Morgunblaðið - 13.03.2002, Síða 21
GARRÍ Kasparov sigraði á Lin-
ares-skákmótinu á Spáni í sjötta
sinn. Vann hann skák sína við Alex-
ei Shirov í síðustu umferðinni á
sunnudag en þurfti þó ekki sigur til
því að FIDE-heimsmeistarinn
Rúslan Ponomaríov og Viswansat-
han Anand gerðu jafntefli fyrr um
daginn.
Í skákinni við Shirov bar það til
tíðinda, að Kasparov, sem hafði
svart, beitti ekki Najdorf-afbrigðinu
af Sikileyjarvörn eins og hann er
annars kunnur fyrir, heldur
Sveshnikov-afbrigðinu. Hefur hann
ekki áður beitt því á sterku móti.
Shirov svaraði með peðsfórn í 15.
leik og upp kom mjög flókin staða.
Skákskýrendur voru þó sammála
um, að Shirov hefði ekki fengið
nægar bætur fyrir peðið. Í fram-
haldinu urðu mikil uppskipti og
Shirov gafst síðan upp í 29. leik.
Þetta var fyrsta skákin í mótinu,
sem unnist hefur á svart.
Lokastaðan í mótinu var sú, að
Kasparov fékk átta vinninga, Pon-
omaríov 6,5, Adams, Anand og Ív-
antsjúk sex, Vallejo fimm og Shirov
4,5.
Linares-mótið hefur borið höfuð
og herðar yfir önnur skákmót sl. 15
ár og er oft kallað „Wimbledon
skákarinnar“.
Linares-skákmótið
Kasparov
sigraði í
sjötta sinn
Linares. AP.
♦ ♦ ♦
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2002 21
FYRRVERANDI embættismaður
í japanska utanríkisráðuneytinu,
Katsutoshi Matsuo, var í gær
dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi
fyrir að draga sér alls 506 millj-
ónir jena af opinberu fé (um 400
milljónir króna). Matsuo er 56 ára
og var fundinn sekur í undirrétti í
Tókýó um að hafa stungið fénu
undan úr leynilegum, opinberum
sjóði með því að ýkja hótelreikn-
inga vegna 14 utanlandsferða jap-
anskra forsætisráðherra á árunum
1997 til 1999.
Matsuo hafði heimild til að taka
sjálfur ákvarðanir um útgjöld, þar
sem hann stjórnaði skipulagningu
aðfangaöflunar vegna ferðanna.
Sjóðnum er ætlað að tryggja að
heimsóknir japanskra forsætisráð-
herra og annarra fyrirmenna
gangi snurðulaust. Einnig er sjóð-
urinn ætlaður til útgjalda vegna
leyniþjónustu.
Matsuo hefur þegar viðurkennt
sekt sína og beðist opinberlega af-
sökunar á glæpnum. Hann notaði
peningana til að lifa hátt, hélt 14
kappreiðahesta, átti fimm segl-
skútur, glæsiíbúð í Tókýó, jós gjöf-
um yfir hjákonur og var félagi í
nokkrum golfklúbbum, sem er
mikils metið í Japan.
Fjárdráttur Matsuos er aðeins
eitt af mörgum hneykslismálum er
komið hafa upp í utanríkisráðu-
neytinu og hrint af stað átaki til að
breyta skipulaginu er ríkti í ráðu-
neytinu, sem sagt er að hafi ein-
kennst af hroka og misnotkun á
opinberu fé í ráðherratíð fyrrver-
andi utanríkisráðherra, Makiko
Tanaka, en hún lét af embætti í
janúarlok.
Þegar dómurinn yfir Matsuo
hafði verið kveðinn upp í gær
hneigði hann sig djúpt fyrir dóm-
aranum og þakkaði dómstólnum.
Síðan sneri hann sér að áheyr-
endum og baðst afsökunar.
Sjö ára
fangelsi
fyrir fjár-
drátt
Tókýó. AFP.
UM 815 milljónir manna þjást
af hungri og vannæringu í
heiminum, aðallega í vanþróuð-
um löndum. Kom það fram hjá
Jacques Diouf, yfirmanni Mat-
vælastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, FAO, á svæðisráð-
stefnu í Teheran í Íran. Sagði
hann, að ástandið hefði skánað
sums staðar, til dæmis í Austur-
Asíu, en versnað annars staðar
eins og í Afríku sunnan Sahara,
í Mið-Ameríku og á Karíbahafs-
eyjum.
Diouf sagði, að á svæðinu frá
Marokkó til Pakistans, í 29
löndum, hefði landbúnaðar-
framleiðsla minnkað um 0,8%,
meðal annars vegna þurrka en
einnig vegna ókyrrðar og átaka
og vegna mistaka stjórnvalda.
Af þessum sökum neyddust rík-
in til að flytja inn mikið af mat-
vælum en heildarinnflutningur
þeirra er um 3.000 milljarðar
ísl. kr. árlega eða sem svarar til
þrefalds útflutnings frá svæð-
inu. Diouf sagði, að það, sem al-
varlegast væri í Miðausturlönd-
um væri mikill og vaxandi
vatnsskortur.
