Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 14
SUÐURNES
14 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SEX nemendur í tíunda bekk Heið-
arskóla í Keflavík hafa í vetur stundað
færni- og áhugamiðað nám, en það er
þróunarverkefni sem unnið er í sam-
vinnu við Vinnuskóla Reykjanesbæj-
ar. Meðal þess sem felst í náminu er
að nemendurnir eru í vinnu hjá fyr-
irtækjum nokkra tíma í viku í stað
þess að sækja hefðbundna tíma í skól-
anum.
Samkvæmt upplýsingum Björns
Víkings Skúlasonar, aðstoðarskóla-
stjóra Heiðarskóla, er fjölgreindar-
kenning Howards Gardners höfð að
leiðarljósi við skipulagningu færni- og
áhugamiðaða námsins. Áhersla er
lögð á að vinna með sterkar og veikar
hliðar nemendanna, færnisvið þeirra
og áhugamál. Námið er mótað af
starfsfólki skólans í samráði við nem-
endurna sjálfa, foreldra þeirra og
fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar.
Verklegi þátturinn aukinn
Unglingum sem af ýmsum ástæð-
um hafa átt erfitt með bóklegt nám er
gefinn kostur á þessu námi. Stunda-
skrá nemendanna er öðruvísi en ann-
arra nemenda tíunda bekkjar. Verk-
legi þátturinn er aukinn, meðal
annars með fleiri verklegum kennslu-
stundum í skólanum og vinnu utan
hans. Verklegar greinar eru meðal
annars upplýsinga- og tæknimennt,
smíði, leiklist og heimilisfræði. Jafn-
framt er kennslustundum í sundi
fjölgað. Samkvæmt upplýsingum
Björn Víkings er megináherslan í
bóklegu námi þeirra á stærðfræði,
ensku, íslensku og stefna nemendurn-
ir að samræmdum prófum í þeim
greinum. Nemendurnir sex eru allt að
8 tíma á viku í vinnu hjá fyrirtækjum
og stofnunum og er það hluti af þeim
37 kennslustundum sem nemendur tí-
unda bekkjar þurfa að skila á viku.
Reynt er að taka tillit til áhuga nem-
endanna og færni við val á vinnustöð-
um, eftir því sem hægt er. Vinnuskóli
Reykjanesbæjar aðstoðar við að finna
hentuga vinnustaði og greiðir nem-
endum laun samkvæmt taxta Vinnu-
skólans þann tíma sem þau eru við
vinnuna. Vinnustaðirnir eru fjöl-
breyttir, nefna má Bílasprautun Suð-
urnesja, Hæfingarstöðina, leikskól-
ann Garðasel, Plastgerð Suðurnesja,
Bílasölu Keflavíkur og félagsmiðstöð-
ina Fjörheima. Ragnar Örn Péturs-
son, forvarnar- og æskulýðsfulltrúi,
sem stjórnar vinnuskólanum segir að
áhersla sé lögð á það við stjórnendur
vinnustaðanna að unglingarnir séu
ekki þangað komnir til að hangsa
heldur til að hjálpa til og vinna. Hann
segir að þeim sé öllum borin vel sag-
an.
Björn Víkingur telur að vel hafi
tekist til með þetta verkefni. Nem-
endurnir standi sig vel í vinnunni og
þeir og vinnuveitendur þeirra séu
ánægðir. Telur hann rétt að færa út
kvíarnar og gefa fleiri nemendum
kost á sambærilegu námi og ein-
skorða það ekki við tíunda bekk.
Áhugasamir starfsmenn
Tveir nemendanna og vinnuveit-
endur þeirra lýstu sömu skoðunum og
forráðamaður tilraunarinnar. Segjast
ánægðir með hvernig til hafi tekist.
Aron Kristinsson segist hafa haft
áhuga á að kynnast bílasprautun og
segist líka vel hjá Bílasprautun Suð-
urnesja. Hann segist fá að ganga í
ýmis verk, meðal annars að slípa bíla
og búa undir sprautun og einnig að
rífa í sundur. Hann segist lítið vera
farinn að sprauta sjálfur enda sé það
líklega vandasamara starf. Hann seg-
ist nokkuð ákveðinn í að læra bíla-
sprautun.
