Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 31

Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 31 Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til Benidorm í sumar á frábærum kjörum og þeir sem bóka fyrir 15. mars geta tryggt sér allt að 40.000 afslátt fyrir fjölskylduna í valdar brottfarir, eða 10.000 kr. á manninn. Heimsferðir fagna nú 10 ára afmæli sínu á Benidorm og aldrei fyrr höf- um við boðið jafn glæsilegt úrval gististaða á þessum vinsæla áfanga- stað. Og að sjálfsögðu bjóðast þér spennandi kynnisferðir í fríinu og þjónusta reyndra fararstjóra Heimsferða til að tryggja þér ánægjulega dvöl í fríinu. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 38.265 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 22. maí í viku, El Faro, með 40 þúsund kr. afslætti. Alm. verð kr. 40.179. Verð kr. 49.965 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 19. júní í 2 vikur, El Faro, með 40 þúsund kr. afslætti. Alm. verð kr. 52.464. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í íbúð í viku, El Faro, 22. maí, með 10.000 kr. afslætti. Alm. verð kr. 52.448. Bókaðu til Benidorm og tryggðu þér 40.000 kr. afslátt af ferðinni Beint flug alla miðvikudaga í sumar 10 ár á Benidorm Glæsilegustu gististaðirnir Ótrúlegt verð í sólina í sumar Lægsta verðið í sólina HVER er reynslan af umhverfis- mati og áhrifum þess á virkjanagerð? Við stöndum uppi með þá reynslu að umhverfismálin eru að verða einn dýrasti þáttur virkjunarundirbún- ings, en hefur þessi mikli kostnaður skilið eftir sig einhvern sjáanlegan árangur, eitthvað sem kalla má betra ástand í umhverfismálum? Í grein minni í Morgunblaðinu 9.1. sl. var reynt að svara þessari spurn- ingu, sem á fyllilega rétt á sér. Við- brögðin hafa verið jákvæð með örfá- um undantekningum þó. T.d. er ekki hægt að sjá annað á grein Ingva Þor- steinssonar í Morgunblaðinu 31.1. en að honum finnist að grasafræðingum vegið sem er auðvitað oftúlkun. Ís- lenskir grasafræðingar eru mjög færir og ná yfirleitt góðum árangri í sínum störfum. Svona oftúlkanir, ýkjur og jafnvel hreinn þvættingur eru stundum helsta baráttuaðferð virkjunarand- stæðinga, því miður. Sem dæmi má taka það mál sem Ingvi fer fram með, aukið sandfok vegna Hálslóns og Kárahnjúkavirkjunar. Þetta mál er búið að blása upp úr öllu samhengi og því haldið fram að þarna séu gríðarleg náttúruspjöll í uppsiglingu. Er ekki annað að sjá en til standi að kenna Kárahnjúkavirkj- un um sandfok og uppblástur norðan jökla eftir að virkjunin er byggð. Ekkert er fjarri sanni, á þessu svæði er í dag gífurlegur upp- blástur og mikið sand- fok þegar veður er óhagstætt. Kveður svo rammt að þessu að gróðurlendi víða á Norðausturlandi er í stórri hættu af sandfok- inu. Hálslón kemur ekki til með að breyta neinu um þetta, jafnvel ekki á þeim fáu dögum þegar allt fer saman, hvöss sunnanátt, lónið er tómt, veður frost- laust og lónbotninn þurr, sem væntanlega verður ekki oft. Vindurinn nær í sand og leir hvar sem er á þessu svæði í nægu magni fyrir sína sandburðargetu. Þegar Hálslón er komið fer stórt svæði af gróðursnauðu landi undir vatn svo sandfok ætti heldur að lagast ef ein- hver breyting verður. Þá er einhver hætta á að áfoksgeirar myndist frá vatnsborðssárinu eins og gerst hefur við Blöndulón. Slíkt er auðvelt að stöðva og hafa verið skrifaðar um það bækur í kílóavís af jarðvegssérfræð- ingum í Bandaríkjunum og víðar. Breyta þarf lögum um umhverfis- mat. Skilningur á þessari staðreynd fer vaxandi og vonandi líður ekki á löngu uns tillögur að breytingum koma fram. Það sem fyrst og fremst gerir breytingarnar nauð- synlegar er hvernig umhverfismálin eru sí- fellt að blandast inn í hina pólitísku baráttu, einkum virkjunarmálin. Það þýðir ekki að horfa framhjá þeirri stað- reynd að nýr stjórn- málaflokkur er kominn fram á sjónarsviðið og fer mikinn. Þessi flokk- ur virðist byggja sínar vonir um fylgi að miklu leyti á baráttunni gegn virkjunum og