/andlegiskolinn
Skráning í síma 553 6537
Andlegi skólinn
Að breyta lífsmynstrinu
Breyttar venjur — ný framtíðarsýn
Sjö vikna námskeið
á miðvikudagskvöldum hefst 16. janúar
Slökun - styrking
Efling orkuflæðis líkamans,
einbeitingaræfingar, hugleiðsla
fannyj@itn.is Heimasíða fanny.is
Mánaðarnámskeið á þriðjud. og fimmtud.
hefst 8. janúar. Skráning í síma 692 2758,
Fanný Jónmundsdóttir.
Óskum öllum okkar traustu og tryggu viðskipta-
vinum gæfuríks komandi árs með þökk fyrir
gagnkvæm viðskipti undanfarin ár, þar af flest-
um 26 ár.
Gunnar og María
(áður North Atlantic Trading)G.V.F. ehf.
ÞEGAR blindur kemur
upp í sex gröndum virðast
tólf slagir auðteknir, en
slæm lega í spaðanum set-
ur strik í þann útreikning
og lækkar slagatalninguna
í ellefu. Til að byrja með.
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ G10542
♥ 1064
♦ ÁKG
♣Á2
Suður
♠ ÁK7
♥ ÁK
♦ D763
♣K743
Vestur Norður Austur Suður
– 1 spaði 2 spaðar * Dobl
Pass Pass 3 hjörtu 6 grönd
Pass Pass Pass
* Hjarta og láglitur,
minnst 5–5-skipting.
Vestur spilar út hjarta-
áttu. Sagnhafi sér fyrir sér
fjóra slagi á spaða, tvo á
hjarta, fjóra á tígul og tvo
á lauf. Þetta telur upp í
tólf, en þegar spaðaásinn
er lagður niður í öðrum
slag hendir austur hjarta.
Það var og.
Nú er aðeins hægt að fá
þrjá slagi á spaða, því
vestur verður tæplega svo
almennilegur að drepa
strax á drottninguna. Þar
með þarf að leita að tólfta
slagnum annars staðar.
Þvingun á austur í hjarta
og laufi er líklegur mögu-
leiki, því austur virðist
eiga sexlit í hjarta og
væntanlega minnst fimm
lauf:
Norður
♠ G10542
♥ 1064
♦ ÁKG
♣Á2
Vestur Austur
♠ D9863 ♠ –
♥ 85 ♥ DG9732
♦ 10954 ♦ 82
♣85 ♣DG1096
Suður
♠ ÁK7
♥ ÁK
♦ D763
♣K743
Sambandið á milli hand-
anna er svolítið viðkvæmt
og því verður sagnhafi að
geyma spaðakónginn og
spila spaðasjöu á gosann.
Hann heldur, auðvitað, og
nú tekur sagnhafi ÁKG í
tígli, fer heim á spaðakóng
og spilar tíguldrottningu
og hendir spaða úr borði.
Tíguldrottningin neyðir
austur til að fara niður á
þrjú lauf (eða gefa slag á
hjarta) og þá getur sagn-
hafi spilað laufi þrisvar og
byggt upp tólfta slaginn á
laufhund.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð glöggskyggn og
eigið ekki í vandræðum með
að koma fyrir ykkur orði
hvernig sem á stendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Stundum er eina ráðið að
halda að sér höndum og bíða
færis. Látið ekki óþolinmæði
hafa yfirhöndina heldur bíðið
róleg uns tækifærið gefst.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er notalegt að eiga stund
með nánum vini og gott að
geta deilt áhyggjunum með
einhverjum sem maður
treystir. Hláturinn lengir líf-
ið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er í mörg horn að líta í
vinnunni og ykkur finnst þið
ekki hafa tíma til annars. Það
er rangt því þið þurfið svo
mjög að dreifa huganum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef þið leggið spilin á borðið
þurfið þið ekki að óttast and-
stöðu heldur munu sam-
starfsmenn ykkar sjá kosti
ráðagerða ykkar og láta
sannfærast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þið eruð með ýmsar vanga-
veltur í sambandi við ákveðna
samstarfsmenn. Gefið þeim
tækifæri og þá mun koma í
ljós hvoru megin þeir standa.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru nokkur mál sem þið
þurfið að íhuga vandlega og
þegar niðurstöður eru fengn-
ar verðið þið að láta til skarar
skríða tafarlaust.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er kominn tími til þess að
þið setjð hugsanir ykkar nið-
ur á blað og veitið öðrum
hlutdeild í þeim sannindum
sem þið teljið ykkur hafa
fundið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þið fáið hverja hugmyndina
annarri betri en getið ekki
gert upp á milli þeirra. Legg-
ið þær í dóm trausts vinar og
látið svo verkin tala.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þið eruð eins og milli steins
og sleggju í ákveðnu máli.
