Morgunblaðið - 20.02.2002, Side 39
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hólmfríður Björnsdóttir og Jónatan Örlygsson.
OPNA Kaupmannahafnarkeppn-
in í samkvæmisdönsum fór fram um
síðustu helgi. Þessi keppni er talin
meðal þeirra sterkustu fyrir börn og
unglinga, sem haldnar eru í Evrópu.
Íslendingar hafa í gegnum árin fjöl-
mennt nokkuð á þessa keppni, þar
sem hún þykir ekki síður skemmti-
leg en sterk. Að þessu sinni var
fjöldi íslenzkra keppenda á fjórða
tuginn. Opna Kaupmannahafnar-
keppnin stendur í raun í þrjá daga,
hún hefst á föstudegi og henni er
lokið á sunnudegi.
Árangur íslenzkra para hefur ver-
ið góður í þessari keppni í gegnum
árin og var einnig svo að þessu
sinni. Vissulega er það þó svo að
ekki komast öll pör áfram í keppni
sem er jafn sterk og þessi. Kara
Arngrímsdóttir, danskennari, sagði
þó að keppnin hafi ekki verið eins
sterk og síðustu ár svona heilt yfir,
en í úrslitum hafi verið ákaflega
sterk pör. Keppnin var mjög
skemmtileg að hennar mati í flesta
staði, og mikil stemning í höllinni.
„Til gamans má geta þess að Íslend-
ingar fengu hrós frá kynni keppn-
innar fyrir góða framkomu og að
halda uppi stemningu á keppnis-
stað“ sagði Kara að lokum.
Hér er ætlunin að stikla aðeins á
stóru um árangur íslenzku paranna
um helgina og byrjum við á þeim
yngstu, sem er flokkur Börn I. Í
undanúrslitum í sígildum sam-
kvæmisdönsum í þessum flokki
dönsuðu tvö íslenzk pör, þau Sig-
urður Már Atlason og Sara Rós Jac-
obsdóttir og Alex Freyr Gunnarsson
og Vala Björk Birgisdóttir. Alex og
Vala dönsuðu sig alla leið inn í úrslit
og unnu þar til fimmtu verðlauna. Í
fyrstu þremur sætunum voru pör
frá Litháen og í því fjórða par frá
Danmörku. Það sama var uppá ten-
ingnum í suður-amerísku dönsunum
þar voru litháísk pör í fyrstu þrem-
ur sætunum, danskt í því fjórða,
úkraínskt í því fimmta og Alex
Freyr og Vala Björk í því sjötta.
Í flokki Börn II kepptu sjö íslenzk
pör í sígildum samkvæmisdönsum
og komust fimm þeirra í aðra um-
ferð. Alla leið í úrslit komust svo
Haukur Freyr Hafsteinsson og
Hanna Rún Óladóttir, þar sem þau
unnu til sjöttu verðlauna. Litháar
fóru enn og aftur með sigur af
hólmi. Í suður-amerísku dönsunum
komust tvö íslenzk pör í aðra um-
ferð og Haukur Freyr og Hanna
Rún komust í úrslit, þar sem þau
unnu bronsverðlaun á eftir dönsku
pari sem var í öðru sæti.
Í flokki Unglingar I kepptu sex
íslenzk pör, í sígildu samkvæmis-
dönsunum og komust þau öll í aðra
umferð beint. Þrjú íslenzk pör döns-
uðu svo í undanúrslitum, þau Þor-
leifur Einarsson og Ásta Björns-
dóttir og Arnar Georgsson og Tinna
Rut Pétursdóttir sem urðu í
6.–8.sæti. Sigurvegarar í þessum
flokku voru svo Jónatan Arnar Ör-
lygsson og Hólmfríður Björnsdóttir
og voru þau vel að þeim sigri komin.
