Morgunblaðið - 20.02.2002, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2002 45
DAGBÓK
Síðustu tilboðsdagarnir í Remediu
Sjúkravörur ehf. - Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen, sími 553 6511
Nú er 20% afsláttur
af öllum skóm út þessu viku
Sendum í póstkröfu
Guðni Ágústsson, varafomaður
Framsóknarflokksins og
Ólafur Örn Haraldsson,
alþingismaður,
ræða um árangur og horfur í
einkavæðingu ríkisfyrirtækja á opnum
hádegisverðarfundi á Hótel Borg á
morgun, fimmtudag, kl. 12-13.30.
Allir velkomnir
Hádegisverður kr. 1.450
Fundarstjóri: Þorlákur Björnsson,
form. kjördæmisstjórnar Reykjavík norður.
Fundarboðandi: Ólafur Örn Haraldsson,
alþingismaður.
EINKAVÆÐING
Betri framtíð eða brostnar vonir?
Guðni Ágústsson,
varafomaður
Framsóknarflokksins
Ólafur Örn Haraldsson,
alþingismaður
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 20.
febrúar, er áttræð Bára Sig-
urjónsdóttir, kaupkona,
Hafnarfirði. Hún dvelst um
þessar mundir á Carlton
Hotel, CH-7500 St. Moritz,
Sviss. Herbergi 120. Sími:
00 41 81 836 70 00 Fax: 00 41
81 836 7001 e-mail:
info@carlton-stmoritz.ch
LJÓÐABROT
Lausavísa
Enn man ek böl þat, er brunnu
bauga-Hlín ok mínir
(skaði kennir mér minni
minn) þrír synir inni;
glaðr munat Göndlar röðla
gnýskerðandi verða
(brjótr lifir sjá við sútir
sverðs) nema hefndir verði.
Gizur Þorvaldsson jarl
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6
6. Be3 Bg7 7. f3 0–0 8. Dd2
Rc6 9. Bc4 Bd7 10. 0–0–0
Hc8 11. Bb3 Re5 12. h4
Rc4 13. Bxc4 Hxc4 14. h5
Rxh5 15. g4 Rf6 16. Rde2
Da5 17. Bh6 Hfc8 18. Bxg7
Kxg7 19. Dh6+ Kg8 20.
Hd5 H8c5 21.
Kb1 Be6
Staðan kom
upp í Norður-
landamóti ein-
staklinga í skóla-
skák sem lauk
fyrir skömmu.
Dagur Arn-
grímsson (2.094)
sigraði í C-flokki
eftir harða bar-
áttu við Guð-
mund Kjartans-
son (2.060).
Félagarnir áttust
hér við og hafði
Dagur hvítt. 22.
g5! Rh5 23. Rf4! Hxd5 24.
Rxh5 gxh5 25. Hxh5 Bf5
26. exf5 Hd1+ 27. Rxd1
Dxf5 28. Re3 Hd4 29. g6!
og svartur gafst upp. Staða
efstu manna í C-flokki
varð þessi: 1. Dagur Arn-
grímsson (2.094) 5 vinn-
inga af 6 mögulegum. 2.–3.
Guðmundur Kjartansson
(2.060) og Jakob Vang
Glud (2.147) 4½ v. 4.–5.
Marta Nestorov (1.908) og
Bjarke Andreasen (1.641).
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÞAÐ er sjaldgæft að eitt
einstakt spil veki jafn
mikla athygli og eftirfar-
andi þrjú grönd úr sjöttu
umferð Flugleiðamótsins:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ G64
♥ 1063
♦ 75
♣KG764
Vestur Austur
♠ D753 ♠ 102
♥ G74 ♥ Á982
♦ 1082 ♦ Á963
♣Á82 ♣1093
Suður
♠ ÁK98
♥ KD5
♦ KDG4
♣D5
Eftir samanburð á
sunnudagskvöldið mátti
heyra menn ræða þetta
spil í öllum hornum og
virtust allir hafa merki-
lega sögu að segja. Hvert
sem kerfið er endar suður
sem sagnhafi í þremur
gröndum og fær út smáan
spaða. Við skulum setja
okkur í spor suðurs:
Það er fljótséð að spilið
vinnst aldrei nema hægt
sé að nýta lauflitinn. Og
þar eð spaðagosinn er eina
innkomuvonin til hliðar
ber að spara hann og taka
fyrsta slaginn með kóngi
heima, hvort sem austur
lætur tíuna eða ekki. Síðan
er laufdrottningu spilað og
vestur dúkkar. Aftur kem-
ur lauf og nú veltur fram-
haldið á vörn vesturs.
Margir vesturspilarar
tóku á ásinn og skiptu yfir
í smátt hjarta. Sú vörn
reynir ekki mjög á sagn-
hafa. Hann stingur upp tí-
unni og neyðir austur til að
drepa. Austur gerir best í
því að spila hjarta áfram
og nú er nauðsynlegt að
sækja slag á tígul áður en
smáum spaða er spilað að
blindum. Suður spilar því
út hátígli. Er austur drep-
ur er innkoma hans á
hugsanlegt fríhjarta farin,
en ef hann dúkkar getur
sagnhafi spilað smáum
spaða að gosa blinds. Það
breytir engu þótt vestur
stingi upp drottningu og
stífli þannig spaðalitinn,
því sagnhafi þarf ekki á
þriðja spaðaslagnum að
halda.
