Morgunblaðið - 13.03.2002, Blaðsíða 2
MÚGUR og margmenni var í
skíðalandinu í Bláfjöllum síðdegis
í gær og fram á kvöld. Þá var
komið blíðuveður og skíðafæri
með besta móti að sögn Grétars
Halls Þórissonar rekstrarstjóra.
Fyrir hádegi voru nemendur frá
einum átta til tíu skólum í skíða-
ferðalagi en þá var heldur hvasst
og ekki unnt að hafa stóru lyft-
urnar í gangi. Bláfjallasvæðið er
opið virka daga milli kl. 12 og 21.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Margmenni í
Bláfjöllum
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isDeportivo yfirspilaði Arsenal
og er komið í 8 liða úrslit / B2
Fjórir nýliðar í landsliðshópi
Guðmundar / B1
4 SÍÐUR
Morgunblaðinu
í dag fylgir aug-
lýsingablaðið
Zeta frá NC-
útgáfunni ehf.
Blaðinu verður
dreift um allt
land.
Sérblöð í dag
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblað-
inu í dag fylgir
auglýsinga-
blaðið LIFUN
frá Eddu –
miðlun.
Blaðinu verð-
ur dreift á
höfuðborgar-
svæðinu.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sat í gær fund ráðherra-
ráðs Evrópska efnahagssvæðisins,
EES, í Brussel sem formaður EES-
og EFTA-ríkjanna. Josep Pique, ut-
anríkisráðherra Spánar, var í for-
ystu fyrir þríeyki Evrópusambands-
ins, ESB. Þetta var sautjándi
fundur ráðsins, en fundir eru haldn-
ir á hálfs árs fresti.
Halldór sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fulltrúar Evrópusam-
bandsins hefðu á fundinum viður-
kennt að laga þyrfti EES-samn-
inginn að breyttum aðstæðum. Þeir
hefðu hins vegar ekki verið tilbúnir
að taka tillit til breytinga sem orðið
hefðu á Evrópusambandinu síðan
EES-samningurinn var gerður,
einkum varðandi áhrif og völd. „Við
höfum engan aðgang að ráðherra-
ráði Evrópusambandsins, Evrópu-
þinginu eða ýmsum stofnunum sem
hafa fengið mun meiri völd en þegar
EES-samningurinn var gerður. Við
það situr. Þeir segja að ekki verði
farið í mögulegar lagfæringar á
samningnum fyrr en að loknu
stækkunarferli Evrópusambands-
ins. Að mínu mati gæti það tekið
mörg ár,“ sagði Halldór.
Hann sagði að fulltrúar Evrópu-
sambandsins hefðu gert athuga-
semdir við að löggjöf í EES-ríkj-
unum væri ekki í öllum tilvikum í
samræmi við Evrópulögin. „Við
töldum óþarft af þeim að taka þetta
upp þar sem gengið var út frá þessu
þegar EES-samningurinn var und-
irritaður,“ sagði Halldór og tók
dæmi um hvernig EES-ríkin hefðu
þurft að laga sína löggjöf að Evr-
ópusambandinu varðandi skattlagn-
ingu á bækur.
Stækkun ESB og EES
fari fram samtímis
Í umræðu um stækkun áréttaði
Halldór mikilvægi þess að innganga
nýrra aðildarríkja ætti sér stað
samtímis í ESB og EES, þannig að
einsleitni innri markaðarins yrði
ekki raskað. Hann fagnaði því að
viðræður sérfræðinga beggja aðila
um tilhögun stækkunar væru komn-
ar vel á veg. Í þessu samhengi benti
utanríkisráðherra á að fríverslunar-
samningur EFTA við nýju aðildar-
ríkin myndi falla úr gildi við aðild
þeirra að ESB og þar með myndi
markaðsaðgangur fyrir sjávarafurð-
ir frá EES- og EFTA-ríkjunum
versna. Miklu skipti að stækkun
yrði ekki til þess að reisa nýjar við-
skiptahindranir innan EES. Halldór
sagði að viðbrögð við þessum mál-
flutningi hans hefðu verið jákvæð en
ekkert væri fast í hendi hvað það
varðaði.
Um önnur mál á fundi ráðherra-
ráðsins sagði utanríkisráðherra að
pólitísk skoðanaskipti hefðu farið
fram um hryðjuverkastarfsemi í
Miðausturlöndum og ástandið á
Balkanskaga.
