Morgunblaðið - 20.02.2002, Qupperneq 22
LISTIR
22 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MICHELLE Hartman, lektor við
Hofstra-háskóla í New York í
Bandaríkjunum, er hingað komin á
vegum Hugvísindastofnunar HÍ til
að flytja fyrirlestur er nefnist
„Raddir kvenna í arabískum bók-
menntum“.
Í fyrirlestrinum, sem hefst kl.
17.15 í dag, mun Hartman gefa yf-
irlit yfir þróun arabískrar bók-
menningar fram á nútíma og beina
sjónum að úrvinnslu kvenrithöf-
unda á tengslum tungumáls og
bókmennta. Michelle Hartman er
bókmenntafræðingur og sérfræð-
ingur um stöðu kvenna í Miðaust-
urlöndum, en hún lauk m.a. hluta
doktorsnáms síns við Damaskus-
háskóla. Á næstu dögum mun
Hartman jafnframt kenna nám-
skeið um íslam og nútímann við
Endurmenntunardeild Háskólans
ásamt Magnúsi Bernharðssyni
sagnfræðingi.
Blaðamaður náði tali af Michelle
og spurði hana í fyrstu hvort
margir kvenhöfundar hafi látið í
sér heyra í Miðausturlöndum und-
anfarin ár. „Þetta er mjög algeng
spurning þegar að þessu viðfangs-
efni kemur. Vesturlandabúar
draga e.t.v. ósjálfrátt þá ályktun
að arabískar konur njóti ekki
mennta og fái ekki tækifæri til að
skrifa bækur. En tilfellið er að
konur taka virkan þátt í bók-
menntalífi og eru virkar á öðrum
sviðum í fjölmörgum arabalöndum.
Þetta stangast þó vissulega á við
hlutskipti mikils hluta kvenna í
Mið-austurlöndum sem búa við fá-
tækt, skort á menntun og sums
staðar lögbundin höft. Michelle
segir þær raddir sem greina megi
í arabískum bókmenntum eftir
konur vera margvíslegar, og megi
finna hin ólíkustu efni í bókum
þeirra. „Skrif margra höfundanna
endurspegla pólitískt ástand hvers
lands fyrir sig, og áhrif þess á líf
íbúanna. Lesendum birtast þar
ólík sjónarhorn, allt frá höfundi
frá Líbanon, landi sem er að sigla
út úr fimmtán ára borgarastyrjöld,
og palestínskri konu frá hernumdu
svæðunum til sádi-arabísks höf-
undar sem býr við áþreifanlega
kvenkúgun. Þó gera kvenhöfundar
þætti er varða kynferði og heim-
ilislíf frekar að viðfangsefni er
karlhöfundar og er glíma kvenna
við að samræma heimilislíf og
starfsferil jafn áberandi umfjöll-
unarefni og á Vesturlöndum. Þau
átök fá þó annan vinkil í ljósi mis-
munandi pólitísks ástands í Mið-
austurlöndunum.“
Hversu aðgengilegar eru bók-
menntir arabískra kvenna Vestur-
landabúum?
„Það hefur átt sér stað nokkur
aukning á þýðingum á arabískum
bókmenntum sem hófst eftir að ar-
abíski rithöfundurinn Naguib
Nahfouz hlaut Nóbelsverðlaunin
árið 1988. Það sem kemur ef til vill
á óvart er að áhuginn er talsvert
meira á skáldverkum kvenhöfunda
en karlhöfunda, ef til vill vegna
þess að þar er veitt innsýn í veru-
leika sem er mörgum sem lokuð
bók. Það kemur því á óvart hversu
mikið hefur verið þýtt af bókum
arabískra kvenna í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og Frakklandi svo
dæmi séu nefnd.“
Hvernig muntu taka á þessu víð-
feðma efni í fyrirlestrinum?
„Ég mun byrja á því að reifa
þróun arabískrar bók- og sagna-
menningar, enda er hún órjúfan-
legur hluti af þróun arabískrar
tungu. Það er því löng hefð að baki
nánum tengslum arabískra bók-
mennta og tungumáls, og benti
Magnús Bernharðsson mér t.d. á
að þar megi finna samvörun við ís-
lenska tungu sem á sér sterkar
rætur í norræna sagnaarfinum.
