Morgunblaðið - 20.02.2002, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 20.02.2002, Qupperneq 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 21 Sími 55 12345 OFVEIÐIN í Norður-Atlantshafi er svo gegndarlaus, að verði ekkert að gert kann svo að fara, að í fram- tíðinni verði farið að eltast við þör- unga, marglyttur og annað slíkt sem hráefni í „fisklíki“. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu, sem lögð var fram á ráðstefnu í Boston um síðustu helgi og dagblaðið Boston Globe greinir frá ásamt breska útvarpinu BBC. Þar segir ennfremur, að fiskstofnarnir séu nú ekki nema einn sjötti af því, sem þeir voru fyrir 100 árum. „Við höfum skoðað ástandið við allt Norður-Atlantshaf, við Kan- ada, Bandaríkin og við Evrópu, og komist að því, að það er miklu al- varlegra en talið var,“ sagði dr. Daniel Pauly en hann starfar við Háskólann í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Reg Watson, sem er við sama skóla, segir, að ástandið birtist meðal annars í hraðminnkandi fiskneyslu. Vestan- hafs sé hún nú ekki nema þriðj- ungur af því, sem hún var á sjö- unda áratugnum. „Ef við gerum ráð fyrir, að sama þróun haldi áfram næstu 10 árin, þá verður fiskurinn bara orðinn að skemmtilegri minningu í hugum margra,“ sagði Watson. Í besta falli við hættumörk Því var haldið fram á ráðstefn- unni, að þorskur og ýsa og fleiri tegundir yrðu að mestu horfin á miðunum við Nýja England eftir áratug og rannsóknir sýna, að jafn- vel þar sem ástandið er skást við norðanvert Atlantshafið, eru fisk- stofnarnir í raun í lágmarki og við hættumörk. Í rannsókninni, sem stóð í hálft þriðja ár, tóku þátt 10 vísindamenn og um 50 ráðgjafar en tilefnið var óánægja með ófullkomið heildar- yfirlit yfir ástandið á þessu stóra hafsvæði. Í hópnum voru meðal annars fiskifræðingar, líffræðingar og hagfræðingar frá rannsókna- stofnunum austanhafs og vestan. Þótt hópurinn hafi ekkert póli- tískt vald á bak við sig, er samt bú- ist við, að skýrslan verði höfð til hliðsjónar við frekari fiskverndar- aðgerðir í Nýja Englandi. Tillögur vísindamannanna eru mjög róttæk- ar, að minnsta kosti í augum sjó- manna. Þeir leggja til, að þúsundir fermílna verði friðaðar; að skip- unum verði fækkað mjög mikið og hvers konar niðurgreiðslur eða rík- isaðstoð við sjávarútveginn bönn- uð. Stóraukin sókn Vísindamennirnir segja, að til- raunir stjórnvalda til að koma í veg fyrir ofveiði hafi mistekist „að miklu leyti“ vegna þess, að einblínt hafi verið á vanda eins eða tiltek- inna fiskstofna í stað þess að skoða það í samhengi við ástandið al- mennt. Á síðustu 30 árum hefur veiði á þorski, túnfiski og ýsu í Norður- Atlantshafi minnkað um meira en helming þrátt fyrir, að sóknin hafi þrefaldast á sama tíma. Það er ekki aðeins, að skipunum hafi fjölgað, heldur hefur allur tækjabúnaður stórbatnað á þessum tíma. Áætlað er, að ríkisstjórnir við þetta haf- svæði styrki sjávarútveginn með um 250 milljörðum ísl. kr. árlega. Þótt kreppuástandið í fiskveið- unum hafi verið „falið“ fyrir neyt- endum með auknum fiskinnflutn- ingi, ekki síst frá ýmsum þriðja-heimsríkjum, þá hefur verð- ið hækkað ár frá ári. Sem dæmi er nefnt, að í Bandaríkjunum hefur verð á humri og rækju tvítugfald- ast frá 1950. Morgunblaðið/RAX Þorskstofnarnir við norðanvert Atlantshaf mega muna sinn fífil fegurri. Þar sem best lætur eru þeir rétt ofan við hættumörk en annars staðar hrundir eða að hruni komnir. Vaxandi ofveiði í N-Atlantshafi Sókn í þorsk og ýsu hefur þrefaldast á 30 árum en veiðin minnkað um meira en helming KÍNVERSK stjórnvöld sögðu í gær að það væri „aðeins orðróm- ur“ að Li Peng, forsætisráðherra landsins, væri grunaður um að hafa látið koma fyrir hlerunar- tækjum í væntanlegri einkaþotu Jiang Zemins forseta landsins. Bandaríska blaðið Washington Times greindi frá því sl. föstudag að bandarískir leyniþjónustu- fulltrúar teldu að Jiang væri orð- inn sannfærður um að Li hefði gefið skipanir um að hlerunarbún- aðinum yrði komið fyrir. Hefði for- sætisráðherrann látið gera þetta til að geta fylgst með samræðum forsetans um spillingarmál er tengdust fjölskyldu forsætisráð- herrans, sagði blaðið. Greint var frá því í síðasta mán- uði að fjöldi hlerunartækja hefði fundist í þotunni, eftir að hún var afhent í ágúst sl. Þotan er af gerð- inni Boeing 767, og var keypt not- uð í Bandaríkjunum. Hvorki kínversk né bandarísk stjórnvöld vildu segja nokkuð að ráði um málið, að því er virtist til að valda ekki óróleika vegna vænt- anlegrar heimsóknar Georges W. Bush Bandaríkjaforseta til Kína, en hann kemur þangað á morgun. Lét Li Peng hlera þotu Jiang Zemin? „Aðeins orðrómur“ Peking. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.