Morgunblaðið - 20.01.2002, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 20.01.2002, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Svanberg Sveins-son fæddist. á Múla í V-Hún. 29. apríl 1907. Hann lést 4. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sveinn, f. 10.6. 1861, bóndi á Egils- stöðum á Vatnsnesi, Jósefsson, f. 9.8. 1836, b. í Grafarkoti, Halldórssonar, f. 9.9. 1795, b. í Gröf á Vatnsnesi, Brynjólfs- sonar, og Ingibjörg, f. 18.5. 1865, Sveins- dóttir, f. 8.12. 1830, b. á Fosshóli í Víðidal, Þorsteins- sonar, f. 21.6. 1800, b. á Kóngs- garði í Svartárdal, Gíslasonar. Svanberg ólst upp á Egilsstöðum og víðar í Húnaþingi með foreldr- um. Hann var yngsta barn þeirra og voru þau bæði látin áður en hann varð tvítugur. Árið 1932 kvæntist Svanberg Þorbjörgu Kristjánsdóttur kenn- ara, f.10.4. 1910, d. 28.2. 1984. Hún var Arnfirðingur að ætt. Börn þeirra eru: 1) Ásgeir, f. 4.10. 1932, kvæntur Ást- hildi Pálsdóttur. 2) Gísli, f. 3.6. 1934, f.k. Nanna Henriksdótt- ir, s.k. Margrét Há- konardóttir. 3) Ingi- björg, f. 27.2. 1940, átti fyrr Sven Ole- sen, síðar Guðmund Sigurbjörnsson. 4) Erla, f. 20.2. 1944, gift Birgi Guðlaugs- syni. 5) Þorbjörg, f. 5.7. 1949, gift Sveini Guðmundssyni. Svanberg fluttist til Ísafjarðar 1927 og lærði málaraiðn. Vann við þá iðn alla starfsævina. Á Ísafirði starfaði hann að bindindismálum og tók þátt í bæjarmálum, að- hylltist vinstri stefnu. Hann mál- aði myndir, fékkst við bókband, samdi lög og lék á hljóðfæri. Svanberg bjó á Ísafirði til 1982, en eftir það í Kópavogi, en síð- ustu vikurnar á sjúkradeild Hrafnistu. Útför Svanbergs fór fram í kyrrþey 15. janúar. Þegar afi byggði sér hús á Ísa- firði árið 1936 var það fyrir utan kaupstaðinn, eiginlega úti í sveit. Hann byggði það eftir sínu lagi og sumir halda að það hafi verið fyrsta íbúðarhúsið á Ísafirði með horn- gluggum sem voru nokkurs konar einkennismerki fúnkisstílsins. Ég held að þá hafi hugmyndir fúnkis- stílsins ekki verið orðnar mönnum tamar á Ísafirði en ég held samt að það hafi ekki verið ástæða þess að afi vildi hafa þetta svona. Hann var maður sem sóttist ekki beinlínis eftir að skera sig úr fjöld- anum en hann gerði nákvæmlega það sem honum datt í hug. Húsið var skírt Engi og nafn hússins skrifað utan á það óvenju- stórum stöfum. Þetta var hlýtt og kyrrlátt hús og þegar ég var lítill drengur og kom í heimsóknir þang- að fannst mér alltaf undarlegt hvað þetta hús var stórt að innan en lítið að utan. Í þessu litla húsi, sem byggt var í áföngum, var hægt að rekja sig úr einu herbergi í annað og það var hægt að fara í hring inni í þessu húsi sem var samt ekki miklu meira en þrjú herbergi og eldhús. Inni í miðju húsinu voru nokkurs konar gatnamót, glugga- laust rými þar sem ísskápurinn var og þaðan lágu dyr í þrjár áttir. Þetta var undarlegur staður. Afi byggði við húsið eftir hent- ugleikum og sennilega var það byggt í einum fjórum áföngum. Seinasti áfanginn var byggður á áttunda áratugnum þegar úthýsi fyrir sturtuklefa og þess háttar ný- móðins vatnsgang var bætt við. Í stofunni var sófi