Morgunblaðið - 20.01.2002, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 57
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina í
janúar til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 31.
janúar þar sem þú nýtur 25 stiga hita og veðurblíðu og getur fagnað nýju
ári á þessum vinsælasta vetraráfangastað Evrópu við frábærar aðstæður.
Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir
brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar
þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú
þjónustu
reyndra
fararstjóra
okkar allan
tímann.
Verð kr. 39.905
Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2
börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar.
31. janúar, vikuferð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.950
Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting,
skattar. 31. janúar, vikuferð.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Síðustu sætin í janúar
Aðrar ferðir
7. feb. – uppselt
14. feb. – uppselt
21. feb. – 8 sæti
28. feb. – 18 sæti
Stökktu til
Kanarí
31. janúar í viku
frá kr. 39.905
ÁHUGAMENN um rokk og rafgít-
ara eiga sjaldnast nokkuð sameig-
inlegt með þeim sem kjósa dans-
tónlist, en tvíeyki eitt, Chemical
Brothers, nýtur þó hylli hjá báðum
þessum hópum. Það er ekki síst fyrir
það að þeir Chemical-bræður hafa
steypt saman í eitt mót hörðum
danstónlistartakti, rafrokkfrösum,
fönkstemmningu og hiphopstefjum
og úr varð nýtt tónlistarform sem
menn kalla Big Beat. Chemical Brot-
hers hafa sent frá sér þrjár breið-
skífur og tvo mix-diska, en 28. janúar
næstkomandi kemur út ný skífa
þeirra félaga, Come with Us, sem
beðið hefur verið með mikilli eft-
irvæntingu.
Tom Rowlands og Ed Simons
kynntust í Háskólanum í Manchest-
er þar sem þeir lögðu stund á mið-
aldasögu. Tónlistaráhuginn kom
þeim saman og þá helst að þeir voru
báðir að segja alætur á tónlist þó
annar, Simons, hlustaði helst á The
Smiths, New Order og hiphop, en
hinn, Rowlands, hafði dálæti á Jesus
& Mary Chain, My Bloody Valent-
ine, Public Enemy og Kraftwerk.
Rowlands var einnig í hljómsveit,
Ariel, en það varð hennar banabiti
þegar hann fékk Simons til að end-
urvinna með sér eitt lag þeirrar
sveitar og ákvað í framhaldinu að
hætta í sveitinni. Í þess stað tóku
þeir upp formlegt samstarf, Row-
lands og Simons, undir nafninu The
Dust Brothers eftir félögunum sem
stýrðu upptökum á meistaraverki
Beastie Boys, Paul’s Boutique.
Ekki nóg til af tónlist
Framan af voru þeir í því að leika
tónlist eftir aðra en ráku sig snemma
á að ekki var til nóg af tónlist að
þeirra skapi og tóku því til við að
semja sjálfir og taka upp. Fyrsta
smáskífan, sem þeir gáfu sjálfir út,
hét Song to the Siren og þó hún hafi
ekki vakið mikla athygli almennt
sperrtu danstónlistarfrömuðir eyrun
og einn þeirra, Andrew Weatherall,
gerði við þá félaga útgáfusamning og
fékk þá til að spila reglulega í klúbb
sínum í Lundúnum.
Önnur smáskífa, 14th Century Sky,
kom út 1994 og lag á henni, Chemical
Beats, vakti gríðarlega athygli ýmissa
tónlistarmanna sem vildu ólmir fá þá
félaga til að endurvinna fyrir sig lög.
Sumarið 1994 fór því í það að hljóðrita
fyrstu breiðskífuna og endurvinna
samhliða lög eftir Primal Scream,
The Charlatans, Saint Etienne, The
Prodigy og Manic Street Preachers
meðal annars, en á hverju sunnudags-
kvöldi stóðu þeir vaktina í kjall-
araklúbbi í Lundúnum. Það hefur
reyndar verið aðal þeirra félaga hvað
þeir hafa verið duglegir við að troða
upp. Að því þeir segja er það ekki
vegna peninganna, heldur er slíkt frá-
bært tækifæri til að prufukeyra tón-
list, enda eru áheyrendur ekki að
skafa utanaf því ef þeir kunna ekki að
meta tónlistina.