stóriðju, rétt eins og pólitískir forverar hans gerðu. Það er að sjálfsögðu hagur slíks flokks að viðhalda umræðunni um náttúruspjöll af virkjunum. Til þess eru næg tækifæri í lögunum um um- hverfismat, þar er ekki bara hægt að kæra úrskurð Skipulagsstofnunar til ráðherra, heldur líka hægt að kæra úrskurð ráðherra til dómstóla og reka þau kærumál á báðum dóms- stigum. Það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd að meðan umhverfislöggjöfin er svona úr garði gerð er hún eins og sérhannaður far- vegur fyrir pólitískan áróður eins ákveðins stjórnmálaflokks. Þetta er óviðunandi, einkum og sér í lagi fyrir þá embættismenn og sérfræðinga sem eru að vinna að umhverfismálum og fá á sig skammardembu fyrir allt þeir senda frá sér og ekki passar inn í pólitíska rétthugsun einhvers þing- flokks. Lögunum þarf að breyta. Það er auðvelt því þessi togstreita á borð- um framkvæmdavalds og dómsvalds er þýðingarlaus hvort eð er. Alþingi hefur síðasta orðið um virkjunarleyfi, þannig hefur það alltaf verið og verð- ur áfram. Að lokum má geta þess að þeir sem vilja gera eitthvað annað en festast í þessum leðjuslag um ýkt og upplogin náttúruspjöll, yrðu margs fróðari um raunveruleg umhverfismál af því að kynna sér Alqueva og þann mála- rekstur sem þar fór fram þegar verið var að meta gagnstæða hagsmuni í lóns og umhverfis. Þetta er stór stífla í Portúgal, lónið 250 ferkílómetrar (þrjú Hálslón) og veruleg náttúru- spjöll í lónstæðinu. Búseta raskast í ýmsum vistkerfum og tugir mjög fornra klettamynda frá steinöld fara í kaf. Lónið er áveitulón fremur en virkjunarlón og flóðvarnir af lóninu auk bættrar vatnsnýtingar og rækt- unarskilyrða, urðu til þess að EB samþykkti áætlunina og í síðustu viku var stíflan vígð. Þegar virkjun- arandstæðingar hér eru að halda því fram að „hvergi nema í þriðja heims ríkjum yrðu önnur eins náttúruspjöll og verða af Kárahnjúkavirkjun leyfð,“ þá lítur sannleikurinn svona út. Breytingar á lögum um um- hverfismat Jónas Elíasson Virkjanir Umhverfislöggjöfin, segir Jónas Elíasson, er eins og sérhannaður far- vegur fyrir pólitískan áróður. Höfundur er prófessor. GAMLA og góða SÍS á 100 ára afmæli í dag, 20. febrúar. Af því ég var liðsmaður þess í hálfa öld, 50 ár upp á dag, frá afmælisdegi mínum 7. okt. 1935 til sama dags 1985, héldu frammámenn Sam- bandsins og samstarfs- fyrirtækja þess, okkur Ingu, eiginkonu minni (d. 19.9. ’93), veglegt kveðjuhóf í samkomu- salnum á 3. hæðinni í Samvinnubankahúsinu þáverandi við Banka- stræti. Þetta voru góð 50 ár með mönnum, sem unnu saman og leituðust við að láta engan falla vegna áfalla eða skorts á fátæktar- og þrengingartímum. Ég finn hjá mér löngun og hvöt til að minnast þessa afmælisdags hér, nú í blaði allra okkar landsmanna, til að senda kveðjur og þakkir til góðra vina og fjölmargra, já, samvinnu-manna um landið okkar allt, sem eflaust minn- ast eins og ég langra og farsælla tímabila við margvíslega uppbygg- ingu og minntust orða garpsins Kára: „Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi“. Stofnfundur Sambandsins var haldinn að Ystafelli 20. febrúar 1902. Fundinn sátu fulltrúar þriggja kaupfélaga: Frá Kaupfélagi Norð- ur-Þingeyinga, Árni Kristjánsson í Lóni. Frá kaupfélagi Þingeyinga, Pétur Jónsson á Gautlöndum, Stein- grímur Jónsson (sýslum.) í Húsavík og Sigurður Jónsson í Ystafelli. Frá Kaupfélagi Svalbarðseyrar: Frið- björn Bjarnason á Grýtubakka og Helgi Laxdal í Tungu. Auk fulltrú- anna voru nokkrir mættir á fund- inum, og er þar sérstaklega getið Benedikts Jónssonar á Auðnum, sem var ritari fundarins og tók þátt í nefndarstöðu. Fundarstjóri var kjörinn Steingrímur Jónsson. Þetta má m.a. lesa í 40 ára afmælisriti Sambandsins sem Gísli Guðmunds- son setti saman, eins og segir á titil- síðu bókarinnar. Þar má einnig lesa: „Þótt breytt hafi verið um nafn og starfssvið samtakanna sé nú víðara en áður, sanna gerðabækur það, svo ekki verður um það deilt, að Sam- bandskaupfélag Þingeyinga