sem afi lagðist í þegar hann var búinn að vinna. Þar var líka skrifborð sem amma sat við og var að skrifa, teikna eða sauma út. Í hillunni var útvarpið sem hélt henni félagsskap og í næstu hillu segulbandið sem lengi var til á Engi. Það var mikið undratæki. Sennilega var margt líkt með afa og þessu húsi. Það stóð ögn utan al- faraleiðar, var ekki með hefðbund- inni innréttingu og stakk örlítið í stúf við önnur hús þessa tíma án þess að vera áberandi. Þegar afi og amma fluttu úr húsinu keyptu ókunnir menn það og breyttu því. Horngluggarnir eru löngu horfnir og nýjar hæðir hafa risið ofan á. Þannig breytist allt í asa tímans og nú hefur afi líka gengið úr föruneyti við tímann og er áreiðanlega að kompónera lög og fitla við pensla og liti einhvers staðar á astralplaninu. Páll Ásgeir Ásgeirsson. Þögn er betri en þarflaus ræða. Þessi málsháttur hefur sennilega verið kjörorð Svanbergs afa míns því með engum manni hef ég þagað jafnmikið. Nú er það alkunna að mörgum líður illa í þögn og beita ýmsum brögðum til að rjúfa hana. Mér fannst þetta orðaleysi í fyrstu óþægilegt en vandist því smám saman þegar ég uppgötvaði að afi talaði ekki nema hann teldi þörf á því. Á menntaskólaárunum bjó ég í bókbandsherberginu á Engi ásamt tólum og tækjum afa. Hann vakti mig á hverjum morgni með ræsk- ingum fyrir framan ísskápinn. Orðalaust settumst við að morg- unverði, smurðu rúgbrauði sem afi framreiddi og næturgömlu kaffi sem ég hitaði upp á eldavélinni. Síð- an gengum við saman niður að bíl- skúr. Afi fór inn að ofanverðu en ég gekk fram fyrir og opnaði skúrinn. Stundum þurfti að moka. Saman ókum við niður að kaupfélagshúsinu þar sem ég fór út og kvaddi. Afi kumraði á móti. Þannig liðu árin. Það var helst að heyrðist til afa á sunnudagskvöldum þegar spurn- ingaþáttur var í útvarpinu. Við amma reyndum að giska á svör og þá lagði sá gamli stundum sitt af mörkum. Auðvitað kom fyrir að afi taldi mig hafa sveigt af beinu brautinni en lét þá jafnan ömmu koma því til skila sem betur mátti fara. Því var orðalaust hlýtt. Utan heimilis þekkti fólk aðra hlið á afa. Hann var söngmaður góður, lipur fiðluleikari og þótti gleðimaður, einkum á yngri árum, og tók seinna virkan þátt í fé- lagsstarfi eldri borgara. Gaman hefði verið að þekkja unga manninn sem á heitum sumarkvöldum stóð við gluggann á annarri hæð við Silf- urtorgið og lét fiðlutónana flæða yf- ir Pollinn. Við hefðum líka átt gott skap saman. Gísli Svanberg Ásgeirsson. SVANBERG SVEINSSON ✝ Guðrún Sigríð-ur Sigurjóns- dóttir fæddist á Sámsstöðum í Lax- árdal í Dalasýslu 27. janúar 1909. Hún lést á Sólvangi 10. janúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Jónsdóttir, f. 20. september 1875, d. 14. febrúar 1953, og Sigurjón Jóhannesson, f. 12. apríl 1880, d. 24. febrúar 1965. Systkini Guðrúnar eru: Andvana stúlka, f. 20. júní 1908; Jóhanna Benedikta, f. 23. apríl 1910, d. 23. apríl 1937; Jón, f. 13. júlí 1911, d. 16. maí 1988; Jensína, f. 18. júlí 1912, d. 30. ágúst 2001; Viktoría, f. 30. maí 1914, d. 1. febrúar 2000; Magnús, f. 2. júní 1916, d. 13. mars 1947, Magnea, f. 