Það vakti hinsvegar eftirtekt að ein-
ungis 5 pör dönsuðu í úrslitum í
þessum flokki, en ekki átta, þar sem
slíkt hafði verið uppá teningnum í
eldir flokki daginn áður. Það hefði
auðvitað engu breitt um úrslitin en
annað íslenzkt par hefði þá dansað
til úrslita. Í suður-amerísku döns-
unum var það sama uppi á teningn-
um. Þar dönsuðu þrjú íslenzk pör í
undanúrslitum. Það voru Stefán
Claessen og María Carrasco, Jón-
atan Arnar Örlygsson. Þorleifur
Einarsson og Ásta Bjarnadóttir
komust svo alla leið í úrslit og unnu
þar til bronsverðlauna. Hér dönsuðu
einnig fimm pör í úrslitum en ekki
átta eins og vaninn er þegar þrjú
pör eru jöfn í 6.-8. sæti og þar voru
einmitt Jónatan Arnar og Hólmfríð-
ur.
Í flokki Unglingar II komst eitt
íslenzkt par í úrslit og gerðu þau sér
lítið fyrir og unnu til bronsverð-
launa. Það voru þau Davíð Gill Jóns-
son og Helga Björnsdóttir. Í fyrsta
sæti var par frá Póllandi og í öðru
sætir par frá Danmörku. Til gamans
má geta þess að Helga og Hólm-
fríður, í flokki Unglingar I, eru syst-
ur. Þær gerðu því góða ferð til
Kaupmannahafnar. Í flokki ung-
menna komst Ásta Sigvaldadóttir
lengst Íslendinga í sígildu sam-
kvæmisdönsunum en hún og dans-
herrann hennar urðu í 6. sæti. Hún
dansar við hinn danska Micki Chow
og keppa þau undir fána Danmerk-
ur.
Engin íslenzk pör komust í und-
anúrslit í flokki ungmenna né heldur
í flokki áhugamanna. Í sígildu sam-
kvæmisdönsunum sigraði danska
parið Brian Eriksen og Marianne
Eihilt í suður-amerísku dönsunum
sigraði einnig danskt par Klaus
Kongsdal og Viktoria Franova. Dan-
ir áttu einnig par í öðru sæti þau
Peter Stokkerbro og Kristina Juel.
Í flokki 50 ára og eldri komust
hinsvegar tvö pör í undanúrslit þau
Jón Eiríksson og Ragnhildur Sand-
holt og Björn Sveinsson og Berg-
þóra M. Bergþórsdóttir. Þau síðar-
nefndu fóru alla leið í úrslit og unnu
þar til fjórðu verðlauna.
Hægt er að nálgast öll úrslit frá
Opnu Kaupmannahafnarkeppninni
á vefslóðinni www.copenhagenop-
en.dk. Þar er einnig hægt að nálgast
úrslit keppninnar 2001 og eins að
skrá sig á næstu keppni sem haldin
verður að ári.
Ég held mér sé óhætt að óska ís-
lenzku keppendunum til hamingju
með þeirra árangur í keppninni.
Vonandi verður hann þeim leiðarljós
til frekari afreka á sviði dansíþrótt-
arinnar.
Jónatan og
Hólmfríður unnu
gullverðlaun
DANS
Valbyhallen í Kaupmannahöfn
OPNA KAUPMANNAHAFNARKEPPNIN
Opna Kaupmannahfnarkeppnin í dansi
var haldin 15. til 17. febrúar.
Jóhann Gunnar Arnarsson
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 39
Bridsfélag
Kópavogs
Fimmtudaginn 14. febrúar var
spilað þriðja kvöldið í aðalsveita-
keppni félagsins og er staða efstu
sveita þannig.
1. sv. Jón Stefánsson 104
2. sv. Vilhjálms Sigurðss jr. 96
3. sv. Birgir Ö. Steingr 94
4. sv. Hrafnhildur Skúlad. 92
Keppnin heldur áfram fimmtu-
daginn 21. febrúar.
Spilað er í Þinghól í Hamraborg-
inni og hefst spilamennska kl.19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Eldri borgarar í Hafnarfirði spila
brids, tvímenning, í Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50 tvisvar í viku, á
þriðjudögum og föstudögum. Mæt-
ing kl. 13.30.
