Morgunblaðið - 13.03.2002, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 11
ÞRÍR sundmenn syntu svonefnt
Guðlaugssund í sundhöllinni í Vest-
mannaeyjum í gær. Um er að ræða 6
km árlegt sund til að minnast afreks
Guðlaugs Friðþórssonar árið 1984,
en tilgangurinn með sundinu er að
minna á öryggismál sjómanna.
Magnús Kristinsson, útvegsbóndi í
Vestmannaeyjum, Kristján Gíslason,
stjórnarformaður Eykis, og Matt-
hías Sveinsson, yfirvélstjóri á Þór-
unni Sveinsdóttur VE, syntu að
þessu sinni og var þetta í fjórða sinn
sem Magnús þreytti sundið, en um
var að ræða frumraun hinna.
Guðlaugur Friðþórsson heiðraði
sundkappana með nærveru sinni, en
1984 bjargaði hann sér á ótrúlegan
hátt með fræknu sundi í land á
Heimaey eftir að bátur sem hann var
á fórst. Friðrik Ásmundsson, fyrr-
verandi skólastjóri Stýrimannaskól-
ans í Vestmannaeyjum, kom sundinu
á 1985 til að minnast afreksins og
hefur það verið þreytt á hverju ári
síðan nema hvað það féll niður í
fyrra. Magnús Kristinsson synti einn
fyrir tveimur árum og var þá tvo
tíma og 44 mínútur, en nú fór hann 6
km á tveimur tímum og 40 mínútum.
Þegar hann synti fyrst 1997 fór
hann vegalengdina á tveimur tímum
og 20 mínútum en 1999 var tími hans
tveir tímar og 35 mínútur.
Guðlaugur var 6
klukkustundir á sundi
Sundið hefur alltaf farið fram í
lauginni nema 1994 þegar nem-
endur Stýrimannaskólans sigldu á
staðinn þar sem báturinn sökk 10 ár-
um áður og syntu í land, vissa vega-
lengd hver. Friðrik Ásmundsson
segir að þar sem talið sé að Guð-
laugur hafi synt í sex klukkutíma á
sínum tíma hafi nemendur skólans
haldið uppteknum hætti og skipt
tímanum á milli sín, en sennilega
hafi mest um 30 manns þreytt sund-
ið í einu. Eftir að skólinn hafi hætt
hafi sundköppunum hins vegar
fækkað til muna.
Friðrik Ásmundsson afhenti sund-
köppunum viðurkenningarskjal að
loknu sundinu. Hann segir að til-
gangurinn með sundinu sé að minna
á öryggismál sjómanna. Mikilvægt
sé að minna alla útgerðarmenn og
sjómenn á að hafa allan örygg-
isbúnað í góðu lagi. „Við viljum líka
minna björgunaraðila í landi á að
vera ekki með neitt hangs og hik,
þegar neyð er annars vegar, og kalla
hverju sinni út allt tiltækt lið sem
gæti komið að gagni.“
Guðlaugssundið hefur verið þreytt í Eyjum síðan 1985
Tilgangurinn að minna
á öryggismál sjómanna
Að loknu afrekinu. Frá vinstri: Guðlaugur Friðþórsson, Magnús Krist-
insson, Matthías Sveinsson, Kristján Gíslason og Friðrik Ásmundsson.
ÞORKELL Ágústsson hefur verið
skipaður aðstoðarrannsóknarstjóri
Rannsóknarnefndar flugslysa. Þor-
kell er vélvirki og hefur lokið iðn-
rekstrarfræði frá Tækniskóla Ís-
lands, en einnig hefur hann
M.Sc.-próf í verkfræði frá Álaborg-
arháskóla í Danmörku.
Þorkell starfaði sem vélvirki í Ál-
verinu í Straumsvík um átta ára
skeið, í tæknideild Flugleiða í níu ár,
m.a. yfir kostnaðareftirliti deildar-
innar, en síðast gegndi hann starfi
framkvæmdastjóra hjá Íslensku vef-
stofunni.
Þorkell er kvæntur og á þrjú börn.
Rannsóknarnefnd
flugslysa
Nýr aðstoð-
arrannsókn-
arstjóri
LANDSSÖFNUN Geðhjálpar fór
fram laugardaginn 2. mars sl. Alls
safnaðist 17,1 milljón.
Þessi upphæð safnaðist í gegnum
907-númer Geðhjálpar, símanúmer
frjálsu framlaganna, 590-7070 og
bankareikning Geðhjálpar hjá
SPRON. Leitast var eftir að fara sem
ódýrustu leið við undirbúning söfnun-
arinnar og í því sambandi komu fjöl-
miðlar mikið til móts við okkur við að
kynna málefni Geðhjálpar. Heildar-
kostnaður Geðhjálpar vegna undir-
búnings og framkvæmd landssöfnun-
arinnar nemur 3 milljónum króna,
segir í fréttatilkynningu.
Landssöfnun
Geðhjálpar
17,1 milljón
safnaðist
♦ ♦ ♦