Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 51
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 51
getraun
Áramótagetraun Morgunblaðsins birtist í blaðinu sunnudaginn 30. desember
og verður hún þrískipt; barnagetraun, unglingagetraun og fullorðinsgetraun.
Barnagetraun
5-12 ára
Áskrift að Andrési Önd í heilt ár (52 blöð).
Útgefandi Vaka-Helgafell.
Tónlist að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr.
Boðsmiðar fyrir tvo á kvikmynd að eigin vali frá Smárabíói.
Unglingagetraun
13-17 ára
Áskrift að Syrpu í heilt ár (12 bækur).
Útgefandi Vaka-Helgafell.
Tónlist að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr.
Boðsmiðar fyrir tvo á kvikmynd að eigin vali frá Smárabíói.
Fullorðinsgetraun
18 ára og eldri
Gjafabréf með ferð fyrir tvo til Evrópu á
einhvern af áfangastöðum Flugleiða.
Tónlist að eigin vali frá Skífunni að andvirði 10.000 kr.
Íslenskar eldstöðvar eftir Ara Trausta Guðmundsson.
Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2001. Útgefandi Vaka-Helgafell.
1
2
3
1
2
3
1
2
3
HIPHOP ER býsna víðtæktheiti yfir ólíkar gerðirtónlistar sem allar eigasamiginlegar rætur í tón-
list sem varð til meðal litra Banda-
ríkjamanna á áttunda og níunda ára-
tugnum. Framan af var það
blökkumannatónlist sem var helst
vinsæl meðal litra ungmenna, en í
lok níunda áratugarins urðu þau
þáttaskil að hvít ungmenni hrifust af
rappi og hefur verið svo síðan að sá
markhópur er helsti kaupandi rapp/
hiphop-platna. Það hlaut því að fara
svo að bleiknefjar færu að rappa,
ýmist sem skemmtikraftar á við
Vanilla Ice eða sem alvöru tónlist-
armenn á við Beastie Boys og Em-
inem. Upp á síðkastið hefur síðan
borið talsvert á því sem menn kalla
óhlutbundið hiphop, þar sem formið
er ekki nema ákveðinn rammi sem
menn fylla út í að vild. Framarlega í
flokki þeirra sem eru að teygja svo á
skilgreiningum og formum er fé-
lagsskapur vestur í San Francisco
sem kallast Anticon Music.
Miklar deilur hafa spunnist um
það hvort rétt sé að kalla Anticon-
liða hiphop-listamenn og algengt að
þeir séu gagnrýndir fyrir að vera of
framúrstefnulegir, og óhlutbundnir í
textum og of hvítir á litinn. Í ljósi
þeirrar röksemdar að hiphop sé tón-
list flutt af svertingjum, sem fjalli
um ofbeldi, fíkniefni og klám eru
þeir vitanlega langt frá því og segj-
ast reyndar kæra sig kollótta um
hvað þeir séu kallaðir, vilja helst
vera kallaðir skáld, enda sé þeim
jafneðlilegt að lesa upp ljóð og að
rappa þau. Þess má geta að eitt af
því sem stendur í gagnrýnendum
Anticon er einmitt að rappið er oftar
en ekki órímað; minnir á trúar-
bragðadeilur um ljóð og óljóð hér á
landi.
Fjöldi Anticon-félaga er nokkuð á
reiki, en á vefsetri félagsskaparins,
anticon.com, eru fimmtán taldir sem
helstu félagsmenn, en talsvert fleiri
tengjast Anticon að einu eða öðru
leyti. Meðal þeirra sem nefndir eru
eru t.d. Sole, Dose One, why? og
Odd Nosdam.
Tónlist fyrst og fremst
Dose One, sem móðir hans nefndi
Adam Drucker, og Sole, sem heitir
Tim Holland, eru helstu talsmenn
Anticon, en að því er Dose One segir
komu þeir saman til að semja og
flytja hiphop, en áttuðu sig síðan á
því að þeir voru að búa til tónlist,
eins og þeir kalla það; ekki lengur
bundnir við hiphop. Hann segir að
húðlitur þeirra skipti vissulega máli
að því leyti að þeir voru hver fyrir
sig eini hvíti rapparinn í hverfinu og
því alltaf einir á ferð meira eða
minna, enda upp aldir í hvítum mið-
stéttarumhverfum.
Samhliða miklum áhuga á hiphop
segir Dose að þeir félagar hafi haft
áhuga á nýrokki og nefnir sér-
staklega sveitir eins og Pavement,
Flying Saucer Attack og Slint. Hon-
um er einnig gjarnt að grípa til sam-
líkinga úr rokki þegar hann lýsir
tónlist þeirra í árdaga og nefnir til
að mynda að hann hafi fengist við
emo-hiphop á sínum tíma. Helstu
hiphopáhrif segir hann komin frá
sveitum eins og De La Soul og A
Tribe Called Quest, aukinheldur
sem margt sé skylt með þeim fé-
lögum og Jurassic 5 og dialated.
Sex 10" með tólf sex mínútna lögum
Einn helsti framvörður Anticon er
sveitin cLOUDDEAD, sem varð til
sem tilraunaverkefni þeirra Dose
One, Odd Nosdam og why? og átti
aldrei að verða meira en röð af 10".
Alls urðu plöturnar sex og hvert lag
sex mínútur að lengd. Tónlistin var
tekin upp við frumstæð skilyrði á
átta rásum, sem verður að teljast vel
af sér vikið í ljósi þess hvað útsetn-
ingar eru snúnar. Skífurnar komu út
á árunum 1998 til 2000 og á þessu ári
kom svo út breiðskífa samnefnd
sveitinni þar sem þeim er öllum
safnað saman.
Að sögn Dose er innblásturinn að
cLOUDDEAD sveitir á við My
Bloody Valentine, Stars of the Lid,
Windy & Carl og raftónlist-
artvíeykið Boards of Canada og víst
má heyra slitrur sem minna á fram-
sækið nýrokk og rafeindasveim-
tónlist. Hiphop-stemmningin er þó
alltaf sterk og listilega farið með
hugmyndir; lögin síbreytileg og í
hvert sinn sem áheyranda finnst
hann farinn að skilja það sem fram
fer tekur tónlistin beygju í aðra og
óvænta átt – hér er borvél t.a.m. not-
uð til að búa til takt. Textinn sem
þeir Dose One og why? fara með er
svo sundurlaus að hann gæti eins
verið spuni á staðnum, sumt rímar
annað ekki, en einhvern veginn er
samhengi í öllu saman.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Óhlutbundið
hiphop
Hér segir frá Anticon
hiphop-samsteypunni
sem margir kalla tilræði
við tónlistarformið.