Morgunblaðið - 13.03.2002, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 13
BRYNHILDUR Davíðsdóttir
varði á dögunum doktorsritgerð sína
við Boston-háskóla.
Aðalleiðbein-
andi hennar var
dr. Matthias
Ruth, prófessor
við Maryland-
háskóla. Aðrir
leiðbeinendur
voru dr. Ingo
Vogelsang, pró-
fessor við Bost-
on- og Stanford-
háskóla, dr. Cutl-
er Cleveland, prófessor við
Boston-háskóla, prófessor T.R.
Lakshmanan við Boston-háskóla og
prófessor William Anderson við
Boston-háskóla.
Doktorsritgerð Brynhildar er
sprottin af verkefni sem hún vann
fyrir Umhverfisstofnun Bandaríkj-
anna (EPA) við þróun gagnvirkra
tölvulíkana til notkunar við mótun og
mat á mismunandi umhverfis- og
hagstjórnaraðgerðum sem ætlað er
að vinna gegn loftslagsbreytingum.
Ritgerðin er fjórþætt: Fyrst er
hegðun orkufrekra fyrirtækja í
Bandaríkjunum skoðuð hvað varðar
fjárfestingar í skilvirkari fram-
leiðslutækni. Næst er litið á sveigj-
anleika í notkun orkufrekra fyr-
irtækja á mismunandi gerðum
orkugjafa og annarra fram-
leiðsluþátta. Áhersla er lögð á að
taka tillit til aldurs fjárfestinga og
sýnt er fram á að sveigjanleiki
minnkar er fjárfestingar eldast.
Í þriðja hluta ritgerðar sinnar
rannsakar Brynhildur svæðisbundna
hegðan orkufrekra fyrirtækja, með
tilliti til framboðs framleiðsluþátta.
Að lokum notar Brynhildur allar þær
upplýsingar sem safnað var í fyrri
hlutum rannsóknanna til að hanna
gagnvirkt dýnamískt tölvulíkan til að
meta fjárfestinga- og framleiðslu-
hegðan pappírsiðnaðarins í Banda-
ríkjunum til ársins 2020. Út frá því
er skoðað hversu mikinn koltvísýring
og metangas pappírsiðnaðurinn í
Bandaríkjunum muni framleiða ann-
ars vegar ef ekkert er að gert og hins
vegar ef Bandaríkjastjórn leggur
kolefnisskatta á eldsneyti.
Niðurstöður Brynhildar sýna fram
á að nauðsynlegt er að taka bæði til-
lit til orkunotkunar og annarra fram-
leiðsluþátta við mótun löggjafar og
reglugerða sem ætlað er að taka á
loftslagsbreytingum.
Til dæmis er sýnt að líklegt er að
ef kolefnisskattar verða lagðir á elds-
neyti í Bandaríkjunum muni heild-
arlosun kolefnis frá pappírsiðn-
aðinum í raun aukast þegar tillit er
tekið til allra framleiðsluþátta. Þá
eru áhrif reglugerða mjög mismun-
andi eftir fylkjum, sem staðfestir þá
trú að nauðsynlegt er að greina mis-
munandi aðstæður fyrirtækja þegar
áhrif umhverfisstjórnunar eru skoð-
uð. Að lokum er sýnt fram á að um-
hverfisreglugerðir í Bandaríkjunum
hafa í raun hægt á tækniframförum í
orkufrekum iðnaði, bæði er varðar
fjárfestingar í nýjum tækjabúnaði og
hraða á úreldingum.
Í öllum rannsóknum sínum leggur
dr. Brynhildur áherslu á að tengja
saman hina margslungnu þætti hag-
kerfis og lífkerfis sem nauðsynlegir
eru til að skilja áhrif hinna ýmsu að-
ferða sem beitt er í umhverfis- og
auðlindastjórn.
Brynhildur nam líffræði og hag-
fræði við Háskóla Íslands, lauk BS-
prófi í líffræði árið 1991 og MA-prófi
í alþjóðasamskiptum og alþjóðlegri
umhverfis- og auðlindastjórn frá
Boston-háskóla árið 1995. Rann-
sóknir hennar hafa verið birtar i
fjölda erlendra fræðirita.
Brynhildur býr í Cambridge í
Massachusetts og starfar nú að frek-
ari rannsóknum og kennslu við Bost-
on-háskóla. Sambýlismaður hennar
er Einar Örn Sigurdórsson hönn-
unarstjóri og eiga þau eina dóttur,
Urði. Foreldrar Brynhildar eru Dav-
íð Aðalsteinsson og Guðrún Jóns-
dottir á Arnbjargarlæk.
Doktor í
umhverfis-
fræðum
Brynhildur
Davíðsdóttir
Á ALMENNUM fundi Fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna í Kópavogi
mánudaginn 11. mars, var samþykkt
eftirfarandi tillaga uppstillingar-
nefndar að skipan framboðslista
flokksins fyrir komandi kosningar til
bæjarstjórnar Kópavogs:
1. Sigurður Geirdal bæjarstjóri, 2.
Hansína Ásta Björgvinsdóttir bæj-
arfulltrúi, 3. Ómar Stefánsson for-
stöðumaður, 4. Sigurbjörg Vilmund-
ardóttir leikskólakennari, 5. Gestur
Valgarðsson vélaverkfræðingur, 6.
Una María Óskarsdóttir uppeldis-
og menntunarfræðingur, 7. Hjalti
Björnsson áfengis- og vímuefnaráð-
gjafi, 8. Linda Bentsdóttir lögfræð-
ingur, 9. Andrés Pétursson ráðgjafi,
10. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir verk-
efnisstjóri, 11. Ólafur Hjálmarsson
vélfræðingur, 12. Margrét Sig-
mundsdóttir flugfreyja, 13. Hjörtur
Sveinsson nemi, 14. Hrefna Sölva-
dóttir fjármálastjóri, 15. Gísli
Tryggvason framkvæmdastjóri, 16.
Svanhvít Eygló Ingólfsdóttir rann-
sóknarlögreglumaður, 17. Willum
Þór Þórsson knattspyrnuþjálfari og
framhaldsskólakennari, 18. Guðrún
Alisa Hansen húsmóðir, 19. Unnur
Stefánsdóttir leikskólastjóri, 20.
Stefán Arngrímsson iðnrekstrar-
fræðingur, 21. Birna Árnadóttir hús-
móðir, 22. Magnús Bjarnfreðsson
fyrrverandi bæjarfulltrúi.
Framsóknarflokkurinn myndar
meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs
ásamt Sjálfstæðisflokki. Hefur sam-
starf flokkana staðið óslitið síðan
1990. Sigurður Geirdal hefur setið í
bæjarstjórn frá árinu 1990 og sinnt
starfi bæjarstjóra allan þann tíma.
Listi Framsóknarflokksins
í Kópavogi samþykktur
LÖGREGLAN í Reykjavík
hefur upplýst rán, sem framið
var í versluninni Sparkaup í
Suðurveri hinn 24. febrúar sl.
Tveir menn um tvítugt áttu
þar hlut að máli, bundu af-
greiðslustúlku með límbandi
niður á stól og fóru á brott með
peninga, sem þeir komu hönd-
um yfir. Mennirnir hafa báðir
viðurkennt aðild sína að málinu
og telst það að mestu upplýst.
Viður-
kenndu rán
í Sparkaupi