Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 44

Morgunblaðið - 20.02.2002, Page 44
DAGBÓK 44 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Lud- vig Andersen, Nordic Ice, Venus, Haukur og Hermann Sibum koma í dag. Selfoss og Detti- foss koma og fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss fer frá Straums- vík í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551-4349, flóamark- aður, fataúthlutun og fatamóttaka sími 552- 5277 eru opin miðvikud. kl. 14–17. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Svarað í síma Krabba- meinsráðgjafarinnar, 800-4040 kl. 15–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa og postulínsmálning. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan. Allar uppl. í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur, kl. 13– 16 vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudög- um kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga föstudaga kl. 11. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ, á Hlaðhömrum fimmtu- daga kl. 17–19. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi s. 586-8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566-8060 kl. 8–16. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- og handa- vinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrj- endur. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Fimmtudag- inn 21. feb. verður farið í Þjóðleikhúsið að sjá Önnu Karenínu kl. 20. skráning í s. 565-6622 eftir hádegi. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Á morgun pútt í Bæj- arútgerð kl. 10–11:30. Félagsmiðstöðin Hraunsel verður lokuð vegna flutnings í Flata- hraun 3 í næstu viku 18. til 22. feb. Vígsla nýrrar félagsmiðstövar verður laugard. 23. feb. kl. 14. Leikhúsferð verður á morgun fimmtud. í Borgarleikhúsið að sjá Boðorðin níu. Upplýs- ingar í Hraunseli s. 555- 0142. Rúta frá Hraun- seli kl. 19:15. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádeginu. Göngu-Hrólfar fara í göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Söngfélag FEB söngæfing kl. 17. Línu- danskennsla kl. 19.15. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, Söng og gam- anleikinn Í lífsins ólgu- sjó og Fugl í búri, dramatískan gamanleik. Sýningar: Miðviku- og föstudaga kl. 14 og sun- nud. kl. 16. Miðapant- anir í s: 588-2111, 568- 8092 og 551-2203. Ferð á vegum Fræðslu- nefndar FEB á Lista- safn Íslands í dag kl. 14. Mæting við Listasafnið. Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verður haldinn í Ásgarði, Glæsibæ sunnudaginn 24. feb. kl. 13.30. Árshátíð FEB verður haldin 1. mars í Versölum, Hallveig- arstíg 1. Húsið opnað kl. 19, borðhald hefst kl. 19.30. Námskeið í fram- sögn og upplestri er fyr- irhugað í byrjun mars ef næg þátttaka fæst, leið- beinandi Bjarni Ingv- arsson. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaík og gifsafsteypur, kl. 9– 13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16, blöð- in og kaffi. Þorrablótið verður 22. febrúar, til- kynna þarf þátttöku í síma 568-3132. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16. 30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá há- degi spilasalur opinn, veitingar í veitingabúð. Fimmtudaginn 28. feb. Leikhúsferð í Borg- arleikhúsið, Boðorðin níu, skráning hafin. Fé- lagsvist verður 28. feb. kl. 13.15 í samstarfi við Seljaskóla, allir vel- komnir, verðlaun. Upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10 handavinna, kl. 10.30 boccia, kl. 11 hæg leikfimi, kl. 13 félagsvist FEBK og glerlist, kl. 15.15 söngur, Guðrún Lilja mætir með gít- arinn, kl. 15–16 viðtals- tími FEBK, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró- leg stólaleikfimi, kl. 13 keramikmálun. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur – klippi- myndir, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 13:30 göngu- ferð, kl. 14 dans, kl. 15 frjáls dans, kl. 15 teikn- un og málun. Fótaað- gerð, hársnyrting. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun, fimmtudag 21. febrúar, kl. 10 í keilu í Mjódd. Spiluð keila, spjallað og heitt er á könnunni. All- ir velkomnir. Upplýs- ingar veitir Þráinn Haf- steinsson í s. 5454-500. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Félagsstarfið er opið öllum aldurs- hópum, allir velkomnir. