Morgunblaðið - 13.03.2002, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍBÚAFJÖLDI Garðabæjar
mun nær því tvöfaldast með
nýju hverfi sem fyrirhugað
er á Garðaholti í Garðabæ en
rammaskipulag þess var
kynnt almenningi í gær. Er
gert ráð fyrir að á svæðinu,
sem rúma á tæplega 8.000
íbúa, verði þrír grunnskólar,
fjórir leikskólar, framhalds-
skóli, smábátahöfn og hjúkr-
unarheimili svo eitthvað sé
nefnt.
Rammaskipulag svæðisins
var kynnt á fundi í sam-
komuhúsinu Garðaholti í gær
en það mun marka kjarna
miðbæjar hverfisins ásamt
Garðakirkju. Í greinargerð
skipulagshöfunda, sem eru
teiknistofan Úti og inni sf. og
Landslag ehf., kemur fram
að rammaskipulag er milli-
stig milli aðalskipulags og
deiliskipulags, gert til þess
að fá fram yfirlit yfir stærri
deilskipulagsáfanga eða bæj-
arhluta. „Með rammaskipu-
laginu eru mótuð helstu
áhersluatriði bæjaryfirvalda
varðandi þéttleika, íbúða-
samsetingu og yfirbragð, lýst
helstu markmiðum við mótun
bæjarhlutans.“
Skipulagssvæðið er á þeim
hluta Álftaness sem hefur
verið nefnt Garðahverfi, og
Garðabær dregur nafn sitt
af. „Rammaskipulagssvæðið
er vestari hluti Garðahverfis
og byggilegasti hluti þess eða
það svæði sem að jafnaði
kallist Garðaholt nú á tímum.
Hinn hluti þess er að mestu
hraun, Garðahraun og Gálga-
hraun,“ segir í greinargerð-
inni.
Hæstu húsin efst
Gert er ráð fyrir að byggð-
in myndi sjálfstæðan afmark-
aðan bæjarhluta og leggja
höfundar áherslu á að hverfið
hafi sterkt yfirbragð undir-
strikað af landslagi holtsins
og legu gatna. Kjarni hverf-
isins verði svæðið umhverfis
annars vegar Garðakirkju og
hins vegar gamla samkomu-
húsið á Garðaholti. Svæðið
milli þessara bygginga verði
þungamiðja hverfisins þar
sem gert er ráð fyrir bland-
aðri starfsemi og hafi meira
vægi umfram aðra hverf-
ishluta. Þá er áformað að við
ströndina verði reist smá-
bátahöfn.
Höfundar leggja til að
byggðamynstrið taki mið af
hæðarlegu holtsins. Hæstu
byggingarnar verði efst á
holtinu, en neðar og utar
verði lágreistari íbúð-
arbyggð. Sömuleiðis verður
byggðin þéttust á háholtinu
en gisnari yst. „Þannig verði
undirstrikuð hæðarlega
holtsins og tryggt að hærri
byggingarnar skyggi ekki á
útsýni frá lægri byggðinni.“
Er gert ráð fyrir að efst
verði 3–5 hæða byggð, þar
fyrir neðan komi 2–4 hæða
fjölbýli, blandað léttri at-
vinnustarfsemi, þá 1–3 hæða
sérbýli og loks áðurnefndur
miðkjarni sem yrði blanda
núverandi byggðar og nýrra
bygginga fyrir verslun og
þjónustu.