Spilað var 12. febrúar. Þá urðu úr-
slit þessi:
Sófús Perthelsen – Hermann Valsteinss. 87
Árni Bjarnas. – Sævar Magnúss. 83
Árni Guðmundss. – Einar Ólafss. 81
Sverrir Gunnarss. – Nanna Eiríksd. 80
15. febrúar:
Árni Bjarnas. – Sævar Magnúss. 98
Sigurlína Ágústsd. – Guðm. Guðmundss. 90
Jón Ó. Bjarnas. – Jón R. Guðmundss. 77
Jón Gunnarss. – Sigurður Jóhannss. 76
Félag eldri borgara
í Kópavogi
21 par mætti í tvímenninginn
þriðjudaginn 12. febrúar og voru
spiluð 27 spil með Mitchell-fyrir-
komulagi. Lokastaðan í N/S:
Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 261
Hreinn Hjartarson – Ragnar Björnss. 254
Guðm. Magnússon – Þórður Jörundsson
253
Hæsta skor í A/V:
Alfreð Kristjánss. – Jóhannes Guðmss. 262
Garðar Sigurðsson – Sigtryggur Ellertss.
253
Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 235
Það mætti einnig 21 par sl. föstu-
dag og þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss.
264
Anna Jónsdóttir – Sigurrós Sigurðard. 257
Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 240
Hæsta skor í A/V:
Stefán Ólafss. – Sigurjón H. Sigurjónss.
248
Eysteinn Einarss. – Jón Stefánss. 244
Gísli Kristjánss. – Gunnar Benónýss. 236
Meðalskor báða dagana var 216.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er
óskað eftir tilboðum í Dúkalagnir fyrir ýmsar
fasteignir Reykjavíkurborgar — 2002.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á 3.000
kr. Opnun tilboða 26. febrúar 2002 kl. 11:00
á sama stað.
FAS 12/2
TIL SÖLU
Antik
Ein elsta antikverslunin er til sölu vegna
námsdvalar. Góð sambönd og þekking hér-
lendis og erlendis. Kennsla fyrir kaupanda.
Kaup á húsnæði eða langtímaleiga.
Áhugasamir svari á auglýsingadeild Mbl. eða
á box@mbl.is merkt: „Skemmtilegur rekstur
— 12014“, fyrir 27. febrúar.
Vélar til sölu
Til sölu eftirtaldar vélar fyrir pillur/vítamín:
Talningavél, lok-ásetningavél, miðaásetninga-
vél og móttökuborð. Vélarnar eru í góðu standi.
Til sýnis og sölu hjá Sigurjóni í síma 893 1808.
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir, Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Bíbí Ólafsdóttir,
Erla Alexandersdóttir, Mar-
grét Hafsteinsdóttir og Garð-
ar Björgvinsson michael-mið-
ill starfa hjá félaginu og bjóða fé-
lagsmönnum og öðrum uppá
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, einka-
tíma og tímapantanir eru alla
virka daga ársins frá kl. 13—18.
Utan þess tíma er einnig hægt
að skilja eftir skilaboð á sím-
svara félagsins.
Netfang: mhs@vortex.is .
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18 1822208 Bk.
I.O.O.F. 7 1822207½ FI.
I.O.O.F. 9 1822208½ 9.II
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
HEKLA 6002022019
Stofnfundur stúkunnar.
Fundur á I stigi.
Samkoma í Kristniboðssaln-
um í kvöld kl. 20.30. Elísabet
Jónsdóttir og Bjarni Gíslason sjá
um efni samkomunnar.
Allir hjartanlega velkomnir.
sik.is.
Etherikos-námskeið
Lífsorkuheilun
Heilun með erkienglum 2. og
3. mars. Hinar nýju reglur erki-
engla og þeirra orka kynnt og
hvernig við getum haft aðgang
að henni til heilunar.
Grunnnámskeið í Lífsorku-
heilun — Etherikos 1. og 4.
mars. Kynntar verða árangurs-
ríkar leiðir til að heila okkur sjálf
og aðra. Kennari er geðlæknirinn
og heilarinn Nick Demetry M.D.,
sem komið hefur til Íslands und-
anfarin ár og kennt hópi fólks. Að
þessu sinni býður Nick upp á
einkatíma í heilun 1. og 4. mars.
Upplýsingar gefur Kristín í síma
557 7809.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNA
mbl.is