„Það var mikil samstaða á fund-
inum um ástandið í Miðausturlönd-
um og framferði Ísraelsmanna. Mik-
il reiði kom fram í þeirra garð,“
sagði Halldór.
Utanríkisráðherra að loknum fundi ráðherraráðs EES-ríkjanna í Brussel
EES-samningur ekki lagfærður
fyrr en að lokinni stækkun ESB
SJÓPRÓF vegna Bjarma VE 66,
sem fórst vestur af Þrídröngum
23. febrúar síðastliðinn, fara fram
á föstudag í Héraðsdómi Reykja-
víkur, viku eftir að Tryggingamið-
stöðin hf. lagði fram beiðni um
þau.
Fjórir skipverjar voru um borð
í Bjarma á leið til Grindavíkur frá
Vestmannaeyjum og var tveimur
þeirra bjargað á lífi. Sá þriðji fórst
og þess fjórða er saknað.
Sjóslysið er til rannsóknar hjá
Rannsóknarnefnd sjóslysa.
Sjópróf vegna
Bjarma á föstudag
LÖGREGLAN í Kópavogi rannsak-
ar nú mannslát í íbúð við Hamraborg
aðfaranótt sunnudags sem sakamál
og hafa maður og kona, sem voru í
íbúðinni, verið handtekin á ný.
Bráðabirgðaniðurstöður krufn-
ingar á hinum látna benda til þess að
hann hafi látist af völdum innvortis
áverka. Hefur konan verið úrskurð-
uð í sjö daga gæsluvarðhald og lík-
legt er að farið verði fram á gæslu-
varðhald yfir manninum í dag.
Þau eru grunuð um brot gegn 2.
mgr. 218. gr. almennra hegningar-
laga, þ.e. stórfellda líkamsárás sem
leiðir til bana.
Maðurinn sem lést var á sextugs-
aldri og var hann búsettur í íbúðinni.
Dánarorsök var ekki ljós er lögregla
var kölluð á vettvang aðfaranótt
sunnudags. Ekki voru sjáanlegir
áverkar á líkinu sem bentu til þess að
manninum hefði verið ráðinn bani. Í
íbúðinni voru gestkomandi karlmað-
ur fæddur árið 1965 og kona fædd
1947, bæði undir áhrifum áfengis.
Þau voru handtekin þá um nóttina og
yfirheyrð síðdegis á sunnudeginum.
Að yfirheyrslum loknum var þeim
sleppt.
Í ljósi bráðabirgðaniðurstöðu
krufningar, sem Þóra Steffensen
réttarmeinafræðingur framkvæmdi,
var fólkið handtekið aftur, konan á
mánudagskvöld og maðurinn í gær.
Friðrik Björgvinsson, yfirlög-
regluþjónn í Kópavogi, segir að ekki
hafi verið staðfestur grunur um
refsiverðan verknað fyrr en að lok-
inni krufningu. Ekki hafi verið merki
um átök í íbúðinni við frumrannsókn
lögreglu, rannsókn tæknideildar lög-
reglunnar á íbúðinni er ekki lokið.
Að öðru leyti varðist hann fregna af
gangi rannsóknarinnar.
Grunuð um stór-
fellda líkamsárás
Innvortis
áverkar
fundust
við krufn-
ingu
♦ ♦ ♦
ÞAÐ sást til sílamávs í Sandgerði á
mánudag, en mávurinn sá er farfugl
og er því einn fyrstu vorboðanna.
Það bólar hins vegar ekkert enn á
farfuglunum á Hornafirði, fyrir utan
nokkra hrossagauka sem sýndu sig
þar í síðustu viku febrúar. Björn G.
Arnarson á Höfn segir gaukana enn
haldast við í skurðum og lækjum í
nágrenni bæjarins. „Það er bara
ekkert títt ennþá af öðrum farfugl-
um hér um slóðir,“ sagði Björn, „en
það styttist nú senn í það, samkvæmt
dagatalinu að minnsta kosti.“ Björn
segir að oftast séu það álftir og gæsir
sem komi fyrstar farfugla hingað til
lands að vori eftir vetrardvöl á hlýrri
slóðum.
Sílamávur í
Sandgerði