Radek Ziegert segir fínt að fá að
kynnast störfunum í Plastgerð Suð-
urnesja. Hann er pólskur að uppruna
og hefur fengið að læra pólsku í skól-
anum. Hann var að vinna við vélar
sem móta fiskikassa úr frauðplasti í
gærmorgun þegar blaðamaður var
þar á ferðinni. Segist Radek vel geta
hugsað sér að vinna við þetta áfram
en stefnir að því að komast í skóla á
Ítalíu næsta vetur, skóla sem svipar
til fjölbrautaskólans. Segist hafa
áhuga á að kynnast öðrum þjóðum og
hvernig er að búa í öðrum löndum.
Vinnuveitendurnir í starfsnámi
Radeks og Arons eru sammála um að
strákarnir séu mjög áhugasamir og
duglegir til vinnu. Jón Brynjólfsson
hjá Bílasprautun Suðurnesja er hrif-
inn af þessu framtaki og segist raunar
hafa góða reynslu af hliðstæðu starfs-
námi. Þangað hafi komið piltur úr
grunnskólanum í Sandgerði og hann
sé nú að læra fagið.
Segja Jón og Ólafur Bjarnason fé-
lagi hans að þessi störf liggi vel fyrir
Aroni, ekki þurfi að segja honum
nema einu sinni hvernig eigi að gera
hlutina og raunar sé hann farinn að
finna að við eldri og reyndari starfs-
menn ef eitthvað fari úrskeiðis hjá
þeim. „Við tökum honum eins og full-
orðnum manni og það ræða allir við
hann þannig,“ segir Jón.
Radek er nýbyrjaður í starfsnám-
inu hjá Plastgerð Suðurnesja en
Björn Herbert Guðbjörnsson fram-
kvæmdastjóri segir að strax sé komið
í ljós að drengurinn sé áhugasamur
og samviskusamur og kvíðir ekki
samstarfinu við hann.
Sex nemendur úr 10. bekk Heiðarskóla stunda færni- og áhugamiðað nám
Hluti af náminu fer
fram á vinnustöðum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Radek Ziegert við vinnu sína hjá Plastgerð Suðurnesja.
Keflavík
VEITINGAHÚSIÐ Vitinn í Sandgerði á tuttugu ára af-
mæli í þessum mánuði og minnist þess með margvís-
legum hætti. Um helgina buðu eigendur Vitans eldri
borgurum í afmæliskaffi.
Hjónin Stefán Sigurðsson og Brynhildur Kristjáns-
dóttir stofnuðu veitingastaðinn fyrir tuttugu árum og
byggðu yfir hann húsið sem hann hefur hýst alla tíð.
Þau hafa safnað að sér ýmsum gömlum munum og
myndum sem tengjast lífi fólksins í Sandgerði á fyrri
tíð, jafnt úr landbúnaði og sjávarútvegi, og setur það
sérstakan svip á staðinn. Stefán segir að þetta hafi
byrjað með því að maður færði honum gamla olíulukt
sem hann fékk ekki að hafa heima hjá sér og síðan hafi
ýmsir munir bæst við. Segist hann hafa gaman af þess-
um gömlu munum. Stefán segir að þau hafi lengi haft
mikil og föst viðskipti við fiskvinnslufyrirtækin á staðn-
um. Úr því hafi hins vegar dregið seinni árin og þjón-
usta við gesti og gangandi aukist, jafnt heimamenn sem
ferðafólk, hópa og einstaklinga. Vitinn er með heim-
ilismat í hádeginu en er jafnframt með sérréttarmat-
seðil í hádeginu og á kvöldin.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Þær nutu kaffiveitinganna í Vitanum í tilefni tvítugsafmælis veitingastaðarins, frá vinstri: Jóhanna Konráðs-
dóttir, Jóna Guðríður Arnbjörnsdóttir, Helga Ingibjartsdóttir og Elín Benjamínsdóttir.
Buðu eldri
borgurum
í afmæliskaffi
Sandgerði
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Brynhildur Kristjánsdóttir og Stefán Sigurðsson
bera fram kaffibrauðið.
NAFNI Áhaldahúss Reykjanesbæjar
hefur verið breytt í Þjónustumiðstöð
Reykjanesbæjar. Tók breytingin gildi
um síðustu áramót.
