Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ GJALDÞROT orkufyrirtækisins Enron, sem er hið mesta í sögu Bandaríkjanna, hefur orðið til þess að fram hafa komið fjölmargar til- lögur um lög og reglugerðir sem ætl- að er að fyrirbyggja misferli sem stjórnendur Enron urðu uppvísir að. Þessar tillögur eru mjög víðtækar og snúast um breytingar á lögum um eftirlaunasjóði launþega og verð- bréfaviðskipti, reglur um endurskoð- un fyrirtækja og jafnvel umbætur á lögum um framlög í kosningasjóði. Þegar Bush tók við forsetaemb- ættinu fyrir ári hafði hann lofað því að draga úr afskiptum alríkisins af bandarískum fyrirtækjum. Og marg- ir þeirra embættismanna sem hann hefur skipað í mikilvægar eftirlits- stofnanir – meðal annars bandaríska verðbréfaeftirlitið, SEC – voru áður starfsmenn þeirra fyrirtækja sem stofnanirnar eiga að hafa eftirlit með. Enron veitti mest allra fyrirtækja í kosningasjóð Bush og margir stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjun- um segja að forsetinn sé nú undir miklum þrýstingi að sýna að hann sé ekki taglhnýtingur stórfyrirtækja sem hafa stutt hann. Þeir telja að Bush komist ekki hjá því að leggja fram ný lagafrumvörp til að bregðast við meintum ávirðingum stjórnenda Enron. Skólabókardæmi um tengslin við auðmenn Bush kann að standa frammi fyrir svipuðum vanda og forveri hans, Bill Clinton, árið 1996 þegar fjáröflunar- aðferðir hans sættu harðri gagnrýni. Clinton reyndi þá að breyta siðferði- legri deilu í pólitíska rökræðu með því að færa rök fyrir því að vanda- málið fælist í gölluðu kerfi – ekki gerðum hans sjálfs – og leggja til umbætur á lögunum um framlög í kosningasjóði. Líklegt þykir að Bush beiti svip- aðri aðferð til að hafa áhrif á um- ræðuna, leggi til breytingar á lögum um eftirlaunasjóði og verðbréfavið- skipti til að draga athyglina frá per- sónulegum og pólitískum tengslum sínum og fleiri hátt settra embættis- manna við Enron. John Podesta, sem var skrifstofu- stjóri Hvíta hússins í forsetatíð Clintons, kvaðst ekki telja að Bush eða ráðherrar hans hefðu gerst sekir um lögbrot vegna tengslanna við En- ron. „Þeir standa hins vegar frammi fyrir pólitísku vandamáli – þetta er ef til vill skólabókardæmi um tengsl þeirra við hina auðugu og voldugu, fólkið sem fer í kringum reglurnar til að bæta eigin hag. Og ég tel að lausn- in sé að stjórnin leggi fram frumvörp sem vernda betur eftirlaunasjóði landsmanna.“ Starfsmennirnir töpuðu 100 milljörðum króna Áætlað er að starfsmenn og fyrr- verandi starfsmenn Enron hafi tapað samtals milljarði dala, andvirði 100 milljarða króna, vegna gjaldþrotsins þar sem hlutabréf í fyrirtækinu voru stór hluti eftirlaunasjóða þeirra. Yf- irmenn Enron höfðu hins vegar selt hlutabréf sín í fyrirtækinu þegar gengi þeirra var sem hæst. Bush hefur þegar skipað tvær nefndir til að endurskoða reglur um eftirlaunasjóði launþega og lög um upplýsingaskyldu skráðra hluta- félaga. Verðbréfaeftirlitið hefur einnig skýrt frá því að það íhugi nú að herða reglur um innra eftirlit end- urskoðunarfyrirtækja. „Þetta mál er svo umfangsmikið að það krefst vandlegrar skoðunar og umræðu og við vonum að við- brögðin verði ekki of hörð,“ sagði Dan Bartlett, yfirmaður fjölmiðla- skrifstofu Hvíta hússins. „En hvað kjarna málsins varðar er þörf á um- bótum og ríkisstjórnin fagnar þeirri vinnu sem er hafin.“ Umræðan í Hvíta húsinu um „þörf á breytingum“ er mikið áhyggjuefni í augum þeirra kaupsýslumanna sem hafa stutt þá stefnu Bush að draga úr afskiptum alríkisins af fyrirtækjum. „Ég hygg að það væri skynsamlegt að breyta ekki öllum heiminum vegna eins slæms fyrirtækis,“ sagði Bruce Josten, varaforseti og fram- kvæmdastjóri stjórnsýslusviðs bandaríska verslunarráðsins. „Því það væri engum í hag; það myndi að- eins gera allt flóknara og dýrara.