Með því að skoða nokkra texta,
einkum úr skáldverkum tveggja
arabískra kvenhöfunda, þ.e. Hoda
Barkat og Salwa Bakr, leitast ég
við að bregða ljósi á hvernig kven-
rithöfundar hafa tekist á við hefðin
m.a. með því að líta til tungutaks
hversdagsins og arfleifðar munn-
legrar sagnahefðar.
Ég mun jafnframt dreifa ítarefni
um áhugaverða höfunda ef gestir
hafa áhuga á að kynna sér við-
fangsefnið nánar,“ segir Michelle
Hartman.
Fyrirlesturinn hefst sem fyrr
segir kl. 17.15 í stofu 101 í Lög-
bergi og er aðgangur ókeypis.
Fyrirlestur um bókmenntir arabískra kvenna í Háskóla Íslands
Eru virkir
þátttakendur
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
„Það kemur því á óvart hversu mikið hefur verið þýtt af bókum arab-
ískra kvenna víða á Vesturlöndum,“ segir Michelle Hartman sem heldur
fyrirlestur um arabískar bókmenntir í Lögbergi í dag.
RANNSÓKNIR sem fram fara
innan vébanda svokallaðs Reyk-
holtsverkefnis verða kynntar í
Snorrastofu annað kvöld kl.
20.30. Fræðimenn frá Sagn-
fræðistofnun Háskóla Íslands,
Þjóðminjasafni, Örnefnastofnun
Íslands, Raunvísindastofnun Há-
skóla Íslands og Snorrastofu
munu ræða stöðu rannsókn-
arverkefnisins og framtíð þess.
Nú þegar hefur margt litið dags-
ins ljós sem afrakstur af verkefn-
inu og munu skýrslur með rann-
sóknarniðurstöðum liggja
frammi. Að Reykholtsverkefninu
koma fjölmargir aðilar, bæði inn-
lendir og erlendir. Því var hleypt
af stokkum 1999 og er með því
stefnt að þverfaglegri niðurstöðu.
Því er skipt í þrjá verkþætti: a)
Fornleifarannsóknir; b) Mannvist-
arlandslag; c) Miðstöðin Reyk-
holt. Verkefnið hefur forn-
leifauppgröft í Reykholti sem
upphaf og tengist ekki síst
Snorra Sturlusyni (1179-1241) og
tímabili hans.
Aðgangseyrir er 500 kr. og
boðið er upp á kaffiveitingar.
Morgunblaðið/Sverrir
Fræðimenn við störf við hellulagt gólf hússins sem fannst sl. sumar.
Reykholtsverkefnið
kynnt í Snorrastofu
Norræna húsið Á háskóla-
tónleikum kl. 12.30 leikur Ármann
Helgason klarinettuleikari verk
eftir Stravinski, Sutermeister,
Penderecki og Rivier. Tónleikarn-
ir taka u.þ.b. hálfa klst. Aðgangs-
eyrir er 500 kr., en ókeypis er fyr-
ir handhafa stúdentaskírteina.
Tónskóli Sigursveins Tónlist-
arhátíðin Elíasardagar hefjast í
Árbæjarkirkju
kl. 18. Hátíðin er
tileinkuð Elíasi
Davíðssyni tón-
skáldi og munu
nemendur tón-
skólans flytja
verk eftir hann.
Elías er fæddur
í Palestínu.
Hann hefur síð-
an 1986 samið
og gefið út á þriðja tug safna með
lögum fyrir ýmis hljóðfæri, mest
fyrir fyrstu námsstigin. Sum
verka sinna hefur hann unnið í ná-
inni samvinnu við tónlistarskóla í
Sviss, Þýskalandi og á Íslandi og
eru kennsluverk hans nú notuð
víða um Evrópu. Á efnisskránni
eru aðallega einleiks- og kamm-
erverk. Sum verkanna hefur Elías
unnið í náinni samvinnu við kenn-
ara skólans. Elías mun sjálfur
skýra einstök verk og flytja for-
spjall að hverjum tónleikum.