Þetta var fyrsta afbrigð-
ið. En á sumum borðum
dúkkaði vestur lauf tvisv-
ar. Það reyndist góð vörn,
því þegar sagnhafi spilaði
þriðja laufinu átti hann
erfitt með að henda heima.
Það virðist sjálfgefið að
henda tígli (og það gerðu
allir), en vörnin gefur þá
suðri slag á tígul og bíður
síðan átekta í rauðu litun-
um – sækir fimmta slaginn
í hjarta eða tígli eftir því
hvað sagnhafi gerir. Þessi
vörn var því banvæn í
reynd, en á opnu borði á
sagnhafi hins vegar ótrú-
legan mótleik – hann getur
hent spaðaásnum í þriðja
laufið! Þetta dugir til vinn-
ings, jafnvel þótt vestur
finni þá snjöllu vörn að
skipta yfir í hjartagosa.
Suður fær þann slag og
spilar tígli. Ef austur
dúkkar má spila smáum
spaða að blindum, en drepi
austur getur hann ekki
spilað undan hjartaás, því
tía blinds er innkoma.
(Hjalti Elíasson var einn
um það að skipta yfir í
hjartagosa og það dugði til
að fella spilið gegn Hack-
ett-bræðrunum, þar eða
sagnhafi sótti sér ekki slag
á tígul áður en hann spilaði
spaða að blindum.)
Umsjónarmanni segir
svo hugur að fleiri fletir
eigi eftir að koma í ljós á
spilinu, en þetta verður að
duga í bili. Sveit Strengs
vann Flugleiðabikarinn á
sannfærandi hátt með rúm
20 stig að meðaltali úr leik.
Í sveitinni spiluðu Valur
Sigurðsson, Ragnar
Magnússon, Júlíus Sigur-
jónsson, Hrannar Erlings-
son, Hjördís Eyþórsdóttir
og Barry Goren.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert í stöðugri þekking-
arleit og lifir ævintýraríku
lífi sem margir öfunda þig
af. Árið er eitt það mest
spennandi sem þú átt eftir
að upplifa.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag líta sumir hlutir út fyrir
að vera verri en þeir í raun
eru. Þetta er ekki eins svart
og það lítur út fyrir að vera
þegar á botninn er hvolft.
Horfðu á björtu hliðarnar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur miklar áhyggjur af
fjármálum þessa dagana.
Þrátt fyrir ýmsar hindranir á
veginum rætist úr fyrr en þig
grunar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nýjar hliðar á vandasömu
verkefni krefjast allrar þinn-
ar athygli og atorku. Láttu
ekki aðra hluti glepja þér sýn
á meðan.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert að hugsa um of mörg
mál í einu og missir við það
alla starfsorku. Einbeittu þér
að einu verkefni í einu og þá
mun allt ganga upp hjá þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinur þinn mun ekki bregð-
ast eins við og þú býst við af
honum. Reyndu að sjá hans
sjónarmið og rifjaðu upp hve
oft þú hefur valdið honum
vonbrigðum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur áhyggjur af gagn-
rýni yfirmanns þíns. Taktu
gleði þína því þú munt sjá að
ótti þinn var ástæðulaus.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér gengur illa að skipu-
leggja ferðalag. Allt virðist
kosta of mikið, vera of mikil
fyrirhöfn eða tilgangslaust.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhverjum gæti sárnað um-
mæli þín svo þú skalt gæta
þess að segja ekkert að óat-
huguðu máli. Mundu að aðgát
skal höfð í nærveru sálar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Deilur við félaga valda þér
óþægindum. Á morgun verða
þær úr sögunni. Vertu já-
kvæður og forðastu að særa
þá sem þér þykir vænst um.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur áhyggjur af þeim
verkefnum sem bíða þín í
vinnunni, hvort þú getir klár-
að þau. Hafðu ekki samvisku-
bit vegna þess að þú skilar
þínu og meira en það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að standa fyrir máli
þínu og þá er bráðnauðsyn-
legt að vera vel undirbúinn og
hafa skipulega framsögn svo
enginn misskilningur komi
upp.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur lengi lagt hart að
þér í starfi og nú er komið að
því að þú sjáir laun erfiðis
þíns. Njóttu þeirra því verður
er verkamaður launa sinna.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Smælki
Erum við þá hætt
saman?
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
BJÖRNINN varð um mánaðamótin
Íslandsmeistari í þriðja flokki pilta,
en það eru 14–15 ára gamlir drengir.
Piltarnir unnu alla leiki sína í mótinu
nema einn þar sem þeir urðu að sætta
sig við jafntefli. Síðasti leikur mótsins
var um liðna helgi og þar lagði
Skautafélag Akureyrar lið Skauta-
félag Reykjavíkur í spennandi leik og
var þetta eini sigur liðsins í mótinu.
Á myndinni eru nýkrýndir meist-
arar Bjarnarins í 3. flokki: Aftari röð
frá vinstri: Haukur Arngrímsson,
Reynir Viðar Salómonsson, Fannar
Eyjólfssson, Sturla Snær Magnús-
son, Ívar Andri Ívarsson, Viktor
Höskuldsson, Atli Freyr Bjarnason,
Vilhelm Már Bjarnason og Sergei
Zak þjálfari. Fremri röð frá vinstri:
Guðmundur Björnsson, Karl Andr-
eas, Arnar Sigurðsson, Trausti Ber-
mann Skúlason, Birgir J. Hansen,
Guðjón I. Guðlaugsson og Viktor Eyj-
ólfsson.
Björninn meistari
í 3. flokki