Morgunblaðið - 20.01.2002, Page 11

Morgunblaðið - 20.01.2002, Page 11
inn undir 10%. Með miska 15% eða hærri séu því aðeins 19% heildarinnar. Til samanburðar vísar Vilhjálmur í flokkun Sambands íslenskra tryggingafélaga á slösuð- um ökumönnum fyrir árin 1988, 1989 og 1990, áður en örorkunefnd tók til starfa. Samtals voru metnir 713 einstaklingar, en af þeim var örorka [nú miski] 353 einstaklinga metin 15% eða lægri. „Það eru 49% heildarinnar á móti 81% hjá örorkunefnd og 73, eða 10%, eru með lægri örorku en 10%, á móti 52% hjá örorku- nefnd. 51% heildarinnar er því metið með 15% örorku eða hærri á móti 19% hjá örorkunefnd,“ segir Vilhjálmur í grein sinni. Hann bætir við, að þessi samanburður sýni ótvírætt að munur á niðurstöðum lækna örorkunefndar og annarra lækna sem meta miska sé mjög mikill, svo mik- ill að ekki geti verið tilviljunum háð. Skoðanir örorkunefndarmanna komi fram í niðurstöðum nefndarinnar, tölurnar sýni það. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ítrekar að vinnu- brögð örorkunefndar hafi lítið breyst frá því að greinin var skrifuð. Nefndinni hafi gjörsamlega mistekist að vinna sér það traust sem hún ætti að hafa og móta reglur sem aðrir matsmenn gætu litið til. „Þetta hefur leitt til þess að mál hafa ekki verið send til nefndarinnar heldur annarra leiða leitað, m.a. notað svokallað „tveggja lækna mat“. Tryggingafélögin hafa þá krafist þess að launaður trúnaðarlæknir þeirra taki þátt í að meta slasað fólk sem félögin eiga að greiða bætur. Þetta er ekki trúverðugt, enda eru trúnaðarlæknarnir augljóslega ekki hlut- lausir sem matsmenn þegar launagreiðandi þeirra hefur beina fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðu matsins.“ Steingrímur Þormóðsson er því sammála að nefndinni hafi ekki tekist að móta reglur sem litið sé til. „Ég fæ ekki séð að miskatöflur ör- orkunefndar hafi gildi fyrir dómkvadda mats- menn og fyrir dómstólum landsins,“ segir Steingrímur. „Það er lenska hjá læknum að vísa aldrei til neinna viðmiðana á borð við miskatöfl- ur. Þess vegna er ómögulegt að sjá af hverju þeir ákvarða miska til dæmis 10% en ekki 20%.“ rsv@mbl.is Presslink ska- ýran Sýnu verst, að innan nefnd- arinnar virðist sú skoðun ríkjandi, að ekki beri að viðurkenna ann- an skaða en þann sem sjáanlegur er. Af einhverjum ástæðum töldu þingmenn sig þess umkomna að setja nokkuð ítarleg ákvæði um fast- eignamat í lög, en þegar kemur að mati á líkamstjóni eru önnur sjón- armið uppi. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 11 Brynjólfur Mogensen og Magnús Ólason. Varamenn eru læknarnir Magnús Páll Albertsson og Ísak Hallgrímsson og Þórunn Guðmunds- dóttir lögmaður. Ragnar segir vara- mennina mjög virka í störfum nefnd- arinnar. Aðspurður hvort hann telji að nefndarsetan ætti að vera aðalstarf svarar Ragnar því að hann eigi bágt með að sjá að starfandi læknar séu tilbúnir til að hætta störfum til að vinna í örorkunefnd. Það sama eigi við um hann sjálfan. „Mér þykir líka trúlegt að læknar stöðnuðu í starfi, ef þeir hættu daglegum læknastörfum og að þeir ættu þá erfiðara með mats- störf.“ Ragnar segir að oftast hafi vinnubrögð örorku- nefndar verið á þann hátt, að einn læknir boði tjón- þola til fundar. Eftir breytingu á skaðabótalögunum 1999 sé nú algengara að tveir læknar kalli tjónþola til viðtals og skoðunar. Ekki mörg mál til dómkvaddra Lögmenn halda því fram að dómkvaddir mats- menn meti miska og örorku nánast alltaf hærra en örorkunefnd. Þeir telja skýringuna m.a. þá, að læknar örorkunefndar taki ekki mið af huglægum at- riðum, eins og sársauka og andlegri vanlíðan. Ragnar er inntur eftir því hvort þetta geti verið skýringin á því hversu oft matið er hækkað. „Ég get ekki svarað þessu. Hins vegar held ég að miðað við málafjöldann í heild sinni hafi ekki stór hluti hans farið í hendur dómkvaddra matsmanna. Hafa ber í huga, þegar dómkvaddir matsmenn skoða mál, að þá hafa forsendur ef til vill breyst á einhvern hátt. Það er því ekki víst að þeir séu með alveg sömu gögn og við, hugsanlega hefur eitthvað bæst við. Ég legg líka áherslu á að þetta er mat og ekki hægt að tryggja að menn sjái það sömu augum. Mér dettur ekki í hug að halda því fram að í örorkunefnd sitji hin- ir einu, Guðs útvöldu matsmenn.“ Hugsanlegt að endurskoða miskatöflu Ragnar staðfestir að íslenska miskataflan hafi ekki verið endurskoðuð. „Það er ekki rétt að íslenska tafl- an hafi eingöngu verið byggð á dönsku töflunni, þar lágu ýmis gögn til grundvallar og taflan er í ýmsum atriðum frábrugðin þeirri dönsku. Læknar, hvort sem þeir eru í Danmörku, á Íslandi eða í Svíþjóð, hafa þó ábyggilega svip- uð viðmið þegar þeir setja upp slíkar töflur.