Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 41
ORRI Vésteinsson fornleifa-
fræðingur heldur fyrirlestur í
Sjóminjasafni Íslands, Vest-
urgötu 8 í Hafnarfirði,
fimmtudaginn 21. febrúar kl.
20.30.
Fyrirlesturinn fjallar um
hinn forna kaupstað Gásir við
Eyjafjörð og er hann í boði
Rannsóknarseturs í sjávarút-
vegssögu og Sjóminjasafns Ís-
lands.
Í fyrirlestrinum fjallar dr.
Orri um sögu Gása, einkum í
ljósi fyrri rannsókna og þeirra
álitamála sem fræðimenn hafa
glímt við varðandi þennan
minjastað.
Einnig mun hann gera
grein fyrir athugunum sem
gerðar voru á Gásum sumarið
2001 og segja frá áætlunum
Minjasafnsins á Akureyri um
fornleifarannsóknir á Gásum
á næstu árum. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir,
segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur
um Gásir
við Eyjafjörð
FYRIRLESTUR á vegum Rauða
krossins um viðbrögð við áföllum í
skóla verður haldinn í dag, miðviku-
dag kl. 9 og 12 á Grand hótel í
Reykjavík. Hvernig útskýrir kenn-
ari andlát nemanda fyrir bekkjar-
félögunum? Hvað getur skólafólk
gert ef stórslys verður í litlu bæj-
arfélagi? Hvernig bregst skóla-
stjórnandi við alvarlegu áfalli meðal
kennara eða nemenda?
Erindi heldur Kendall Johnson,
bandarískur sérfræðingur í áfalla-
hjálp. Í kjölfar atburðanna 11. sept-
ember hefur hann meðal annars
þjálfað námsráðgjafa og kennara í
skólum New York borgar þannig að
þeir geti brugðist við ótta meðal
skólabarna.
Einkum er gert ráð fyrir að kenn-
arar og skólastjórnendur mæti á fyr-
irlesturinn, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlestur um
viðbrögð við
áföllum í skóla
MÁLSTOFA uppeldis- og menntun-
arfræðiskorar verður haldin fimmtu-
daginn 21. febrúar kl. 12 – 13 í stofu
201 í Odda og nefnist Ósýnilegar fjöl-
skyldur: Seinfærar/þroskaheftar
mæður og börn þeirra.
Hanna Björg Sigurjónsdóttir og
Rannveig Traustadóttir kynna rann-
sókn sína um seinfærar/þroskaheft-
ar mæður og börn þeirra. Allir vel-
komnir.
Rannsóknin beinist að þremur
kynslóðum mæðra og rekur mögu-
leika þeirra til barneigna og fjöl-
skyldulífs á 50 ára tímabili (1950-
2000). Rannsóknin er sú fyrsta um
þetta efni hér á landi. Dregin verður
upp mynd af lífi og aðstæðum mæðr-
anna sem tóku þátt í rannsókninni,
uppeldisaðstæðum, tengslum þeirra
við börn sín, stuðningi frá stórfjöl-
skyldunni og samskiptum við hið fé-
lagslega þjónustukerfi. Þá verður
rakin saga þriggja uppkominna
barna elstu mæðranna og hvaða
áhrif það hefur haft á líf þeirra að
eiga seinfæra/þroskahefta móður,
segir í fréttatilkynningu.
Málstofa um
ósýnilegar
fjölskyldur
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi stendur fyrir nám-
skeiðinu; „Vatn í görðum“ í húsa-
kynnum skólans, föstudaginn 22.
febrúar frá klukkan 9–15. Nám-
skeiðið er fyrir fagfólk þar sem
fjallað verður um viðfangsefnið frá
mörgum hliðum. Námskeiðið endar
síðan á sérstakri vatnasýningu í
verknámshúsi skrúðgarðyrkjunnar í
boði Garðheima.
Leiðbeinendur verða Halldór Jó-
hannsson, landslagsarkitekt hjá
Teikn á lofti á Akureyri, Friðrik
Baldursson, garðyrkjustjóri Kópa-
vogsbæjar, Þorkell Gunnarsson,
skrúðgarðyrkjumeistari, ásamt
Baldri Gunnlaugssyni og Ólafi Mel-
sted frá Garðyrkjuskólanum. Þá
mun Svavar Björgvinsson frá Garð-
heimum hafa yfirumsjón með vatna-
sýningunni.
