Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.02.2002, Blaðsíða 37
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða kl. 13:00. Handavinna, spil, föndur og gamanmál. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12:10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520-9700. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10– 12. Þorrahátíð eldri borgara kl. 12:10. Helgistund, þorramatur o.fl. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Starf fyrir 9–10 ára börn kl. 16:00. Starf fyrir 11–12 ára börn kl. 17:30. Föstustund kl. 20:00. Íhuganir um ferð Jesú til Jerúsalem. Sr. Jón Bjarman. Háteigskirkja. Morgunbænir kl. 11:00. Súpa og brauð kl. 12:00 í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis. Brids kl. 13:00 fyrir eldri borgara. Yngri deild barnakórsins æfir kl. 16:30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 1.–3. bekk. Eldri deild barna- kórsins æfir kl. 17:30 undir stjórn Birnu Björnsdóttur. Kórinn er ætlaður börnum úr 4.–6. bekk. Kvöldbænir kl. 18:00. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6:45- 7:05. Kirkjuprakkarafundur kl. 14:10 fyrir 1.-4. bekk. Fermingartími kl. 19:15. Hann fer að þessu sinni fram í sund- lauginni í Laugardal. Sundlaugarpartý Laugarneskirkju og Þróttheima kl. 20:00 haldið í grunnu lauginni í Laugardalnum. Neskirkja. 7 ára starf kl. 14:00. Öll börn í 2. bekk velkomin. Föstumessa kl. 20:00. Ragnheiður Pála Ófeigsdóttir, skáld, les frumsamin ljóð. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Kór Neskirkju syng- ur. Organisti Elías Davíðsson. Veitingar eftir messu. Óháði söfnuðurinn. Föstumessa kl. 20:30. 8. Passíusálmur. Sylvia Magnúsdóttir guðfræðinemi. Biblíulestur og krampaldinskaffi eftir messu. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12:00. Léttur málsverður í safnaðar- heimili eftir stundina. Árbæjarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org- elspil, söngur, fyrirbænir og heilög kvöldmáltíð. Súpa og brauð í safnaðar- heimilinu á eftir gegn vægu verði. Opið hús fyrir aldraða frá kl. 13–16. Kirkju- prakkarar kl. 17–18. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Unglingastarf KFUM&K Digranes- kirkju kl. 20. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12 með altarisgöngu og fyrirbænum. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir vel- komnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára kl. 16.30–17.30. Kirkjukrakkar í Rimaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30–18.30. KFUK Unglingadeild kl. 19.30–21. Æskulýðsfélag Engjaskóla fyrir börn 8.–9. bekk kl. 20–22. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Opið hús kl. 12. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Litlir lærisveinar í Lindaskóla kl. 17. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf með 10– 12 ára börnum (TTT) á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma 567-0110. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna, kl. 10–12. Heitt á könn- unni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður og Erlendur sjá um akst- ur á undan og eftir. Safnaðarstarf Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr- irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13:00. Helgi- stund, spil og kaffiveitingar Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lágafellsskóla á miðvikudögum frá kl. 13.15–14.30. Foreldramorgnar í safn- aðarheimili frá kl. 10–12. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshópar. Umsjón Ásta Sigurðardóttir, cand. theol. Æfing kórs Keflavíkurkirkju frá kl. 19.30–22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson. Alfanám- skeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkj- unni um kl. 22. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. Kl. 20 opið hús í KFUM&K-húsinu fyrir unglinga. Njarðvíkurkirkja. (Innri-Njarðvík) For- eldramorgunn í Safnaðarheimilinu í dag kl. 10.30. Sóknarprestur. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn- ar í dag kl. 10–12. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð. Allt ungt fólk velkomið. Fíladelfía. Létt máltíð á vægu verði kl. 18. Kl. 19 er kennsla og þá er skipt nið- ur í deildir. Það er krakkaklúbbur fyrir krakka 3–12 ára, unglingafræðsla fyrir 13–15 ára, fræðsla fyrir ungt fólk á aldr- inum 16–20 ára. Síðan er kennsla á ensku. Einnig eru til skiptis biblíulestrar, bænastundir og vitnisburðarstundir. Það eru allir hjartanlega velkomnir. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10. Opið hús, kaffi og spjall. TTT-starf kl. 17. Biblíulestur kl. 20.30. Krossins helga mál – Jesús hæddur og afneitun Péturs. Mark. 14: 65–15:1. Í KVÖLD kl. 20.00 mun séra Jón Bjarman leiða það sem hann nefnir Íhugun á föstu. Þetta er fyrsta íhugun af fjórum um síðustu för Jesú til Jerúsalem. Íhuguninni lýk- ur með helgistund í kirkjunni. Þess- ar íhugunarstundir verða næstu fjögur miðvikudagskvöld og koma í stað hefðbundinna föstuguðsþjón- usta sem eiga sér langa hefð í kirkj- unni. Ljóðskáld í Neskirkju Í KVÖLD kl. 20 verður helgistund í Neskirkju þar sem samtíð og saga kallast á um málefni himins og jarð- ar. Ljóðskáldið Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir les úr ljóðum sínum. Ennfremur verður lesið úr písl- arsögu Krists og Passíusálmunum. Kór Neskirkju leiðir söng. Elías Davíðsson leikur á orgel og blokk- flautu. Molasopi í safnaðarheim- ilinu á eftir. Helgistund er heilsu- bót! Neskirkja. Íhugun á föstu í Hallgrímskirkju Morgunblaðið/Ómar Hallgrímskirkja MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 37 SVEIT Strengs stóð uppi sem sigurvegari í Flugleiðamóti Bridshátíðar sem lauk á mánu- dagskvöld. Sveitin var vel að sigr- inum komin. Hún tók forustuna eftir fimmtu umferð af 10 en í þeirri umferð lagði hún erlendu gestina í sveit Geirs Helgemos 25–5; niðurstaðan varð 40–0 í IMP-stigum. Strengur tapaði eina leik sínum í mótinu í 9. og næstsíðustu um- ferð, 14:16, fyrir sveit Ferðaskrif- stofu Vesturlands. Fyrir síðustu umferðina var Strengur með 182 stig, Ferðaskrifstofa Vesturlands með 171 stig, sveit SPRON með 170 stig og sveit Skeljungs í því 4. með 167 stig. Strengur og SPRON spiluðu saman í síðustu umferðinni og einnig sveitir Skeljungs og Ferðaskrifstofu Vesturlands, en þessar sveitir áttu allar mögu- leika á að vinna mótið. Skeljung- ur vann sinn leik 25:5 og hafði þá 192 stig. Það þýddi að SPRON varð að vinna Streng 22:8 til að vinna mótið, Streng nægðu 10 stig en báðar þessar sveitir höfðu unnið innbyrðisleikina við Skelj- ung. Leikurinn var hins vegar í járnum þar til kom að þremur síðustu spilunum en þá gerðu Strengsmenn út um leikinn, unnu hann 19:11 og mótið um leið. Lokastaðan varð þessi en sex efstu sveitirnar fengu verðlaun: Strengur 201 (Hrannar Erlingsson, Júlíus Sigurjónsson, Hjördís Eyþórs- dóttir, Barry Goren, Valur Sig- urðsson, Ragnar Magnússon) Skeljungur 192 (Örn Arnþórsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Anton Haraldsson, Sigurbjörn Haraldsson) Þrír Frakkar 182 (Hrólfur Hjaltason, Oddur Hjaltason, Jónas P. Erlingsson, Kristján Blöndal, Steinar Jóns- son, Stefán Jóhannsson) SPRON 181 (Björn Eysteinsson, Guðmund- ur Sv. Hermannsson, Helgi Jó- hannsson, Ásmundur Pálsson, Guðmundur Páll Arnarson) Orkuveita Reykjavíkur 180 (Páll Valdimarsson, Eríkur Jónsson, Erlendur Jónsson, Her- mann Lárusson, Ólafur Lárusson) Ferðaskrifstofa Vesturlands 176 (Karl Sigurhjartarson, Snorri Karlsson, Aron Þorfinnsson, Sæv- ar Þorbjörnsson) Subaru-sveitin 175 Málning 175 Geir Helgemo 174 Gull og silfur 169 Sveinn Rúnar