Morgunblaðið - 13.03.2002, Side 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 19
HAGNAÐUR Húsasmiðjunnar hf. á
árinu 2001 nam 186,4 milljónum
króna, en hann nam 317,9 milljónum
króna árið áður. Gengistap vegna
skuldbindinga félagsins í erlendum
myntum nam 414,6 milljónum króna
á árinu 2001.
Laun og launatengd gjöld námu
1597,1 milljón króna, eða 17,7% af
sölutekjum samanborið við 18,2% á
árinu 2000. Annar rekstrarkostnað-
ur nam 1.072 milljónum króna, eða
11,9% af sölutekjum samanborið við
9,8% árið 2000. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsgjöld var 863
milljónir króna, eða 9,6% af sölu-
tekjum.
Í uppgjörinu er varúðarniður-
færsla viðskiptakrafna aukin um 63
milljónir króna frá 31.12. 2000 og
nam upphæð hennar í lok tímabilsins
130 milljónir króna. Á árinu voru af-
skrifaðar viðskiptakröfur að upphæð
30,3 milljónir króna. Fjármuna-
tekjur námu 512,9 milljónum króna
og fjármagnsgjöld 581,2 milljónum.
Heildarupphæð gengistaps og verð-
bóta á árinu var um 570 milljónir
króna. Hrein fjármagnsgjöld á árinu
námu um 457,5 milljónum króna en
þau námu 158,7 milljónum króna á
árinu 2000. Í uppgjörinu er tekju-
færð um 152,1 milljón króna vegna
lækkunar tekjuskattsskuldbinding-
ar samfara lækkun tekjuskatts úr
30% í 18% um síðastliðin áramót.
Húsasmiðjan hf. keypti allt
hlutafé Áltaks ehf. undir lok ársins
2001. Af þeim sökum er ekki tekið
tillit til rekstrar Áltaks ehf. í rekstr-
arreikningi Húsasmiðjunnar hf. fyr-
ir árið 2001. Efnahagsreikningur Ál-
taks ehf. kemur hins vegar fram að
fullu.
Í rekstraráætlun Húsasmiðjunnar
hf. fyrir árið 2002 er gert ráð fyrir að
velta núverandi sölueininga verði því
sem næst óbreytt milli ára. Þetta er í
samræmi við hugmyndir forsvars-
manna fyrirtækja í byggingariðnaði
varðandi umsvif þessa árs og m.a.
hafa komið fram í nýlegri könnun
Vinnumálastofnunar. Rekstrartekj-
ur ársins 2002 eru áætlaðar um 9.700
milljónir króna og skýrist aukin
velta nær eingöngu með nýjum sölu-
einingum. Hagnaður fyrir afskriftir
er áætlaður um 950 milljónir króna
og hagnaður eftir skatta um 450
milljónir króna. Aðalfundur félags-
ins verður haldinn hinn 20. mars
2002. Stjórn félagsins mun leggja til
á fundinum að arðgreiðsla nemi 20%
af nafnvirði hlutafjár.
Húsasmiðjan hf.
með 186,4
milljóna hagnað
3
3
4
!
$ !
%&
!5
$
/((,
)..)
""
--.
+*,.
!
+*(1
-.,(
,0.(
)./
-*'
1)6/2
-6*
!
"
"
""
"
"
"
#
$ % $ % $ %
#
#
HAGNAÐUR VÍS nam 684 milljón-
um króna á árinu 2001. Í tilkynningu
frá félaginu segir að rekstur þess
hafi gengið vel á árinu og að tölu-
verður bati hafi orðið í trygginga-
rekstrinum frá fyrra ári. Einnig gæti
í niðurstöðunni áhrifa góðrar afkomu
hlutdeildarfélaga.
Heildareignir VÍS í lok ársins
2001 námu 22.514 milljónum króna
og bókfært eigið fé var 4.090 millj-
ónir. Hafði það hækkað um 845 millj-
ónir frá fyrra ári eða um 26%.
Í tilkynningunni kemur fram að
stefnt sé að skráningu VÍS á Verð-
bréfaþingi Íslands á þessu ári.
Bókfærð iðgjöld VÍS hækkuðu um
20% frá fyrra ári og námu 7.033
milljónum króna, en eigin iðgjöld
hækkuðu um 26% og námu samtals
5.730 milljónum króna.
Iðgjaldahækkanir félagsins í öku-
tækjatryggingum, sem kynntar voru
á árinu 2000, komu fyrst að fullu
fram í tekjum þess frá og með sept-
ember 2001. Í tilkynningunni segir
að iðgjaldabreytingar á árinu 2001
hafi aðallega verið hækkanir á eigna-
tryggingum vegna slæmrar tjóna-
reynslu og hækkunar kostnaðar við
erlendar endurtryggingar í kjölfar
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum
11. september.
Eigin tjón VÍS hækkuðu um 17%
frá fyrra ári og námu 5.944 milljón-
um króna. Segir í tilkynningunni að
tjónaþróun í ökutækjatryggingum,
sem sé stærsti flokkur trygginga fé-
lagsins, hafi verið hagstæð á fyrri
hluta ársins en ekki haldist og að af-
koman hafi versnað aftur á síðari
árshelmingi. Tjónahlutfall félagsins
fyrir árið í heild hafi orðið þónokkuð
hagstæðara en árið á undan þrátt
fyrir þessa þróun og óvenju mikinn
tjónaþunga bæði í frjálsum ábyrgð-
artryggingum og slysatryggingum.
