Morgunblaðið - 20.01.2002, Qupperneq 4
!
"
#
$ %
&'
( )
*+!
%
(
!
('
&')
,'
&
$
)
# )
$-
!)
" !
"
.
%
$ / %
#
$
) ! )
,'
,'
"
!
!'
$ %%
0
$
/
1 (
"
2
0
!)
*
&' !)
* %
3
$
&
$
%
0'
( 0'
,'
+
*%/'
$%'
/' ' !'
.!
$
'
&,4"5(6"
"
*!)$ (
%
6
!)
.
& '
!
'
)
$
*
$
0
( ,'
2
)
0
$
!
'
7
(
%
%
,
%
.
! '
*%/
*
$
(
8
$
9
*
)
:
8 $
9
3
;
$
!
)
'
/
RÚMLEGA 107 þúsund krónum get-
ur munað á skattgreiðslum manns
með sex milljóna króna árstekjur eft-
ir því hvort hann býr í sveitarfélagi
þar sem hámarksútsvar er innheimt
eða þar sem lágmarksútsvar er inn-
heimt. Munurinn er rúmlega 71 þús-
und kr. á skattgreiðslum af 4 milljóna
kr. árstekjum og af tveggja milljóna
króna árstekjum er greiddur 35 þús-
und kr. minni skattur í sveitarfélagi
þar sem lágmarksútsvar er innheimt.
Hámarksútvar í ár er 13,03% og
lágmarksútsvar 11,24% og er mun-
urinn á hæstu og lægstu skattpró-
sentu því 1,79 prósentustig. Aðeins
fjórir sveitahreppar innheimta lág-
marksútsvar, þ.e.a.s. Hvalfjarðar-
strandarhreppur, Skilmannahreppur
og Skorradalshreppur í Borgarfirði
og Ásahreppur í Rangárvallasýslu.
Rúmur helmingur sveitarfélaga í
landinu hins vegar innheimtir há-
marksútsvar, eða 67 af 121 sam-
kvæmt skrá Sambands íslenskra
sveitarfélaga, en mörg af stærstu
sveitarfélögum landsins eru með
nokkru lægri skattprósentu og liggja
þarna á milli einhvers staðar. Þar má
nefna Reykjavík og Kópavog, þar
sem útsvarið er 12,70% og Garðabæ
og Seltjarnarnes þar sem það er
12,46%. Raunar eru það einungis
Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur,
Kjósarhreppur, Vatnsleysustrandar-
hrepppur og Akranes sem innheimta
hámarksútsvar á suðvesturhorni
landsins. Í Mosfellsbæ er útsvarið
12,65% og 12,70% í Reykjanesbæ og
Grindavík og Garði og 12,60% í Sand-
erði. Akureyri, Snæfellsbær, Borgar-
byggð, Húsavík, Ísafjörður Horna-
fjörður, Vestmannaeyjar, og Árborg
innheimta hámarksútsvar svo dæmi
séu tekin af stórum sveitarfélögum
utan höfuðborgarsvæðisins.
Tekjuskattur til ríkisins er 25,75%
af tekjum í ár og við bætist úrsvarið
sem rennur til sveitarfélaganna.
Skattprósentan þar sem hámarks-
útsvar er lagt á er þannig 38,78%, en
hún er 36,99% í sveitarhreppunum
fjórum þar sem hún er lægst. 38,45%
er tekjuskatts- og útsvarsprósentan í
Reykjavík og Kópavogi og 38,21% í
Garðabæ og á Seltjarnarnesi.
Þegar nánar er litið á þetta kemur í
ljós, svo dæmi séu tekin, að sá sem
býr í Garðabæ borgar rúmlega 11
þúsund kr. minna í skatt af tveggja
milljóna króna árstekjum en sá sem
býr í Hafnarfirði. Munurinn vex í
réttu hlutfalli við hækkandi tekjur.