Skipt um nafn
Áður en platan komst út kom ósk
frá upprunalegum Dust Brothers
um að þeir Rowlands og Simons
skiptu um nafn og fyrsta breiðskífan,
Exit Planet Dust, kom því undir nýju
nafni, Chemical Brothers. Exit Plan-
et Dust er jafnan talin með merki-
legustu skífum síðasta áratugar,
meðal annars fyrir það hvernig þeir
Rowlands og Simons hirða það besta
úr bresku nýbylgjunni sem þá var,
magnaða hiphopfrasa og danstónlist-
arstef og bjaga sem mest þeir mega.
Exit Planet Dust seldist bráðvel
og varð meðal annars til þess að þeir
félagar lögðust í tónleikaferðir, hit-
uðu þannig upp fyrir Underworld og
The Prodigy, en einnig héldu þeir
tónleika einir síns liðs og ævinlega
fyrir fullu húsi.
Á fyrri hluta árs 1996 tóku þeir
Chemical-bræður til við að hljóðrita
aðra breiðskífu. Þegar þeir voru úti
að skemmta sér um það leyti veittist
að þeim Noel Gallagher, sem þá var
á hátindi frægðarinnar með Oasis,
og krafði þá skýringa af hverju þeir
hefðu ekki boðið honum að syngja
inn á plötu með sér en þess í stað val-
ið Tim Burgess söngspíru Charlat-
ans, sem kom við sögu í einu lagi á
Leaving Planet Dust. Þeir Rowlands
og Simons voru ekki lengi að bæta úr
því, drifu Gallagher í hljóðver og
tóku upp sönglínu sem þeir síðan
notuðu í laginu Setting Sun og nýttu
meðal annars Bítlalagið gamla To-
morrow Never Knows sem inn-
blástur. Lagið var fyrsta smáskífa
þeirra félaga sem rataði á toppinn í
Bretlandi og því tímamótaverk á
sinn hátt, en það er líka með helstu
lögum Chemical Brothers þegar
greitt er úr tónflækjunum.
Önnur breiðskífa Chemical Brot-
hers, Dig Your Own Hole, kom út
snemma árs 1997 og seldist millj-
ónasölu, ekki síst fyrir smáskífurnar
Setting Sun og Block Rockin’ Beats
sem notaði bút úr lagi með Scholly
D. Meðal annars fór platan á toppinn
í Bretlandi og seldist í um milljón
eintökum vestan hafs. Af öðrum
gestum á skífunni má nefna Jonat-
han Donahue leiðtoga Mercury Rev
og Beth Orton.
Mix-skífa og breiðskífa
1998 kom út seinni mix-plata
þeirra félaga, Brothers Gonna Work
It Out, þar sem þeir þræddu saman
nokkur uppáhaldslög úr ýmsum átt-
um, en fyrri mix-skífa þeirra, Live at
the Social, Vol. 1, kom út 1996. Ólíkt
fyrri plötunni lögðu þeir nú til lög
eftir sjálfa sig. Annars fór árið að
mestu í hljóðversvinnu sem skilaði
sér í smáskífunni Hey Boy, Hey Girl,
sem kom út vorið 1999. Þó þeir hafi
áður komið smáskífum ofarlega á
lista í Bretlandi má segja að Hey
Boy, Hey Girl sé fyrsta Chemical
Brothers-lagið sem nær almennum
vinsældum. Á breiðskífunni sem
kom út stuttu síðar, Surrender, voru
gestirnir og fleiri en nokkru sinni, til
viðbótar við þá Noel Gallagher og
Jonathan Donahue komu við sögu
Hope Sandoval sem áður söng með
Mazzy Star, Bernard Sumner
Electronic-bolti og liðsmaður New
Order og Bobby Gillespie úr Primal
Scream.
Næstu mánuðir fóru í tónleikahald
víða um heim, meðal annars mikla
ferð um Ameríku, og lauk á Gla-
stonbury-hátíðinni í Englandi sum-
arið 2000. Eftir það má segja að lítið
hafi sést til þeirra utan að þeir
spiluðu nokkuð reglulega á nokkur
hundruð manna klúbbi í Lundúnum
til að prófa ný lög sem ætluð voru á
næstu breiðskífu. Upptökur á nýrri
plötu tóku alls hálft annað ár, en
fyrsta lagið sem heyrðist af henni
var It Began in Afrika og fyrsta eig-
inlega smáskífan er Star Guitar.
Sjálf platan er svo væntanleg annan
mánudag eins og getið er. Að þessu
sinni eru gestir á plötunni aðeins
tveir, Beth Orton og Richard Ash-
croft.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Bráðhressir
brautryðjendur