Samtals nam hagnaður af vá-
tryggingarekstri 229 milljónum
króna en 163 milljóna tap varð af vá-
tryggingarekstrinum árið 2000.
Fjárfestingartekjur félagsins
námu 2.204 milljónum. Hagnaður af
fjármálarekstri nam 365 milljónum
eftir að 1.611 milljónir hafi verið
færðar til tekna á vátryggingarekst-
urinn en þessi tekjufærsla nam 1.367
milljónum króna árið 2000.
Skráning á VÞÍ
VÍS jók eignarhluta sinn í Líf-
tryggingafélagi Íslands hf. á árinu í
25%, en félögin hafa haft náið sam-
starf um rekstur og þjónustu frá
stofnun Líftryggingafélagsins.
Í samræmi við yfirlýsta stefnu fé-
lagsins um opnun og skráningu
hlutabréfa þess á markaði, fór fram
útboð og sala hlutabréfa þess til
starfsmanna undir lok síðasta árs.
Þá seldi Landsbanki Íslands af sín-
um hlut í félaginu til starfsmanna
bankans. Nýir hluthafar voru 569
talsins og keyptu þeir um 2,2% eign-
arhlut í félaginu í þessum útboðum.
Þá hafa verið gerðir kaupréttar-
samningar við meginþorra starfs-
manna félagsins, sem kveða á um
rétt þeirra til kaupa á hlutabréfum í
félaginu árin 2002–2004. Með fyrr-
greindum kaupum og kaupréttar-
samningum er gert ráð fyrir að
starfsmenn geti eignast samtals um
5% hlut í VÍS fyrir lok árs 2004.
Stefnt er að því að fyrir mitt ár
2002 selji stærstu hluthafar félags-
ins af hlut sínum til fagfjárfesta til að
tryggja meiri dreifingu hlutafjár og
að sótt verði um skráningu hluta-
bréfa félagsins á Verðbréfaþingi Ís-
lands.
Hagnaður VÍS 684 milljónir kr.
RANNSÓKNAR- og ráðgjafafyr-
irtækið IMG hefur ákveðið að
kaupa rekstur Telmar á Íslandi,
sem áður var í höndum auglýs-
ingastofunnar Yddu. Telmar er
sérhæfður hugbúnaður sem not-
aður er við gerð birtinga- og aug-
lýsingaáætlana og greiningar á
ýmsum könnunum. Telmar verður
notaður í tengslum við kannanir og
gagnagrunna Gallups sem er hluti
af IMG.
Þjónusta IMG felst meðal annars
í að veita auglýsingastofum, fjöl-
miðlum og fyrirtækjum á almenn-
um markaði ráðgjöf og lausnir sem
byggjast á ýmiskonar greiningum.
Að sögn Skúla Gunnsteinssonar,
framkvæmdastjóra IMG, eru kaup-
in á Telmar liður í þeirri viðleitni
að styrkja þessa þjónustu enn frek-
ar, enda hafi þessi hugbúnaður og
sú þjónusta sem Ydda hefur veitt
undanfarin ár sannað gildi sitt hér
á landi.
Ydda, sem nýverið sameinaðist
Nonna & Manna, varð fyrsta ís-
lenska markaðsfyrirtækið til að
bjóða greiningarþjónustu á borð
við þá sem unnin er með Telmar, og
í gegnum tíðina hafa allar stærstu
auglýsingastofur og fjölmiðlar
landsins nýtt sér þá þjónustu.
„Markaðurinn hefur þróast
þannig að nú er tímabært fyrir
okkur að láta þessa þjónustu frá
okkur í hendur sérhæfðs aðila á
borð við IMG, sem þjónað getur
bæði auglýsingastofum og öðrum
sem vilja nýta sér kosti Telmar-
kerfisins,“ segir Hallur Baldursson,
annar af framkvæmdastjórum
Nonna & Manna/Yddu.
Hallur Baldursson hjá Nonna &
Manna/Yddu og Skúli Gunnsteins-
son, framkvæmdastjóri IMG.
IMG kaupir
Telmar
á Íslandi
Skráning þingvíxla á Verðbréfaþing Íslands
Gefnir verða út allt að 12 flokkar, þar sem hver flokkur er til 6 mánaða í
senn, í fyrsta sinn 10. janúar 2002. Heildarnafnverð útgefinna flokka
ræðst af markaðsaðstæðum. Stærð flokkanna verður á bilinu
0-1.000.000.000.
Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH), kt. 610269-5599, Strandgötu 8-10,
220 Hafnarfirði.
Verðbréfaþing Íslands hefur samþykkt að taka útgefna víxla á skrá
þingsins þann 18. mars 2002, enda uppfylli þeir öll skilyrði skráningar.
Útgáfa hvers flokks verður tilkynnt á VÞÍ hverju sinni.
Ávöxtunarkrafa ákvarðast af markaðsaðstæðum á fyrsta söludegi.
Víxlarnir eru seldir gegn staðgreiðslu í 5.000.000 og 10.000.000 kr.
einingum.
Sparisjóður Hafnarfjarðar, kt. 610269-5599,
Kringlunni 6, 103 Reykjavík.
Nafnverð útgáfu
og lánstími:
Útgefandi:
Skráningardagur
á VÞÍ:
Ávoxtunarkrafa á
söludegi:
Skilmálar:
Umsjón með
skráningu: