Morgunblaðið - 13.03.2002, Page 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 15
Samvera eldri borgara verður
í Glerárkirkju
fimmtudaginn 14. mars kl. 15:00
Gestir samverunnar eru séra Hulda Hrönn Helgadóttir og
Alda Ingibergsdóttir sópransöngkona sem syngur nokkur
lög. Samveran hefst með helgistund í kirkjunni og boðið
verður upp á veitingar á vægu verði.
Allir velkomnir.
Vinafundur
eldri borgara
einn
lítri
Málið er
Pepsi
í nýjum
umbúðum
1L
skiptir máli
Rétta stærðin
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
LG
1
70
81
03
/2
00
2
Norðlæg lönd
Þverfagleg samstarfsráðstefna með Manitobaháskóla
Skúli Skúlason og Þorsteinn Gunnarsson: Ávörp.
David Arnason: Birtingarmyndir Winnipeg-borgar í menningu, bókmenntum, arkitektúr og listum.
Timothy Schroeder: Evrópskir og norður-amerískir straumar sem mætast í heimspeki.
Haraldur Bessason: Hollusta við menningararfleifð og fræðimennsku.
Kristín M. Jóhannsdóttir: Búferlaflutningar og afdrif íslenskra drauga og forynja í Vesturheimi.
Christopher G. Trott: Nýjar hliðar á starfi Vilhjálms Stefánssonar.
Harold Bjarnason: Möguleikar á samstarfi milli Íslands og Kanada í bú- og matvælafræðum.
Guðrún Helgadóttir: Ferðaþjónusta í dreifbýli í ljósi byggðaþróunar.
Gunnar Valdimarsson: Nýjungar í rannsóknum á erfðafræði zebrafiska.
Helgi Thorarensen: Þróun fiskeldis á Íslandi.
Joan Larsen: Grænland sem dæmi um viðkvæmt hagkerfi vegna smæðar og fábreytni.
Ingi Rúnar Eðvarðsson: Mannauðgun dreifbýlis með háskóla- og fjarmenntun.
Nánari upplýsingar má finna á: www.unak.is og www.holar.is
Ráðstefnan verður haldin í Háskólanum á Akureyri,
Sólborg 15. mars, kl. 9 - 16.
Hún er ókeypis og öllum opin.
LEÓ Sigurðsson fyrr-
verandi útgerðarmað-
ur á Akureyri lést á
hjúkrunarheimilinu
Seli laugardaginn 9.
mars sl. Leó fæddist 7.
júlí 1911 á Akureyri og
bjó þar alla tíð. Hann
var næstyngstur fjög-
urra systkina. Foreldr-
ar hans voru Sigurður
Bjarnason og Anna
Jósepsdóttir.
Leó var þekktur út-
gerðarmaður á Akur-
eyri en hann hóf feril
sinn hjá föður sínum
eftir gagnfræðapróf, sem gerði út
fjögur skip á þeim tíma, Súluna EA,
Kolbrúnu EA, Val EA og Kolbein
unga EA. Leó tók við útgerð föður
síns eftir andlát hans 1939. Leó
gerði út tvö skip, Súluna og Kol-
brúnu, þar til Kolbrún fórst á
Húnaflóa 1944. Eftir það gerði hann
út Súluna en hún fórst út af
Reykjanesi í apríl 1963.
Árið eftir keypti Leó nýtt skip
frá Noregi, sem fékk
nafnið Súlan og 1958
keypti hann lítinn tog-
ara frá Austur-Þýska-
landi, sem bar nafnið
Sigurður Bjarnason
EA og gerði hann út
til ársins 1975. Skipa-
stóllinn var endurnýj-
aður árið 1964 þegar
Leó keypti nýja Súlu
og svo aftur árið 1967,
þegar núverandi Súla
var keypt. Það er
sama skip og sonur
hans Sverrir og Bjarni
Bjarnason skipstjóri
keyptu af Leó 1988 og gera út í
dag.
Leó starfaði jafnframt að hags-
munamálum útvegsmanna og átti
m.a. sæti í stjórn Útvegsmanna-
félags Norðurlands um tíma. Eig-
inkona Leós var Lára Pálsdóttir og
eignuðust þau sex börn. Lára lést
árið 1986. Útför Leós Sigurðssonar
fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 15. mars kl. 13.30.
Andlát
LEÓ SIGURÐSSON
GUÐMUNDUR Jóhannsson, for-
maður umhverfisráðs Akureyrar,
mótmælir því að tillaga að deili-
skipulagi við Lindasíðu hafi verið
algerlega unnin út frá forsendum
verktaka, sem þar hefur fengið út-
hlutað byggingareit fyrir íbúðar-
húsnæði. Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í síðustu viku mótmælir
sóknarnefnd Lögmannshlíðarsókn-
ar harðlega hinni auglýstu deili-
skipulagstillögu og telur jafnframt
að hún sé gerð eftir pöntun tiltek-
ins verktaka.
Sóknarnefndin telur eðlilegra að
hafa einnar hæðar hús á báðum
byggingareitunum og mörk íbúð-
arsvæðisins fjær Glerárkirkju.
Sóknarnefndin vill að hús næst
kirkjunni verði einnar hæðar og
þess gætt að hús fari ekki eins
nærri miðási kirkjunnar og í skipu-
lagstillögunni.