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13– 14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fóta- aðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaum- ur, kl. 12.30 versl- unarferð, kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 15.30 kóræfing. Kirkjuferð í Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði. Uppl. í síma 561- 0300. Sjálfsbjörg, félagsheim- ilið Hátúni 12. kl. 19.30 félagsvist. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Opið hús í dag kl. 14. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson og Daníel Jón Jónasson leika á saxófón og orgel. Sr. Lárus Halldórsson flyt- ur hugvekju. Bílferð fyrir þá sem þess óska. Upplýsingar veitir Dag- björt í síma 510-1034. Nafnlausi leikhópurinn í Kópavogi Samlestur í dag kl. 17.05 í Gjábakka. Þeir sem vilja taka þátt í að skapa sýningu í til- efni af tíu ára afmæli leikhópsins velkomnir. Samvinna við Hana-nú. Leikstjóri: Ásdís Skúla- dóttir. Upplýsingar gef- ur Sigríður Sörens- dóttir: s.554-5966 824-5966. Kvenfélagið Aldan, fundur í kvöld, mið- vikudagskvöldið 20. febrúar, kl. 20.30 í Borgartúni 18, 3. hæð. Góðir gestir koma í heimsókn. Látið sjá ykkur. Í dag er miðvikudagur 20. febrúar, 51. dagur ársins 2002. Imbrudagar. Orð dagsins: Þá sagði Jesús við þá: „Skamma stund er ljósið enn á með- al yðar. Gangið, meðan þér hafið ljósið, svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá, sem gengur í myrkri, veit ekki, hvert hann fer.“ (Jóh. 12, 35.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 andvíg, 8 guðhrætt, 9 stúlkan, 10 frístund, 11 rétta við, 13 ákvarða, 15 mús, 18 mikið, 21 nár, 22 tjón, 23 vesæll, 24 pretta. LÓÐRÉTT: 2 vanvirða, 3 drembna, 4 kaffibrauðstegund, 5 sér eftir, 6 mjög, 7 flanið, 12 læt af hendi, 14 útlim, 15 meltingarfæri, 16 brot- sjór, 17 ávöxtur, 18 þrjót, 19 trylltur, 20 hreina. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 hlífa, 4 eggja, 7 geymt, 8 ramba, 9 trú, 11 alda, 13 unna, 14 kætir, 15 sæma, 17 tarf, 20 ara, 22 látún, 23 unnið, 24 afana, 25 terta. Lóðrétt: 1 hagga, 2 ímynd, 3 autt, 4 edrú, 5 gaman, 6 ap- ana, 10 Rútur, 12 aka, 13 urt, 15 súlda, 16 motta, 18 asn- ar, 19 fiðla, 20 anga, 21 aumt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... HELDUR finnst Víkverja hvim-leitt í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar að búið er að byrgja gluggann milli komusalar stöðvarinnar og sal- arins þar sem menn bíða eftir þeim sem verið er að sækja úr flugi. Þannig geta menn nú ekki lengur fylgst með farþegum ganga ofan stigann af efri hæðinni til að skella sér í verslun eða bíða eftir töskum sínum. Ekki er Víkverja með öllu ljóst hverju þetta sætir. Öryggisástæður hafa þó verið nefndar. Er það lík- lega til þess að farþegar og þeir sem bíða frammi geti ekki skipst á leyni- legum orðsendingum. Víkverja skortir ímyndunarafl til að finna út í hverju slík samskipti gætu verið fólgin en þau gætu kannski snúist um að ekki skuli koma með „farm- inn“ í gegn eða eitthvað slíkt; að sá sem bíður frammi vari farþegann við ef eitthvað hindrar til dæmis smygl. Eða vari hann við ef einhver óæskilegur er á ferli. Er þetta raun- veruleikinn eða eru þetta áhrif glæpa- og njósnamynda? Ekki trúir Víkverji því að þeir sem á annað borð þurfa að ná einhverju sam- bandi eða koma upplýsingum sín á milli við þessar aðstæður láti byrgð- an glugga hindra sig í þeim efnum. Fram að þessu hefur Víkverji verið svo grænn að líta á þennan glugga sem saklausa og skemmti- lega leið til að fylgjast með sínum nánustu þegar þeir eru að myndast við að koma sér í gegnum tollhliðin með farangur sinn. Farþegar sjá líka hvort einhver þeim nákominn er að sækja þá og geta kannski and- að léttar. En hver sem ástæðan er og hvort sem menn þurfa að búa við þessa byrgðu glugga til frambúðar eða ekki er þetta hvimleitt. Er ekki hugsanlegt að endurskoða þetta? x x x FYRIR nokkru var rútubílstjóridæmdur af Hæstarétti til refs- ingar þar sem hann var talinn hafa valdið manndrápi af gáleysi. Bíl- stjórinn hefur haldið uppi vörnum eftir að þessi dómur féll og haldið fram ábyrgð annarra sem hann seg- ir að sé ekki síðri en eigin ábyrgð án þess að hann vilji skorast undan henni. Í umræðunni hefur hann bent á eitt atriði sem Víkverja fannst allrar athygli vert. Það er spurningin um reynsluna og hvar eigi að fá hana. Venjulega er það svo að ungum eða nýjum bílstjórum er í fyrstunni falið að aka litlum rútum. Með því fái þeir ákveðna reynslu sem geri þá smám saman hæfa til aksturs stórra bíla. En bílstjórinn áðurnefndi spurði líka hvernig bílstjórar ættu að öðlast reynslu, hvort rútufyrir- tækin ættu að senda bílstjóra