Skráning og allar nánari upplýs-
ingar um námskeiðið fást á skrif-
stofu Garðyrkjuskólans eða í gegn-
um netfangið; mhh@reykir.
Námskeið
um vatn
í görðum
JARÐHITAFÉLAG Íslands held-
ur málþing í Norræna húsinu
fimmtudaginn 21. febrúar með yf-
irskriftinni „Hvernig á að standa
að rannsókn og virkjun jarðhita-
svæðis?“ Skráning og afhending
gagna er frá 12.45 og dagskrá mál-
þingsins hefst kl. 13.15 með ávarpi
Guðmundar Pálmasonar, formanns
félagsins.
Erindi halda: Valgarður Stefáns-
son yfirverkefnisstjóri, Kristján
Sæmundsson deildarstjóri, Franz
Árnason forstjóri, Albert Alberts-
son aðstoðarforstjóri, Einar Gunn-
laugsson og Ingólfur Hrólfsson
sérfræðingar hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Pallborðsumræður
verða undir stjórn Stefáns Arnórs-
sonar prófessors.
Málþingið er öllum opið meðan
húsrúm leyfir og er þátttökugjald
kr. 2.500. Innifalið er kaffi og ráð-
stefnugögn. Tilkynna þarf þátttöku
í síma eða á netfang, eddab@fjar-
hitun.is.
Vinnsla raforku úr jarðhita á Ís-
landi hefur næstum fjórfaldast á
síðastliðnum fjórum árum og hlut-
fallslega er þetta mesta aukning í
heiminum. Þannig hefur hlutur
jarðvarmavirkjana í rafmagns-
framleiðslu landsins vaxið ört og er
framleiðslugetan nú 90 MW á
Nesjavöllum, 45 MW hjá Hitaveitu
Suðurnesja og 60 MW í Kröflu,
segir í fréttatilkynningu.
Málþing
Jarðhita-
félagsins
VEIÐIKONUR í SVFR verða
með opið hús í sal félagsins,
Háaleitisbraut 68, föstudaginn
22. febrúar kl. 20.30. Stelpurn-
ar í veiðihópnum Legin/n verða
með veiðisögur og myndasýn-
ingu.
Veiðileiðsögn verður um
svæði Alviðru í Soginu. María
Ellingsen lýsir viðureign sinni
við stórlax síðastliðið sumar.
Happdrætti. Allar veiðikonur
velkomnar, segir í fréttatil-
kynningu.
Opið hús
hjá veiðikon-
um SVFR
STEINSTEYPUFÉLAG Íslands
stendur nú í sextánda sinn fyrir
Steinsteypudegi. Á ráðstefnunni,
sem er opin öllu áhugafólki um stein-
steypu, eru gjarnan kynntar nýjustu
rannsóknir á sviði steinsteypu, sagt
frá áhugaverðum nýjungum og
fjallað um það sem er efst á baugi
hverju sinni. Flutt verða ellefu erindi
sem koma víða að, auk annarra uppá-
komna.
Ráðstefnan verður haldin á Grand
hóteli Reykjavík, föstudaginn 22.
febrúar næstkomandi. Þátttökugjald
er 13.000 krónur og er innifalið í því
ráðstefnugögn, fjölrituð í möppu, há-
degisverður, kaffiveitingar og veit-
ingar í lok Steinsteypudags.
Hægt er að tilkynna þátttöku með
tölvupósti til steypais@mmedia.is.
Erindi halda m.a.: Gylfi Sigurðs-
son, formaður Steinsteypufélagsins,
Hákon Ólafsson, forstjóri RB, Þor-
geir S. Helgason, Bergspá ehf., Guð-
mundur Gunnarsson yfirverkfræð-
ingur, Pétur Ingólfsson verkfræð-
ingur, Eyjólfur Árni Rafnsson
verkfræðingur, Ólafur Wallevik
verkfræðingur, Björn Täljsten hjá
Luleå University of Technology, og
Guðni Jónsson verkfræðingur.
