Morgunblaðið - 13.03.2002, Síða 12
Hvað felst í þinghelgi?
„ÞINGHELGI felur í sér að ekki
er hægt að sækja þingmenn til
saka fyrir ummæli sem þeir við-
hafa á Alþingi,“ segir Helgi Bern-
ódusson, aðstoðarskrifstofustjóri
Alþingis. „Þetta er ævagamalt
ákvæði sem á sér hliðstæðu í öðr-
um þingum, langt aftur í aldir til
verndar þingum.“ Helgi segir að
nokkrum sinnum hafi reynt á
þinghelgina og þarf saksóknari
þá t.d. að fara fram á að veitt sé
málshöfðunarleyfi ef staðið hefur
til að ákæra þingmann í opinberu
máli eða ef menn utan þings hafa
viljað fara í meiðyrðamál við
þingmann út af ummælum hans í
þingsal. „Síðasta dæmið er þegar
efri deild veitti leyfi til að sér-
stakur saksóknari í Hafskipsmál-
inu gæti höfðað opinbert mál á
hendur þingmanni.“ Helgi segir
að þessa leið verði að fara, „ef
mál lýtur að opinberri saksókn
gegn þingmanni. Eins verða þing-
menn ekki sóttir til saka fyrir
ummæli sín í þingsalnum nema
með leyfi Alþingis. Það er þess
vegna ekki hægt að höfða meið-
yrðamál gegn þingmanni nema
hann endurtaki ummæli sín utan
þings eða fyrir því sé veitt leyfi.“
Þannig er hægt að fara í mál við
þingmenn, endurtaki þeir um-
mæli sín utan þings, t.d. í við-
tölum við fjölmiðla.
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRIÐRIK Pálsson, fráfarandi
stjórnarformaður Landssímans, lét
þau ummæli falla á aðalfundi Sím-
ans á mánudag að gagnrýni á
stjórnendur félagsins hafi verið
óvægin og flutt í skjóli þinghelgi.
Hann sagði að það væri „afar óeðli-
legt í fjölmiðlaþjóðfélagi nútímans,
að þingmenn geti í skjóli þinghelgi
ráðist að fyrirtækjum og saklausum
borgurum úti í bæ án þess að menn
geti borið hönd fyrir höfuð sér“.
Morgunblaðið leitaði viðbragða
þingflokksformanna við þessum um-
mælum Friðriks og spurði hvort að
til greina kæmi að afnema þinghelg-
ina að einhverju leyti.
Fráleitt að tala um þinghelgi
í þessu sambandi
„Ég tel að ekki hafi mikið reynt á
þetta ákvæði [þinghelgina] og hvað
varðar þetta tiltekna mál þá finnst
mér fráleitt að Friðrik [Pálsson] tali
um þinghelgi og beri því við að hann
hafi ekki getað svarað ásökunum
sem á hann hafa verið bornar í skjóli
þinghelgi,“ segir Bryndís Hlöðvers-
dóttir, formaður þingflokks Sam-
fylkingarinnar, „vegna þess að með
því er hann að segja að hann hafi
hugsanlega getað sótt þingmenn til
saka fyrir eitthvað sem þeir hafa
haldið fram í Landssímamálinu sem
mér þykir algjörlega út í hött.“
Bryndís segir að vel megi vera að
þinghelgin sé orðið úrelt fyrirbæri,
„en mér finnst með ólíkindum að
hlusta á mann, sem ætti að líta í eig-
in barm og skoða sína eigin ábyrgð,
varpa á þennan hátt ábyrgðinni yfir
á stjórnarandstöðu, fjölmiðla og
aðra sem að málinu hafa komið og
hafa gagnrýnt það réttilega að mínu
mati.“
Bryndís telur þingmenn ekki
þurfa sérstaklega á þinghelginni að
halda. „Ég tel að þeir eigi að geta
tjáð sig opið um alla hluti og ef þeir
gangi of langt í þeim efnum er ekk-
ert óeðlilegt að þeir þurfi að svara
fyrir það. En í þessu máli finnst mér
það algjörlega fráleitt.“ Bryndís
