Morgunblaðið - 20.02.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 20.02.2002, Síða 1
42. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 20. FEBRÚAR 2002 HÆSTIRÉTTUR Ísraels gaf í gær her landsins skipun um að hætta að brjóta niður hús Palestínumanna á Gaza-ströndinni. Að sögn arabísku- mælandi fulltrúa á þingi Ísraels, sem kært hefur aðgerðir hersins, vill rétturinn heyra málflutning fulltrúa íbúanna og hersins og á meðan sé óleyfilegt að halda áfram húsbrotinu. Sex Ísraelar féllu í fyrirsát við her- stöð á Vesturbakkanum seint í gær- kvöldi og lýstu samtök sem tengjast Fatah-samtökunum vígunum á hendur sér. Átta Palestínumenn féllu í gær, þar af nokkrir í loftárás- um sem gerðar voru á Jebalya- flóttamannabúðirnar en þar er skrif- stofa Hamas, samtaka íslamskra bókstafstrúarmanna. Setið var fyrir Ísraelunum sex í gærkvöldi við þorpið Ein Arik, skammt frá borginni Ramallah, þar sem Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínumanna, er haldið í herkví af Ísr- aelsher. Munu hinir föllnu allir hafa verið hermenn úr bækistöð við þorp- ið. Tilræðismennirnir höfðu tekið sér stöðu í húsi með útsýni yfir herstöð- ina og flýðu þeir inn á palestínskt svæði eftir árásina. Herinn ætlaði að ryðja brott 11 húsum á Gaza-ströndinni og að sögn sjónarvotta voru tvö þeirra þegar fallin er úrskurður hæstaréttur var birtur. Herinn ákvað að refsa Palest- ínumönnum með þessum hætti eftir að maður, vopnaður sprengju, sprengdi sjálfan sig og tók tvo Ísr- aela með sér í dauðann á mánudag skammt frá umræddum húsum. Ísr- aelarnir tveir voru frá landnema- byggðum gyðinga á Gaza. Annar sjálfsmorðingi féll í árás á strætis- vagn í gær en engan annan sakaði. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sætir vaxandi gagnrýni jafnt frá hægri sem vinstri vegna aukins mannfalls í átökunum við Palestínu- menn. „Hann á engan rétt á því að sitja áfram sem forsætisráðherra meðan gyðingur er felldur á hverjum degi,“ sagði harðlínuþingmaðurinn Zvi Hendel í viðtali við dagblaðið Yediot Ahronot. Fréttaskýrendur sögðu að Sharon yrði að gera upp hug sinn. „Annaðhvort á að láta her- inn leggja undir sig svæði Palestínu- manna, láta hann hverfa skilyrðis- laust á brott eða semja um frið,“ sagði einn þeirra, Yoav Limor, í Maariv. Hæstiréttur Ísraels stöðv- ar húsbrot hersins á Gaza Vaxandi mannfall í átökum Ísraela og Palestínu- manna Nikosiu, Jerúsalem, Gaza-borg. AP, AFP. Reuters Palestínumaður við rústirnar af húsi sínu í úthverfi Jerúsalem. Jarðýtur voru látnar brjóta það niður í gær en ekki var til byggingarleyfi fyrir húsinu. Í baksýn eru ný hverfi sem reist eru fyrir landnema úr röðum gyðinga. BORGARSTJÓRINN í Farum við Kaupmannahöfn, Venstre-maður- inn Peter Brixtofte, sætir nú þung- um ásökunum um brot í starfi og er jafnvel rætt um að lögreglan muni sækja hann til saka, að sögn Berlingske Tid- ende. Komið hef- ur í ljós að hann hefur á síðustu árum tekið heim- ildarlaus lán upp á 250 milljónir danskra króna (nær 3.000 milljónir íslenskra króna) fyr- ir borgarsjóð og farið langt fram úr risnuheimildum. Brixtofte virðist hafa haft unun af hinu ljúfa lífi á veitingastöðum. Að sögn BT hefur hann stundum borð- að og drukkið fyrir 150.000 krónur, um 1,8 milljónir ísl. króna, á einum sólarhring; Farum-búar borguðu. Eitt sinn keypti hann rauðvíns- flösku á 8.750 danskar krónur, um 103 þúsund krónur íslenskar. Borgarstjórinn bar umræddar, óheimilar lántökur ekki undir borg- arráðið en í janúar á þessu ári var haldinn fundur til að upplýsa alla nefndarformenn og segja þeim frá stöðu fjármála. Síðar fengu þeir viðamikla, skriflega skýrslu. „Þetta gekk mjög hratt fyrir sig og ég tók mest eftir spánni um greiðsluaf- ganginn árið 2006,“ segir Erik Fuchs, einn af nefndarformönnun- um 13 sem sat áðurnefndan