Steinsteypu-
dagur
FJALLAÐ verður um málefni út-
lendinga og sérstöðu þeirra sem
minnihlutahóps á þverfaglegu nám-
skeiði hjá Endurmenntun HÍ dagana
25. og 26. febrúar.
Gerð verður grein fyrir því hvað
felst í fjölmenningarlegri uppeldis-
stefnu, áhrifum ólíkra trúarbragða á
samskipti, þjóðernishugmyndum og
fordómum. Umsjón með námskeiðinu
hefur Edda Ólafsdóttir félagsráðgjafi
en aðrir fyrirlesarar eru Bjarney
Friðriksdóttir, Bára Snæfeld, Guðrún
Péturdóttir, Katrín Thuy, Friðbjörg
Ingimarsdóttir, Þórhallur Heimisson
og Þorgerður Þorvaldsdóttir.
Nánari upplýsingar og skráning:
www.endurmenntun.is
Sérstaða
útlendinga
Í TILEFNI af fréttaflutningi á
undanförnum dögum um meint
PAH-eiturefni í ólífuolíum óskar
Innnes ehf., umboðsaðili Filippo
Berio á Íslandi, eftir að koma eft-
irgreindu á framfæri:
1. „Í fréttunum er vitnað til rann-
sóknar sem gerð var af Norweg-
ian Institute for Water Research
fyrir Livsmedelverket í Svíþjóð,
sem gegnir svipuðu hlutverki og
Hollustuvernd ríkisins hér á
landi. Þvert á afdráttarlausar
niðurstöður fjölda rannsókna sem
gerðar hafa verið víða um heim
af viðurkenndum og sérhæfðum
rannsóknarstofum í matvælaiðn-
aði kemst norska vatnsrann-
sóknafyrirtækið að þeirri niður-
stöðu að magn PAH-eiturefnisins
fari yfir leyfileg mörk í nokkrum
tegundum ólífuolía. Í kjölfar
þeirra niðurstaðna kannaði Holl-
ustuvernd ríkisins innflutning
hingað til lands á Filippo Berio-
olíum og gaf út yfirlýsingu hinn
3. október sl. um að ekki væru
gerðar athugasemdir við vörurn-
ar.
2. PAH-efnið finnst víða í menguðu
andrúmslofti og sest að lokum í
jarðveginn. Efnið mælist því í
fjölmörgum landbúnaðarvörum
en í langflestum tilfellum í afar
litlu og vart mælanlegu magni. Í
kjölfar norsku rannsóknarinnar
voru fjórir óháðir aðilar fengnir
til þess að rannsaka olíur úr
sama lotunúmeri, þ.e. olíu frá
sama framleiðanda úr hráefni frá
sama héraði og sama tíma. Nið-
urstöður þeirra voru allar á þann
veg að PAH-magn væri langt
undir viðmiðunarmörkum. Írsk
heilbrigðisyfirvöld gerðu einnig
úttekt á olíum úr sama lotunúm-
eri og komust að þeirri niður-
stöðu að varan væri óaðfinnanleg.
Livsmedelverket í Svíþjóð hefur
nú tekið niðurstöður norsku
rannsóknarinnar af heimasíðu
sinni og framleiðandi Filippo
Berio hefur stefnt stofnuninni
fyrir sænska dómstóla og sömu-
leiðis dómstóla Evrópusambands-
ins í Brussel.
3. Innnes fagnar þeirri ákvörðun
Hollustuverndar ríkisins að taka
innfluttar matarolíur til sérstakr-
ar athugunar. Ítalska fram-
leiðslufyrirtækið Salov grundvall-
ar framleiðslu sína á Filippo
Berio-ólífuolíum og sterka mark-
aðshlutdeild hennar víða um
heim á afdráttarlausum gæðum
og hreinleika. Er vonandi að nið-
urstöður Hollustuverndar ríkisins
komi sem allra fyrst svo tekin
verði af öll tvímæli um hollustu
vörunnar.
4. Bréfi með tilvitnun í norsku
rannsóknina og fréttaflutning af
henni, ásamt ýmsum órökstudd-
um dylgjum og rógburði um Fil-
ippo Berio hefur að undanförnu
bæði verið dreift í nafnlausum
pósti og rafpósti, m.a. til við-
skiptavina Innness og fjölmiðla.