segir þá umræðu sem Friðrik vitn-
aði til í ræðu sinni á aðalfundi Sím-
ans að mestu hafa farið fram í fjöl-
miðlum, „svo ég þekki ekki dæmi
þess að þingmenn hafi verið að
skýla sig á bak við þinghelgina og
sagt eitthvað í ræðustóli sem þeir
treysti sér ekki til að ræða utan
þings. Þetta eru mjög alvarlegar
ásakanir og um þetta eru engin
dæmi. Þingmenn sem hafa tjáð sig í
þessu máli hafa verið tilbúnir að
gera það innan sem utan þings.“
Friðrik fellur sjálfur í þá
gryfju sem hann ætlar öðrum
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
þingflokks Frjálslynda flokksins,
segist ekki getað svarað fyrir um-
mæli annarra á þingi eða hvort aðrir
þingmenn hafi skýlt sér að baki
þinghelginni í umræðum. „Ég sagði
af þessu tilefni að mér fyndist að
bæði Friðrik og Þórarinn [V. Þór-
arinsson] hefðu gengisfellt sjálfa sig
svolítið með því að taka til sín veru-
lega rífleg laun.“ Guðjón sagðist
ekki hafa myndað sér skoðun á því
hvort að afnema bæri þinghelgina.
„Það er útaf fyrir sig sjálfsagt að
ræða þau sjónarmið og heyra rökin
fyrir því að afnema þinghelgi að ein-
hverju leyti og ég skal ekki fyrir-
fram neita þeim, en sjálfur sé ég
ekki rök í málinu til að gera breyt-
ingar á,“ segir Kristinn H. Gunn-
arsson, formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins. Kristinn telur
þinghelgina nauðsynlega nú sem
fyrr til þess að þingmenn geti óheft
sagt skoðun sína á mönnum og mál-
efnum. Um það hvort þingmenn hafi
í skjóli þinghelgi ráðist að fyrirtækj-
um og borgurum án þess að þeir
geti varið sig líkt og Friðrik hélt
fram á aðalfundi Símans á mánudag
sagði Kristinn: „Hann verður að
færa rök fyrir sínu máli og það gerði
hann ekki. Mér sýnist að hann hafi
sjálfur gert sig sekan um það sem
hann sakar þingmenn um, hann er
að ráðast á þá á vettvangi þar sem
þeir eru ekki til andsvara og er með
fullyrðingar um óheiðarlegan mál-
flutning. Mér finnst hann sjálfur
falla í þá gryfju sem hann ætlar öðr-
um að liggja í.“
Hver og einn ber ábyrgð
á sínum orðum
Sigríður Anna Þórðardóttir, for-
maður þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, telur þessa umræðu ekki gefa
tilefni til að afnema þinghelgi að ein-
hverju eða öllu leyti. „Við þingmenn
hljótum hins vegar að gera þá kröfu
til okkar sjálfra að við gætum okkar
í umræðum um menn og málefni.“
Sigríður hefur lýst því yfir að henni
hafi ekki fundist þingmenn stjórn-
arandstöðu gæta sín sem skyldi í
umræðum um Landssímann og hef-
ur gagnrýnt stjórnarandstöðuna í
þá veru. „Almennt talað þurfa þing-
menn alltaf að vanda sig og hafa í
huga að það er mikið útvarpað og
sjónvarpað frá umræðum á þingi.
Grundvallarreglur um málefnalega
umræðu og virðingu fyrir fólki og
Alþingi sjálfu verður að hafa í
heiðri. Hver og einn hlýtur að bera
ábyrgð á sínum orðum hvort sem
hann er þingmaður eða einhver ann-
ar.“
Þingmenn verða að
hafa ákveðinn skjöld
Þuríður Backman, varaformaður
þingflokks Vinstri-grænna, segir
ekki koma til greina að sinni hálfu
að afnema þinghelgi að nokkru leyti.