31. maí 1918; og Kristinn, f. 4. ágúst 1920. Guðrún giftist 12. júní 1935 Eyþóri M. Stefánssyni frá Ein- fætingsgili í Óspak- seyrarhreppi í Strandasýslu. For- eldrar hans voru Hrefna Ólafsdóttir, f. 1. maí 1880, d. 12. ágúst 1971, og Stef- án Jónsson, f. 17. desember 1883, d. 26. júní 1971, bóndi á Eyvindarstöðum á Álftanesi. Börn Guðrúnar og Ey- þórs eru: 1) Stefán Rafn, f. 21. júlí 1936; 2) Elsa Sigrún, f. 4. desember 1942, maki Jóhann Örn Sigurjónsson. Þeirra synir; Eyþór Örn, f. 18. júní 1966, hans sonur Hilmar Örn, f. 31. maí 1986; Ívar Þór, f. 6. maí 1969; og Jóhann, f. 26. mars 1974. Útför Guðrúnar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Sigurjónsdóttir fæddist á Sámsstöðum í Dalasýslu og alla ævi voru henni Dalirnir hjartfólgnir. Minningar þaðan voru jafnan sveip- aðar birtu, ekki síst er hún rifjaði upp sólríka daga við heyskap og fleiri störf í heimabyggðinni. Enda átti Guðrún erfitt með að segja al- veg skilið við Dalina. Þar eð ekki var næga vinnu að fá þar á vetrum réð hún sig til vinnu hér syðra að vetrarlagi, en á sumrin var jafnan haldið vestur og unnið þar við landbúnaðarstörf. Þannig gekk þetta fyrir sig þar til hún giftist árið 1935 og fluttist út á Álftanes í Bessastaðahreppi. Eiginmaður hennar var Eyþór Stefánsson, bóndi og oddviti í Ak- urgerði, og hélt Guðrún því áfram að starfa við það sem henni líkaði best, sveitastörfin. Eftir að við Elsa giftumst og fór- um að ala upp synina þrjá nutum við þess ríkulega að geta komist af malbikinu í Reykjavík um helgar og haldið út á Álftanes, enda sóttu synirnir það fast, og þegar helgin tók að nálgast var viðkvæðið jafnan: „Förum í sveitina til afa og ömmu.“ Alltaf var tekið á móti okkur opn- um örmum, aldrei vottaði fyrir þreytu eða leiða þrátt fyrir þessar síendurteknu heimsóknir. Þau Eyþór og Guðrún voru þeirr- ar gerðar að krefjast lítils fyrir sig, gleðin fólst í því að gleðja aðra. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til Guðrúnar fyrir allt sem hún var og gaf okkur fjöl- skyldunni. Guð blessi minningu Guðrúnar Sigurjónsdóttur. Jóhann Örn Sigurjónsson. GUÐRÚN SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR                                                            !   !    "! #  !$%   %$%% ! &'  %( %   ) *!+ ,-! % ,! ./                                      !!    "" ! ""#                       !       "#$%&'( )*+$%,(-%                                               ! "     #$   %$$& ! " # $#   %%" &%' " %(''   " )  "%%" &%(*% + " " ,%(''  $# -#"(# . )  "%%" + % /  !-#"(%(''  "  )  "%%" 0*% / ' 1/% " + "2% 3  # %%" " #  ( - %(''   # # 45  # %%" #( " /6 + "2%(''  6--#/6"   " 6--#/6"3                                       !!    " !" #$!%%  & & '%'""! ( )*"&%'""!  & +&%%  , -%'""! .(/ & +&%%    % )*"& ! & +&%%  00-#                          !" # $%!#&  ' #                      !   " #    $     %  (!  )!! "  #  !*    !! !#    (  )!! "  # +  !! ' !!,) -  # +   . "(  )!! "  # / ",    !# 0  (  )12 #   "12 # & !   3"  "  #  !0 !# ! !0 !   !" !" 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.