Bréfinu er dreift af samkeppn-
isaðila Innness og mun fyrirtæk-
ið að sjálfsögðu leita réttar síns
gagnvart þeim útsendingum og
vinnubrögðum með viðeigandi
hætti.“
Yfirlýsing
vegna frétta af
ólífuolíum
BOB Nicholson, forseti Íshokkí-
sambands Kanada, afhjúpar mál-
verk af Fálkunum, vestur-íslenska
íshokkíliðinu frá Winnipeg, við sér-
staka athöfn á Vetrarólympíuleik-
unum í Salt Lake City á morgun.
Við þetta tækifæri heldur Bob
Nicholson ávarp þar sem hann und-
irstrikar að Fálkarnir voru fyrstu
ólympíumeistarar Kanada í íshokk-
íi, en þeir urðu meistarar þegar ís-
hokkí varð fyrst ólympíugrein á
leikunum í Antwerpen í Belgíu
1920.
Eins og greint hefur verið frá á
þessum vettvangi og síðast í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins 3. febr-
úar sl. tilkynnti Íshokkísamband
Kanada síðsumars að merki Tor-
onto Granites, ólympíumeistaranna
1924, yrði á keppnistreyjum kan-
adíska landsliðsins á leikunum í
Salt Lake City. Þetta féll víða í
grýttan jarðveg og í kjölfarið fór
fjáröflunarnefndin The United Ice-
landic Appeal, Sameinað íslenskt
átak, af stað með söfnun til að halda
merki Fálkanna á loft, en allir leik-
menn liðsins nema einn voru af
annarri kynslóð Íslendinga í Winni-
peg. Sýning á munum og hlutum,
sem tengjast Fálkunum, verður í
„Íslandshúsinu“ í Tomax-bygging-
unni í Salt Lake City meðan á leik-
unum stendur og að sögn Daniels
Johnsons, forseta fjáröflunarnefnd-
arinnar, hefur Íshokkísamband
Kanada nú ákveðið að leggja
áherslu á stöðu Fálkanna, sem beri
að þakka. Í stað þess að vera með
merki Granites á keppnistreyj-
unum er merki til minningar um
alla ólympíumeistara Kanada í ís-
hokkíi og myndir af öllum ólympíu-
meisturum karla og kvenna frá
Kanada eru í búningsherbergjum
karla- og kvennaliða Kanada á leik-
unum.
Eric Olafson, eigandi Tomax, bað
Íþrótta- og ólympíusambandið um
að útvega sér stóran fána og er Ís-
landshúsið nú rækilega merkt en
Silkiprent útbjó 7 x 10 m fána fyrir
Íþrótta- og ólympíusamband Ís-
lands og hangir hann á framhlið
hússins ásamt merki sambandsins.
Marno Olafson, stjórnarmaður í
nefndinni, sem verður fulltrúi ís-
lenska samfélagsins í Manitoba við
afhjúpun málverksins, segir að
réttlætið hafi sigrað og nú gangi
allir sameinaðir til verks með Ís-
hokkísamband Kanada í broddi
fylkingar og það sé sérstakt
ánægjuefni.
Íshokkísamband Kanada á sveif með Fálkunum
Forsetinn afhjúpar
málverk af Fálkunum
Ekki fer á milli mála hvar höfuðstöðvar Íslands eru í Salt Lake City
vegna Vetrarólympíuleikanna, en Tomax-byggingin er rækilega merkt
meðan á ólympíuleikunum stendur.
AÐALFUNDUR Félags kennara í
málmiðngreinum harmar þá óvissu
sem uppi er í menntunarmálum
greinarinnar.
Í ályktun segir að menntamála-
ráðuneytið virðist ekki hafa mótað
hugmyndir um með hvaða hætti
menntunarmálum málmiðngreina
verði skipað. „Fundurinn átelur það
afskiptaleysi sem æðsta yfirstjórn
skólamála landsins sýnir fagfólki í
kennslu málmiðngreina, með því að
leita í engu til þess um álit og tillögur
varðandi málefni sem skólarnir eiga
að vinna að og framfylgja,“ segir í
ályktuninni.
Harma óvissu
í menntamál-
um málmiðn-
aðarmanna