Segir í greinargerðinni að
höfundar leggi áherslu á að
hver hverfishluti sam-
anstandi af blandaðri byggð
einbýlis-, rað- og fjölbýlis-
húsa. „Við það næst fram
æskileg fjölbreytni í byggð-
armynstri og aldurssamsetn-
ingu íbúa. Breytilegum kröf-
um markaðarins á hverjum
tíma verður þá jafnframt
mætt varðandi stærð og gerð
íbúða. Þannig verði einnig
tryggt að hver áfangi sem
skipulagður verði, gefi kost á
samsettri byggð fjölbýlis og
sérbýlis.“
1.120–1.280
grunnskólanemar
Fram kemur að heild-
arstærð byggðra svæða verði
um 130 hektarar en samtals
eru undir um 170 hektarar
lands séu götur og almenn
opin svæði reiknuð með. Því
til viðbótar eru strand- og
jaðarsvæði við hraunbrún
u.þ.b. 25 hektarar. Alls má
gera ráð fyrir um 2.400–2.440
íbúðum á svæðinu og er í út-
reikningum höfunda stuðst
við að 3,2 íbúar verði í hverri
íbúð. Samkvæmt því má gera
ráð fyrir að í búar á Garða-
holti fullbyggðu verði um
7.800. Er þetta þéttari byggð
en aðalskipulag Garðarbæjar
gerir ráð fyrir en þar er ætl-
að að á svæðinu búi 4.500 til
5.000 íbúar. Til marks um
stærð hverfisins má nefna að
í Garðabæ öllum eru í dag
um 8.500 manns.
Skipulagshöfundar gera
ráð fyrir að fjöldi barna á
grunnskólaaldri í hinu nýja
hverfi á Garðaholti verði um
1.120–1.280 talsins og er gert
ráð fyrir þremur grunn-
skólum í nágrenni við meg-
inumferðaræðar og við útjað-
ar byggðarinnar þar sem
þeir yrðu í góðum tengslum
við græn svæði og göngu-
stíga. Þá er gert ráð fyrir
420 til 480 börnum á aldr-
inum 2–5 ára og er áformað
að byggja fjóra leikskóla,
einn við hvern grunnskóla
auk eins leikskóla efst á holt-
inu.
Íþróttasvæði verður á flat-
lendinu sunnan Garðaholts,
eða svokallaðri Dysjamýri, í
tengslum við miðsvæði
byggðarinnar. Þar verður
jafnframt komið fyrir fram-
haldsskóla. Ætla höfundar að
auk þess verði þar rými fyrir
fullkomna íþróttamiðstöð
með stóru íþróttahúsi,
keppnisleikvangi og æf-
ingavöllum. Þá hafa höfundar
gert ráð fyrir hjúkr-
unarheimili og aðliggjandi
íbúðum fyrir aldraða á há-
holtinu.
Gott að búa
án einkabíls
Í kaflanum um göngustíga,
umhverfi og útivist segir að
hverfið sé í öllum meg-
indráttum hannað út frá
þeirri grundvallarhugsun að
þar verði auðvelt og hvetj-
andi að búa án einkabílsins.
Almenningsvagnaleiðir verði
greinilegar, auðeknar og í
nálægð við íbúa hverfisins og
er tenging hinnar nýju
byggðar við grænu svæðin,
hraunið og ströndina snar
þáttur í lausn skipulagsins.
„Í samræmi við þessa hug-
mynd er rík áhersla lögð á
göngu- og hjólreiðastíga sem
innra æðakerfi með almenn-
ingsvagna sem tengilið,“ seg-
ir í greinargerðinni. Eiga
göngu- og hjólreiðastígar að
vera auðveldir yfirferðar fyr-
ir börn jafnt sem aldraða og
fatlaða.
Þá er lögð áhersla á græna
strengi með göngustígum,
grenndarvöllum og leik-
svæðum milli hverfiseininga.
„Þar tengjast göngustígar
húsagatnanna og aðliggjandi
göngustígar grænu svæð-
anna. Stígakerfið innan
hverfisins verði góður val-
kostur fyrir íbúana til göngu
og hjólreiða milli hverf-
ishluta, í skóla og þjón-
ustukjarna, til íþróttasvæðis
og jafnvel sundlaugar sem og
að aðliggjandi bæjarhlutum í
Garðabæ, Bessastaðahreppi
og Hafnarfirði. Meginstígar
og áningarstaðir verði vel
lýstir og útbúnir upplýs-
ingum um jarðfræði, náttúru
og dýralíf og nýtist jafnframt
sem trimmbrautir fyrir bæj-
arbúa.“ Þegar litið er á um-
ferðar- og gatnakerfi kemur í
ljós að gert er ráð fyrir að
Vífilsstaðavegur liggi sem
tengibraut inn að byggðinni
og verður hann aðaltenging
við aðra hluta Garðabæjar.