fund. Farum hefur oft verið hampað sem fyrirmyndarsveitarfélagi. Brix- tofte, sem er liðlega fimmtugur, er fyrrverandi þingmaður og var um hríð skattamálaráðherra. Fleira hefur komið í ljós, meðal annars er sagt að knattspyrnufélag- ið Farum Boldklub, þar sem Brix- tofte var eitt sinn formaður, hafi fengið fjárstuðning frá borginni en stuðningurinn fóðraður með því að leggja aukagjöld á vinsælar sólar- landaferðir sem efnt var til fyrir eft- irlaunaþega. Ferðaskrifstofan, Alle- tiders Rejser, hafi síðan látið féð renna í sjóði félagsins. Lögreglan gerði fyrir viku skyndirannsókn hjá ferðaskrifstofunni, á heimili Brix- tofte og fleiri stöðum. Alls er talið að tekin hafi verið heimildarlaus lán er nema um 450 milljónum danskra króna. Skuldir Farum er komnar yfir takmörk sem sett eru í sveitarstjórnalögum og hefur borgin nú verið sett undir beina stjórn innanríkisráðuneytis- ins. Þar er við völd flokksbróðir Brixtofte, Lars Løkke Rasmussen. Aðstoðarborgarstjórinn í Farum, lögfræðingurinn Per Edrén, var á fundinum með nefndarformönnun- um 13 en segir engan hafa séð neitt tortryggilegt. Hann hafi sjálfur ekki náð að melta allar tölurnar. „En ég gat ekki í mínum villtustu draumum látið mér til hugar koma að í einni línu í reikningunum væri sagt frá 250 milljóna króna láni,“ segir hann. „Ég ætlaði að fara heim og líta seinna á tölurnar en svo hrundi allt á fundi efnahagsnefnd- arinnar á fimmtudaginn.“ Danskur borgarstjóri grunaður um misferli Tók ólögleg milljónalán fyrir borgarsjóð og lifði hátt Peter Brixtofte RÚSSNESKIR sérfræðingar í Zvezda-verksmiðjunni, skammt frá Moskvu, aðstoða belgíska geimfar- ann Frank de Winne sem mun fara á næstunni með Sojus-geimfari til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Hellt var steinsteypu í karið sem de Winne situr í en ætlunin er að búa til nákvæmt mót af líkama hans og hanna síðan sætið í geimfarinu með tilliti til sköpulags hans. Reuters Sérhannað sæti í Sojus JACQUES Chirac Frakklandsforseti lýsti yfir því í gær að glæpamenn og illvirkjar verðskulduðu „ekkert um- burðarlyndi“ af hálfu samfélagsins. Chirac lét þessi orð falla í ræðu er hann flutti á kosningafundi en hann vinnur nú skipulega að því að koma fram sem málsvari laga og réttar í þeirri von að það megi verða til þess að styrkja stöðu hans í komandi for- setakosningum. Ræðuna flutti Chirac í einu af út- hverfum Parísar hvar glæpir eru tíðir og íbúarnir lifa í stöðugum ótta við að verða næstu fórnarlömb ofbeldis- manna. Chirac kvað núverandi ástand mála í Frakklandi með öllu óþolandi: „Í Frakklandi er enginn öruggur. All- ir óttast um öryggi sitt. Við verðum að bregðast við með hraði. Ofbeldið er að breyta samfélaginu.“ Nánast fullvíst er talið að helsti keppinautur Chiracs í forsetakosn- ingunum 21. apríl verði Lionel Jospin, frambjóðandi sósíalista og forsætis- ráðherra. Stjórn Jospins hefur sætt vaxandi gagnrýni vegna mikillar fjölgunar glæpa í Frakklandi en sam- kvæmt nýjum tölum hefur tíðni þeirra aukist um 7,69% á milli ára. Ekki fór á milli mála að Chirac hugðist gera þetta að kosningamáli: „Ekkert afbrot, sama hversu smátt það er, á að láta átölulaust. Viðbrögð þurfa að vera í réttu hlutfalli við glæp- inn. Sanngirni þarf að ríkja en refs- ingin á að vera skilgreind, tafarlaus og fæla menn frá afbrotum,“ sagði forsetinn. Kom fram í máli hans að hann hyggst koma á fót öryggismála- ráðuneyti nái hann endurkjöri. Það ráðuneyti á að heyra beint undir for- setann. Kenningin um að ekki beri að sýna afbrota- og glæpamönnum nokkurt umburðarlyndi er komin frá New York og nefnist á ensku „zero tolerance“. Lögreglan í New York taldi sig ná miklum árangri með því að fylgja þessari forskrift. Chirac gegn „umburð- arlyndi“ Garges-Les-Gonesse. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.