Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 12

Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ VERIÐ er að innleiða svokall- að vigtunarkerfi í sorptæm- ingu í þremur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir. Sveitarfélögin eru Mosfellsbær, Seltjarnar- nes og Garðabær og gengur kerfið út á að allt sorp sem kemur frá íbúum er vigtað um leið og það er tæmt. Að sögn Tryggva Jónsson- ar, bæjarverkfræðings í Mos- fellsbæ, hefur sorp verið hirt á tíu daga fresti í bænum frá árinu 1998 og verður því hald- ið áfram eftir að nýja kerfið verður að fullu komið í notk- un. Þegar er búið að setja strikamerki og tölvukubba á allar sorptunnur í bænum og er sorpbíllinn útbúinn þannig að hann geti lesið á merkin og vigtað sorpið. „Það er verið að útbúa tengingar milli fast- eignaskrár, sorphirðuskrár- innar hjá okkur og þessa vigtunarbúnaðar þannig að þetta er að komast á,“ segir Tryggvi. Óákveðið hvort sorpgjald ráðist af sorpmagni Hann segir ekki endanlega búið að ákveða hvort fólk muni greiða í samræmi við þyngd þess sorps sem það lætur frá sér. „Væntanlega munu menn íhuga að taka það upp í framhaldinu þegar séð verður að kerfið virki eðlilega og að það sé einhver grund- völlur fyrir því.“ Garðabær og Seltjarnarnes eru einnig að taka upp sams- konar kerfi en að sögn Tryggva stóðu þessi þrjú sveitarfélög sameiginlega að útboði á sorphirðu fyrir fjór- um árum. „Þó að samningur hafi síðan verið gerður við hvert einstakt sveitarfélag þá ákváðu menn að vera með sameiginlega sorptunnuhirð- ingu,“ segir Tryggvi en það er Gámaþjónustan sem sér um sorphirðuna. Samkvæmt upp- lýsingum frá Seltjarnarnesi og Garðabæ er sorp í þessum sveitarfélögum sömuleiðis hirt á tíu daga fresti og hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort sorpgjald verði látið ráðast af sorpmagninu sem íbúar láta frá sér. Morgunblaðið greindi ný- lega frá því að svokallað rúm- málskerfi verði innleitt í sorp- hirðu í Reykjavík á þessu ári en það gengur út á að íbúar láti vita vilji þeir fá sorptæm- ingu og greiða svo í samræmi við fjölda losana. Hvað varðar önnur sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu þá fengust þær upplýsingar hjá Kópa- vogsbæ að ekki séu fyrirhug- aðar breytingar á sorphirðu- kerfi bæjarins þar sem sorp er hirt vikulega. Í Hafnarfirði hafa sömuleiðis ekki verið teknar neinar ákvarðanir um breytingu á sorphirðu en þar er sorp hirt á 7-10 daga fresti. Í Bessastaðahreppi hefur hreppsráð ákveðið að gera ekki breytingar á sorphirðu- kerfi sveitarinnar þar sem sorp er hirt á tíu daga fresti. Breytingar á sorphirðu í farvatninu hjá nokkrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu Vigtunarkerfi tekið upp á þremur stöðum Morgunblaðið/Þorkell Ekki hefur verið ákveðið hvort íbúar í Mosfellsbæ, Garðabæ og á Seltjarnarnesi muni greiða sorphirðugjald í samræmi við þyngd þess sorps sem þeir láta frá sér. Mosfellsbær SJÖ Garðbæingum úr hópi eldri borgara var nýlega veitt viðurkenning fyrir framlag til menningarmála bæjarins. Var viðurkenn- ingin, skúlptúrinn Serenaða eftir listamanninn Helga Gíslason, veitt á lokahófi af- mælisárs bæjarins. Þeir sem hlutu við- urkenningu eiga allir það sameiginlegt að hafa helgað líf sitt menningarmálum og átt þátt í að auðga og glæða menningarlíf í Garðabæ og á landinu öllu að því er seg- ir í fréttatilkynningu frá bænum. Það var Laufey Jóhannsdóttir, forseti bæj- arstjórnar, sem stjórnaði athöfninni og afhenti heið- ursgestunum verðlaunin. Þeir sem voru heiðraðir eru Jón Jónsson jarðfræð- ingur, Bragi Hlíðberg harmonikkuleikari, Árni Jónsson óperusöngvari, Pétur Friðrik Sigurðsson listmálari, Gísli Sigurðsson blaðamaður og listmálari, Sieglinde Kahmann Björns- son söngkona og Ragnheið- ur Jónsdóttir, myndlist- arkona. Viðurkenningarhafar frá vinstri, Ragnheiður Jónsdóttir, Sieglinde Kahmann Björnsson, Gísli Sigurðsson, Árni Jónsson, Bragi Hlíðberg og Jón Jónsson. Á myndina vantar Pétur Friðrik Sigurðsson sem einnig var heiðraður. Heiðruð fyrir menningarmál Garðabær TÍU tilboð bárust í jarðvinnu fyrir göngubrú yfir Hafnar- fjarðarveg