SS Byggir hefur fengið úthlutað
umræddu byggingarsvæði og ætlar
að byggja þar 37 raðhúsaíbúðir á
einni og tveimur hæðum. Siguður
Sigurðsson, framkvæmdastjóri SS
Byggis, sagði að sér fyndist illa að
fyrirtæki sínu vegið. „Ég hefði kos-
ið að sóknarnefndin hefði kynnt sér
þau gögn sem verktakar fengu þeg-
ar svæðið var auglýst til umsóknar
og því úthlutað. Ég sótti um svæðið
eins og fleiri og hef alls ekki verið
með neinn þrýsting vegna deili-
skipulagsins. Það komu hönnuðir að
sunnan til að skoða og mynda um-
rætt svæði og ég óskaði eftir því að
þeir kæmu með skemmtilega tillögu
að nýtingu þess, sem uppfyllti óskir
umhverfisnefndar. Þannig að ég tel
að við höfum unnið eftir þeirri for-
skrift sem bærinn lagði til vegna
nýtingar svæðisins,“ sagði Sigurð-
ur.
Í bókun frá síðasta fundi um-
hverfisráð vegna athugasemda
sóknarnefndar kemur m.a. fram að
svæði það sem tillagan fjallar um
var skilgreint sem miðsvæði allt frá
staðfestingu aðalskipulags 1990–
2010 og þar til landnotkun var
breytt í íbúðarhúsnæði á sl. ári. Sú
breyting að gera reitinn að íbúð-
arsvæði með einnar og tveggja
hæða húsum, þýði að byggðin verði
öll lægri en gera hefði mátt ráð fyr-
ir samkvæmt aðalskipulagi sem gilt
hafði frá árinu 1990. Því hljóti þessi
breyting ein og sér að teljast stórt
skref til móts við það sjónarmið
sem fram kemur í bréfi sóknar-
nefndar frá sl. sumri, að Glerár-
kirkja fái notið sín sem best. Hins
vegar harmar umhverfisráð að bréfi
sóknarnefndar hafi ekki verið svar-
að formlega.
Glerárkirkja njóti sín
í bæjarmyndinni
Umhverfisráð bendir jafnframt á
að suðurmörkk svæðisins séu enn
þau sömu og meðan það var skil-
greint sem miðsvæði. Einnig að
eldri deiliskipulagstillögur sem
sóknarnefnd vísi til og fólu í sér
hugmyndir um að ekki yrði byggt á
tilteknum geira við miðás kirkjunn-
ar, þ.e. í SA-horni reitsins, hafi ekki
náð fram að ganga og séu því ekki
skuldbindandi á neinn hátt.
Umhverfisráð telur að með því að
byggðin verði ekki hærri en tvær
hæðir, hvergi nema ein hæð næst
Hlíðarbraut, sé tryggt að Glerár-
kirkju njóti sín í bæjarmyndinni
eins og verðugt er.
Tveir byggingareitir eru á svæð-
inu milli Hlíðarbrautar og Lindas-
íðu, sem SS Byggir og Hyrna fengu
úthlutað. Sem fyrr segir ætlar SS
Byggir að byggja þar 37 íbúðir í
raðhúsum á einni og tveimur hæð-
um og Hyrna 22 raðhúsaíbúðir á
einni hæð.
SS Byggir vill koma að uppbygg-
ingu útivistarsvæðisins
Innan marka skipulagsins er
einnig opið svæði meðfram Hlíð-
arbraut með hljóðmön næst lóð-
unum. Sigurður Sigurðsson sagði
að hjá SS Byggi væri mikill áhugi
fyrir uppbyggingu opna svæðisins.
„Við höfum látið teikna þar frum-
tillögu að útivistarsvæði, með
gönguleiðum, sparkvelli og sleða-
brekkum. Fyrirtækið hefur leitað
eftir viðræðum við bæjaryfirvöld og
lýst yfir áhuga á að koma að upp-
byggingu útivistarsvæðis og er
tilbúið að leggja fjármagn í það
verkefni,“ sagði Sigurður.
Deiliskipulag við Lindasíðu ekki eftir pöntun verktakans
Sóknarnefndin hefði
betur kynnt sér gögnin
sem verktakar fengu
NORRÆNA félagið á Akureyri
stendur fyrir fræðslukvöldum
um Færeyjar og verður hið
fyrsta í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 13. mars, og einnig ann-
að kvöld, fimmtudagskvöldið 14.
mars. Þá verða fræðslukvöldin
einnig í næstu viku, 20. og 21.
mars og standa þau frá kl. 19.30
til 21. Fræðslukvöldin verða
haldin í H1 í Hólum, Mennta-
skólanum á Akureyri. Á dag-
skrá verður almenn landafræði
Færeyja, myndir og kort, saga
Færeyja og Færeyingasaga,
tunga, bókmenntir, fornkvæði,
dansar, lífríki Færeyja, fiskveið-
ar og grindhvaladráp. Leiðbein-
andi á námskeiðinu er Jónas
Helgason, menntaskólakennari.
Þátttökugjald er 2.000 krón-
ur.
Skráning á staðnum eða hjá
Norrænu upplýsingaskrifstof-
unni.
Fræðslu-
kvöld um
Færeyjar