Tónleikar verða einnig í sal Tón-
skólans, Hraunbergi 2, kl. 18 á
morgun, í sal Tónskólans á Engja-
teigi 1 kl. 18 á föstudag og kl. 14
á laugardag.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Elías
Davíðsson
VERK Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, „Feast of
Snails“ (Sniglaveislan),
sem frumsýnt var í West
End-leikhúshverfinu í
Lundúnum á mánudags-
kvöld, fékk umsögn yfir
meðallagi hjá breska dag-
blaðinu The Times í gær.
Gagnrýnandi The Guard-
ian gefur leikritinu hins
vegar ekki eins góða um-
sögn.
Benedict Nightingale,
leikhúsgagnrýnandi The
Times, sem gefur verkinu
þrjár stjörnur af fimm,
beinir að miklu leyti sjón-
um að frammistöðu leik-
arans David Warners í
hlutverki Karls Johnson,
aðalpersónu Sniglaveislunnar.
Vakti það mikla athygli í bresk-
um fjölmiðlum að Warner hygð-
ist taka að sér hlutverkið, en
hann hafði fram að frumsýning-
unni á mánudag ekki stigið á
leiksvið í Lundúnum í þrjátíu ár.
Í dómnum segir að frammistaða
Warners hafi verið „styrk og
vönduð“, þó að ákjósanlegra
hefði verið að sjá leikarann tak-
ast á við „eitthvað meira ögrandi
og dramatískt spennandi“. Gagn-
rýnandi lýsir leikritinu svo að
þar leitist Ólafur Jóhann við að
tvinna saman spennusögu með
sálfræðilegu ívafi og vangaveltur
um kynþáttamál og erfðir sem
talist geti mjög áleitnar fyrir ís-
lenskt samfélag. Telur hann
verkið þungvægara en almennt
gerist í leikuppfærslum West
End-leikhúshverfsins, þó svo það
„skorti meiri spennu og ef til vill
kímnigáfu“. Gagnrýnandinn lofar
frammistöðu Warners í hlutverki
Karls, og segir hann forðast að
afskræma hina neikvæðu per-
sónu, jafnframt því sem öll meló-
dramatík sé víðsfjarri í leikstjórn
og framleiðslu Ron Daniels.
Í lok dómsins er vikið að úr-
lausn verksins sem gagnrýnand-
inn segir fela í sér snjallan við-
snúning á viðhorfum aðalper-
sónunnar. „Hún er rökrétt. Hún
er snjöll. Hún er kaldhæðnisleg.
Umfram allt gefur hún Warner
tækifæri til að dýpka tjáningu
sína og veit það á gott varðandi
framtíð hans í bresku
leikhúsi,“ segir í dómnum.
Gagnrýnandi The
Guardian er heldur harð-
orðari og gefur verkinu
tvær stjörnur. Hann kall-
ar Sniglaveisluna „stór-
furðulegan íslenskan inn-
flutning“ Ólafs Jóhanns
Ólafssonar og segir verkið
langdregið og grunnhygg-
ið. Segir hann höfundinn
leggja mikla alúð í að
byggja upp flóknar að-
stæður en afhjúpunin
valdi vonbrigðum. Víkur
gagnrýnandinn að
frammistöðu David Warn-
ers og segir að honum sé
mikill vandi á höndum að
gæða hinn íslenska auð-
jöfur dramatískri dýpt, en per-
sónan minni sig helst á „staðlað
illmenni í anda Bond-kvik-
mynda“. „Ég vildi aðeins óska
þess að Warner hefði, eftir allan
þennan tíma, fundið sér hlutverk
sem hæfði betur hans tilkomu-
miklu sviðsframkomu,“ segir
ennfremur í dómnum. Gagnrýn-
andi telur frammistöðu leikar-
anna Philip Glenisters og Siwan
Morris góða, og telur Ron Daniel
gera sitt besta við leikstjórnina.
Að lokum segir gagnrýnandi
helsta galla verksins felast í til-
raun höfundar til þess að „af-
hjúpa siðleysi hinna vellauðugu á
sama tíma og áhorfandanum er
gefið færi á að velta sér upp úr
lífsstíl þeirra“.
Viðbrögð breskra gagnrýnenda við Sniglaveislunni
David
Warner
Ólafur Jóhann
Ólafsson
The Times gefur
verkinu 3 stjörnur
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is