Endar hann við spor-
öskjulaga hringveg í miðju
hverfisins, sem tengir saman
allar aðalgötur hverfisins og
myndar því eins konar að-
algötu þessa nýja bæj-
arhluta.
Frá hringveginum liggja
þrjár aðaltengingar í gegnum
bæjarhlutann. Ein þeirra
liggur til norðurs að Álfta-
nesvegi sem tenging við
Bessastaðahrepp en önnur
liggur að hraunjaðrinum til
suðurs sem möguleg tenging
við miðbæ Hafnarfjarðar.
Þriðji leggurinn liggur í
gegnum hverfið til norðaust-
urs sem tenging út á Hliðs-
nes. Auk þess liggja tveir
leggir til suðurs um mið-
kjarna byggðarinnar.
Safngöturnar tengjast
sjálfstæðum húsagötum og
segir í greinargerðinni að öll
útfærsla gatna, sem kvíslast
inn í hverfið, sé hugsuð þann-
ig, að ljóst sé að komið er inn
í íbúðahverfi þar sem bílnum
er ekki ætlaður forgangur.
„Því er hver hverfiseining
sjálfstæð grein umlukin
grænu svæði án gegnumakst-
urs (30 km svæði) vegna um-
ferðaröryggis.“
Fornminjar hafa áhrif
Fram kemur í grein-
argerðinni að samhliða skipu-
lagsvinnunni hafi farið fram
ítarleg fornleifaskráning á
svæðinu á vegum Þjóðminja-
safns Íslands en vitað var að
á suðurhluta holtsins, þar
sem nú er byggð, væru
merki um minjar frá fyrri
öldum byggðar í Garðahverfi.
„Upphafleg skráning hljóðaði
upp á um 50 skráning-
arnúmer en eru nú á loka-
stigum úrvinnslunnar nær
500,“ segir í greinargerðinni.
„Það er því ljóst að fornleifar
á þessu svæði sem nær ein-
göngu eru vestan megin á
holtinu, umhverfis og innan
um núverandi byggð, eiga
eftir að hafa einhver áhrif á
útfærslu skipulags og byggð-
ar á svæðinu.“ Segir að við
nánari skipulagningu verði
síðan lögð áhersla á varð-
veislu þeirra minja, sem
merkilegastar teljast.
Að sögn Bergljótar S. Ein-
arsdóttur, skipulagsfulltrúa
Garðabæjar, er áætlað að
uppbygging svæðisins hefjist
á árunum 2005–2006.
Um 8.000
manna hverfi
á suðurhluta
Álftaness
Ljósmynd/Emil Þór
Horft til suðurs yfir skipulagssvæðið en gert er ráð fyrir að Vífilsstaðavegur liggi nær ströndinni austan megin á nesinu.
Tölvumynd/Hallgrímur Sigurðsson
Horft til norðurs yfir skipulagssvæðið eins og höfundar sjá það fyrir sér. Ráðgert er að
hæsta og þéttasta byggðin verði efst en að hún lækki og gisni eftir því sem neðar dregur.
Morgunblaðið/Sverrir
Rammaskipulag nýja borgarhlutans var kynnt í samkomuhúsinu Garðaholti í gær en það
mun marka miðbæ hverfisins ásamt Garðakirkju. Sýndi fólk skipulaginu mikinn áhuga
enda óhætt að segja að það muni breyta bæjarmynd Garðabæjar verulega.
Garðabær
Rammaskipulag Garðaholts
kynnt almenningi í gær