“ Hneykslismál „klakvélar umbóta“ Gjaldþrotið hefur orðið til þess að fjölmargar umbótatillögur hafa kom- ið fram og það ætti ekki að koma á óvart því segja má að „hneykslismál hafi verið klakvélar umbóta í Banda- ríkjunum í meira en öld“, eins og bandarískur fréttaskýrandi orðaði það. Mörg mikilvægustu laganna sem komið hafa reglu á viðskiptalífið og stjórnsýsluna í Bandaríkjunum hafa verið sett í kjölfar hneykslis- mála. Fjármálahneyksli fyrir fyrri heimsstyrjöldina urðu til að mynda til þess að seðlabanki Bandaríkjanna var stofnaður og viðamikið verðbréfasvindl á þriðja áratug síð- ustu aldar varð til þess að sett voru alríkislög um verðbréfamarkaðina. Watergate-hneykslið leiddi einnig til umbóta á lögum um kosningasjóði og þrýstihópa á áttunda áratugnum. „Þegar menn kynna sér vöxt hins gríðarstóra eftirlitskerfis Bandaríkj- anna komast þeir að því að rekja má alla áfangana til einhvers konar vandamáls sem vakti athygli al- mennings og fékk þingið til að bregð- ast við,“ sagði Donald Kettl, stjórn- málafræðingur við Wisconsin-háskóla. Á meðal þeirra tillagna, sem ræddar eru á Bandaríkjaþingi vegna gjaldþrotsins, er tillaga tveggja demókrata um að breyta lögum um skattfrjálsa eftirlaunasjóði launþega. Þeir vilja að launþegarnir fái meira frelsi til að selja hlutabréf, sem fyr- irtæki þeirra leggja í sjóðina, og að hlutabréfin geti ekki verið meira en 20% af eftirlaunasjóðnum. Sam- kvæmt núgildandi lögum getur allt framlag fyrirtækis launþegans í slík- an sjóð verið í formi hlutabréfa í því. Repúblikanar hafa varað við því að þúsundir fyrirtækja hætti að leggja fé í eftirlaunasjóðina verði breyting- arnar til þess að framlögunum fylgi of mikill kostnaður og fyrirhöfn. Umræðan um framlög Enron í kosningasjóði Bush og margra bandarískra þingmanna, jafnt demó- krata sem repúblikana, er talin geta orðið til þess að breytingar verði gerðar á lögunum um framlög í kosn- ingasjóði. Christopher Shays, repú- blikani í fulltrúadeild þingsins, spáir því að gjaldþrotið verði til þess að stuðningsmenn breytinganna geti knúið fram atkvæðagreiðslu um þær í deildinni. Öldungadeildin hefur þegar samþykkt breytingarnar. Bush í vanda vegna Enron-málsins Reuters George W. Bush, forseti Bandaríkjanna. Washington. Los Angeles Times. Gjaldþrot bandaríska orkufyrirtækisins Enron er talið geta orðið til þess að George W. Bush Bandaríkjaforseti neyðist til að víkja frá loforðum sínum um að draga úr af- skiptum alríkisins af fyrirtækjum til að sýna að hann sé ekki taglhnýtingur stórfyr- irtækja sem hafa stutt hann fjárhagslega. ’ Bush kann aðstanda frammi fyrir svipuðum vanda og forveri hans, Bill Clinton ‘ ENGIN leið er að spá fyrir um það með nokkurri vissu hvað muni verða helsta ógnin við yfirburði Banda- ríkjanna á alþjóðavettvangi á næstu áratugum, að sögn Joseph S. Nye sem er prófessor í alþjóðastjórn- málum við Harvard-háskóla. Nye var meðal fyrirlesara á ráðstefnu sem haldin var í desember í Ósló í tilefni af því að hundrað ár voru lið- in síðan friðarverðlaun Nóbels voru afhent í fyrsta sinn og fjallaði hann meðal annars um uppgang og hnignun stórvelda í sögunni. Nye varaði menn við því að draga of víðtæka lærdóma af samlíkingum við önnur tímabil. Margir bentu nú á að Þjóðverjar hefðu um 1900 ógnað heimsveldi Breta og fullyrtu að Kína væri í svipaðri stöðu gagnvart of- urveldi Bandaríkjanna. Nye sagði að þá virtust menn gleyma því að Þýskaland hefði verið kom fram úr Bretlandi í framleiðslumætti og iðn- væðingu en Kína yrði um langa framtíð mun veikara á þessum svið- um en Bandaríkin. „Ég vara við því að menn haldi áfram að boða kenninguna um að átök milli þessara ríkja séu óhjá- kvæmileg,“ sagði Nye. Hann minnti á að sagnfræðingurinn Þúkídítes hefði til forna sagt að ef menn tryðu því að stríð væri óhjákvæmilegt gæti þessi trú orðið ein helsta ástæða stríðsins. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann og spurði fyrst hve trausta hann teldi nýja vináttu milli Bandaríkjamanna og Rússa. „Ég tel að menn séu enn að þreifa sig áfram, enn er mikil ágreiningur milli ríkisstjórnar Bush og rúss- nesku stjórnarinnar. Hins vegar breyttu atburðirnir 11. september ástandi sem einkenndist af ákveðnu jafnvægi Bandaríkj- anna, Rússlands og Kína, að minnsta kosti töldu menn að slíkt jafnvægi ríkti. Fjórði aðilinn er kominn til sögunnar í því jafn- vægi: hryðjuverka- menn. Þeir hafa eflt samstöðu milli hinna þriggja sem ekki var fyrir hendi en það leys- ir ekki öll vandamálin í samskiptunum. Jafnt Bandaríkja- menn sem Rússar hafa nú áhyggjur af hryðju- verkum en Pútín for- seti hefði hvort sem er talið það þjóna hagsmunum sínum að nálgast Vesturlönd. Atburðirnir í september ýttu undir þá þróun en þeir breyta ekki skoðunum Rússa á málum eins og stækkun Atlantshafsbandalags- ins eða gagnflaugavörnum. Skref hafa verið stigin í rétta átt en margt er enn óleyst.“ Innbyrðis ágreiningur með djúpar rætur – Fyrir nokkrum árum virtust Rússar ætla að reyna án árangurs að halda uppi merki gömlu Sovetríkj- anna sem risaveldi. Eru þeir að reyna að ná sama takmarki en með breyttum aðferðum, bandalagi við Vesturlönd en ekki Kína? „Ég held að Rússar hafi verið og séu enn klofnir í afstöðu sinni til þessara mála. Pútín vill sjálfur innst inni semja við Vesturlönd vegna þess að hann áttar sig á því að það sem Rússland skortir, peningar til fjárfest- inga, markaðir og tækni, er þar. En það hefur alltaf verið erfitt að ganga of langt í þessum efnum, að nokkru vegna þess að drjúgur hluti þjóðar- innar kýs enn kommún- ista. Deilurnar um nálgun við Vesturlönd eiga djúpar rætur í rússneskri sögu, svo- nefndir slavavinir rif- ust áður við þá sem vildu að Rússar yrðu vestrænir. Þetta er eins konar endurómur af þeim deilum.“ – Munu Kínverjar líta á það sem einhvers konar umsátur ef Rússar og vestrænar þjóðir taka saman höndum? „Ekki endilega. Frá 11. september hafa bæði Kínverjar og Rússar bætt samskiptin við Bandaríkjamenn. Ég held að niðurstaða Kínverja verði að þeir muni einnig leggja áherslu á að fá aðgang að bandarískum mörkuð- um og fjármagni. Þeir vilja ekki að Rússar komi á sérstöku sambandi við Bandaríkjamenn. Þess vegna hygg ég að Kínverjar muni reyna að ná einhvers konar samkomulagi við Bandaríkin. Og aftur minni ég á að enn eru samt óleystar deilur til staðar, Taívan- málið, Tíbet og mannréttindi. Nokk- ur hreyfing hefur komist á þessi mál en aðeins búið að leysa þau að hluta.“ – Hvað verður Evrópa, nýtt og sameinað stórríki eða eitthvað ann- að? Hver verður þjóðarvitundin, verður hún margslungin? „Ég held ekki að Evrópa verði nýtt og yfirþjóðlegt stórríki, ég held að álfan verði einstakt fyrirbæri í stjórnmálalegum efnum. Þar er að mínu viti verið að fara inn á brautir nýrra lausna og stofnana sem munu verða vegvísar á 21. öldinni. Evrópu- menn vísuðu einnig veginn fram á við þegar þeir sköpuðu þjóðríkin á sínum tíma, niðurstöðu þeirra núna verður hvorki hægt að kalla þjóðríki né stórríki. Þetta tel ég mjög gott fyrir Evrópu og jafnframt fyrir mannkynið allt. Hver maður getur samtímis haft til að bera margþætta vitund um sjálfan sig. Fólk velur oft þá sjálfs- vitund í andstöðu við þá vitund sem því finnst að reynt sé að þröngva upp á það. Hægt er að segjast vera frá Reykjavík, frá Íslandi, frá Evr- ópu, allt eftir því hvað viðmælandinn er að tala um. Þess vegna held ég að það sé gott og heilbrigt að Evrópa leggi drög að aðstæðum þar sem fólk geti komið á jafnvægi milli ólíkra sjálfsvitunda fremur en að koma upp einni og ríkjandi þjóðar- vitund. Og þetta er ástæðan fyrir því að mér finnst evrópska tilraunin framfaraskref.“ – Ísland er mitt á milli Evrópu og Bandaríkjanna, þurfa landsmenn að velja? „Ég held að Íslendingar geti hæg- lega haldið áfram að vera í báðum þessum samfélögum, geti verið sam- tímis þjóð við N-Atlantshaf og einnig Evrópuþjóð,“ svaraði Joseph S. Nye. Evrópa vísar veginn á ný Bandaríski fræðimaðurinn Joseph S. Nye segir í samtali við Kristján Jónsson að hin nýja Evrópa verði ekki yfirþjóðlegt stórríki heldur ný tegund af samstarfi milli þjóða. Joseph. S. Nye
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.