Að sögn Viðars Más Aðalsteinsson-
ar, forstöðumanns umhverfis- og
tæknisviðs, hefur hlutverk áhalda-
hússins breyst. Áður átti það mikið af
tækjum og annaðist flestar nýfram-
kvæmdir fyrir bæjarfélagið. Viðar
segir að færst hafi í vöxt að fram-
kvæmdir séu boðnar út og séu slík
verk nú lítill hluti af starfsemi áhalda-
hússins. Stofnunin annist hins vegar
margháttaða þjónustu við bæjarbúa
og stofnanir bæjarins auk eftirlits.
Hjá Þjónustumiðstöðinni eru 24
starfsmenn. Hún sér um viðhald á
götum, gangstéttum, göngustígum,
holræsum, umferðarmerkjum og um-
ferðarljósum. Einnig hefur hún um-
sjón með snjómokstri og hálkueyð-
ingu. Á hennar sviði eru almennings-
garðar, opin svæði, jólaskreytingar
og aðrar framkvæmdir við opinber
hátíðarhöld.
Áhaldahús-
ið heitir nú
Þjónustu-
miðstöð
Reykjanesbær
KAMMERKÓR Nýja tónlistarskól-
ans heldur tónleika í Ytri-Njarðvík-
urkirkju á morgun, fimmtudag,
klukkan 20.
Stjórnandi er Sigurður Bragason
og undirleikari á píanó Richard
Simm. Flutt verða verk eftir nokkur
af virtustu tónskáldum Íslendinga.
Einsöngvarar eru Laufey Geirs-
dóttir, Anna Jónsdóttir, Þorsteinn
Þorsteinsson, Anna Margrét Ósk-
arsdóttir, Ragnheiður Sara Gríms-
dóttir, Davíð Viðarsson, Gyða
Björgvinsdóttir, Ásdís Arnalds, Sig-
urlaug Arnardóttir og Lindita Ótt-
arsson.
Tónleikar
Kammerkórs
Njarðvík
HJÁLMAR
Jónsson knatt-
spyrnumaður
var kjörinn
íþróttamaður
Keflavíkur 2001.
Kjöri hans var
lýst á aðalfundi
Keflavíkur,
íþrótta- og ung-
mennafélags, í
fyrrakvöld.
Hjálmar var
einn af burðarásum Keflavíkurliðs-
ins í sumar sem leið þrátt fyrir ung-
an aldur og var valinn í U-21 lands-
lið Íslands. Hann var í lok leiktíðar
kosinn bæði efnilegasti og besti
leikmaður meistaraflokks Keflavík-
ur. Er það í fyrsta skipti sem það
gerist. Hjálmar er nú á leið í at-
vinnumennsku til Gautaborgar í
Svíþjóð.
Hjálmar var jafnframt valinn
knattspyrnumaður Keflavíkur 2001.
Íþróttamenn annarra deilda félags-
ins voru: Guðjón Skúlason var val-
inn körfuknattleiksmaður Keflavík-
ur, Heiðrún Rós Þórðardóttir
fimleikamaður ársins, Íris Edda
Heimisdóttir sundmaður Keflavík-
ur, Ólafur Jón Jónsson badminton-
maður ársins, Eiríkur A. Björgvins-
son keilumaður Keflavíkur, Guð-
mundur Óskarsson skotmaður árs-
ins og Nökkvi Þór Matthíasson
taekwondo-maður ársins.
Stjórn Keflavíkur var endur-
kjörin á aðalfundinum. Þorgrímur
Árnason bauð sig fram gegn sitj-
andi formanni en Einar Haraldsson
fékk mun fleiri atkvæði og er áfram
formaður félagsins.
Fjórir félagar voru heiðraðir með
bronsmerki Keflavíkur fyrir fimm
ára stjórnarsetu. Það eru: Birgir
Þór Runólfsson og Jón B. Ólsen í
knattspyrnudeild, Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir í fimleikadeild og Sess-
elja Birgisdóttir í badmintondeild
félagsins.
Hjálmar
Jónsson
íþróttamað-
ur ársins
Keflavík
♦ ♦ ♦