Morgunblaðið - 20.02.2002, Síða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 7
HARALDUR Örn Ólafsson sjö-
tindafari stendur nú frammi fyrir
erfiðustu fjallgöngunni í leiðangri
sínum eftir að hafa komist á hæsta
tind sex heimsálfa. Hæsti tindur
heims, Everest 8.848 m, hefur fall-
ið að fótum þriggja Íslendinga til
þessa, árið 1997, en takist Haraldi
að komast á tindinn kemst hann í
hóp örfárra manna í heiminum
sem gengið hafa á suður- og norð-
urpólinn og hátindana sjö.
Með uppgöngunni á Aconcagua,
hæsta fjall S-Ameríku, fyrir
skemmstu, sló hann hæðarmet sitt
en fjallið er 6.960 metra hátt,
næsthæsta fjallið af tindunum sjö.
Ljóst er að fjallgangan reyndi
töluvert á Harald, bæði var þung-
fært á fjallinu auk þess sem hann
veiktist og varð að láta í minni
pokann í fyrstu atrennu. Hann
lagði síðan til atlögu á nýjan leik
eftir nokkurra daga hvíld og náði
tindinum 2. febrúar.
Var orðinn
óþreyjufullur
„Það hvarflaði aldrei að mér að
fara heim án þess að ná tindinum,
en ég viðurkenni að undir lokin
var ég orðinn óþreyjufullur að
komast á tindinn, eftir að hafa
þurft að snúa við í fyrri tilraun-
inni,“ segir Haraldur.
Hann segir leiðangurinn í heild-
ina hafa gengið ágætlega þrátt
fyrir tafirnir á Aconcagua og
sömuleiðis á Vinson Massif, hæsta
fjalli Suðurskautslandsins, en þar
var hann veðurtepptur í um hálf-
an mánuð um áramótin eftir vel
heppnaða uppgöngu á fjallið.
Þessar tafir munu þó ekki hafa
teljandi áhrif á undirbúninginn
fyrir Everstleiðangurinn, sem
hefst í lok mars.
Slæst í hóp
vestrænna klifrara
„Ég slæst í hóp vestrænna klifr-
ara en veit ekki enn nákvæmlega
hvernig hópurinn verður sam-
settur. Þó veit ég að þetta verða
sterkir klifrarar.“
Hann segir að klifurtímabilið
standi yfir í um hálfan mánuð að
vorlagi og reynslan sýni að menn
geri sjaldnast fleiri en eina tilraun
til að komast á tindinn enda leyfi
kraftarnir ekki meira.
„Það eru reyndar til dæmi um
að menn reyni aftur eftir mis-
heppnaða tilraun en yfirleitt gefst
mönnum bara eitt tækifæri á tíma-
bilinu 10.– 25. maí. Við undirbún-
inginn mun ég einkum horfa til
fjallgöngunnar á efsta hluta fjalls-
ins, enda er mjög mikilvægt að
vera tilbúinn í slaginn á tindadegi,
þegar gengið er upp úr rúmlega 8
þúsund metra hæð á sjálfan tind-
inn.“
Berskjaldaður ef
stormur brestur á
Flestir klifrarar á Everest nota
viðbótarsúrefni á tindadegi, enda
eru ekki nema 30% af súrefni í
loftinu og þ.a.l. mikil hætta á
dauðsföllum af völdum fjallaveiki.
Fjallgöngumenn þurfa einnig að
vara sig á stormum, sem geta auð-
veldlega gert út af við heimsins
vönustu fjallgöngumenn eins og
dæmin sanna. Bresti á stormur á
tindadegi eru menn mjög ber-
skjaldaðir og dauðaslys hafa orðið
í efstu hlíðum fjallsins sem og neð-
ar á því.
„Því fylgir vissulega hætta að
stunda fjallgöngur á hæstu fjöllum
heims. Hins vegar tel ég hættuna
vera innan þeirra marka sem ég
get sætt mig við og byggi vita-
skuld á langri reynslu minni í
fjallamennsku og hef öryggið
ávallt í fyrrirúmi,“ segir Haraldur.
Á tindi Vinson Massif hinn 19. desember 2001. Haraldur er fyrsti Íslend-
ingurinn á hæsta tindi Suðurskautslandsins, 4.897 m.
Haraldur Örn Ólafsson er hér staddur á tindi Aconcagua, 6.960 m,
hæsta tindi Suður-Ameríku sem hann náði 2. febrúar 2002.
„Mikilvægt
að vera
tilbúinn í
slaginn á
tindadegi“