en tilboð voru ný- lega opnuð hjá Vegagerðinni. Lægsta tilboðið átti Ásberg ehf. í Mosfellsbæ og hljóðaði það upp á rúmar 22 milljónir króna sem eru 93 prósent af kostnaðaráætlun verksins. Hæsta tilboðið kom frá Loft- orku ehf. í Garðabæ en þeirra tilboð hljóðaði upp á rúmar 28 milljónir. Að sögn Eiríks Bjarnason- ar, bæjarverkfræðings í Garðabæ, voru tilboð í stál- vinnu við brúna opnuð fyrir hálfum mánuði og reyndust þau hagstæð. Er því búist við að kostnaðaráætlun fyrir verk- ið í heild sinni, um 60 milljónir króna, muni standast. Framkvæmdin er á vegum Vegagerðarinnar og Garða- bæjar. Stefnt er að því að framkvæmdum við brúna verði lokið í ágúst á þessu ári eða fyrir næsta skólaár. Tilboð í göngubrú opnuð Garðabær ÍBÚASAMTÖK Kjalarness verða stofnuð í kvöld. Gert er ráð fyrir að Kjalarnes verði sérstakt hverfi í nýrri hverfaskiptingu borgarinn- ar en þótt um fámennasta hverfið verði að ræða er það stærst að flatarmáli. Segir í fréttatilkynningu frá undirbúningsnefnd að stofnun íbúasamtakanna að tilgangur þeirra verði að vinna að framfara- og hags- munamálum svæðisins og stuðla að samhug og sam- starfi íbúanna. Meðal stærstu hagsmunamálanna eru umferðaröryggismál, al- menningssamgöngur, gerð Sundabrautar, félagsmið- stöð unglinga og efling úti- vistarmöguleika á svæðinu svo eitthvað sé nefnt. „Öllum Kjalnesingum er ljóst hve mikilvægt það er fyrir okkur að vera samtaka um að gera okkar góðu byggð enn betri. Með stofn- un íbúasamtaka verður til vettvangur sem getur haft forystu um að hvetja íbúa til dáða til góðra verka í okkar heimabyggð um leið og staðinn er vörður um hagsmuni okkar og gerðar kröfur til borgaryfirvalda um að standa við gefin lof- orð,“ segir í fréttatilkynn- ingunni. Stofnfundurinn verður haldinn í Fólkvangi kl. 20.00. Stofnfundur nýrra íbúasamtaka haldinn í Fólkvangi í kvöld Fámennasta en stærsta hverfið Kjalarnes ÁTTA kvartanir vegna lausa- göngu hrossa í Mosfellsdal bárust Áhaldahúsi bæjarins í fyrra. Er það sami fjöldi kvartana og árið áður. Minnisblað Dýraeftirlits Mosfellsbæjar um málið var nýlega lagt fram í bæjarráði en kvartanirnar sem borist hafa eru vegna lausagöngu frá bæjarmörkum við Stardal að Þingvallavegamótum. Gerð var könnun á merk- ingum hrossa í þremur hest- húsum. Voru 115 hross skoð- uð og kom í ljós að 94 þeirra eða 81,74% voru merkt en 21 hross ómerkt. Segir að öllum ábúendum Mosfellsdals hafi haustið 2000 verið sent bréf þar sem bent var á alvöru þess að girðingar séu í lagi vegna þeirrar slysa- hættu sem af lausum hesti getur hlotist. Kvartanir vegna lausra hrossa Mosfellsbær FRUMDRÖG að deiliskipu- lagi fyrir Hraun í Hafnar- firði verður kynnt fyrir íbú- um svæðisins og öðrum hagsmunaaðilum en skipu- lags- og umferðarnefnd bæj- arins samþykkti það á fundi sínum í síðustu viku. Umrætt svæði afmarkast af Arnarhrauni, Flata- hrauni, Reykjanesbraut og Reykjavíkurvegi. Að sögn Hafdísar Hafliðadóttur skipulagsstjóra í Hafnarfirði er ekki til deiliskipulag fyrir byggðina sem þarna er. Hins vegar kveði skipulags- lög frá árinu 1997 á um að allt land skuli vera skipulagt og því sé verið að vinna lög- formlegt deiliskipulag fyrir þennan reit. Hafdís á ekki von á að miklar breytingar verði gerðar á skipulagi svæðis- ins. Helst sé að vænta breytinga á svokölluðum Hvalsreit. Nú eigi að kynna frumdrög að deiliskipulagi fyrir íbúum og hagsmuna- aðilum svæðisins og þegar búið sé að fá viðbrögð frá þeim verði formleg tillaga að deiliskipulaginu lögð fyrir skipulagsnefnd. Við afgreiðslu nefndarinn- ar í vikunni sátu fulltrúar minnihlutans hjá. Í bókun þeirra segir að ekki hafi ver- ið færð rök fyrir því að sá byggingarmassi og íbúa- fjöldi sem settur er fram á Hvalslóðinni hæfi umhverf- inu og öðrum forsendum sem skipti máli við slíkt skipulag. Þá sé ekki ljóst hvort lóðarhafi á Hvalslóð- inni sé upplýstur um fyrir- hugaðar breytingar. Hins vegar sé kynningarfundur á forstigi nauðsynlegur fyrir íbúa gagnvart fyrirhuguðum breytingum á reitnum. Unnið að deili- skipu- lagi Hrauns Hafnarfjörður ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.