á tóm- um rútum um landið til að æfa sig. Er það nokkuð út í hött? Varla get- ur það kostað nein ósköp að láta bíl- stjóra fara hringinn á rútu til að fá almennilega tilfinningu fyrir bíl og vegum. Best væri að tveir færu saman og kannski einn reynslubolti með þeim til að fullt gagn yrði að slíkum túr. Þá væri hægt að skoða hætturnar og ræða málin. Kannski er þetta gert þegar í dag hjá einhverjum rútufyrirtækjum. Ef ekki, hver vill ríða á vaðið? Í það minnsta er Víkverji á því að nem- endur séu settir í of fáa verklega tíma fyrir rútupróf. Víkverji fór í fimm tíma ef hann man rétt. Og má þá keyra stærstu rútur. Þyrfti ekki að bæta við tímum og gefa mönnum færi á að fá meiri reynslu áður en þeir halda út í alvöruna? Þakkir til Stöðvar 2 KÆRAR þakkir til Stöðvar 2 fyrir þáttinn um hol- lenska fiðluleikarann Andr- eo Rio, sem var á dag- skránni hinn 11. febrúar sl. Hann er sá alskemmtileg- asti sem sést hefur í sjón- varpinu. Tónlistin er ynd- isleg og stemmingin svo mikil, að allir heima í stofu voru á iði með sælubros á vör. Vonandi verður hann endursýndur. Kærar þakkir, áhorfendur. Ólympíu- leikarnir SIGRÍÐUR hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri óánægju sinni með að ekki væri sýnt frá Ólympíuleikunum í Rík- issjónvarpinu nema smá- skot í kvöldfréttatímunum. Það hefur verið sýnt frá Ól- ympíuleikunum síðastliðin 30 ár. Það er fullt af fólki út um allt land sem hefur áhuga á að fylgjast með leikunum. Það er til skammar að Ríkissjón- varpið skuli vera svona fjársvelt í góðæri ríkis- stjórnarinnar. Bónus og heiðarlegt fólk KÆRAR þakkir til starfs- fólks Bónuss í Skeifunni og ekki síður til þeirra heiðar- legu viðskiptavina sem tóku til handargagns og skiluðu veski gamallar konu föstudaginn 15. febr- úar sl. Ennþá kemur í ljós að meirihluti fólks er góður og heiðarlegur. Hjartans þakkir, Valgerður Jónsdóttir. Tapað/fundið Prjónavettlingar töpuðust ÍSLENSKIR prjónavett- lingar, svartir og hvítir með íslensku munstri, töpuðust á stoppistöðinni fyrir fram- an M.H. fyrir stuttu. Upp- lýsingar í síma 568-7939. Bíllykill tapaðist BÍLLYKILL að Hondu tapaðist í Kringlunni fimmtud. 4. janúar sl. Lykillinn er með merk- inu H (fyrir Hondu) og er einn á hring, ásamt fjarlæs- ingu. Hafi einhver fundið lykilinn vinsaml. hringið í s. 690-2313. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÚTVARPSSTÖÐIN FM 967 auglýsir að í febr- úarmánuði muni sömu lögin ekki verða end- urtekin á þeirra útvarps- rás á milli kl. 9 og 17 alla virka daga. Þó er tekið fram, að auðvitað geti mönnum orðið á, og fari svo, að sömu lögin séu spiluð á þessum tíma, fái sá sem geti bent á end- urtekninguna 96.700 kr. í sinn hlut. En ekki er allt sem sýnist. Í ljós kemur nefnilega, að starfsmenn útvarps- stöðvarinnar hafa sett sér eigin reglur án þess að kynna þær fyrir hlust- endum. Endurtekningin snýst ekki um hvort sama lagið heyrist milli kl. 9 og 17 heldur snúast regl- urnar um, hvort allt lagið er endurtekið, þ.e. hvort lagið e sett á eftir klukk- an níu og hvort því sé lok- hringdi aftur sagði hann að lagið hefði verið sett á þegar klukkuna vantaði þrjár mínútur í níu (!) en í ljós kom að klukkunni hjá honum bar saman við mína. Þarna stóðu hans orð gegn mínum. Annar starfsmaður sagði, eftir að hafa kannað málið, að um endurtekningar giltu fyrrgreindar reglur, þó svo að hann viðurkenndi, að þær hefðu hvergi verið auglýstar eða kynntar. Hann sagðist hins vegar hafa bent dagskrárgerð- armanninum á, að auðvit- að væri snjallræði að kynna hlustendum regl- urnar. Við ræddum aftur á móti ekki um hvenær lagið hefði verið spilað. Dæmi hver fyrir sig, en í mínum huga eru þetta ekki heiðarlegir við- skiptahættir. Hildur Friðriksdóttir. ið fyrir kl. 17. Annars telst ekki um endurtekn- ingu að ræða. Í mínum augum er hér ekkert um smámál að ræða, heldur tæpan 100 þúsund kall! Föstudaginn 15. febr- úar sl. brá svo við, að ákveðið lag var „í loftinu“ rétt upp úr kl. 9 og síðan aftur um kl. 11.15. Hringt var í útvarpsstöðina til að benda á þessa endurtekn- ingu. Dagskrárgerð- armaðurinn sagðist ekki vera með þetta á hreinu en sagðist mundu kanna það og hringja til baka. Ég sagði honum að hugs- anlegt væri, að byrjað hefði veri að spila lagið þegar klukkuna vantaði eina mínútu í níu vegna þess að ég mundi ekki hvort þetta var fyrsta eða annað lagið sem ég heyrði eftir kl. 9. Þegar dagskrárgerðarmaðurinn Er FM 967 trúverðug stöð?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.