Eiríksson var yf- irkeppnisstjóri en Stefanía Skarphéðinsdóttir var mótsstjóri. Addý Ólafsdóttir veitti verðlaun í mótslok fyrir hönd Flugleiða. Nokkru minni þátttaka var í mótinu en oftast áður eða 68 sveitir. Margslungið spil Það spil sem mesta athygli vakti í Flugleiðamótinu kom fyrir í sjöttu umferð. Líklega hefur lokasamningurinn verið sá sami við flest borðin í spilasölunum, þrjú grönd. Spilið vannst víðast hvar en það var hins vegar mjög margslungið og í því leyndust ýmsir möguleikar, bæði í sókn og vörn. Í mörgum hornum mátti heyra spilara ræða um hinar ýmsu stöður sem upp komu eða gátu komið: Austur gefur, NS á hættu Norður ♠ G64 ♥ 1063 ♦ 75 ♣KG764 Vestur Austur ♠ D754 ♠ 102 ♥ G74 ♥ Á982 ♦ 1082 ♦ Á962 ♣Á82 ♣1093 Suður ♠ ÁK98 ♥ KD5 ♦ KDG4 ♣D5 Spilið var ekki flókið í sögnum. Suður vakti á 2 gröndum eða sterku laufi og sýndi síðan 19–21 punkt eftir sagnkerfum; og norð- ur sagði þrjú grönd. Vestur spil- aði víðast hvar út spaða og sagn- hafi drap tíu austurs með ás. Hann fór svo í laufið, spilaði drottningunni sem vestur gaf, og síðan meira laufi. Víða gat austur sýnt 3-lit í laufi með afköstunum og þar drap vestur oft annað laufið með ásn- um og skipti í hjarta eða tígul. En þá var eftirleikurinn nokkuð auð- veldur. Ef vestur spilaði t.d. hjarta gat sagnhafi stungið upp tíunni í blindum. Gæfi austur gat suður tekið laufslagina og hent heima eins og austur og fengið 9 slagi með ýmsum hætti. Dræpi austur hins vegar hjartatíuna og spilaði meira hjarta varð suður fyrst að spila tígulkóngi, sem austur mátti ekki drepa, og síðan spila spaða á gosann í borði. Þannig fengust tveir spaðaslagir, tveir hjartaslagir, einn á tígul og fjórir á lauf. Við nokkur borð gaf vestur laufið tvisvar og því varð sagnhafi að spila þriðja laufinu inni í blind- um og fleygja heima. Það virðist liggja beint við að henda tígli en nú gat vestur drepið með ás og skipt í tígul. Austur sparaði ásinn og þegar sagnhafi spilaði nú spaða á gosann í borði fór vestur upp með drottningu og spilaði enn tígli. Þar með var vörnin búin að búa til slag á tígul meðan aust- ur átti enn hjartaásinn og fékk því tvo slagi á tígul og einn á hvern hinna litanna. Svona gekk vörnin t.d. hjá Ragnari Magnús- syni og Val Sigurðssyni í sig- ursveitinni. Suður getur hins vegar unnið spilið með því að henda spaðaás í þriðja laufið í blindum. Spili vest- ur nú hjarta er tíunni stungið upp og gefi austur spilar sagnhafi tígli á kóng og síðan spaða á gosann. Vestur fer upp með drottningu og spilar spaða en þá tekur suður laufaslagina í blindum og fylgir afköstum austurs. Að lokum spil- ar hann rauðum lit úr borði og býr til 9. slaginn. Drepi austur hins vegar hjarta- tíuna og spili meira hjarta verður sagnhafi að spila tígulkóng. Drepi austur er hann orðinn innkomu- laus og hættulaus svo hann verð- ur að gefa slaginn en þá spilar sagnhafi spaða og tryggir sér 9. slaginn. Það kunna að leynast fleiri möguleikar í spilinu og lesendur geta þá skemmt sér við að leita þeirra. Í fljóti bragði virðist sagn- hafi t.d. ekki eiga svar við því að vestur spili út hjarta í upphafi. BRIDS Hótel Loftleiðir Sveit Strengs sigraði á Flugleiðamótinu Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Sigurvegararnir á Flugleiðamótinu á Bridshátíð ásamt Guðmundi Ágústssyni, forseta Bridssambandsins, og Addýju Ólafsdóttur, deildarstjóra söluþjónustu Flugleiða, en þau afhentu verðlaunin í mótslok. Talið frá vinstri: Guðmundur Ágústsson, Valur Sigurðsson, Barry Goren, Hjördís Eyþórsdóttir, Ragnar Magnússon, Hrannar Erlingsson, Júlíus Sigurjónsson og Addý Ólafsdóttir. Guðmundur Sv. Hermannsson Bridshátíð var haldin dagana 15.–18. febrúar á Hótel Loftleiðum. Keppt var í tvímenningi og sveitakeppni. KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.