sem var stofnað fyrir 40 árum og Samband ísl. samvinnufélaga, sem nú er starfandi fyrir landið allt, er einn og sami fé- lagsskapur. Með breytingu á lögum Sambandskaupfélags Þingeyinga varð það að „Sambandskaup- félagi Íslands“ árið 1907 og „Samband ísl. samvinnufélaga 1910… ný félög hafa verið tekin inn í samtökin án þess að nokkurt nýtt samband hafi verið stofnað,“ segir í af- mælisriti Gísla frá 1942. Það er vel rituð bók með traustum upplýsingum. Nú kunna einhverjir að spyrja: Hvað er maðurinn að tala um 100 ára afmæli SÍS, er það ekki löngu dautt og tröllum gefið? Von er að margir telji svo vera, því að hér í sjálfu Mbl. birtist greinaflokkur fyrir all- mörgum árum undir samheitinu „Endalok Sambandsins“. Dugmikil blaðakona hjá Mbl. var höfundur þessarar „endaloka-sögu“. Ég man að hún var iðin við að fylgjast með á aðalfundum Sambandsins, þar til hún hóf sögu-ritun sína. Einnig var þessi dugnaðar kona iðin við að bjóða fundarmönnum bílfar heim eftir fundina í Sambandshúsinu nýja á Kirkjusandi, ekki síst topp- manni eða mönnum. Ég varð meira að segja þessarar velvildar aðnjót- andi í eitt skipti. Hvað sem nú líður áreiðanleika þessara blaðaskrifa, þá hafa áfram verið haldnir árlegir að- alfundir Sambandsins, síðast árið 2001. Sem sagt, Sambandið er á lífi, þótt hljótt sé nú um það. Þó birtust í tvígang smá fréttir af því hér í blaðinu fyrir skömmu og 12. þ.m. nefndi Davíð okkar forsætis í Sjón- varpsviðtali Sambandið á nafn, sem dæmi um fyrrum stórveldi, er hann var spurður um Baug í Kastljóss- þætti. Rétt er það, að lítið fer fyrir sjálfu Sambandinu um þessar mundir, og nær ekkert láta frétta- menn fjölmiðla nú um sinn í sér heyra eftir hina árlegu aðalfundi þess. En rétt finnst mér að vekja hér athygli á nokkrum blómlegum greinum í þjóðfélagi okkar, sem sprottnar eru af hinum mikla meiði Sambandsins fyrir tilverknað fram- sækinna og hagsýnna manna, sem þar hafa verið að verki sl. 100 ár. Nokkur dæmi skulu nefnd: 1) Skólinn í Bifröst (Samvinnu- skólinn) 2) Vátryggingafélagið VÍS ( Sam- vinnutryggingar) 3) Samvinnulífeyrissjóðurinn (Lífeyrissjóður SÍS) 4) Samskip (Skipadeild SÍS) 5) Olíufélagið hf./Essó 6) Osta- og smjörsalan 7) Samvinnubankinn (áður Sam- vinnusparisjóðurinn) sem með mörgum útibúum sínum sameinað- ist fyrir allmörgum árum banka allra landsmanna, sjálfum Lands- banka Íslands og hefur án efa aukið þrótt hans og framsækni með marg- víslegum hætti, m.a. með hinu góða og vel þjálfaða starfsliði. Við þá sameiningu heyrði ég orðið „brúð- kaup“ nefnt. (Með depurð hugsa ég til hinnar fyrrum blómlegu búvörudeildar SÍS, sem á sínum tíma flutti geymslu- og vinnslustöð sína hér í Rvík úr Herðubreiðar-byggingunni fögru við hlið Fríkirkjunnar við Tjörnina, í nýreista, veglega stein- byggingu á Kirkjusandi, sem nú hefur verið brotin niður og látin víkja fyrir mikilli nýbyggingu Að- alverktaka, er mér sagt. Sjávaraf- urðadeild SÍS með m.a. hinni veg- legu vinnslu- og sölumiðstöð í Harrisburg, P.A. í Bandaríkjunum er heldur ekki sjáanleg lengur. En það er önnur saga.) Þarna (1–7) eru þróttmiklir og hæfir stjórnendur á góðum aldri að verki sem flestir þjálfuðust og áunnu sér fyrrum verðmæta reynslu við störf í deildum Sam- bandsins. Þessi þungavigtarstarfsemi í þjóðfélagi okkar nú við upphaf nýrrar aldar, sem menn kenna við þekkinguna, er ávöxtur af samvinnu manna, á nýliðinni öld, sem gáfu sér tíma til að ræða málin, bera saman bækur sínar, vitandi að kapp er best með forsjá. Þeir voru meðvit- aðir um að „hagsýni er fólgin í því að lifa sig inn í og láta sér skiljast, hvað það er, sem ástand hvers tíma krefst að gert sé“. Þessa skilgrein- ingu lærði ég og tileinkaði mér á námskeiði sem hinn fríski fræðari, dr. Gylfi Þ. Gíslason, efndi til í HÍ endur fyrir löngu. 100 ár frá stofnun SÍS Hermann Þorsteinsson Samvinnuhreyfing Sambandið er á lífi, segir Hermann Þorsteinsson, þótt hljótt sé nú um það. Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.