“ Ragnar segir að sjálfsagt mætti endurskoða íslensku töfl- una. „Nefndin hefur lagt alla áherslu á að ljúka meðferð þeirra mála sem borist hafa, enda mikill þrýstingur á það. Þetta hefur því setið dálítið eftir.“ Málafjöldinn, sem örorkunefnd afgreiðir, hefur sveiflast nokkuð undanfarin ár. Í fyrra barst 241 nýtt mál, árið 2000 voru þau 146, árið 1999 80 mál, árið 1998 477 mál og árið 1997 voru málin 793. Ragnar segir að 1997 og ’98 hafi myndast mikill flöskuháls hjá nefndinni og biðtími eftir af- greiðslu verið langur. Þá hafi ver- ið leitað leiða til að dreifa álaginu og nýta fleiri úrræði til að fá afleiðingar slysa metnar. Mörg mál hafi því verið afgreidd af læknum, sem tóku slíkt mat að sér. „Á árunum 1997 og 1998 var nefndin með meira en þúsund mál í gangi á ári. Árið 1997 voru 517 álits- gerðir afgreiddar og 521 árið eftir. Við lögðum okkur fram um að vinna upp þennan málahala. 1999 af- greiddum við 469 mál, árið 2000 voru þau 174 og 223 á síðasta ári. Þetta er svona heldur að mjakast upp á við aftur.“ RAGNAR H. Hall lögmaður erformaður örorkunefndar.Hann vísar á bug gagnrýni ástörf nefndarinnar, segir m.a. að henni sé ætlað samkvæmt reglugerð að skila stuttum rökstuðningi með álits- gerðum og geri betur en það. Þá segir hann að dómkvaddir matsmenn hafi stundum aðrar forsendur til að meta mál en nefndin hafði á sínum tíma. Fyrst og fremst verði menn þó að hafa í huga að um sé að ræða mat, en ekki ein- falda samlagningu óbreytanlegra talna. Trúnaðarmál ekki til birtingar Ragnar segir einfalt mál að skýra hvers vegna úrskurðir nefndarinnar hafi ekki verið birtir. Hann vísar í skaðabótalögin, þar sem fram kemur að dóms- málaráðherra setji reglugerð um starfsháttu örorku- nefndar, þar sem ákveðið sé hvernig staðið skuli að birtingu helstu álitsgerða hennar. Þess skal geta að í reglugerðinni eru engin ákvæði um birtingu álits- gerðanna opinberlega, heldur kveðið á um að nefndin skuli árlega skila ráðuneytinu stuttri skýrslu um starfsemina. „Nefndin lítur svo á að öll þau atriði sem hún fjallar um og varða heilsufarshagi einstaklinga séu trúnaðarmál og hún mun því ekki standa að út- gáfu á neinu efni úr úrskurðum nefndarinnar,“ segir Ragnar. Ragnar segir þetta alltaf hafa verið vinnureglu nefndarinnar. „Þessi afstaða okkar byggist meðal annars á læknalögum og lögum um persónuvernd. Við höfum fengið ýmsar fyrirspurnir, bæði frá Per- sónuvernd, áður tölvunefnd, og frá Umboðsmanni Al- þingis. Þótt þær varði ekki beinlínis útgáfu á úrskurð- unum þá er alveg ljóst að þessir aðilar líta svo á, að því er ég tel, að þarna sé um viðkvæmar persónu- upplýsingar að ræða sem ekki eigi erindi í birtingu. Það er heilmikið verk að fara í birtingu og samantekt á efni úrskurðanna. Ég fullyrði ekki að það sé ekki hægt, en nefndin hefur hvorki fjármuni né mannskap til að standa í slíku. Það er augljóst að vinna þyrfti efnið þannig að persónulegar upplýsingar kæmu ekki fram.“ Gerir betur en reglugerð krefst Ragnar hafnar því að rök- stuðning skorti með úrskurðum nefndarinnar. „Stystu álits- gerðir okkar eru um fjórar prentaðar síður og allt upp í á annan tug blaðsíðna. Í þeim kemur fram bæði það sem nefndin telur að geti skipt máli um heilsufar tjónþolans áður en hann lendir í slysi, sem verið er að meta. Svo er ítarleg lýsing á slysinu, hvaða læknismeðferð hann hefur fengið og rakið hvaða gögn liggja fyrir nefndinni til þess að meta afleiðingarnar. Þetta er svo dregið saman í nið- urstöðunum. Það má vel vera að mönnum finnist þetta eiga að vera miklu ítarlegra, en í reglu- gerð um starfsháttu örorku- nefndar segir að hún skuli láta í té skriflegar álitsgerðir með stuttum rökstuðningi. Ég tel nefndina hafa gert betur en það.“ Málahalinn unninn upp Ragnar segir að bið eftir álitsgerðum nefndarinnar hafi styst mjög og sé nú 3–4 mánuðir, en það væri misjafnt eftir málum og hvaða nefndarmenn ynnu verkið. Enginn nefndarmanna hefði nefndarsetuna að aðalstarfi. „Við höfum gripið til þess ráðs, sem lögin leyfa, að fjölga í nefndinni tímabundið, til að vinna upp mál. Ekki hefur verið ástæða til þess á síðustu ár- um.“ Örorkunefnd skipa nú, auk Ragnars, læknarnir Ragnar H. Hall, formaður örorkunefndar Ragnar H. Hall Heilsufars- hagir einstak- linga eru trúnaðarmál Það má vel vera að mönnum finnist þetta eiga að vera miklu ítarlegra, en í reglugerð um starfs- háttu örorkunefndar segir að hún skuli láta í té skriflegar álitsgerðir með stutt- um rökstuðningi. Ég tel nefndina hafa gert betur en það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.