Hann er þannig tæp 23 þúsund kr. ef
árstekjurnar eru fjórar milljónir
króna og ef árstekjurnar eru sex
milljónir kr. greiðir Garðbæingur
rúmlega 34 þúsund kr. lægri skatt en
sá sem býr í Hafnarfirði.Munurinn er
enn meiri ef dæmi eru tekin af Akra-
nesi þar sem hámarksútsvar er inn-
heimt og sveitahreppunum í ná-
grenninu,
Hvalfjarðarstrandarhreppi, Skil-
mannahreppi og Skorradalshreppi,
þar sem leyfilegt lágmarksútsvar er
innheimt. Munurinn e rúmar 35 þús-
und kr, þegar árstekjurnar eru tvær
milljónir, rúmar 71 þúsund kr. þegar
tekjur eru 4 milljónir kr. og fer upp í
rúmar 107 þúsund kr. þegar árstekj-
urnar eru 6 milljónir kr.
Innheimta hámarks- og lágmarksútsvars í sveitarfélögum af 6 milljóna króna tekjum
107
þús. kr.
munur
á skatti
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VEGAGERÐIN kynnir í nýjasta
hefti Framkvæmdafrétta fyrirhuguð
jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar, sem hafa farið í gegn-
um umhverfismat og hlotið sam-
þykki Skipulagsstofnunar.
Úrskurður skipulagsstjóra var ekki
kærður til umhverfisráðherra. Verk-
tími ganganna er áætlaður eitt og
hálft ár og kostnaður talinn nema 3,4
milljörðum króna, miðað við verðlag
nýliðins árs. Göngin koma til með að
stytta leiðina milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar um 34 kílómetra en
hún er í dag um 52 kílómetrar.
Framkvæmdafréttir byggja frá-
sögn sína á umhverfismatsskýrslu
Hönnunar hf. á Reyðarfirði en sam-
kvæmt henni munu göngin liggja í
gegnum fjallgarðinn milli Hrúteyrar
í Reyðarfirði og bæjarins Dala í Fá-
skrúðsfirði, alls 5,9 kílómetra löng að
vegskálum meðtöldum. Tengivegir
verða alls á 8 km kafla, 1,2 km Reyð-
arfjarðarmegin og 5,8 km Fáskrúðs-
fjarðarmegin. Göngin verða tvíbreið
og Reyðarfjarðarmegin verður vegs-
kálinn 50 metra langur og ganga-
munninn í 65 metra hæð yfir sjó.
Vegskálinn Fáskrúðsfjarðarmegin
verður um 200 metra langur og í 100
metra hæð yfir sjó. Áætlað er að um
350 þúsund rúmmetrar af sprengdu
bergi muni falla til við jarðganga-
gerðina og verður það notað í fyll-
ingar við vegagerðina.
Arðsemin háð
atvinnuuppbyggingu
Niðurstöður arðsemisútreikninga
eru 2,2 til 4,3% afkastavextir miðað
við 30 ára afskriftartíma og umferð-
arspá til þriggja áratuga eftir opnun
ganganna. Segir Vegagerðin niður-
stöðuna því háða þeirri atvinnuupp-
byggingu og byggðaþróun sem verði
á Austfjörðum.
Um Suðurfjarðarveg milli Reyð-
arfjarðar og Fáskrúðsfjarðar fara nú
daglega um 200 bílar að meðaltali og
samkvæmt matsskýrslu Hönnunar
er gert ráð fyrir allt að 1 þúsund bíl-
um á dag um göngin, allt eftir því
hvort af stóriðjuframkvæmdum
verður eða ekki. Reiknað er með að
umferðin tvöfaldist á fyrstu árum
eftir opnun ganganna, miðað við
reynslu frá Vestfjarða- og Hvalfjarð-
argöngum. Þá er talið að göngin
muni lækka slysatíðni um þriðjung.
Áætlað að jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar muni kosta 3,4 milljarða
Jarðgöngin
stytta leiðina
um 34 kílómetra
Tölvumynd/Teikn á lofti
Myndin sýnir gangamunnann við Hrúteyri Reyðarfjarðarmegin.
Yfirlitsmynd úr lofti sem Vegagerðin hefur unnið vegna fyrirhugaðra jarðganga. Líklegt er að nýi vegurinn Fáskrúðsfjarðarmegin tengist núverandi þjóðvegi á öðrum stað en myndin sýnir.