Reynið að ná heildarsýn til
þess að þið getið vegið og
metið aðstæður svo vit sé í.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ykkur finnst að ykkur sótt úr
öllum áttum. Leitið ráða til
þess að verja ykkur og sinnið
aðeins því sem hugir ykkar
standa til. Þolinmæði er
dyggð.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þið hafið ráð undir rifi hverju
og getið komið ýmsu í verk ef
þið leggið ykkur fram um að
leita samstarfsaðila. Stað-
reyndirnar tala sínu máli.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ykkur finnst einhvern veginn
allt rekast hvað á annars
horn. Gefið ykkur tíma til að
greiða úr flækjunni og þá
leysast allir hlutir auðveld-
lega.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
EIÐUR VOR
Vér stöndum, hver einasti einn,
um Ísland hinn skylduga vörð:
af hjarta vér leggjum nú hönd
á heilaga jörð
og sverjum að sameinast bezt
þess sál, þegar hættan er mest,
hver einasti einn.
Gegn kalsi um framandi kvöð
skal kynstofninn, sjálfum sér trúr,
í landhelgi rísa við loft
sem lifandi múr.
Og heldur en hopa um spönn,
vér herðum á fórn vorri og önn,
hver einasti einn.
Jóhannes úr Kötlum
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. 1. jan-úar verður áttræð
Ásta Árnadóttir. Hún og
eiginmaður hennar Bjarni
Jónsson taka á móti ættingj-
um og vinum kl. 14–17 á af-
mælisdaginn á nýja heim-
ilinu sínu á Aðalgötu 1,
Keflavík.
50 ÁRA afmæli. Þriðju-daginn 1. janúar er
fimmtugur Ólafur Sigurðs-
son, Sunnubraut 8, Kefla-
vík. Hann og sambýliskona
hans Elín Jakobsdóttir taka
á móti ættingjum og vinum í
Frímúrarasalnum, Bakka-
stíg 16, Ytri-Njarðvík, á af-
mælisdeginum milli klukkan
15 og 18.
GULLBRÚÐKAUP og 75
ÁRA afmæli. 1. janúar nk.
eiga 50 ára hjúskaparaf-
mæli hjónin Soffía Bryndís
Stefánsdóttir og Gunnar
Guðmundsson, Álfaskeiði
91, Hafnarfirði. Sama dag
verður Gunnar 75 ára.
GULLBRÚÐKAUP. Á morgun 31. desember eiga 50 ára
hjúskaparafmæli heiðurshjónin Lovísa Óskardóttir og Hall-
grímur Sæmundsson. Á þessum gleðilegu tímamótum hafa
börn þeirra ákveðið að halda með þau út í óvissuna þennan
dag enda hafa þau hjónin löngum verið miklir ferðagarpar.
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6
4. f4 Rc6 5. Be3 Rf6 6. Be2
e5 7. dxe5 dxe5 8. Dxd8+
Rxd8 9. fxe5 Rd7 10. Rd5
Re6 11. Bg4 Bxe5 12. Rf3
Bd6 13. 0-0-0 c6 14. Bxe6
fxe6 15. Rf4 Ke7
Staðan kom upp á alþjóð-
legu móti sem lauk fyrir
skömmu í Búdapest í Ung-
verjalandi. Gergely Antal
(2.426) hafði hvítt gegn Al-
berti Bokros (2.429). 16.
Rxg6+! hxg6 17. Bg5+ Kf7
18. Hxd6 Rf6 19. Hf1 og
svartur gafst upp.
Taflfélagið Hellir heldur
annað jólamót félagsins 30.
desember. Mótið fer fram á
ICC og hefst kl. 20 og lýkur
um kl. 22.30. Góð verðlaun
eru í boði, peningaverðlaun
og frímánuðir frá ICC. Öll-
um er heimil þátttaka sem
er ókeypis. Gleðilegt nýtt ár!
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.