Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ I. Árið 1923 reistu foreldrarmínir sumarbústað hjáVatnsenda við Elliða-vatn og nefndu Sveins-staði. Við bræður vor- um þá ófæddir, en er hér var komið sögu, sumarið 1933, þá þótti við hæfi að halda austur að Laug- arvatni til þess að læra sund, því ósyndir menn eiga ekki að búa í námunda við vötn. Sveinn bróðir hafði verið við sundnám um tíma sumarið 1932 á Ála- fossi, en kom heim með lús frá dvöl sinni þar, en slíkir næturgestir voru ekki velkomnir hjá móður okkar á Sveinsstöðum. Varð því Laugarvatn fyrir valinu snemma sumars 1933, en við bræð- ur, Sveinn Kjartan (f. 1924), Har- aldur (f. 1925) og greinarhöfundur (f. 1927), vorum þá níu, átta og sex ára. Faðir okkar átti þá 3 hesta, sem voru hafðir í girðingu, er náði allt frá Sveinsstöðum norður að stíflunni, þar sem Elliðaárnar renna úr Elliðavatni. Voru tveir þeirra, Þokki og Þytur, fluttir austur að Eyvindartungu, sem er næsti bær við Laugarvatn, bóndi þá Teitur Eyjólfsson. Nýtti fjöl- skyldan sér hesta þessa til útreiða meðan á sundkennslunni stóð, 2–3 vikur. Við bræður höfðum þó mest- ar áhyggjur af hornsílabúi okkar hjá Sveinsstöðum, en það var í tjörn einni, sem skilur nesið frá meginlandinu. Hornsílin báru flest nöfn, og man ég glöggt áhyggjur mínar af „Bamba“, sem orðinn var mjög belgmikill, þannig að ég hafði hálfgert samviskubit af að skilja hann eftir í þessu ástandi. Í bók Bjarna Sæmundssonar, „Fiskarn- ir“, Reykjavík, 1926, er langur kafli um hornsíli (Gasterosteus aculeatus). Þau hrygna á vorin, gera sér hreiður, þar sem faðirinn (hængurinn) gætir seiðanna. Ekki getur Bjarni um, að þeim þyki gott brauð, en við þóttumst hafa sílin í fæði og færðum þeim gegnvætt, skorpulaust fransbrauð. Hornsílum þykir best að eta eigin afkvæmi og eru ekki ein fiska um það. Minni áhyggjur höfðum við af máríuerlu- ungunum, sem við ólum upp um vorið. Þeir voru orðnir fleygir en það man ég vel, að þeim þótti best skánin af mjólkurvelling, sem við færðum þeim á stundum. II. Nú er haldið austur að Laug- arvatni og gist í Héraðsskólanum, en hann hafði frændi okkar Guðjón Samúelsson teiknað árin 1928–9 og skólinn síðan reistur á næstu ár- um, lokið við byggingu hans árið 1930. Sundkennari okkar fyrra sumarið, 1933, var Baldur Krist- jónsson frá Útey í Laugardal (f. 1909). Reyndist hann okkur Sveinsstaulunum hinn ágætasti kennari, þótt ærslafullir værum, enda Baldur valmenni hið mesta. Fæði var ákaflega vandað í þessu sumargistihúsi, kokkurinn svo sprenglærður að hann skreytti suma réttina, a.m.k. á sunnudög- um. Þríréttað var oftast og villtust sumir gestanna stundum á því, hvaða gaffla ætti að nota með for- rétti, aðalrétti og eftirrétti, svo og um puntið, hvað ætti að gera við það. Skírðum við bræður því tvo gestanna „gafflakallinn“ og annan „puntkallinn“. Í 68 ár hefi ég verið að reyna að koma því fyrir mig, hver væri „gafflakallinn“ og hver „puntkallinn“. Loks hefi ég komist að niðurstöðu í málinu með hjálp fróðra manna. „Gafflakallinn“ var Axel Peder Christian Herskind lyfjafræðingur (1896–1948) lengst forstjóri Efnagerðar Reykjavíkur, en áður starfandi í Laugavegs- apóteki. „Puntkallinn“ reyndist aft- ur á móti vera Halldór Guðjónsson frá Laxnesi, síðar Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness (1902– 1998). „Á líka að eta puntið?“ var spurning hins víðsiglda skálds. Líklegast var lítið um skreytingar í matsalnum í Taormina á Sikiley, þar sem hann glímdi við Vefarann mikla frá Kasmír, er út kom árið 1927. III. Næsta sumar árið 1934 er enn haldið til sundnáms að Laugar- vatni og nú bættist í hópinn móð- ursystir okkar Bergljót Haralz (1922–2000), sem síðar tók sér eft- irnafnið Rafnar, er hún giftist Bjarna lækni (f. 1922). Ekki skorti okkur bræður leikfélaga, því þar voru synir Guðmundar Ólafssonar kennara frá Fjósatugu (1885– 1958), en hann var einn af kenn- urum Héraðsskólans. Synir hans, sem þá dvöldu á Laugarvatni, voru: Karl (f. 1924), Björn (f. 1928) og Ingólfur (f. 1930). Þorkell sonur Bjarna skólastjóra Bjarnasonar (1889–1970) var nokkru yngri en Karl og Björn (f. 1929). Ekki fór hjá því, að okkur væru falin nokk- ur trúnaðarstörf á staðnum, t.d. ræddi ég það eitt sinn við Örnólf Thorlacius fyrrum rektor MH, er við hittumst í Sundlaug Seltjarn- arness, hvort hann myndi nokkuð eftir því, að ég hefði passað hann sumrin 1933 og 1934, en hann er fæddur 9.9. 1931. Svaraði hann því til, að aldur hans þá hefði ekki gef- ið tilefni til minnis, en hann neitaði hvorki né játti. Sundkennslan fór fram þrisvar á dag og nú hafði Fríða Stefánsdóttir (1915–1998) íþróttakennari tekið við kennsl- unni, en hún giftist síðar Friðrik Eyfjörð (f. 1912). Hún varð síðar aðalkennari MR í fimleikum. Ekki mátti á milli sjá, hvort okkur líkaði betur við Fríðu eða Baldur, úrvals- kennarar bæði. Gufubað var þá mjög frumstætt, aðeins tjaldað yfir lítinn hver, köld sturta engin, en kælt sig í vatninu á eftir. Um helg- ar komu fleiri fjölskyldumeðlimir í heimsókn, afi okkar Sveinn Jóns- Laugarvatnsbréf Laugarvatn Ársæll, föðurbróðir minn, segir Leifur Sveinsson, nefndi rauðliða ávallt bolsa. Úr bókinni „Með reistan makka“ Móðir greinarhöfundar, Soffía E. Haraldsdóttir, á hesti sínum Þokka að Sveins- stöðum við Elliðavatn. Leifur Sveinsson Mynd úr Landið þitt Ísland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.