Rolex-ræn-
ingjar í
ævilangt
fangelsi
TVEIR menn hafa verið dæmd-
ir í lífstíðarfangelsi í Bretlandi
fyrir að myrða eiginkonu sikil-
eysks auðkýfings. Höfðu þeir
ágirnd á Rolex-úri hennar og
mannsins hennar og eltu þau
hjónin frá Harrod’s-versluninni
í London til heimilis þeirra. Þar
réðust þeir á þau, skutu konuna
og særðu börn þeirra tvö, dreng
og stúlku, er þau komu út úr
húsinu til að sjá hvað um væri
að vera. Mennirnir komust yfir
bæði Rolex-úrin en hafa nú ver-
ið dæmdir í fimmfalt og þrefalt
ævilangt fangelsi.
Ryanair
í vondum
málum
RYANAIR-flugfélagið, sem
þekkt er fyrir lág fargjöld, not-
ar flugvelli, sem oft eru langt
frá auglýstum áfangastað, og
einn þeirra er alls ekki í réttu
landi. Kom þetta fram í
„Holiday Which?“, ferðamála-
tímariti bresku neytendasam-
takanna, í gær.
Sem dæmi er nefnt, að Forli-
flugvöllur í Bologna á Ítalíu er
alls ekki í Bologna, heldur í
litlum bæ í 60 km fjarlægð.
Þeir, sem fara með Ryanair til
Kaupmannahafnar, lenda alls
ekki þar og ekki einu sinni í
Danmörku, heldur í Málm-
haugum í Svíþjóð. Þýska flug-
félagið Lufthansa á nú í mála-
ferlum við Ryanair vegna þess,
að það hefur borið saman far-
gjöld flugfélaganna milli Lond-
on, það er að segja Stansted, og
Frankfurt, þótt það fljúgi alls
ekki til Frankfurt, heldur til
Hahn-flugvallar, sem er í 100
km fjarlægð. Go-flugfélagið
hefur nýtt sér þessa uppákomu
með Ryanair og auglýsir nú
grimmt, að það fljúgi til helstu
flughafna í Evrópu en sé ekki
með „blekkingar“ eins og
Ryanair.
STUTT
815 millj.
manna
svelta
ALLT að 11 milljónir barna í heim-
inum deyja árlega af völdum sjúk-
dóma sem hægt væri að lækna, að því
er fram kemur á ráðstefnu sérfræð-
inga í heilbrigðismálum er hófst í
Stokkhólmi í gær. Leita þurfi leiða til
að koma lyfjum og öðrum gögnum til
„þeirra yngstu og fátækustu“. Ráð-
stefnan er skipulögð af Alþjóða heil-
brigðismálastofnuninni (WHO) og
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF).
Samkvæmt upplýsingum þessara
stofnana eru lungnabólga, niðurgang-
ur, malaría, mislingar, HIV/alnæmi
og næringarskortur algengustu dán-
arorsakirnar meðal barna í heimin-
um, og mætti í langflestum tilfellum
rekja til fátæktar. Á ráðstefnunni
verður megináherslan lögð á heilsu-
gæslu fyrir nýfædd börn sem deyja
innan við viku eftir að þau koma í
heiminn, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
„Af þeim ellefu milljónum sem
deyja eru átta milljónir ungbörn,“
sagði framkvæmdastjóri WHO, Gro
Harlem Brundtland. „Þessi dauðsföll
hefði mátt koma í veg fyrir … þau
voru ekki óhjákvæmileg.“ Í tilkynn-
ingu frá WHO og UNICEF segir, að
þekking og lyf séu fyrir hendi, en
skortur sé á pólitískum vilja og fram-
kvæmdum, og einnig vanti aðstoð við
samfélög og fjölskyldur til að vinna
bug á heilbrigðisvandamálum.
Bjarga mætti lífi um
ellefu milljóna barna
Stokkhólmi. AP.
Reuters
Læknir bólusetur barn í Afgan-
istan við lömunarveiki.
Verið viðbúin
Kringlukast hefst á morgun, fimmtudaginn
14. mars, og lýkur á sunnudaginn 17.
mars. Á Kringlu -
kasti veita
verslanir og
þjónustu -
aðilar 20 til
50% afslátt
af nýjum
vörum.
Kringlukast er
orðinn rótgróinn
þáttur í daglegu
lífi neytenda
enda margir sem
koma í Kringluna
þessa daga í þeim
tilgangi að gera
góð kaup. Á
sunnu daginn
lýkur
Kringlu -
kasti
með
uppboði
sem hefst
kl. 14.00.
Þá gefst fólki
tækifæri til að
bjóða í ákveðna hluti
sem eru á uppboðinu og
tilgreindir eru í Kringlu -
kasts blaðinu sem dreift er
í 82.000 hús í dag.
Uppboðið var fyrst haldið í október á
síðasta ári og voru undirtektir fólks
með því móti að ákveðið var að halda
því áfram á þessu Kringlukasti. Á
meðal þess sem má bjóða í eru
stórglæsileg hjól af ýmsum
gerðum, utanlandsferðir til
Evrópu, sjónvarp, tölva, DVD-
spilari, GSM-símar,
leikhúsmiðar, náttföt,
klippingar og
svo mætti
lengi telja.
Upp -
boðs -
hald ari
er "sá
spar -
sami" úr
Spaug -
stofunni og
má því búast við
uppboði á léttu
nótun um.
Afgreiðslutími þessa daga
er sem hér segir:
fimmtudag frá 10-21,
föstudag frá 10-19, laugardag
frá 10-18 og sunnudag frá
13-17.
Verið viðbúin Kringlu kastinu
og takið ykkur strax stöðu við
ráslínuna.
hefst á morgun