„Það hefur ekkert komið fram sem
gefur tilefni til að brjóta þetta upp,“
sagði Þuríður. „Okkur þingmönnum
ber að fara með rétt mál og aðrir
sem vilja verja sinn málstað verða
að gera það á öðrum vettvangi. Það
gengi upp ekki að gera þingið að
einni allsherjar útisamkomu. Þing-
menn verða að hafa ákveðinn skjöld
til að geta talað frjálst og eiga ekki á
hættu málshöfðun eða saksóknir.
Við þingmenn verðum að hafa
möguleika á að tjá okkur en það
verður að vera á okkar ábyrgð.“
Þuríður telur ekkert hafa komið
fram í þingsal um Landssímamálið
sem ekki kom fram í fjölmiðlum eða
ekki var hægt að lesa úr lögum og
starfsemi fyrirtækisins. „Ég var
aldrei vör við að í þingsal væri verið
að draga fram eitthvað nýtt.“
Viðbrögð formanna þingflokkanna við ummælum stjórnarformanns Símans um þinghelgi
Bryndís
Hlöðversdóttir
Guðjón A.
Kristjánsson
Kristinn H.
Gunnarsson
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Þuríður
Backman
Þinghelgin nauðsyn-
leg en þingmenn tjái
sig á eigin ábyrgð
SAM-FRÍMÚRARAREGLAN Le
Droit Humain og reglurnar Grand
Orient de France og Grand Loge de
France hafa lagt drög að formlegu
samstarfi sín á milli. Í Sam-Frímúr-
arareglunni starfa konur og karlar á
jafnréttisgrundvelli en hinar regl-
urnar tvær eru karlareglur. Með-
limir Grand Orient de France eru
um 45 þúsund en hjá Grand Loge de
France um 26 þúsund en allar regl-
urnar starfa í mörgum löndum.
Sam-Frímúrarareglan barst til
Íslands árið 1921 og var hún lengst
af hluti af Skandinavíska sambands-
ins en árið 1985 var stofnað Íslands-
samband með fullkomna sjálfsstjórn
í eigin málum.
Njörður P. Njarðvík segir að
þessar reglur hafi mannúðarstefnu
og hugsunarfrelsi að leiðarljósi og
leggi áherslu á mannrækt sem leiði
til samkenndar, gagnkvæmrar virð-
ingar, umburðarlyndis og betra
mannlífs. Þær hafni aftur á móti
hvers konar kreddum, ofbeldi og of-
stæki. Menn stefni að því að bæta
sjálfa sig til þess að geta tekið þátt í
að bæta heiminn. „Ég get því ekki
annað en fagnað sérstaklega þeirri
samvinnu sem tekist hefur á milli
okkar.“
Michel Singer og Alain Bauer
segja reglur sínar alþjóðlegar og
þær byggi á einu og sama siðakerf-
inu. „Grunnatriðin eru málfrelsi,
trúfrelsi og þar með rétturinn til
þess að trúa ekki og virðing fyrir
báðum þessum hópum. Markmiðið
er að bæta okkur sjálfa og heiminn
sem við búum í.“
Njörður segir þessar þrjár reglur
vera um margt ólíkar en mestu máli
skipti að þeir vilja vinna saman í
gagnkvæmri virðingu. Við segjum
að eina leiðin til þess að sameina
mannkynið sé með því að virða mis-
munandi skoðanir og trú.“
Singer og Bauer taka fram að
þeir byggi á hugmyndinni um höf-
und heimsins án þess þó að tiltaka
hver hann er eða hvernig hann birt-
ist, þetta túlki hver með sínum
hætti. „Engilsaxnesku reglurnar
hafa á hinn bóginn lagt meira upp
úr þeirri birtingarmynd og tengsl
þeirra við kristnina og þar skilji
með meginlandsreglunum og þeim
engilsaxnesku sem séu nátengdari
trúnni. Umburðarlyndi og frelsi í
trúmálum, ásamt með málfrelsi eru
grundvallarreglur hjá okkur. Og hjá
okkur starfar fólk af mismunandi
kynþáttum og sem hefur mismun-
andi trú. Við stefnum að siðferðileg-
um og andlegum þroska allra
manna. “
Morgunblaðið/Ásdís
Michel Singer, stórkanslari Grande Loge de France, Njörður P. Njarð-
vík, stórmeistari Sam-Frímúrarareglunnar og Alain Bauer, stórmeist-
ari Grand Orient de France, gengu frá drögum að samstarfi reglnanna.
Þrjár frímúrarareglur
leggja drög að samstarfi
Á AÐALFUNDI Sjálfstæðisfélags
Bessastaðahrepps, sem haldinn
var 6. mars sl., var framboðslisti
til sveitarstjórnarkosninga sam-
þykktur, listinn er í samræmi við
prófkjör sem sjálfstæðismenn
héldu 23. febrúar sl.
Guðmundur G. Gunnarsson,
oddviti hreppsnefndar, leiðir
listann en sjálfstæðismenn hafa nú
meirihluta í hreppsnefnd þ.e. fjóra
af sjö hreppsnefndarfulltrúum. Í 2.
sæti er Snorri Finnlaugsson fram-
kvæmdastjóri, 3. Erla Guðjóns-
dóttir skólafulltrúi,4. Sigríður
Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri,
5. Bragi Vignir Jónsson verkstjóri,
6. Halla Jónsdóttir líffræðingur, 7.
Doron Eliasen deildarstjóri, 8.
Hildur Ragnars lyfjafræðingur, 9.
Hervör Poulsen skrifstofumaður,
10. Þórólfur Árnason verslunar-
maður, 11. Gissur Pálsson verk-
fræðingur, 12. Sigurdís Ólafsdóttir
háskólanemi, 13. Níelsa Magnús-
dóttir húsmóðir, 14. Jón G. Gunn-
laugsson viðskiptafræðingur.
Á aðalfundinum var kosin ný
stjórn Sjálfstæðisfélags Bessa-
staðahrepps. Ársæll Hauksson var
kosin formaður en aðrir í stjórn
eru Bragi V. Jónsson, Gissur Páls-
son Hervör Poulsen, Hildur Ragn-
ars.
Bessastaðahreppur
Listi Sjálfstæðis-
félagsins ákveðinn
Doktorsvörn fer
fram við guð-
fræðideild Há-
skóla Íslands,
laugardaginn 16.
mars kl. 13.30 í
Odda í stofu 101.
Dr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson hér-
aðsprestur ver rit
sitt; Guðfræði
Marteins Lúth-
ers í ljósi túlkunar hans á Jóhannes-
arguðspjalli 1535–1540, sem guð-
fræðideild hefur metið hæft til
doktorsprófs.
Andmælendur af hálfu guð-
fræðideildar verða dr. Hjalti Huga-
son prófessor og dr. Sigurður Árni
Þórðarson verkefnisstjóri. Forseti
guðfræðideildar, dr. Gunnlaugur A.
Jónsson prófessor, stýrir athöfninni.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér-
aðsprestur (f. 1957) lauk embættis-
prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands
og doktorsprófi frá Háskólanum í
Kiel í Þýskalandi árið 1991. Hann er
héraðsprestur í Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra og hefur ver-
ið stundakennari við guðfræðideild
Háskóla Íslands undanfarin ár. Sig-
urjón er kvæntur Martinu Brogmus
og eiga þau tvær dætur.
Öllum er heimill aðgangur.
Doktorsvörn við guðfræðideild HÍ
Sigurjón Árni
Eyjólfsson